Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1992, Blaðsíða 12
12
I:r,\ • ! • I íC 17
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1992.
Spumingin
Hvaða þýðingu hefur
öskudagurinn fyrir þig?
Árdís Sigmundsdóttir nemi: Akkúrat
enga fyrir mig en kánnski einhveria
fyrir sex ára gamlan son minn.
Sveinbjörn Sveinbjömsson ellilífeyr-
isþ.: Ekki nokkra einustu, það er hins
vegar sagt að öskudagurinn eigi sér
18 bræður í veðráttu.
Tjörvi Hrafnkelsson nemi: Ákaílega
litla, hann fer yfirleitt gjörsamlega
framhjá mér.
Magni Þór Birgisson nemi: Ég fæ frí
í skólanum og ætla því að keppa á
skíðum í Bláfjölium.
Árni Ragnar Árnason, atvinnul.:
Þetta er skemmtidagur og tiivalinn
til að njóta lífsins því það er frí í
skólum.
Elín Jóhannesdóttir, starfsm. á
Landspítala: Mjög takmarkaða, þetta
er bara einn af þessum dögum.
Lesendur
Verjum Dagsbrún
Guðmundur R. Guðbjarnarson skrif-
ar:
Undanfarin misseri hafa dunið yfir
uppsagnir og atvinnuleysi og færast
nú í vöxt. Þetta er það ástand þegar
siðferðisþrek vill bresta, þegar þeir
sem sökkva sér í ógæfu sinni í alis
kyns vímugjafa eða stökkva á von-
lausan flótta frá ísköldum raunveru-
leikanum. Þær reglur, sem samfélag-
ið setur, verða þeim lítils virði. Þess-
um mönnum verðum við að sýna
gott fordæmi. Það verða allir að
standa sig og það ávinnur sér enginn
rétt til þess að brjóta lög.
í hinum vestræna heimi er það al-
þekkt að villist framámenn í þjóðfé-
lögum út af hinum mjóa vegi dyggð-
arinnar draga þeir sig í hlé, eða þá
að þeim er ýtt til hliðar. Jafnvel fyrir
minnstu yfirsjónir. Þannig hefur
þróast siðgæðismat sem valdamestu
menn verða að beygja sig undir.
Það er því ekki ósanngjöm krafa
til stjórnar Dagsbrúnar að hún sýni
betra fordæmi en hún hefur gert.
Iitum á nokkur afrek stjómarinnar.
- Árið 1990 samþykkti félagsfundur
að sett yrði á stofn fimm manna laga-
nefnd. Formaður hennar er Guð-
mundur J. Guðmundsson. Aðrir í
henni: Þórir Daníelsson, Jóhannes
Guðnason, Leifur Guðjónsson og
Friðrik Ragnarsson. Nefnd þessi átti
að skila áhti fyrir nóvember 1991.
Hún hefur enn ekki komið saman,
fjórum mánuðum eftir að hún átti
að vera búin að skila áliti. - Þarna
hefur fundarsamþykkt verið hunsuð
og lög Dagsbrúnar brotin.
Efla átti félagsstarf Dagsbrúnar-
manna með ýmsum hætti. Nám-
skeið, sem haldin höfðu verið í fram-
sögn og ræðumennsku, vom aflögð
og skákmóti, sem halda átti, var af-
lýst. - Léleg frammistaða það og
slæm fyrirmynd. Fyrir nokkru síðan
var manni frá Verkamannasam-
bandi íslands laumað inn í trúnaðar-
ráð Dagsbrúnar (Snæ Karlssyni), án
þess að hann uppfyllti skilyrði 2., 3.
og 5. greinar Dagsbrúnar. Þetta var
gert með vitund sfjómar. - Annað
svipað átti sér stað í vetur er lögmað-
ur félagsins var skipaður í nefnd fé-
lagsins. Skipun þessi brýtur í bága
við 5. og 38. grein félagsins.
Samkvæmt 32. grein laga Dags-
brúnar skal aðalfundur félagsins
haldinn eigi síðar en 15. febrúar ár
hvert. Þessi grein er brotin árlega.
Svona eru fyrirmyndir félagsmanna
í dag. Þetta geta ekki tahst góð for-
dæmi þeim mönnum sem velkjast í
vafa um hvort þeir eigi að fylgja regl-
um félagsins. - Það er skylda okkar
gagnvart þeim sem illa eru staddir
að leiða þájjl betri vegar. Það verður
að leiðrétta mistök sem gerð hafa
verið, en þá þurfa menn hka að kann-
ast við þau. Ööravísi getur félagið
ekki haldið virðingu sem því ber. -
Verjum rétt okkar, látum engan níð-
ast á félaginu okkar.
