Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1992, Page 7
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1992.
7
Fréttir
Leiklistarskóli íslands:
Gísli nýtur ekki trausts
nemenda eða kennara
„Ég hef fengið bréf frá kennurum
og nemendum Leiklistarskóla ís-
lands. í því er þess farið á leit við
mig að ég taki ekki við stöðu skóla-
stjóra skólans. í bréfmu er stuðn-
ingsyfirlýsing við einn umsækjand-
ann. Mín viðbrögð við bréfinu eru
neikvæð, ég mun að sjálfsögðu ekki
fara eftir þessum tilmælum," segir
Gísli Alfreðsson, nýráðinn skóla-
stjóri Leiklistarskóla íslands.
- Er ekki erfitt fyrir þig að taka við
þessari stöðu þegar þú hefur ekki
traust nemenda og kennara skólans?
„Það er mjög algengt að stöðuveit-
ingar af þessu tagi séu viðkvæmar.
Anneæs kæri ég mig ekki að ræða
þetta mál frekar," segir Gísli.
Innan Leiklistarskóla íslands ríkir
óánægja með ráðningu Gísla Alfreðs-
sonar sem skólastjóra. Þegar staðan
var auglýst í febrúar sóttu sex um
hana. Þau eru Edda Þórarinsdóttir,
Guðjón Ingi Sigurðsson, Hafliði Am-
grímsson, Jónína Ólafsdóttir, Kol-
brún Halldórsdóttir og Gísh Alfreðs-
son en hann óskaði nafnleyndar.
Samkvæmt heimildum DV hélt
skólanefnd skólans fund áður en ráð-
ið var í stöðuna. Nefndin er skipuð
9 fulltrúum. Á fundinn komu 7 og
mæltu fjórir með ráðningu Hafliða
Arngrímssonar en þrír með ráðn-
ingu Eddu Þórarinsdóttur. Mennta-
málaráðherra skipaði síðan Gísla í
stöðuna.
DV ræddi við nokkra kennara og
nemendur Leiklistarskólans en þeir
vildu ekki tjá sig opinberlega um
máliðaðsvokomnumáli. -J.Mar
Það er ekki hægt að segja annað en að þingmennirnir okkar tengist traustum böndum
Þremenningar á þingi
Þingkonumar Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir, Lára Margrét Ragn-
arsdóttir og Valgerður Gunnarsdótt-
ir eiga fleira sameiginlegt heldur en
að vera allará þingi fyrir Reykjavík.
Þær stöllur em nefninlega þre-
menningar. Afl Lám Margrétar í
móöurætt, Kristján Schram skip-
stjóri, og afi Valgeröar í föðurætt,
Gunnar Schram símstöðvarstjóri,
voru bræður.
Einnig var móðuramma Láru
Margrétar, Lára Jónsdóttir (eigin-
kona Kristjáns Schram), systir föð-
urömmu Ástu Ragnheiðar, Ástu
Jónsdóttur. Þær Lára og Ásta voru
dætur Jóns Þórðarsonar, skipstjóra
á Vesturgötunni.
Og þótt þær Ásta Ragnheiöur og
Valgerður séu ekki skyldar eru þær
tengdar því að ömmusystir Ástu
Ragnheiðar var gift afabróður Val-
gerðar!
Lára Margrét er sem kunnugt er
þingmaður Sjálfstæðisflokksins en
þær Ásta og Valgerður varaþing-
menn sem nú sitja á þingi, Ásta fyrir
Framsóknarflokkinn en Valgerður
fyrir Alþýðuflokkinn.
-S.dór
íhuga að kæra Innheimtur og ráðgjöf:
Opinber rannsókn
vænlegur kostur
- segirformaðurNeytendasamtakanna
„Ein þeirra fáu leiða í máli sem
þessu er að óska eftir opinberri rann-
sókn á fyrirtækinu. Það er vænlegur
kostur og við skoðum hann vand-
lega,“ segir Jóhannes Gunnarsson,
formaður Neytendasamtakanna.
Samtökin eru að safna gögnum frá
um tug fyrrum áskrifenda Þjóðlífs
sem hafa óskað aðstoðar vegna inn-
heimtukrafna frá fyrirtækinu Inn-
heimtur og ráðgjöf.
Tvisvar hefur verið leitað til Neyt-
endasamtakanna vegna kröfu um
fjárnám enda þótt fólk hafi haft kvitt-
anir í höndunum. Önnur var felld
niður eftir að DV greindi frá málinu
en hin krafan er á 74 ára gamla konu
á Akureyri.
