Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1992, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1992.
Öflönd
Sveltandigælu-
dýríSamveld-
inufámat
Sveltandi hundar og kettir í St.
Pétursborg mega eiga von á
veisluhöldum í dag þegar þangaö
kemur neyðarsending með gælu-
dýramat frá þýskum dýravinum.
„Okkur tókstað safna nokkruin
tonnum af hunda- og kattamat til
að lina verstu þjáningar dýr-
anna," sagði Wolfgang Apei,
varaformaöur þýska dýravernd-
unarsambandsins.
Viöleitni dýravina er aöeins
hluti matargjafa einkaaðila til að
lina þjáningai- i fyrrum Sovétríkj-
unura.
Kreppuogfíkni-
efnumkenntum
fjölgun morda
Kanada er óðum að glata þeirri
ímynd sinni aö þar séu allir ör-
uggir um líf sitt. Morðiun hefur
íjölgað mjög þar að undanfömu
og kenna sérfræðingar um efna-
hagskreppunni, fíkniefnaneyslu
og sjónvarpsglápi.
Hagstofa Kanada skýrði frá því
í gær að í fyrra heíðu verið íf ara-
in 762 morð, manndráp eða
barnamorð sem er 14 prósentum
tneira en árið þar á undan, eða
2,8 morö á hverja 100 þúsund.
íbúa. Það er langtum minna en i
Bandaríkjunum.
Nýleg könnun bandariska
þingsins hefur leitt í ljós að þar í
landi voru framin 24 þúsund
morð í fyrra eða rúmlega tvisvar
sinnum fleiri en i Kanada, Frakk-
landi, Þýskalandi, Bretlandi og
Japan samanlagt ef iniöað er við
tölur frá 1988.
Gorbatsjov
selurævisöguna
í sjónvarp
Mikhail Gorbatsjov, fyrrum
Sovétforseti, hefur fallist á aö
segja bresku sjónvarpsfélagi ævi-
sogu sína. Myndin veröur íjög-
urra tíma löng og verður byrjað
að mynda hana í sumar á meðan
Gorbatsjov er í fríi, líklega við
Svartahafiö.
„Gorbatsjov hefur samþykkt að
tala um allt, jafnt um pólitíkina
sem einkalífið,“ sagði John Ca-
irns, framleiðandi við fyrirtækiö
Dfrectors Intemational.
í myndaflokknum verður m.a.
langt víötal viö Gorbatsjov þar
sem hann mun segja frá lífs-
hlaupi sínu frá því er hann var
aö alast upp i sveit á Stalinstím-
anum.
Gert er ráð fýrir aö þáttaröðin
verði sýnd á næsta ári, bæði í
Evrópu og Bandaríkjunum. Ekki
hefur fengist uppgefið hversu
mikið Gorbi fær fyrir myndina.
Sendiheiraliót-
araðhætta
vegnaGaddafis
Sendiherra Líbýu í Frakklandi
sagði i gær að hann raundi segja
af sér ef Moammar Gaddafi gerði
alvöru úr því loforði sínu að af-
henda bandarískum stjómvöld-
um tvo menn sem grunaöir eru
um að hafa sprengt flugvél Pan
Am í loft upp yfir Skotlandi.
Franska blaöið Le Monde sagði
frá þvi að Gaddafi hefði lofað
þessu ef Bandaríkin tækju aftur
upp stjómraálasamband við
Líbýu.
„Gaddafi getur ekki hafa sagt
þetta af því að hann hefur ekki
vald til þess. Hann kemur ekkert
nálægt daglegum rekstri lands-
ins, hann fer bara fyrir bylting-
unni,“ sagði sendiherrann.
Hann bætti við að fréttin blyti
aö vera á misskilningi byggð.
Reuter
Tugir fórust í sprengingu í tyrkneskri kolanámu:
Loks tókst Bill Clinton að vinna sigur:
Burstaði Tsongas í Georgíu
Bill Clinton fagnaði sigri í Georgíu og hafði þar töluverða yfirburði yfir
Paul Tsongas, helsta keppinautinn. Clinton varð þó að sætta sig við lakari
árangur i öðrum ríkjum. Enn virðist langt í land að demókratar finni mann-
inn til að fella George Bush í komandi kosningum. Símamynd Reuter
Loks tókst Bill Clinton að hafa Paul
Tsongas undir í kapphlaupi þeirra
um útnefningu sem frambjóðandi
demókrata fyrir forsetakosningarn-
ar í Bandaríkjunum í haust.
Forkosningar vora haldnar í sjö
ríkjum í gær og hafði Clinton afger-
andi sigur í Georgíu en ýmsum veitti
betur í öðmm ríkjum. Tsongas vann
með litlum mun í Maryland og sömu-
leiðis í Utah. Þá leit út fyrir aö þeir
Clinton, Tsongas og Jerry Brown
fengju allir álíka mikið fylgi í Col-
orado.
Bill Clinton hefur ekki farið með
sigur af hólmi áður í forkosningun-
um og fagnaði því vel. Niðurstaðan
í forvali demókrata er þó að flestra
mati sú að flokksmenn hafi ekki enn
gert upp við sig hver þeir vilji að
reyni sig við George Bush í forseta-
kosningunum.
