Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1992, Qupperneq 10
II
10
MÁN{jDÁGUr' 9. MARS 1992.
Utlönd
Greiða ekki úf
vinning
Stjóm lottósins í Virginíu i
Bandarílgunum er að bræða meö
sér að greiða ekki út stórvinning
sem hópur ástralskra fjármála-
manna vann þar fyrir skömrau.
Upphæðín nemur hátt. í tveimur
milljörðum króna en Ástralimir
lögðu mikið undir og keyptu upp
mitónn hluta raðanna í lottóinu.
Ástralimir notuðu tölvuval við
að fylla út lottóseðlana og stjóm-
uðu verkinu að heiman. I reglum
lottósins í Virginíu segir að
greiða verði fyrir miðana þar sem
þeir eru seldir til að allir eígi
jafna möguleika á að kaupa. Eftir
þessu verða menn að fara á sölu-
staöina og kaupa raöirnar þar.
Krefstþessað
John Demjanjuk
verði láfinn laus
Veijandi Johns Demjanjuk
krefst þess að dómur undirréttar
í ísrael verði ógiltur og skjólstæð-
ingur hans látinn laus þegar í
stað.
Máiið er fyrir hæstarétti í ísrael
en verjandinn segir að nægar
sannanir hafi verið lagðar fram
til að sýna aö Demjanjuk er ekki
maðurinn sem gmnaður er um
stríðsglæpi í Ukraínu meðan
Þjóðverjar hersátu landiö í síðari
heimsstyrjöidinni. x-.
ísraelsmenn hafa mitónn hug á
að fá marai sem kallaður var Ivan
grimmi dæmdan og telja aö um-
ræddur Demjanjuk sé sá maður.
Vitni hafa hins vegar borið að svo
sé ektó og Demjanjuk því alsak-
laus.
Escobarlifirí
veiiystingum
praktuglega
Stjómvöld í Kolombíu hafa
ákveðið aö draga úr þægindum í
fangelsinu þar sem eiturlyfjabar-
óninn Pablo Escobar er í haldi.
Við rannsókn á aðstæðum í fang-
elsinu kom í ljós aö þaö haföi
veriö búið ýmsum þægindum
sem ekki er venja að bjóða í fang-
elsum.
T.d. gátu Escobar og félagar
hans í fangelsinun stundað böö
sér til heilsubótar og gólf höfðu
verið teppalögö. Þá var búið aö
flytja forláta fundarborð úr harð-
viði í fangelsiö.
Escobar gaf sig fram við lög-
regluna ásamt 14 félögum sínum
fyrir rúmu ári og hafa þeir setið
inni upp frá því. Þeir fengu milda
dóma.
Fjórir menn
handteknireftir
mannrán
Belgíska Iögreglan hefur hand-
tekiö fjóra menn vegna gmns um
aðild aö ráni á 11 ára gömlum
sonarsyni verksmiöjueiganda í
Brussel. Drengnum var rænt 4.
febrúar þegar hann var á leið í
skólann.
Mannræningjarnir kröfðust
lausnargjalds og var það innt af
hendi á fóstudaginn í Antwerpen.
Talsmaður lögreglunnar segir að
nægar sannanir séu fyrir hendi
til að sýna fram á að fjórmenning-
amir rændu drengnum.
Mennirnir eiga yfir höfði sér
allt aö lífstíðarfangelsi ef þeir
verða fundnir sekir um mannrán.
Drengurinn var í góðu yfirlæti
h)á mannræningjunum og
þyngdist um fjögur kíló á þessum
mánuði sem hann var i haldi.
Hann segist hafa fengið mikiö
sælgæti. Reuter
Harönandi keppni meðal þriggja forsetaefha demókrata 1 Bandaríkj unum:
Clinton hagnast mest
á að Harkin er hættur
- forkosningar beggja flokka í mörgum mikilvægum ríkjum á morgun
Möguleikar Bills Clinton á að hljóta
útnefningu demókrata sem forseta-
efni þeirra í kosningunum í haust
hafa autóst að mun við það að Tom
Hartón hefur dregið sig út úr fram-
boðsslagnum.
Á morgun verða forkosningar í átta
mikilvægum ríkjum auk þess sem
forval verður meðal flokksmanna í
þremur öðrum ríkjum. Sex ríkjanna
eru í suðri en talið er að Clinton eigi
mesta möguleika þar.
Staða hans fyrir tömina á morgun
er því skárri en veriö hefur frá því
hann lenti í hremmingum í upphafi
baráttunnar vegna kvennamála og
undanþágu frá herþjónustu.
Hartón sótti einkum fylgi sitt til
verkalýðsstéttarinnar og naut stuðn-
ings margra mikilvægra forystu-
manna í verkalýðshreyfingunni.
