Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1992, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1992, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1992. Skák Hannes lagði Plaskett Úrslit í 3. umferð Apple-skákmóts- ins sem fram fór í gærkvöldi: Conquest-Kotronias 0-1 Þröstur- Jón L. 'A-'A Sírov-Helgi 1-0 Plaskett - Hannes 0-1 Renet - Margeir 0-1 Karl - Jóhann biðskák Biðskák úr 2. umferð: Hannes-Sírov 'A-'A Alexei Sírov sýndi hversu mikill undramaður hann er þegar honum tókst með listilegum sjónhverfmg- um að bjarga sér gegn Hannesi. Biðstaðan, sem birtist hér í blaðinu í gær, reyndist einfalt jafntefli en skömmu fyrir bið gat Hannes valið úr fjölda vænlegra vinningsleiða. í stað þess að flýta sér hægt hugðist hann þvinga fram vinningsstöðu rétt fyrir 60. leik með áðurnefndum afleiðingum. 'Það er því óhætt að segja aö heilladísimar hafi ekki brosað sérlega blítt til yngsta þátt- takandans í tveimur fyrstu um- ferðunum en hann tók málin snar- lega í sínar hendur í hinni þriðju og gerði það sem tveimur stór- meisturum hafði ekki lánast: að vinna breska samveldismeistarann Plaskett. Sá breski blés til sóknar með hvítu mönnunum í afbrigði drottningarindverskrar varnar sem lengi hefur verið eitt helsta vopn Kasparovs heimsmeistara. í þetta sinn dugði það skammt: hvíta sóknin fjaraði út og Hannes vann peð. Örvæntingarfullar tilraunir Plasketts til þess að plata Hannes í tímahraki reyndust árangurs- lausar og sá breski tapaði sinni fyrstu skák í mótinu. Þaö voru þó lengi vel veðurguð- irnir sem stálu senunni í gær- kvöldi, enda brakaði svo hressilega í rá og reiða Skákmiöstöðvarinnar að kvöldsvæfum áhorfendum kom ekki dúr á auga. Sumir höfðu raun- ar ekki enn lokið við bitann sinn þegar fyrstu skákinni lauk: Hvítt: Sírov Svart: Helgi Sá lettneski hafði dustað rykið af gömlu afbrigði í Nimzo-ind- verskri vörn og kom Helga í hinn mesta bobba. Hér gerir hann út um taflið með hnyttnum leik: 23 Rxe6! og Helgi gafst upp. Hann tapar manni eftir t.d. 23 -Hf7 24 Rxc7 Hxel 25 Hxel Dxc7 26 He8+ Hf8 og 27 Dd5 + Renet og Margeir tefldu Maroczy-afbrigði Sikileyjarvarnar þar sem Margeiri tókst að „svíða“ þann franska í endatafli á dæmi- gerðan hátt. Kotronias vann Conquest örugglega en þeir Þröst- ur og Jón Loftur sýndu að þeir eru manna seinþreyttastir við skák- borðið og tefldu uns allt hð var fah- ið í valinn nema kóngamir. Gár- ungamir í salnum héldu því þó fram að Jón hefði getað teflt áfram, þar sem hans kóngur væri betur staðsettur! í biðskák þeirra Karls og Jóhanns stendur sá fyrmefndi höllum fæti. Sú skák verður tefld áfram í dag, auk skákar Sírovs og Margeirs sem frestað var í fyrstu umferð. Að öðru leyti eiga kepp- endur frí en 4. umferð verður tefld á morgun kl. 17. Þá eigast við: Kotronias - Sírov Þröstur - Conquest Helgi-Plaskett Hannes - Renet Margeir - Karl Jón L. - Jóhann Áskell Örn Kárason Myndgáta Andlát Magnhild Hopen Snæhólm, Mána- braut 13, Kópavogi, lést á gjörgæslu- deild Borgarspítalans 3. mars. Ólafía Guðnadóttir, Bláhömrum 2, lést í Vífilsstaðaspítala 2. mars. Sigurjón Jónsson, Álftamýri 33, lést 29. febrúar á Hrafnistu, Reykjavík. Anna Kristín Ólafsdóttir, Lækjar- bakka, Mýrdal, andaðist 