Tom Harkin hefur verið óþreytandi
að benda á að hann hafi mest fylgi
meðal demókrata og vísar þar til
skoðanakannana en hann reið ekki
feitum hesti frá forkosningunum í
gær.
Kreppan í demókrataflokknum er
því enn viö lýði og vandi að sjá hvort
þeir þar ná að fella Bush forseta þótt
hann eigi í verulegum vandræðum í
eiginflokki. Reuter
á 560 metra dýpi
Sprenging í kolanámu í tyrknesku
borginni Kozlu varð að minnsta kosti
52 námamönnum að bana og um 300
manna var enn saknað í morgun, tíu
klukkustundum eftir sprenginguna,
að sögn verkalýðsleiðtoga.
Selahaddin Burkucu, formaður fé-
lags námamanna, sagði að tekist
heföi að ná 52 líkum úr námunni,
sem er 560 metra djúp, og að björgun-
arsveitir væm aö beijast við aö ná
til um 300 manna sem væri saknað.
Skömmu fyrir dögun í morgun
fylgdist hópur þungbúinna námu-
manna meö því þegar stirðnuö og
rykug lík tveggja félaga þeirra vom
flutt inn í sjúkrabíla í Kozlu, nærri
Zonguldak, sem er um 270 kílómetra
fyrir norðvestan Ankara, höfuðborg
Tyrklands.
„Við vitum ekki nákvæmlega
hversu margir menn vom í námunni
þegar sprengingin varð,“ sagði Edip
Gumustas, birgðavöröur við nám-
una, í samtali viö Reuters-fréttastof-
una.
Hann sagði að banvænt ský af
kolmónoxíði, sem myndaðist viö
sprenginguna, tefði fyrir björgunar-
störfum.
Á bílastæðinu fyrir utan svört
námugöngin syrgði gömul kona son
sinn og sönglaði: „Ó sonur minn,
veslings sonur minn.“
Leiðtogar verkalýðsfélagsins sögðu
að sprengingin hefði oröið klukkan
rúmlega sex síðdegis í gær að ís-
lenskum tima og aö hún hefði orðið
í neðri hluta námunnar sem nær inn
undir Svartahafið. Þeir vom ekki
bjartsýnir á að margir mundu
finnast á lífi í námugöngunum.
Þeir sögðust ekki skilja hvemig það
hefði getað farið fram hjá nútíma
mælitækjum að metangas safnaðist
saman í námugöngunum áður en
sprengingin varð. Þeir sögðu að flest-
ir hinna látnu hefðu kafnað vegna
kolmónoxíðeitrunar og af ryki.
Nokkrir höfðu brunnið til bana í
sprengingunni.
Við dagrenningu í morgun í þessari
60 þúsund manna borg söfnuðust
Björgunarsveitamenn fjarlægja lik námumanna sem voru meðal rúmlega fimmtíu sem fórust í sprengingu í tyrk-
neskri kolanámu í gærkvöldi. Um þrjú hundruö manna er enn saknað og litlar líkur taldar á að þeir finnist á lifi.
námumenn og ættingjar þeirra sam-
an og reyndu aö fá upplýsingar hjá
yfirmönnum námunnar um hveijir
heföu farið niður í göngin við upphaf
næturvaktarinnar í gærkvöldi.
Námumenn af dagvaktinni klöngr-
uðust inn í lyfturnar til að taka þátt
í leitinni að týndum félögum sínum.
Námunni var skipt niður í átta
vinnusvæði. Fjögur þeirra hrundu
og ekki hefur enn tekist aö ná til
mannanna sem unnu þar.
Sprenging varö í sömu námu árið
1983 og þá fórast ellefu menn. Sama
Simamynd Reuter
ár fómst 103 rnenn í námuslysi í
Zonguldak og árið 1990 fómst 66
menn í sprengingu í námu nærri
borginni Amasya.
Reuter
Bush hefur
hvarvetna
sigur á
Buchanan
George Bush haíöi sigur á Pat
Buchanan í forkosningum í
Maryland, Georgíu og Colorado í
gær. Bush var með tvo þriöju at-
kvæða að jafnaði og náði 70%
fylgi í Georgíu.
Þetta þýðir að Buchanan fær
fylgi hinna óánægðu í Repúblik-
anaflokknum en virðist ekki ætia
að ná að gera Búsh verulegar
skráveifur. Fylgi Bush er þó
minna en ætla mætti þegar haft
er í huga að hann er forsetinn og
nýtur fyrir vikið miklu meiri at-
hygli en embættislaus maður.
Buchanan hamrar á því að
Bush hafi mistekist við efnahags-
stjórn Bandaríkjanna vegna þess
að hann hugsi eingöngu um utan-
ríkismál. Þessi áróöur ber nokk-
urn árangur þvi margir Banda-
ríkjamenn finna ifia fyrir kreppu
þessi misserin.
Bush er þó ömggur um að
verða valinn forsetaframbjóð-
andi ööra sinni en Buchanan
veldur honum töluverðum erfið-
leikum með árangri sínum.
Reuter
Hundruð innilokuð