Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1992, Qupperneq 17
16
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1992.
MIÐVIKUDAGUR 4. MARS 1992.
17
íþróttir
íþróttir
Sport-
stúfar
Liverpool leikur í
kvöld fyrri leik sinn
gegn ítalska liðinu
Genoa í 8-liða úrslitum
í UEFA-keppninni í knattspymu
og fer leikurinn fram á Ítalíu.
Forráðmenn Liverpoolliðins hafa
sett stefnuna á sigur í keppninni.
Liðið hefur átt í miklum vand-
ræðum í deildakeppninni enda
hafa margir leikmenn þess
meiðst í vetur. John Bames og
Ian Rush verða til að mynda fjarri
góðu gamni í kvöld, eru báðir
meiddir, en hins vegar valdi Gra-
ham Souness Ronnie Whelan í 16
manna hópinn og kom það val
nokkuð á óvart en Whelan hefur
verið meiddur meira og minna í
allan vetur.
Tottenham leikur
i Hollandi
Það em margir leikir í Evrópu-
keppninni í kvöld. Guðni Bergs-
son og félagar hans í Tottenham
leika gegn Feyenoord í Hollandi.
Yfirvöld í Hollandi óttast mjög að
' hollenskar og enskar knatt-
spymubullur muni láta til sín
taka og efna til óeirða. Terry
Fenwick, varnarmaður Totten-
ham, á við meiðsli að stríða og
er óvíst hvort hann spilar með.
Það ætti að að gefa okkar manni,
Guðna Bergssyni, aukna mögu-
leika á að vinna sér sæti í liðinu
að nýju en hann hefur verið úti
í kuldanum í síðustu leikjum
þess.
Halle óheppinn
Norski landsliðsmaðurinn Gunn-
ar Halle, sem er hjá enska 1.
deildarliðinu Oldham, leikur
ekki meira með á þessu tímabili.
Halle fótbrotnaði fyrr á tímabil-
inu og nú hefur komið í ljós að
brotið greri ekki rétt og þarf hann
að gangast undir aðra aðgerð.
Grosswaldstadt
öruggt með sætið
Þóiarinn Sigurðsson, DV, Þýakalandi:
Sigurður Bjamason og félagar
hans í Grosswaldstadt eru ömgg-
ir með sæti í 1. deild þýska hand-
boltans þegar einni umferð er
ólokið í undankeppninni. í síð-
asta leik, sem var á móti SC Cott-
bus á útivelli, varð jafntefli, 25-25.
Sigurður skoraði sex mörk í
leiknum og var valinn besti mað-
ur liðsins ásamt Wömer sem
skoraði sjö mörk. Lið Héðins
Gilssonar, Dusseldorf, verður að
minnsta kosti að ná jafntefli í síð-
asta leiknum gegn Fredenbeck tO
að verða öraggt með sæti sitt í
1. deild.
Fjórir leikir í
1. deild kvenna
Fjórir leikir fara fram í 1. deOd
kvenna á íslandsmótinu í hand-
knattleik í kvöld og hefjast allir
leikimir klukan 20. Grótta og
Víkingur eigast við á Nesinu,
Valur og FH að Hlíðarenda og
KR mætir ÍBK í Höllinni. Þá leika
Stjaman og ÍBV í Garðabæ en
leiknum var frestað í gærkvöldi.
ishokkí í Laugardalnum
Á skautasvellinu í Laugardal
leika Bjöminn og Skautafélag
Reykjavíkur á Islandsmótinu.
Leikurinn hefst klukkan 20.
Nissanbíllá 11374
Dregið hefur verið í happdrætti
Badmintonsambands íslands. 1.
vinningur, Nissan bifreið, kom á
miöa númer 11374. Combi Camp
tjaldvagn á 15452, Hyundai tölva
og prentari á 18776, ferð fyrir tvo
tíl Færeyja á 13370 og ferðatæki
á 4057 og 12091. Yonex badmin-
tonvörur að andvirði 10 þúsund
krónur komu á eftirtalin númer:
347, 14513, 5726, 8621, 16854, 4857,
964, 7091,16461,18906,11321, 5962,
19551 og 1781.
