Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1992, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1992, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 20. MARS 1992. Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11 Prentun: ARVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð i lausasölu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Enn við heygarðshornið Samband íslenskra fiskframleiðenda hefur haft einkaleyfi á útflutningi á saltfiski svo lengi sem elstu menn muna. Engar sögur fara af því hvort SÍF hafi náð hagkvæmustu samningum um sölu saltfisksins þar sem enginn er samanburðurinn. Það reyndi einfaldlega aldr- ei á það hvort betra verð fengist. Norðmenn hafa selt saltfisk á sömu slóðir og SÍF og lengst af hafa Norðmenn einnig látið einokunarsamtök sjá um þann útflutning. Einokunin sat sem sagt ein að markaðnum og lifði tiltölulega þægilegu lífi. Einokunin hafði umboðsmenn á sínum snærum í Portúgal og á Spáni og fullyrt er að umboðsmennirnir hafi lifað kónga- lífi á umboðslaununum og fengu fálkaorður fyrir. Meðan saltfiskframleiðendur ákváðu sjálfir að una því verði, sem einokunarsamtökin sögðu þeim að hlíta, og ríkisvaldið verndaði einkarétt einokunarinnar, hefur orðið ör þróun í öðrum greinum innflutnings og útflutn- ings í heiminum. Markaðir hafa verið að opnast, neyt- endur hafa látið að sér kveða og frelsi í viðskiptum hefur rutt sér til rúms með þeim árangri að hagur fram- leiðenda, verslunar og neytenda hefur batnað. Sam- keppnin hefur tengt saman gæði, verð og framboð sem aftur hefur leitt til aukinnar eftirspurnar. Norðmenn voru fyrri til að losa um einokunina í salt- fiskútflutningi sínum og eftir að verslun var gefin frjáls hjá norskum á Portúgalsmarkaði hefur hagnaður fram- leiðenda aukist um hundruð milljóna króna. Þrátt fyrir miklar deilur og andstöðu SÍF gáfu stjórn- völd hér á landi takmörkuð leyfi til aðila utan SÍF um útflutning á saltfiski. Nú er komin nokkur reynsla á þau viðskipti og 1 stað undirboða fullyrðir Jón Ásbjörnsson saltfiskútflytjandi að hann fái hærra verð fyrir saltfisk- inn á Spáni heldur en SÍF. Þröstur Ólafsson hjá utanrík- isráðuneytinu kannast ekki við að aukið frjálsræði í útflutningnum hafi skaðað SÍF, enda bendir Þröstur á að útflutningur annarra en SÍF á þennan markað sé innan við 1% af heildarsölunni. Hins vegar hefur slíkur taugatitringur gripið um sig meðal forsvarsmanna SÍF að þeir hafa séð ástæðu til að senda frá sér formlega ályktun og áskorun til ríkis- stjómarinnar um að afnema hið takmarkaða frelsi og standa vörð um einokunina! Þessi miklu og grónu sam- tök segja meira um sjálf sig heldur en útflutningsversl- unina, ef þau treysta sér ekki til að mæta eðlilegri sam- keppni og frelsi á markaðnum öðruvísi en að flýja aftur í faðm einokunarinnar. Sérstaklega er þetta aum afstaða og óskiljanleg, þegar haft er í huga að hér er um að ræða útgerðar- og fiskvinnslukappa, sem hafa sjálfir sýnt þor og þrek í sínum atvinnurekstri og eru mestu og bestu einkaframtaksmenn þjóðarinnar. Saltfiskfram- leiðeindur em engir veifiskatar og það hefði mátt ætla að áratugaforréttindi og frumkvæði samtaka þeirra á umræddum markaði mundi eiga allskostar við litla og nýtilkomna samkeppni. Eða getur það verið að einokun- in og öryggið hafi dregið svo máttinn úr SÍF að það þoh ekki eða þori að selja sína vöm í samkeppni við aðra? Ef svo er, getur varla fundist betri sönnun fyrir skaðsemi einokunarinnar. Það kemur auðvitað ekki til greina að stjómvöld ljái neyðarkalh SÍF-manna eyra. Þvert á móti á að auka frelsið og opna fleiri gáttir. Einokun er hðin tíð og salt- fiskframleiðendur hafa aha burði til að standa sig í sam- keppni við aðra. Reynsla Norðmanna er þar órækasta vitnið. Samkeppnin mun skila sér í auknum hagnaði. Ehert B. Schram Clinton gegn Bush Þá er þaö komið á hreint, og miklu fyrr en menn höfðu búist við. Bill Ólinton verður andstæðingur Ge- orge Bush í kosningunum í nóv- ember. Enda þótt hann hafi ekki enn nauðsynlegan meirihluta full- trúa á flokksþinginu í sumar er það ljóst eftir sigra hans í Biinois og Michigan í fyrradag og í ellefu suð- urríkjum þriðjudaginn þar áður að slíkur skriður er kominn á fram- boð hans að hann verður ekki stöðvaður. Nú fyrst geta repúblikanar farið að beita sér í kosningabaráttunni fyrir alvöru, ekki með því að verja Bush heldur með því ráðast á and- stæöing hans. Skítkast , Kosningabaráttan 1988 var sú skítugasta og í rauninni svívirði- legasta