Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1992, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 9. MARS 1992.
5
Fréttir
Hugmyndir menntamálaráðherra:
Skólinn styttur og sam
ræmdum próf um fjölgað
- viðamikil endurskoðun grunnskóla- og framhaldsskólalaga að heflast
Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráöherra hefur skipað 18 manna
nefnd til þess að endurskoða grunn-
skólalögin sem voru samþykkt í
fyrra og lög um framhaldsskóla sem
I voru síðast endurskoðuð árið 1989.
Nefndin á að skila frumvarpsdrögum
1. september. Ekki var óskaö eftir
tilnefningum í nefndina og kveðst
formaður Kennarasambands ís-
lands, Svanhildur Kaaber, afar ósátt
við það. Hún ítrekar einnig það álit
að svo mikil sátt hafi verið bæði á
þingi og meðal hagsmunaaðila um
lögin að undarlegt sé aö þau þuffi
endurskoðunar við.
Ólafur Arnarson, aðstoðarmaður
ráðherra, segir að talið hafi verið
gæfulegra að skipa fólk en bíða til-
nefninga frá þeim sem unnu að lög-
unum sem skoða á. Nefndinni er þó
skylt að hafa samráð yið hagsmuna-
aöila.
Þær hugmyndir, sem ráðherra
æskir að nefndin fjalli um, fela með-
al annars í sér að grunnskólinn verði
styttur um eitt ár og framhaldsskól-
inn einnig þannig að nemendur ljúki
stúdentsprófi tveimur árum fyrr en
I nú er. Einnig að skólar komi betur
til móts við nemendur sem hyggja
ekki á langskólanám og athugað sé
I
sjálfstæði skóla og hvort fræðslu-
skrifstofur skuli taka við auknum
stjórnunar- og eftirlitsverkum frá
ráðuneyti. Einnig vill hann láta at-
huga grundvöll þess að hveiju um-
dæmi verði úthlutað ákveðnum fjár-
munum og fræðsluskrifstofur einar
stýri útstreymi þeirra. Þá vill ráð-
herra fá betri skilgreiningu á hvaða
skilyrði nemendur þurfi að uppfylla
til að geta hafið nám í framhalds-
skóla og hvort nauðsyn sé á sam-
ræmdum prófum þar. Þar á meðal
er nefnt að óháðir aöilar meti árang-
ur nemenda og skóla, annist gerö
samræmdra prófa og skilgreini
staðla. Talað er um gæðamat í skóla-
starfi og því til skýringar segir Ólaf-
ur Arnarson að í Bandaríkjunum til
dæmis starfi sérstakar prófstofnanir.
Spurt er álits á þeirri hugmynd að
samræmd próf verði í fleiri greinum
og þau lögð fyrir nemendur eftir 7.
bekk og einnig að loknum grunn-
skóla. Nefndin á ennfremur aö kanna
kosti þess að færa rekstur grunn-
skóla algjörlega yfir til sveitarfélaga
þannig aö kennarar verði starfs-
menn sveitarfélaga. Jafnframt á að
kanna flutning á tekjustofnum til
sveitarfélaga vegna þessa.
-VD
Menntamálaráðherra hefur skipað 18 manna nefnd til þess að endurskoða grunnskólalögin sem voru samþykkt
í fyrra og lög um framhaldsskóla sem voru síðast endurskoðuð árið 1989.
hvort rétt sé að koma á styttri náms-
brautum í verk- og tækninámi. Sér-
staklega á að athuga verknám og
hvort rétt sé að einstakir skólar verði
móðurskólar á mismunandi sviðum,
einnig hvort atvinnulífið geti tekið
við einstökum verklegum þáttum
kennslu.
Ráðherra spyr hvernig megi auka
Peugeot 106 ber höfundum sínum fagurt vitni,
listasmiðunum sem lögðu alla hæfileika sína,
metnað og hugvit í að gera þennan glæsilega
bíl sem fullkomnastan.
Hnitmiðuð hönnun gerir Peugeot 106
lipran, lifandi og rúmgóðan borgarbíl.
íslendingar gera þá kröfu til bíla að þeir standist
erfiða prófraun á misjöfnum vegum. Meistara-
smiðir Peugeot höfðu að leiðarljósi að finna
sem næst fullkomið samræmi milli stærðar
hans og þyngdar og þess hversu kraftmikill
bíllinn er. Niðurstaðan er sú að Peugeot 106
hefur reynst afbragðs vel úti á vegum og með
eindæmum sparneytinn. Peugeot 106 er ekki
stór bíll, en hann hefur marga stóra kosti.
Verö frá 672.500 kr.
JÖFUR
NÝBÝLAVEGI 2 • SÍMI 42600