Petrovic blomstrar
hjá New Jersey
Jei-sey.
Petrovic, sem stýröi Júgóslavíu
til sigurs i heimsmeistarakeppn-
inni sl. sumar í Argontinu. segir
um Anderson: ..Ilann cr leikinn
með boltann, ég er viss uin að við
getum leikið mjög vel saman.“
Petrovic sem tók sæti Reggie Theus
i bvrjunarliöinu sl. haust, hcfui-
verið gagnrýndur fyrir slakan
varnarieik en jafnvel hann batnar
með liverjum leik. Theus leikur nú
með Ranger Varose á ítaliu.
y?:; i' New Jersey. sem er aöeins fjórum
stigum á cftir Philadelplúa, státar
af fleiri góðum leikmöimuin.
Derrich Coleman, nýliði ársins í
fyrra, hefur Jeikið mjög vel og Sam
Bowie, miðherjinn sterki, virðist
loks hafa náö sér at' langvarandi
meiðslum.
Þá cr Chris Morris sterkur fram-
herji sem getur ýmisiegt þcgar
bakverðir sem gætu með góðum með Portland í fyrra. Hann gerir hann nennir!!! New Jersey hefur
leik boðaö betri tíma fyrir New það nú gott með New Jersey. ekki sagt sitt síöasta orð í vetur.
Þrátt fyrir áhyggjur af lrinum
stríöshrjáðu löndum sínum i Króa-
tíu leikur Drazen Petrovic á als
oddi í ISlBA-deildinni. „Eg reyni aö
einbeita mér að leiknum en hugur-
inn leitar til fjqlskyldu og vina
heíma i Króatíu. Éghrínginæstum
því daglega, en því miöur get ég
ekkert gert nema vonað að þetta
taki senn enda,“ segír þessi geð-
þekki leikmaður.
Petrovic, sem hefur skorað 20,6
stig að meðaltali í leik í vetur, kom
tíl New Jersey frá Portland í fyrra
og hann hefur átt mikinn þátt í
aukinni velgengni liðsins. Enda
þótt úrslitasæti sé óhklegt þá dylst
engum aö þarna eru góðir hlutir
að gerast, og ef Kenny Anderson,
nýliðinn skemmtilegi, nær sér á
strik mega andstæðingar liösins
fara að vara sig. Petrovic, Ander-
son og Mookie Blaylock eru allir
Drazen Petrovic frá Króatíu i leík
Gunnar Gunnarsson lék ágætlega sem leikstjórnandi íslenska liðsins á Akranesi í
gærkvöldi.
Sigrinum í Stykkishólmi í fyrrakvöld ekki fylgt eftir:
ísland náði að
jaf na undir lokin
-18-18 í síðari leiknum við Litháen á Akranesi
Sigurgeir Sveinssan, DV, Akranesi:
ísland og Litháen skfldu jöfn, 18-18,
í síðari landsleik þjóðanna aö þessu
sinni sem fram fór á Akranesi í gær-
kvöldi. Litháar voru yfir nánast allan
tímann, 9-10 í hálfleik og 12-16 þegar
langt var liðið á síðari hálfleik, en
íslendingar jöfnuðu á lokamínútun-
um.
Leikurinn var gerólíkur fyrri við-
ureign þjóðanna í Stykkishólmi
kvöldið áður en þá vann ísland af
öryggi með sex mörkum. Frammi-
staða íslenska Uðsins var svipuð en
Litháar sýndu mun betri leik, voru
geysilega grimmir, og mun meiri
harka var í leiknum en þeim fyrri.
íslensku leikmennirnir voru flestir
hverjir þungir en þó sást ýmislegt
jákvætt tU þeirra. Ekki er hægt aö
nefna einn leikmann öðrum fremur,
nema hvað Gunnar Gunnarsson kom
vel út sem leikstjórnandi.