2. mars. Sigurður Karl Gunnarsson vélvirki, Holtagerði 32, Kópavogi, andaðist 2. mars. Guðjón B. Gíslason bóndi, Syðstu- Fossum, lést 2. mars í Sjúkrahúsi Akraness. Jarðarfarir Helga Stefánsdóttir er látin. Jarðar- fórin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jóhanna María Bjarnadóttir, Dala- tanga 25, Mosfqhsbæ, verður jarð- sungin frá Fossvogskirkju fóstudag- inn 6. mars kl. 13.30. Júlía Magnúsdóttir, Furugerði 1, áð- ur Rauðagerði 28, Reykjavík, sem lést 24. febrúar, verður jarðsungin frá Bústaöakirkju fimmtudaginn 5. mars kl. 13.30. Hansina Sigurðardóttir, Háaleitis- braut 54, verður jarðsungin frá Bú- staðakirkju fóstudaginn 6. mars kl. 15. Lárus Guðmundsson verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju flmmtu- daginn 5. mars kl. 15. Hermann Guðmundsson, fyrrv. framkvæmdastjóri, Langeyrarvegi 5, Hafnarfirði, sem lést fimmtudaginn 27. febrúar, verður jarðsunginn frá Víðistaöakirkju föstudaginn 6. mars. Athöfnin hefst kl. 13.30. Safnaðarstarf Akureyrarkirkja: „Mömmumorgunn" í safnaðarheimilinu kl. 10-12. Morgun- stund fyrir mömmur og pabba með böm sín. Margrét Bóasdóttir: Söngur og böm. Föstumessa kl. 20.30. Predikun: Séra Gunnlaugur Garðarsson, sóknarprestur Glerárprestakalls. Altarisþjónusta: Séra Gunnlaugur Garðarsson og séra Þórhall- ur Höskuldsson. Kór Glerárkirkju syng- ur undir stjóm Jóhanns Baldvinssonar. Altarisganga. „Bænin mó aldrei bresta þig.“ H.P. Áskirkja: Starf 10-12 ára bama í safnað- arheimilinu í dag kl. 17. Föstumessa kl. 20.30 Bústaðakirkja: Félagsstarf aldraðra í dag kl. 13-17. Dómkirkjan: Hádegisbænir kl. 12.10 í kirkjunni. Léttur hádegisverður á kirkju- loftinu á eftir. Samvera aldraðra í safnað- arheimilinu í dag kl. 13.30-16.30. Tekið í spil. Kaffiborð, söngur, spjall og helgi- stund. Elliheimilið Grund: Föstuguðsþjónusta kl. 18.30. María Ágústsdóttir guöfræði- nemi. Hallgrimskirkja: Föstumessa kl. 20.00. Krossinn og þjáningar mannanna. Sr. Sigfmnur Þorleifsson predikar. Háteigskirkja: Kvöldbænir og fyrirbæn- ir í dag kl. 18. Neskirkja: Opið hús fyrir aldraða kl. 13-17. Föstumessa kl. 20.00. Guömundur Óskar Ólafsson. Hár- og fótsnyrting í dag kl. 13-17. Æfmg kórs aldraðrá í dag kl. 16.30. Seltjarnarneskirkja: Kyrrðarstund kl. 12. Söngur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur hádegisverður í safnaðarheimil- inu. á tónleikana em seldir á skrifstofu hlj óm- sveitarinnar í Háskólabíói daglega kl. 9-17 og við innganginn við upphaf tón- leikanna. Námskeið Vetrarnámskeið Ljósheima Fyrri áfangi vetramámskeiðs Ljósheima, ísl. heilunarfélagsins, verður endurtek- inn helgamar 7.-8. mars og 28.-29. marS: í þessum fyrri áfanga verður m.a. kennt um innri líkama mannsins, áruna og orkustöðvamar, um sjálfsvemd og farið í grundvallaratriði hugleiöslu-tækni. Kennt verður frá kl. 10-17 alla dagana og fer kennslan fram í húsnæði félagsins að Hverfisgötu 105, 2. hæð, Reykjavík. Skráning er hafin í símum 624464 og 674373. Skrifstofa Ljósheima að Hverfis- götu 105 er opin alla miðvikudaga kl. 14-15.30, sími 624464. Þar er hægt að fá upplýsingar um námskeið og aðra starf- semi félagsins, auk þess sem seldar em spólur með tónlist