Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1992, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 9. MARS 1992.
3
Fréttir
Folda hf. á Akureyri:
Áætlanir okkar haf a staðist
- segir Baldvin Valdimarsson fr amkvæmdastjóri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri;
„Viö getum aUs ekki kvartað og
þegar á heildina er litiö hafa þær
áætlanir, sem við gerðum í upphafi,
staðist mjög vel. Það hafa að sjálf-
sögðu verið smáfrávik en þau eru
innan mjög óverulegra marka," segir
Baldvin Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri Foldu hf. á Akureyri,
uUarvinnslufyrirtækisins sem stofn-
að var á rústum Álafoss á Akureyri
á síðasta ári.
Baldvin segir að rekstur fyrirtæk-
isins þá þijá mánuði sem það var
starfrækt á síðasta ári hafi gengið
vel, hagnaður varð á rekstrinum og
svo virðist sem áframhald sé á því.
Baldvin segir að fyrirtækið hafl
náð nýjum mörkuðum að hluta til.
„Við erum að byija aftur að selja á
Ameríku og gerum það á nokkuð
annan hátt en gert hefur verið til
þessa. Það starf lofar mjög góðu.
Annars höfum við fyrst og fremst
einbeitt okkur aö þeim mörkuðum
sem voru til staðar áður þannig að
það hefur verið um eins konar vam-
arbaráttu að ræða að halda því sem
við töldum okkur eiga möguleika á.“
Nú hefur verið ákveðið að loka
vefdeild fyrirtækisins í tvo daga í
viku í marsmánuði og er það gert í
samráði við starfsfólk. í þeirri deild
hafa starfað tæplega 20 manns. Varð-
andi það segir Baldvin að nú séu að
koma fram eftirköst gjaldþrots Ála-
foss. „Þær pantanir, sem við ættum
að vera að vinna núna, hefðu átt að
berast um það leyti sem gjaldþrotið
varð á sínum tíma, en þá héldu menn
að sér höndum af skiljanlegum
ástæðum. En til þess að milda þessar
aðgerðir höfum við flutt starfsfólk
úr vefdeild í fatadeild þar sem verk-
efnastaðan er góð,“ sagði Baldvin.
Starfsmenn hjá Foldu eru í dag 136
talsins og þar af starfa um 120 við
framleiðslustörf.
Áætlanir Foldu, sem stofnuð var á rústum Álafoss, hafa staðist i öllum
aðalatriðum. DV-mynd GK
Slippstöðin á Akureyri:
Bylgjan afhent
nú í vikunni
- Qöldi iðnaöarmanna hætti um mánaðamótin
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Nær allir þeir iðnaðarmenn sem
sagt hafði verið upp störfum hjá
Slippstöðinni á Akureyri hættu
störfum nú um mánaðamótin er
örfáir voru endurráðnir, að sögn Sig-
urðar G. Ringsted, framkvæmda-
stjóra fyrirtækisins. Þá hættu einnig
nokkrir aðrir starfsmnenn sem unnu
við önnur störf og hafa hátt í 50
manns látið af störfum hjá stöðinni
síðustu mánuði.
Starfsmenn stöðvarinnar eru nú
að leggja lokahönd á smíði Bylgjunn-
ar sem fer til Vestmannaeyja. Hér er
um að ræða hið kunna „raösmíða-
skip“ sem loksins tókst að selja.
Kaupandinn er Matthías Óskarsson,
útgeröarmaður og skipstjóri í Eyjum,
en hann er sonur Óskars Matthías-
sonar sem keypti Þórunni Sveins-
dóttur hjá Shppstöðinni nyrðra á síð-
asta ári.
Það skip er nú komið til Akureyrar
aftur og vinna hafin við að breyta
því í frystiskip. Áætlað er að það
verk taki 6 vikur.
Af öðrum verkefnum Shppstöðvar-
innar má nefna miklar breytingar á
togaranum Árbaki sem standa yfir
og innan skamms hefst smiði Malavi-
skipanna svoköhuðu en þar er um
að ræða smíði á tveimur litlum skip-
um sem flutt verða úr landi ósamsett
en þau verða síðan sett saman þegar
komið verður með skipshlutana til
Malaví.
Spár um samdrátt hjá
ÁTVR að rætast?
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
greiddi 325 mihjónir í ríkissjóð í jan-
úar og 425 mihjónir í febrúar. Eftir
er aö reikna virðisaukaskatt og
landsútsvar ofan á þessar skhatölur
en þær standast áætlun miðað við
forsendur flárlaga. Þar er gert ráð
fyrir að ÁTVR skih 6 mihjörðum og
650 mihjónum í ríkiskassann á þessu
ári en það er nokkur raunlækkun
og 150 mihjónum króna minna en
áætlað var í upphafi fjárlagagerðar-
innar.
Árið 1991 voru hagnaðarskh ÁTVR
th ríkissjóðs tæpir 6,5 mihjaröar
króna en hehdarsala ársins nam
rúmum 12 mihjöröum. Hehdarskh th
ríkissjóðs að öhu meðtöldu námu
tæpum 9 mihjörðum. .
-VD
ÞU ÞARFT EKKI AÐ
FARA ANNAÐ
‘
mmí „-ífsrsí
KASPER
UNDINE
kr. 3.330,-
kr. 5.550,-
ADRIA
kr. 3.690,-
■mmh
y&mm
1
•ú'! m w
I!
'í-ti a
ADRIA
kr. 3.690,-
MILAN
kr. 6.240,-
PISA
kr. 6.960,-
■
RIVA
kr. 4.770,
HANNE
kr. 5.140,-
■
BOLOGNA
kr. 14.580,-
VANTAR ÞIG STOLA I DAG?
Eldhússtólar og önnur húsgögn í miklu úrvali
í stœrstu húsgagnaverslun landsins
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - SÍMI91-681199 - FAX 91-673511