Spiluðum ekki eins og
fyrir okkur var lagt
„Miðað við leikinn í gærkvóldi var
harkan í kvöld aUtof mikil og dóm-
gæslan hefði að mínu mati mátt vera
betri. Sennilega er þreyta í okkur
eftir erfiðar æfingar en það hefði
ekki átt að koma að sök. Við vomm
ekki sannfærandi, það vantar meiri
aga í liðið. Við spiluðum ekki eins
og fyrir okkur var lagt,“ sagði Bjarki
Sigurðsson landsUðsmaður viö DV
eftir leikinn.
Létum þá ganga
óþarflega langt
„Leikurinn þróaðist út í óþarflega
mikla hörku og við vomm kannski
ekki alveg tilbúnir í hana og létum
þá ganga óþarflega langt. Sóknarlega
séð var leikurinn ekki nógu góöur;
við lentum í miklum vandræðum
með þá því þeir léku svo langt úti á
veUi og fengu að lemja á okkar mönn-
um. En það er í raun gott mál að fá
svona varnarvegg á móti okkur því
t.d. Portúgalar leika alveg eins vöm
og það er einmitt svona vöm sem ég
óttast mest,“ sagði Þorbergur Aðal-
steinsson, landsUðsþjálfari íslands,
og bætti við: „Þegar dómarar leyfa
svona hörku verðum við að taka þátt
í henni.“
Island (9) 18
Litháen (10) 18
2-0, 4-1, 4-6, 6-7, (9-10), 11-13,
12-16, 16-16, 16-17, 17-18, 18-18.
Mörk íslands:
Geír Sveíns-
son 4, Sigurð-
ur Rjarnason
Patrekur
Jóhannesson
3. Valdimai'
Grítnsson 2,
Konráð Olavs-
son 2, Gunnar
Gunnarsson
2/1, Bjarki
Getr Sveinsson, Sigurðsson 1,
hæstur með 4 mörk. Gunnar Andr-
ésson 1.
Varin skot: Guðmundur Hrafn-
kelsson 11/2, Sigmar Þröstur Ósk-
arsson 3.
Mörk Litháens: Galkaustas 5/2,
Savukinas 4/1, Cikanauskas 2,
Kazlauskas 2, Bucys 2, Povilonis
2, Daugila 1.
Varin skot: Sayonis 12/2.
Brottvísanir: ísland 8 minútur,
Litbáen 16 minútur.
Dómaran Gunnar Kjartansson
og Óli P. Ólsen - leyfðu of mikið
en voru samkvæmir sjálfum sér.
Áhorfendur: 423.
Leikirlandsliðsins:
6.3. við „Akureyrarúrval".
7.3. við Portúgal á Selfossi.
8.3. viö Portúgal í Höllinni.
11.3. við Slóveníu í Höllinni.
12.3. viö Slóveníu í Keflavik.
Kvennalandsliðið í knattspymu:
Tap í fyrsta leik
í Þýskalandi
- 3-0 en ágætur síðari hálfleikur
Kvennalandsliðið í knattspymu,
sem er í æfinga- og keppnisferð í
Þýskalandi, lék fyrsta leik sinn í ferð-
inni í gær, gegn úrvalsliði frá Hess-
en, og tapaði, 3-0.
„Mörkin þrjú komu öll í fyrri hálf-
leik, þar af vom tvö mörk af ódýrari
gerðinni. í síðari hálfleik breyttist
leikur okkar til hins betra og var síð-
ari hálfleikur jafn og spennandi,"
sagði Rafn Hjaltalín, annar farar-
stjóri íslenska Uðsins.
Sigrún Óttarsdóttir, sem hélt upp á
21. afmælisdag sinn í gær ásamt
Steindóru Steinsdóttur markverði,
sem varð tvítug, átti besta færi ís-
lenska liðsins en tókst ekki aö skora.