Raunhæf ur samanburður
ísak Örn Sigurðsson blaðamaður
skrifar:
Tómas Þór Tómasson, sölustjóri hjá
Úrvah-Útsýn, skrifar í lesendabréfi í
DV í gær athugasemd við Neytenda-
síðugrein undirritaðs á fimmtudeg-
inum í síðustu viku. í grein undirrit-
aðs var birtur samanburður mihi
ferðaskrifstofa og birt tvö súlurit þar
sem annars vegar var birtur saman-
burður á verði íbúöahótels á Santa
Ponsa á Mallorca og hins vegar flug-
og bíl-tilboðum Flugleiða og ferða-
skrifstofanna.
Samanburðurinn reyndist Úrvah-
Útsýn frekar óhagstæður og Tómas,
sem fuhtrúi fyrirtækisins, sér
ástæðu th að gagnrýna samanburð-
inn. í grein hans segir: „Það er alls
ekki ætlun mín að draga á nokkurn
máta úr þeim gististöðum sem Sam-
vinnuferðir-Landsýn bjóða á Santa
Ponsa ... En að bera þá gististaði
saman við „Royal Jardin del Mar“,
sem tilheyrir hinni viðurkenndu
Royal-hótelkeðju, er eins og að bera
saman tvær helgarferðir til íslands
frá útlöndum, annars vegar með gist-
ingu á Hótel Borg og hins vegar á
Hótel Holti, svo að vahn séu dæmi
af handahóíi ... Blaðamanni hefði
veriö í lófa lagið að kanna hvort sam-
anburöur á hótelunum á Mallorca
teldist réttlætanlegur,...“
Tómasi til upplýsingar get ég frætt
hann um að ferðamálayfirvöld á
Spáni hafa mjög nákvæmt og reglu-
legt eftirlit með hótelum og íbúða-
hótelum. Þau eru gæðaflokkuð á
ákveðinn hátt, hótehn með stjömum
og íbúðir eða íbúðahótel með lyklum.
Ef viðkomandi staðir standast ekki
þær kröfur, sem stjörnu- eða lykla-
fjöldi þeirra segir til um, er þeim
miskunnarlaust refsað með stjörnu-
eða lyklasviptingu. Bæði íbúðahótel-
in í samanburðinum fá gæðaflokkinn
3 lyklar. í ferðabækhngum Úrvals-
Útsýnar og Samvinnuferða-Land-
sýnar er upptalning á þvi sem íbúða-
hótehn hafa upp á að bjóða og er þaö
keimlík upptalning. Því er það al-
rangt hjá Tómasi að halda því fram
að ekki sé hægt að bera þessa staði
saman.
Ég á bágt með að skhja hvernig
Tómas getur líkt þessum saman-
burði við samlíkingu á Hótel Borg
og Hótel Holti. Ef eitthvað er léleg
samlíking þá er það þessi samlíking
Tómasar. Ennfremur er athyglisvert
að Tómas sér enga ástæðu th að
agnúast út í samanburð á flug- og
bíl- tilboðum ferðaskrifstofanna, en
sá samanburður var einnig Úrvali-
Útsýn í óhag. Það er ef th vhl vegna
þess að ekkert er við hann að at-
huga, fremur en þann samanburð
sem hér á undan er nefndur.
Núerlag hjá bílasölunum!
Gunnar Ólafsson skrifar:
Ég las frétt í DV um að bhaumboð
nýju bílanna væru yfirfuh af notuð-
um bílum sem rétt mun vera. Ég
hafði sjálfur kannað málið og ætlaði
raunar að ná mér í einn shkan á
góðu verði. Ég sá bíl sem mér leist
vel á. En þegar kom að því að ég
bauð staðgreiðslu gegn ríflegum af-
slætti vandaðist máhð. Ég fékk sem
sé engan afslátt frá uppsettu verði. -
Þetta er ef til vhl skhjanlegt þar sem
Já, bílamarkaðurinn tekur sífelldum breytingum. Nú er lag fyrir kaupendur.
búið er að taka bha þessa upp í nýja,
en afleitt fyrir kaupendur sem viljá
gera góð kaup í notuðum bh.