til slökimar, bækur sem félagið hefur gefið út og steinar ýmiss konar. Leikhús Fundir Goú raú eru tilaó fara eftir þeím! Eftir einn •ei aki neinn ITC-deildin Björkin heldur fund í kvöld, miðvikudagskvöld, að Síðumúla 17 kl. 20. Fundurinn er öllum opinn. Gyða, s. 687092, og Magný, s. 22312, gefa nánari upplýsingar. ITC-deildin Gerður, Garðabæ heldur fund í kvöld, miðvikudaginn 4. mars, í Kirkjuhvoli kl. 20.30. Fundiuinn er öllum opinn. Upplýsingar veita Bjam- ey Gísladóttir, s. 641298, og Edda Bára Sigurbjömsdóttir, s. 656764. Tapaðfundið Gleraugu töpuðust í Mjódd Tvískipt herragleraugu töpuðust í Mjódd sl. mánudag. Upplýsingar í síma 671426. Fundarlaun. Seðlaveski tapaðist í Bláfjöllum Sunnudaginn 1. mars tapaðist brúnt seðlaveski í Bláfjallaskálanum. Skilrikja, sem era í því, er sárt saknað. Finnandi, eða sá sem hefur veskið undir höndum, er beðinn að skila því í hús nr. 24 við Melsel eða á Sólvallagötu 59, símar 74075 eða 14334. Tónleikar Klarinettukonsert eftir hljómsveitarstjórann Fimmtudaginn 5. mars verða tónleikar í guiri tónleikaröð Sinfóníuhljómsveitar Islands í Háskólabíói og hefjast þeir kl. 20. Á efnisskránni verða þijú verk: Capriccio eftir Gottfried von Einem, Klarinettukonsert eftir Pál P. Pálsson og Sinfónía nr. 4 eför Felix Mendelssohn. Einleikari á tónleikunum verður Sigurð- ur I. Snorrason klarinettuleikari og hljómsveitarstjóri Páll P. Pálsson. Miðar LEIKFELAG REYKJAVÍKUR ðjð Gamanleikhúsið frumsýnir Sími680680 •50% afsláttur á síðustu sýningar, gild- ir aðeins á Ljón i síð- buxum. LJON ISIÐBUXUM eftir Bjöm Th. Bjömsson Aukasýnlngar: í kvöld. Laugard. 7. mars. Á STÓRA SVIÐI: ÞRÚGUR REIÐINNAR Byggt á sögu JOHNS STEINBECK Leikgerð: FRANK GALATI 4. sýning fimmtud. 5. mars. Blá kort gllda. Uppselt. 5. sýnlng föstud. 6. mars. Gul kort gllda. Uppselt. 6. sýnlng sunnud. 8. mars. Græn kort gllda. Uppselt. 7. sýnlng flmmtud. 12. mars. Hvit kort gilda. Fáeln sæti laus. 8. sýning laugard. 14. mars. Brún kort gllda. Uppselt. Sunnud. 15. mars. Flmmtud. 19. mars. Föstud. 20. mars. Kaþarsis - Leiksmiðjan sýnir á litla sviði: HEDDU GABLER eftir Henrik Ibsen. ikvöld Uppselt. Laugard. 7. mars. Mlðvlkud. 11.mars. í Borgarleikhúsinu Höfundur: Pétur Gunnarsson. Tónlist: Spilverk þjóöanna. Leikstjóri: Magnús Geir Þórðar- son. 3. sýning föstud. 6. mars. Fáein sæti laus. 4. sýning sunnud. 8. mars. Fáein sæti laus. 5. sýning, fimmtud. 12. mars. Fáein sæti laus. Sýningar hefjast kl. 20.30. Miðaverð kr. 800. Miðasala opin alla daga frá kl. 14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17. Miðapantanir í síma alla virka daga frá kl. 10-12. Sími 680680. Leikhúslinan 99-1015. Greiðslukortaþjónusta. Leikfélag Reykjavikur. Borgarleikhús. III fSLENSKA ÓPERAN eftir Giuseppe Verdi 6. sýning laugardaginn 7. mars kl. 20. 7. sýning laugardaginn 14. mars kl. 20. ATH: ÖRFÁAR SÝNINGAR EFTIRH Ósóttar pantanir eru seldar tveimur dögum fyrir sýningardag. Miðasalan er nú opin frá kl. 15.00-19.00 daglega og til kl. 20.00 á sýningardögum. Sími 11475. Greiðslukortaþjónusta VISA - EURO - SAMKORT Endurskii í skampíííuííi á næsta sölustað • Áskriftarsimi 63-27-00

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.