Þýska úrvalsliðið var skipað sömu
leikmönnum og komu hingað til
lands í sumar auk þess sem þrjár
stúlkur úr þýska landsliðinu léku
með liðinu.
Byrjunarlið íslands var þannig
skipað: Steindóra Steinsdóttir mark-
vörður. Aðrir leikmenn: Ragna Lóa
Stefánsdóttir, íris Steinsdóttir (Sig-
urlín Jónsdóttir), Vanda Sigurgeirs-
dóttir (fyrirliði), Auður Skúladóttir,
Ragnheiður Víkingsdóttir (Jónína
Víglundsdóttir), Arney Magnúsdótt-
ir (Helena Ólafsdóttir), Guðrún Sæ-
mundsdóttir, Karitas Jónsdóttir
(Halldóra Gylfadóttir), Sigrún Ótt-
arsdóttir og Asta B. Gunnlaugsdóttir.
„Það vora að sjálfsögðu bæði veikir
og sterkir punktar í leik liðsins,"
sagði Rafn. „Við réðum ekki við
hraðann og kraftinn í þýska liðinu
og misstum boltann of oft klaufalega
frá okkur. Hins vegar var leikurinn
mjög góður æflngalega séð og við
sjáum að viö emm á réttri leið.
Allur aðbúnaður hér á svæðinu er
mjög góöur og til marks um þaö má
nefna að þýska karlalandsliðið í
knattspymu kemur hingað þegar við
fömm. Stelpumar hafa sagt mér aö
þær ætli að skilja eftir nokkur ástar-
bréf í herbergjunum sínum, í von um
að þau rati rétta leið,“ sagði Rafn
Hjaltalín.
-ih
var Webster, 25 stig fyrlr ÍR.
ÍRvann
toppleikinn
ÍR vann Breiöablik, 82-80, í leik
tveggja efstu liða l. deildar karla
í köriuknattleik sem fram fór i
Seljaskóla í gærkvöldi. Breiða-
blik var 10-12 stigum yfir um
tíma í fyrrí hálfleik en í hléi var
jafnt, 51-51. í síðari hálfleik voru
ÍR-ingar síðan með undirtökin og
Blikar náðu ekki að jafna í lokin.
ívar Webster var stigahæstur
hjá ÍR með 25 stig og Jóhannes
Sveinsson geröi 23 en Hjörtur
Arnarson var hæstur hjá Breiöa-
bliki með 27 stig.
Bæði þessi lið hafa tryggt sér
sæti í 4 liða úrslitum deildarinnar
og leika þar væntanlega við
Akranes og Hött. .ys
Spink sá um Leeds
- sem mistókst að komast á toppinn
Leeds fór illa meö gullið tækifæri til aö
ná forystunni í 1. deild ensku knattspym-
unnar þegar hðið gerði markalaust jafn-
tefli á heimavelii gegn Aston Villa.
Nigel Spink, markvörðurinn gamal-
kunni, sem lék á ný í marki Villa eftir
langa dvöl í varaiiðinu, sá til þess aö Le-
eds náði ekki að sigra. Hann varði víta-
spymu frá Gordon Strachan á 65. mínútu
og kom síðan tvívegis í veg fyrir að Eric
Cantona skoraði með frábærri mar-
kvörslu.
Crystal Palace og Nottingham Forest
gerðu einnig 0-0 jafntefli en Southampton
vann West Ham, 1-0, í mikilvægum fall-
baráttuleik með marki frá Ian Dowie, sem
Southampton keypti í vetur frá West Ham.
Staða efstu og neðstu liða:
Manch. Utd 30 17 11 2 51-22 62
Leeds 31 16 13 2 55-24 61
Manch. City 31 15 8 8 45-35 53
Sheff. Wed j 30 15 8 7 49-41 53
Notts Co 29 7 8 14 30-40 29
Luton 31 7 8 16 25-55 29
Southampton 30 6 10 14 28-45 28
WestHam 29 6 9 14 26-43 27
í 2. deild tapaði Charlton fyrir Grimsby,
1-3, og helstu úrslit í 3. deild urðu þessi:
WBA -Orient 1-3, Birmingham -
Swansea 1-1, Brentford - Chester 2-0, Pet-
erborough-Huddersfield 2-0.