Ég fór því á bhasölu notaðra bha,
og þar sá ég líka bíl sem mér leist
vel á. Ég bauð í hann ákveðið stað-
greiðsluverð, og eftir nokkurt þóf,
með thboði á báða bóga, fékk ég bíl-
inn á skikkanlegu staðgreiðsluverði.
- Það virðist því sem nú sé lag að ná
í notaða, góða bha hjá bílasölunum
með því að bjóða staðgreiðsluverö. -
Þetta ættu menn að athuga þessa
dagana.
Hringið í síma
632700
milli kl. 14 og 16
-eóa skrifið
ATH.: Nafn og símanr, verður
að fylgja bréfum
Þórður Björnsson hringdi:
Nú heyrum viö, fáfróður alm-
úginn, að forsvarsmenn í at-
vinnurekstri lýsa því fjálglega
yfir að þeir séu alfarið á móti
gengislækkun. Hún leysi engan
vanda, segja þeir. Það sé annað
með raungengið, það verði að
lækka umtalsvert.
Þaö vefst nú fyrh' fleirum en
mér hvaða munur sé á gengis-
lækkun og raungengislækkun.
Ef þetta er eitthvaö „hagfræði-;
legt“þá veriðekkert að eyðatíma
í að skýra það frekar fyrir okkur.
En svona okkar í mhh: Er ekki
bara verið að leita að einhverju
hugtaki sem kemur i staðinnfyr-
ir orðið „gengisfehing"? Er hún
ekki eina „varanlega*- lausnin til
„bráðabirgða"?
menn skrökva?
Pétur Árnason hringdi:
Aíkvajðagreiðsla Matthíasar
Bjamasonar fyrir flokksbróður
siim Áma Johnsen vekur margar
spurningar. Ekki bara að Matthí-
as hafi gerst brotlegur sem þing-
maður heldur hefur Árni Johnsen
orðið ber að ósannindum. Og
spurning hvort þingforseti,
Salome Þorkelsdóttir, er ekki Iíka
orðin ósannindamaður vegna fuh-
yrðingar sínnar um að á þjóðþing-
um Norðurlandanna hafi svona
, atburðir átt sér stað. - Samkvæmt
fréttum frá talsmönnum þjóð-
þinga Noregs og Sviþjóðar a.m.k.
á fuhyrðing forseta Sameinaðs
Alþingis ekki við nein rök aö
styöjast. - Er liægt að treysta ís-
lenskum þingmönnum eftir þetta?
Landakotsmáliö:
Endurráðningar
aðalmálið?
Sigrún Ólafsdóttir hringdi:
Viðræður hafa staðið yflr um
sameiningu Borgarspítala og
Landakotsspítala, og nefhdir set-
iö á rökstólum, starfsfólk haldiö
fundi og gert ályktanir. Mér sýn-
ist aðalmálið i þessum viðræðum
vera það hvort eða hve margir
muni missa vinnuna. - En síður
hvaða starfsemi verði á Landa-
koti í framtíðinni.
Þetta staðfestir yflrlæknir
Landakots þegar hann segir að
meginatriði viðræönanna sé það
að aUt starfsfólk spítalans verði
endurráðið. Hver er þá spamað-
urinn af sameiningunni? Er þetta
aht ein allsherjar atvinnumiölun
fyrir þrýstihópa?
Ríkisútvarpið
oftmisnotað
Gunnlaugur skrifar:
Ég tek undir lesendabréf í DV
fyrir stuttu þar sem rætt var um
misnotkun hjá Ríkisútvarpinu,
einkum í ýmsum þáttum þess.
En misnotkun fer fram á fleíri
sviðum, td. þegar menn hringja
í Þjóðarsál, Meinhorn og aðra
þætti, byrja að úthúða mönnum
og fordæma. Oft er fólk auðheyri-
lega undir áhrifum áfengis eða
annarra vimugjafa. Sem betur fer
reyna stjómendur að taka í taum-
ana og loka á þetta fólk. - Svona
misnotkun á auðvitað ekki að hða
hjá opinberum fjölmiöli og hana
á að stöðva.
Enginábyrgðáat-
kvæði þingmanns
R.K. hriugdi:
Mér finnst atkvæðamisferh á
Alþingi vera hörmulegur vitnis-
burður um vinnubrögð þing-
manna. Kannski eru tilburöir
þingmanna til að gera lítið úr
máhnu sönnun þess að fleiri hafa
stundað svona atkvæðagreiðslu.
- En samkvæmt viðtali við lög-
speking einn virðist sem engin
ábyrgð sé á atkvæði þingmanns.