sem sögur fara af, og allt skítkastið kom úr herbúðum Ge- orge Bush. Persónulegar árásir á andstæðinginn, Mikael Dukakis, voru með ólíkindum en jafnframt var í þeim duiinn undirtónn af kyn- þáttafjandskap. Dukakis var látinn vera sá maður sem sætti sig við og umbæri ofbeldi og glæpi og hann persónulega var gerður ábyrgur fyrir nauðgun sem blökkumaður, sem fengið hafði orlof úr fangelsi í heimaríki Dukakis, hafði framið á hvítri konu. Blökkumenn brugðust við iiat- ursáróðri repúblíkana að hluta með því að haíla sér að Jesse Jack- son, sem átti enga raunhæfa mögu- leika, í stað demókrata eins og venjulega og það átti sinn þátt í sigri Bush. Að öðru leyti erfði Bush fylgi Reagans, stór hluti þjóðarinn- ar, sá efnameiri, vildi engu breyta. En nú eru aðstæður allt aðrar. Kosningabaráttan frá 1988 verður ekki endurtekin. Það hefur komið í ljós að sá neikvæði áróður, sem Bush hefur stundað, er farinn að hafa öfug áhrif og hitta hann sjálf- an fyrir. Það er líka ljóst að þriðj- ungur hans eigin flokksmanna treystir honum ekki lengur og fimmti hluti þeirra demókrata, sem kusu hann síðast, ætla ekki að kjósa hann núna. Hann getur ekki beitt sömu kosningabrögðum og síðast. Hægri armurinn En annað hefur líka gerst í þess- ari kosningabaráttu. Það er að hægri armurinn hefur fengið sinn ótvíræöa talsmann, Pat Buchanan. Jafnvel þótt Buchanan ógni ekki endurvali repúblíkana á Bush til framboðs hefur hann þegar haft varanleg áhrif á þá stefnu sem flokkurinn mun móta í kosninga- baráttunni. Þau áhrif eru að draga flokkinn ennþá lengra til hægri, á sama tíma og skoðanakannanir sýna að allur almenningur er að snúa baki við þeirri stefnu sem Reagan mótaði og Bush hefur fylgt og halla sér meira að miðjupólitík. Bush getur ekki hunsað Buchahan, og hann mun heldur ekki geta losað sig við Dan Quayle í næstu kosningum, þvi aö Quayle er eftirlæti hægri armsins. Þeir Quayle og Buchanan beijast um sömu stuöningsmenn, og raunverulegur tiigangur Buc- hanans með framboði nú er að fella Quayle sem frambjóðanda í kosn- ingunum 1996. Breið samfylking Bill CUnton aftur á móti er maður allt annarrar gerðar. Honum hefur tekist að afla sér mikils fylgis bæði miðstéttar og verkamannastéttar hvítra manna, en á sama tíma hef- ur hann fengið yfirgnæfandi fylgi blökkumanna. Sú stefna sem hann boðar feliur greiniiega almenningi betur í geð Kjallannn Gunnar Eyþórsson fréttamaður en það aögerðcileysi og óhefta frjálshyggjutai sem Bush hefur tekið í arf frá Reagan, sérstaklega vegna þess að öryggisleysi vegna versnandi efnahagsástands grefur stöðugt meira um sig meðal mið- stéttanna og verkamanna, svartra og hvítra. Utanríkismál eru ekki nefnd lengur, þvert á móti. Eyðimerkur- stormurinn er gleymdur, fólki fmnst Bush hugsa allt of mikið um erlend málefni og tími sé kominn til að lagfæra það sem úrskeiðis hefur farið í Bandaríkjunum sjálf- um. Clinton hefur sett saman stefnu- skrá um endurbætur á bandarísku þjóðfélagi sem virðist höfða til fjöldans, á sama tíma og traust manna á Bush dvínar stöðugt. Haft er eftir bandarískum fréttaskýr- endum að svo framarlega sem kos- ið verður um málefni hinn 3. nóv- ember ætti Bill Clinton að sigra Bush. Rógsherferðin En það er einmitt stóra spurning- in. í síðustu kosningum voru mál- efni tæpast nefnd, baráttan snerist um persónur þar sem Bush tókst að sverta Dukakis. Illu heilh er ekki víst að Clinton sé ónæmur fyrir sams konar óhróðursherferð. Upp hafa komið persónuleg mál sem fuilvíst er að repúblíkanar munu nota ótæpUega gegn CUnton. Þar á meðal er framhjáhald sem CUntonhjónin hafa reyndar sam- eiginiega skýrt frá og fengið góða svörun. Annað atriði er að CUnton kom sér á einhvem hátt undan herþjón- ustu í Víetnam, með löglegum hætti þó. Einhver orðrómur er á kreiki um óreglu í fjármálum hans. Orðrómur er allt sem þarf, sitthvað kann að leynast í fortíð hans sem ríkisstjóra í Arkansas. Samt er þetta ekki víst. EfnahagsmáUn em mál málanna núna, og svo kann að fara í fyrsta sinn í mörg ár að skipuleg framkvæmdaáætlun CUntons verði yfirsterkari þeirri rógsherferð sem víst er að skipu- lögð verður gegn honum. Gunnar Eyþórsson Bill Clinton, forsetaframbjóðandi demókrata. -.......hefur sett saman stefnuskrá um endurbætur á bandarísku þjóðfélagi." „Nú fyrst geta repúblikanar farið að beita sér í kosningabaráttunni fyrir alvöru, ekki með því að verja Bush heldur með því að ráðast á andstæðing hans.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.