í Skotlandi vann Rangers sigur á St.
Johnstone, 0-3, í 8 liða úrslitum bikar-
keppninnar. -VS
Ungu strákarnir í Indiana
sigruðu Chicago Bulls
Spennandi leikir vom í bandaríska
körfuboltanum í nótt. Chicago tapaöi
heima fyrir Indiana Pacers. Lakers held-
ur áfram að tapa og Phoneix Suns vann
Houston Rockets í framlengdum leik.
Úrslit í nótt urðu þess:
NewYork-Dallas.............102- 83
Orlando - Washington.......93-106
Miami - LA Clippers 116-117
Chicago - Indiana 101-103
Minnesota - San Antonio 102-103
Phoneix - Houston 112-107
Golden State - Utah 101-123
Portland - Lakers 105-101
Seattíe - Denver 111 92
-JKS
Guðjón L. Sigurðsson, formaður Handknattleiksdómarasambands íslands:
Meira gert úr mistökunum en áður
Það er alltaf fagnaðarefni þegar
íþróttafréttamenn skrifa gagnrýni
um handknattleiksdómara á jákvæð-
an hátt eins og blaðamaður DV, GH,
gerði hér í DV á dögunum. Ailtof oft
hafa slík skrif verið niðurrífandi og
ekki til þess fallin að hafa þau áhrif
sem þau annars gætu haft.
Ég get tekið undir margt af því sem
GH nefnir í sinni grein en ég er hon-
um þó ekki sammála um allt, meðai
annars að dómgæslan hafi verið
verri í vetur en áður. Samkvæmt
samtölum við marga leikmenn og
forráöamenn liða hefur mér fundist
menn vera sammála um að dómgæsl-
an sé betri en áður í 1. deild karla.
Hins vegar gera menn meira úr mis-
tökunum en áður. Sem dæmi þá vom
gerð nákvæmlega eins mistök varð-
andi framkvæmd leiks í bikarkeppni
milli 1. deildar liðs og Uös í 2. deild
fyrir 3 ámm eins og gerð vom í leik
Vals og Víkings nú á dögunum án
þess aö nokkur sæi ástæðu til að
kæra.
Svipað viðhorf og
til lögreglunnar
Það er erfitt að manna dómarastétt-
ina. Viðhorf margra til dómara má
að sumu leyti líkja við neikvætt viö-
horf manna til lögreglunnar. Við er-
um að gæta reglna sem þjóna hags-
munum þeirra liða sem eigast við
hverju sinni. Oftast er dómur byggð-
ur á mati dómarans á aðstæðum og
þá frá því sjónarhomi sem hann sér
atburðinn. Það er auðvelt að eyði-
leggja heilan leik ef liðin sætta sig
ekki við störf dómarans, hversu mjög
sem hann leggur sig fram.
Til að dæma í l. deild karla þurfa
menn að vera í góðu líkamlegu og
ekki síður andlegu jafnvægi. En það
vill oft gleymast að ef leikmaður á
slæman leik þá er alltaf hægt að
skipta honum út af en það sama gild-
ir ekki um dómarann.
Viðhorf forráðamanna
þarf að breytast
Vegna manneklu er erfitt að gera
miklar kröfur til dómara því að
metnaöur þeirra er misjafn og oft eru
hlutirnir frekar gerðir af skyldu-
rækni en áhuga. Þetta breytist ekki
fyrr en viðhorf forráðamanna breyt-
ist og þeir fara markvisst að huga
að dómaramálum í sínum félögum
til að finna góð dómaraefni og koma
þeim á framfæri.
