Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1992, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1992, Blaðsíða 2
2 FÖSTUDAGUR 20. MARS 1992. Fréttir DV Akureyri: Forstöðumaður sambýlis fatlaðra í f íknief namálinu - auk nokkurra einstaklinga 1 samtökunum í Listagili Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; „Mér finnst það mun alvarlegra mál að maður, sem er forstöðumaður eins eða tveggja sambýla fatlaðra hér í bænum, skuli vera viðriðinn þetta flkniefnamál sem neytandi en að örfáir listamenn, sem tengjast Listagili, skuli vera flæktir í málið og þáttur þeirra blásinn upp,“ sagöi viðmælandi DV á Akureyri í gær um eftirmál flkniefnamálsins svokallaða þar í bænum. Rannsókn málsins er nú lokið hjá rannsóknarlögreglunni nyrðra og verður það innan skamms sent til embættis ríkissaksóknara. Afls voru 32 aðilar yfirheyrðir vegna þessa máls sem snerist um dreifingu og neyslu á hassi. Neyslan mun hafa farið fram í lokuðum hóp- um, og það hefur verið upplýst að í þeim hópi voru 4-5 aðilar sem tengj- ast hinni nýju listamiðstöð á Akur- eyri, Listagilinu svokallaða. Einn þeirra mun einnig vera forstöðumað- ur eins eða tveggja sambýla fyrir fatl- aða á vegum Akureyrarbæjar. Ekki náðist í Bjama Kristjánsson, yfirmann Svæðisstjórnar um mál- efni fatlaðra á Norðurlandi, í gær en þau samtök sjá um rekstur sambýla fyrir fatlaða á Akureyri. Margrét Alfreösdóttir, skrifstofustjóri sam- takanna, sagðist harma þetta mál en vildi að öðru leyti ekki tjá sig neitt um það. „Það er því miður ekki hægt að neita því að einhverjir einstaklingar, sem eru í okkar samtökum í Lista- gili, tengjast þessu máli,“ segir Guð- mundur Ármann Sigurjónsson, for- maður Gilfélagsins, en það félag stendur að uppbyggingu listamið- stöðvarinnar í Listagili. „Sem formaöur félagsins lít ég mjög alvarlegum augum á þetta mál, enda er það, eins og gefur aö skilja, ekki á stefnuskrá félagsins að félagar þess séu flæktir í lögbrot," sagði Guðmundur Ármann. Hann sagði að umræddum einstaklingum yrði ekki visað úr félaginu. „Ég veit ekki betur en þessir menn ætli að taka sig á og geri þeir það þá verður þeim ekki vísað í burtu,“ sagði Guðmundur. Ferðapeningar og dagpeningar ráðherra og maka þeirra fyrstu 10 mánuði ríkisstjórnarinnar Alls greitt: 1 aj B 0 mUí luíuHI Jón Bald. 5.353.951 kr. DavíðO. 3.111.116 kr. EiðurG. 3.077.653 kr. Ólafur E. 2,568.827 kr. Sighvatur 1.587.034 kr. Þorsteinn 1.260.266 kr. Jón S. 1.236.470 kr. Friðrik So. L150.060 kr. Jóhanna 1.014.114 kr. Jón Sigurðs. 910.542 kr. Halldór Bl. 667.199 kr. Þorsteinn 207.093 kr. Halldór Bl. 230.464 kr. | Ráðherra IH Maki □ Alls Kostnaður við ferðalög ráðherranna fyrstu 10 mánuðina: Heildarkostnaður rúmar 22 milljónir króna - þar af voru dagpeningar ráðherra og maka 7,5 milljónir króna I gær barst til Alþingis svar við fyrirspum Kristins H. Gunnarssonar um ferðakostnað ráðherra frá því ríkisstjómin tók við 1. maí í fyrra og til 25. febrúar síðastflðinn eða fyrstu 10 mánuði hennar. í ljós kem- ur að aflur kostnaður við ferðir ráð- herranna og maka þeirra nemur 22.367.789 krónum. Þar af eru dag- peningagreiöslur til ráðherranna og maka þeirra 7.435.864 krónur. Þess skal getið þegar rætt er um dagpen- inga ráðherra og maka þeirra að all- ur ferða- og hótelkostnaður er greiddur þar fyrir utan af ríkinu. Utanríkisráðherra er með lang- mestan kostnaðinn eða samtals 5,3 milljónir króna þessa 10 mánuði. Þar af eru dagpeningagreiðslur til hans og maka hans 1.665.408 krónur. í þessu kostnaðaryfirliti frá forsæt- isráðuneytinu vekur athygli að um- hverfisráðherra hefur farið 10 ferðir til útlanda á þessu tímabili og er hann næstur á eftir utanríkisráð- herra sem er með 16 ferðir. Þá vekur það líka athygli aö umhverfisráð- herra eyddi 167.801 krónu í risnu á meðan nokkrir ráðherra eyddu engu í risnu en aðrir 10 til 20 þúsund krón- um. Halldór Blöndal er sparsamastur ráðherranna á ferðalögum. Hann fór sem landbúnaðarráöherra 2 ferðir og sem samgönguráðherra 5 ferðir og samtals kostuðu þessar ferðir 897.663 krónur. Að öðru leyti vísast til meðfylgj- andisúlurits. -S.dór Bimi Guðjónssyni send dularfull bréf frá Spáni: Sagður vera fórnar- lamb gimsteinasvikara - fékk reikning fyrir safír og svo bréf um lögreglurannsókn „Það hljota fleiri en eg að hafa feng- ið svona bréf hér á íslandi. Síðastfið- ið sumar fékk ég tilboð í gegnum síma um að kaupa alls konar de- manta og safíra frá fyrirtæki sem þá var í Hollandi. Ég vildi ekkert kaupa af manninum. Samtalið endaði í vonsku hjá honum og hann skellti á mig. í janúar fékk ég aðra upphring- ingu, þá frá Barcelona. Maðurinn sagðist heita John Hamilton frá fyr- irtækinu Silhouette Limited. Maður- inn gekk hart að mér að kaupa gim- steina. Ég neitaði manninum ekki alfarið og samþykkti að hann sendi mér kynningarplögg. Þegar hann sendi mér bréf kom reikningur upp á 1.050 dollara - fyrir Ceylon Safír. En það kom engin vara,“ sagði Björn Guðjónsson starfsmaöur hjá Ingvari Helgasyni hf. Bjöm fékk í kjölfar framangreinds „viðskiptasamtals" í janúar ein- kennilegt bréf á miðvikudag. Þar er sagt að honum tilkynntist þar með „óformlega" að lögreglurannsókn fari fram á máli Silhouette Limited - fyrirtækið sé flutt frá Spáni, senni- lega til Genfar. í bréfinu segir að Björn sé eitt af mörgum fómarlömb- um sem hafi verið blekkt í viðskipt- um við fyrirtækið. Eðalsteinarnir, sem fyrirtækið selur, em meðal ann- ars sagðir verðlausir. Bréfið er ekki með neinum bréf- haus. Undirskrift er engin að undan- skildu því að aftast í bréfinu stendur „NIF Dept. Barcelona". Engin dag- setning er á því, ekkert nafn eða heimilisfang. Þó að í bréfinu sé sagt að Bjöm sé eitt fómarlamb svikara hefur hann, þrátt fyrir að hafa fengið reikning, ekkert keypt og engu tapað. Nafn hans og fyrirtæki er á hinn bóginn Reikningurinn frá „gimsteinafyrir- tækinu“ er vel merktur með heimil- isfangi og nöfnum en „rannsóknar- bréfið" var ekki merkt ákveðnum aðilum. DV-mynd Hanna greinilega í skrám þessa dularfulla Silhouette-fyrirtækis sem virðist flytja vafasama starfsemi sína á milli landa. Björn hefur enga hugmynd um hverjir eða hvaðan nafn hans barst fyrirtækinu eða hvort fyrir- tækiö hefur boðið fleiri íslendingum safira eða demanta. Birni hafa veriö send tvö bréf vegna þessa máls, annað frá Silhou- ette en hitt þar sem tilkynnt er um rannsóknina. Á utanáskrift beggja vekur athygli að þrátt fyrir að spænsk frímerki og póststimpill sé á þeim er nafn Björns og fyrirtækis- nafn, skrifað með íslenskum stöfum, ó, ö, og æ að undanskildu því að d er sett í stað ð. Auk þess virðist greinilegt að utanáskriftin á báðum bréfunum virðist gerð með sömu eða sams konar ritvél eða prentara. -ÓTT Fyrrimi áskrifandi Þjóðlífs þarf að borga þó að hann hafi sannað sitt mál: Lögf ræðingar mata krókinn í þessum málum „Lögfræðingar mata krókinn í þessum málum hvemig sem þau fara. Því bendum við fólki á að mæta sjálft í rétt sé það boðað til aö sýna kvittanir,“ segir Vilhjálm- ur I. Ámason, formaður Neytenda- félags Akureyrar. Félagið hefur nú fengið vitneskju um annað inn- heimtumál sem er tilkomiö vegna áskriftar að tímaritinu Þjóölífi. Þar blasir sú staða við bónda, sem er fyrram áskrifandi að blaðinu, að þurfa að greiða 50.000 krónur vegna málsins enda þótt hann hafi sannaö í dómþingi að hann hafi þegar greitt áskriftina. í því tilviki þar sem 74 ára gömul kona á Akureyri var krafin um háar upphæðir vegna kostnaðar við innheimtu kom fram að hún hefði ekki mætt í dómsal til að sanna með framvísun kvittana að hún hefði greitt kröfumar. Að sögn konunnar mætti hún ekki vegna þess að innheimtufyrirtækið full- vissaði hana um að þess gerðist ekki þörf og málið yrði látið niður falla. Umræddur bóndi fékk sama lof- orð um að óþarfi væri að mæta en treysti ekki á það og sendj lögfræð- ing í dómþing fyrir sína hönd. Lög- fræðingurinn mætti, sanriaði mál bóndans og gerði gagnkröfu í mál- inu um að stefnandi, Steingrímur Snorrason á Höfn, borgaði máls- kostnað sem er kominn upp í 50.000 krónur. Á daginn hefur komið að hann getur ekki greitt lögfræðingn- um málskostnaöinn og því neyðist bóndinn sjálfur til að borga. Fyrsta fyrirtækiö sem keypti kröfur af Þjóðlífi var Úthey sem seldi þær Steingrími þessum og hann seldi kröfumar síðan aftur til eigenda Útheys sem einnig reka fyrirtækið Innheimtur og ráðgjöf. -VD

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.