Þessir menn líta svo á að Paul Tsong-
as, sem hefur forystuna í forkosning-
unum þessa stundina, sé of íhalds-
samur og að Jerry Brown sé um of
hallur undir ýmis stórfyrirtæki á
vesturströndinni.
Brown var um átta ára skeiö ríkis-
stjóri í KaUforníu og hann fékk
stuðning ílokksmanna sinna í
Nevada í gær. Hann þykir því sterk-
astur í vesturríkjunum en hefur
minna fylgi í öðrum ríkjum. Tsongas
á helst von um fylgi í norðaustri.
Fylgismenn flokkanna eru að kjósa
fulltrúa á landsfundi síðar á árinu.
Forsetaefnin reyna að fá sem flesta
fulltrúa til að lýsa yfir stuðningi við
SÍg. Reuter
Begin, fyrrum forsætisráðherra ísraels, látinn
Minnst bæði fyrir hryðju-
verk og friðarsamninga
Menachem Begin, fyrrum forsæt-
isráðherra ísraels, lést í gærkveldi,
78 ára að aldri. Hann var um árabil
einn af helstu forystumönnum ísra-
elsmanna, forsætisráðherra á árun-
um 1977 til 1983 og stóð þá m.a. fyrir
friðarsamningum við Egypta árið
1979 í Camp David í Bandaríkjunum.
Friðargerðin markaði tímamót í
samskiptum ísraelsmanna við
arabarítón og treysti stöðu ísraels á
alþjóðavettvangi.
Begin verður þó minnst fyrir fleira
en friðarsamninga. Hann ákvað að
senda ísraelsher inn í Líbanon árið
1982 í þeim tilgangi að brjóta starf-
semi Frelsissamtaka Palestínu-
manna á bak aftur. Innrás þessi hef-
ur alltaf verið mjög umdeild og
ávinningur ísraelsmanna af henni
varð mjög takmarkaður, raunar er
ektó enn séð fyrir endann á afleiðing-
um hennar.
Begin var alltaf í röð fremstu harð-
línumanna í ísrael og var í forystu
öfgasinnaðra hryðjuverkamanna á
árunum eftir síðari heimsstyrjöldina
þegar ísraelsmenn voru að beijast
fyrir sjálfstæði landins. Begin stjóm-
aði m.a. alræmdu sprengjutilræði á
King David hótelinu í Jerúsalem þar
sem um 100 breskir liðsforingjar létu
lífið.
Begin komst fyrst til áhrifa í ísra-
elskum stjórnmálum árið 1967 þegar
hann varð ráðherra án ráðuneytis.
Hann var ákafur stuðningsmaður
þess að ísraelsmenn létu ekki af
hendi herteknu svæðin úr sex daga
stríðinu og Ytzhak Shamir, arftaki
hans í forystu harðlínumanna, hefur
fylgt þeirri stefnu af hörku.
Begin hætti afskiptum af stjóm-
málum árið 1983. Hann veiktist al-
varlega í fyrri viku og komst ekki til
heilsu á ný. Hann var fæddur í Pól-
landi 16. ágúst árið 1913.
Rændi augum
vistmannaog
seldi í liffæra-
banka
Stjórnandi geðveikrahælis í
Argentínu hefur verið handtek-
inn, grunaður um að stela augum
úr líkum þeirra vistmanna sem
létust og selja þau í líffærabanka.
Það var næturvörður á hælinu
sem kom upp um stjórnandann
en hann sagðist hafa hjálpað til
við að fjarlægja augum. Sjáöldrin
voru tekin úr augunum en hægt
er að græða þau í augu á ný.
Næturvörðurinn segir að þeir
hafi tekið augun úr vistmönnum
sem ekki áttu ættingja í nágrenn-
inu þannig að litlar líkur voru á
að nokkur vitjaði um lítóð.
Lýðræðinu
stendur ógn af
LePenn
Fjármálaráðherra Frakklands
segir að lýðræðinu í landinu
standi ógn af hægri öfgamannin-
um Jean-Marie Le Penn. Auka-
kosningar til þings standa fyrir
dyrum í Suöur-Frakklandi og
hefur komið til uppþota þar
vegna framboðs Þjóðfyltóngar Le
Penns.
Le Penn hefur m.a. á stefnuskrá
sinni að reka innflytjendur úr
landi. Hann hefur leynt og ljóst
lýst samúð sinni með nasistum.
Kosið verður þann 22. mars og
er Le Penn spáö 15% fylgi en að
sósíalistar, sem nú eru í stjóm,
tapi nokkm.
Reuter
Reuter
Menachem Begin samdi við Anwar Sadat Egyptalandsforseta árið 1989 í Camp David þar sem Jimmy Carter
Bandarfkjaforseti hafði milligöngu. Simamynd Reuter