Hærri peningagreiðslur til dómara
leysa ekki vanda stéttarinnar en þær
gætu hjálpað. Nú þegar er ástandið
meðal dómara orðið þannig að marg-
ir þeirra em hættir að hafa gaman
af að dæma og vilja fá alvöru greiðsl-
ur fyrir. Á fundi með félögum í úrsli-
takeppninni nýlega bar ég upp tíiiögu
um hærri greiðslur til dómara í úrsli-
takeppninni en henni var hafnað.
Áhorfendur búnir að dæma
áður en flautu er lyft
Haft hefur verið eftir einum 1. deild-
ar þjálfara að íslenska 1. deildin sé
ein af fimm sterkustu í heimi. Hún
hefði aldrei geta orðið þaö ef við hefð-
um ekki haft frambærilega dómara.
Norsku dómaramfrj sem vom hér
um daginn og dæmdu tvo leiki í 1.
deildinni, sögðust aldrei hafa kynnst
slíku áður. Leikimir hefðu verið
mjög harðir, áhorfendur búnir að
dæma áður en þeir náðu að lyfta
flautunni og stemningin ólýsanleg
fyrir þá og dæmdu þeir þó ekki á
Akureyri eða í Vestmannaeyjum.
Nú þegar hafa 13 dómarapör auk
nokkurra forfalladómara dæmt í 1.
deild í vetur. Víða erlendis ern valin
8-10 dómarapör til aö dæma í 1. deild
og þeir dæma alla leikina. Mín skoð-
un er sú að ef dómararapör forfallast
fyrir leik skuli útvega viðurkennt
dómarapar í staðinn eða leikur frest-
ast ef það tekst ekki.
Ég gæti skrifað langa grein í viöbót
um t.d. eftirlitsmannakerfi, stjómun
dómaramála, hegðunarreglur, skrif
íþróttafréttamanna o.fl. en vandinn
er fyrst og fremst viðhorf manna til
dómara. Þegar stjómendur innan
HSÍ og forráðamenn félaga fara að
viðurkenna okkar störf og taka þátt
í þeim þá breytist okkar starfsgmn-
dvöllur.
Guðjón L. Sigurðsson
formaður HDSÍ og milliríkjadómari
Aganefnd Körfuknattleikssam-
bands íslands vísaði í gærkvöldi
frá kæra dómara leiks Hauka og
Vals á hendur Valsmauninum
Frauc Booker. Hann fékk tvær
tækuivillur sem yfirleitt þýða
eins leiks bann. Booker sleppur
við bann og getur því leikið með
Valsmönnum gegn Njarðvíking-
um í undanúrslitum bikarkeppn-
innar. -VS
Fimmtán
ára
tvíbætti
15 ára gömul bandarísk stúlka,
Anita Nall, tvíbætti heimsmetið í
200 metra bringusundi á banda-
ríska úrtökumótinu i Indiana-
polis fyrir ólympíuleikana i
Barcelona í sumar.
í undanrásum í fyrrinótt synti
Nall á 2:25,92 mín. en í úrslita-
sundinu bætti hún sig enn frek-
ar, syntí á 2:25,35 mín. Þýska
stúlkan Silke Höraer áttí fyrra
metiö sem sett var á ólympiuleik-
unum í Seoul 1988. Tími hennar
þá var 2:26,71 mínútur.
„Ég hef auðvitaö gengið með
draum í maganum um aö keppa
á ólympíuleikum. Ég gerði mér
alveg grein fyrir því að ég synti
hratt og átti alveg elns von á að
setja heimsniet," sagði heimsmet-
hafinn Anita Nall, yngsti banda-
ríski sundmaðurinn sem keppir
í Barcelona í sumar.
Af öðrum úrslitum á úrtöku-
mótinu tíl þessa má nefna að Eric
Namasnik sigraði í 400 m fjór-
sundi á 4:15,60 mín. en hann er
: heimsmethafi í greimnni. Fyrr-
verandi heimsmethafi, David
Wharton, varð annar á 4:17,58
mín. en hann vann silfur á
ólympíuleikunum í Seoul 1988,
Nicole Haislett sigraði í 200 m
skriðsundi kvenna á 1:58,65 min.
og Jenny Thompson varð önnm-
á 1:59,98 min. en á fyrsta degi
mótsins setti hún heimsmet í 100
m skriðsundi og sló þar sex ára
gamalt heimsmet sem Kristin
Ottoátti. -JKS
Fótur eins og á
áttræðum manni
- Birgir Sigurösson bjartsýnn á bata fyrir B-keppnina
„Mér sýnist á myndunum að
fóturinn sé orðinn eins og á átt-
ræðum manni en annars eru eng-
in liðbönd slitin. Það virðist vera
spmnga í ökklanum og sennilega
em þaö leifar af meiðslum sem
ég varð fyrir hjá Fram fyrir
mörgum árum. En ég er bjart-
sýnn á að þetta hái mér ekkert
og ég geti jafnvel byijaö aftur á
föstudaginn,“ sagði Birgir Sig-
urðsson, landsliðsmaður í hand-
knattleik, í samtali við DV í gær-
kvöldi.
Eins og DV sagði frá í gær
meiddist Birgir á æfingu með
landsliðinu í Stykkishólmi á
mánudaginn. Hann er með fótinn
í þrýstiumbúðum en vonast til að
losna við þær í vikunni.
„Ég er þó nokkuð betri í kvöld
en ég var í morgun og ég hef enga
trú á að þetta komi í veg fyrir að
ég geti leikið með landsliðinu í
B-keppninni,“ sagði Birgir Sig-
urðsson.
-VS
Tvö mörk seint í
leiknum í Dubai
- og ísland vann U-19 lið Furstadæmanna, 1-3
íslenska landsliðið í knattspymu
vann sigur á U-19 ára landsliði Sam-
einuðu arabísku furstadæmanna í
Dubai í gær, 1-3.
Arabamir náðu forystu á 10. mín-
útu, skoruðu þá úr sínu eina færi í
fyrri hálfleik. Undir lok hálfleiksins
jafnaði Víkingurinn Atli Einarsson
metin og staðan var því jöfn, 1-1, í
leikhléi.
Á síðustu 20 mínútum leiksins
bættu íslensku strákamir við tveim-
ur mörkum. Á 70. mínútu skoraði
Eyjamaðurinn Tómas Ingi Tómasson
með skalla eftir fyrirgjöf og fimm
mínútum fyrir leikslok skoraði Ólaf-
ur Kristjánsson úr FH þriðja markið
beint úr aukaspyrnu.
Ásgeir Elíasson landsliðsþjálfari
gerði nokkrar breytingar á byrjun-
arliðinu frá leiknum gegn A-hði
arabanna. Þeir sem byijuðu á vara-
mannabekknum í þeim leik hófu ali-
ir leikinn í gær og þeir Birkir Krist-
insson, Andri Marteinsson, Einar
jPáll Tómasson og Tómas Ingi Tómas-
son byijuðu utan vallar en þeir komu
allir inn á. Amar Grétarsson gat
ekki leikið vegna veikinda. Leikur-
inn telst ekki opinber landsleikur.
-GH
Framliðið í knattspymu mætir
dönsku meistumnum I Bröndby 16.
apríl næstkomandi, skírdag. Leik-
urinn verður á aðaUeikvangi fé-
lagsins, Bröndby Stadion í
mannahöfn, en Framarar
Kaup-
verða
ytra viö æftngar- og keppni
fiinm daga í páskavikunm.
Auk leiksins við Bröndby verður
leikið við 2. deildarlið.
Bröndby er um þessar mundir í
efsta sætí í dönsku úrvalsdeildinni
og er hér þvi um að ræða verðugt
verkeftú fyrir Framliðið. Þess má
geta að undanfai'in ár hefur verið
gott samstarf á milli þessara liöa.
-JKS
Tómas Ingi Tómasson skoraði ann-
að mark íslands meó skalla.