„Það er hugsanlegt að fleiri slík
mál séu í gangi og hins vegar hefur
leitað til okkar fólk sem telur sig
aöeins hafa samþykkt tilraunaá-
skrift, sagt Þjóðlífi upp símleiðis en
fengiö blaðið áfram og síðan rukkan-
ir og innheimtureikninga," segir Jó-
hannes.
-VD
Undirskriftasöfnun gegn
óvægnu innheimtuvaldi
Um 30 manna áhugahópur úr
Manngildishreyfingunni hyggst
stofna svokallaðan aðgerðahóp um
félagslegt misrétti. Stofnfundur
verður í Hlaðvarpanum á sunnudag
og hyggst hópurinn hefja starfsem-
ina með því að vekja athygli á málum
fólks sem orðið hefur fyrir óvægnu
innheimtuvaldi og safna undirskrift-
um um land allt sem sendar verða
dómsmálaráðherra.
Með undirskriftunum fylgir kynn-
ing á máli 74 ára gamallar konu á
Akureyri sem hefur, þrátt fyrir að
eiga kvittanir fyrir greiðslum, fengið
háar kröfur frá Innheimtum og ráðg-
jöf
sem sér um að innheimta áskriftar-
gjöld fyrir tímaritið Þjóðlíf. Þar er
skorað á dómsmálaráðherra aö
stöðva aðfórina að konunni og beita
sér fyrir löggjöf sem komi í veg fyrir
að innheimtufyrirtæki og opinbert
yfirvald geti beitt saklaust fólk mis-
rétti.
Að sögn Júlíusar Valdimarssonar,
talsmanns AFM 92, eins og hópurinn
kallast, verður hver mánuður til-
einkaður málefnum ýmissa minni-
hlutahópa og vakin athygli á þeim
með ýmsum hætti. „Við bjóðum fólki
að hafa samband við okkur á skrif-
stofu okkar í síma 62 38 25 á kvöldin
og segja reynslusögur sínar af þeim
málum sem við tökum fyrir hvern
mánuð,“ segir hann. „Við munum
síðan safna upplýsingum og vera
fólki til ráðgjafar". -VD
Undirboð á erlendum mörkuðum
Færeyingar samir við sig
Nýlega var Færeyingum úthlutað
kvóta til veiða við ísland og var hann
minnkaður um 2500 tonn frá því sem
hann var á síðasta ári.
Mikil andstaða var við að þeir
fengju fiskveiðiheimildir að þessu
sinni vegna minnkandi afla hér við
land og niöurskurðarkvóta hjá ís-
lendingum. Lengi vel var allur fiskur
meö uppbótargreiðslum en nú er
aðeins ein tegund með uppbótar-
greiðslur og er það karfinn en þeir
greiða 20 ísl. kr. með hveiju kílói.
Þetta kemur illa út í sambandi víð
samkeppni á karfamarkaönum í
Þýskalandi. í vetur hefur það komið
fyrir nokkrum sinnum að sett hefur
verið á markaðinn nokkuð af flökum
á talsvert lægra verði en við getum
sætt okkur við og nýlegt dæmi er um
að verðið féU um 10 kr. kg þegar
Færeyingar seldu karfann á nokkru
lægra verði en tíðkast hafði.
Eins koma fram í þessum pisth
verslunarhættir þeirra, Dana og
Grænlendinga á rækjumarkaönum í
Englandi.
Nú styttist óðum í páskahátíðina
og er oft gott verð á ferskfiskmark-
aðnum og vonandi verður svo nú.
Að undanfomu hefur verið sæmUegt
fiskirí og verður vonandi ekki til
þess að hrúgað verði of miklum fiski
á markaðinn í einu.
England
Gámasölur fram til 13. mars sl.
Þýskaland:
Bv. Drangey seldi afla sinn í Brem-
erhaven 13. mars sl., aUs 109 tonn
fyrir 11,6 mUlj. kr. Meðalverð 105,97
kr. kg. Þorskur seldist á 118,09 kr.
kg, ýsa 92,38, ufsi 86,43, karfi 106,44,
grálúða 172,64 og blandað 92,80 kr. kg.
Bv. Breki seldi afla sinn í Bremer-
haven, alls 240 tonn fyrir 21,9 miUj.
kr. Meðalverð 91,16 kr. kg. Þorskur
var á 111,65, ýsa 107,93, ufsi 88,80,
karfi 90,49 og blandaö 75,97 kr. kg.
Bv. Ögri seldi afla sinn í Bremer-
haven 16.-17. mars, aUs 284 tonn, fyr-
ir 26,2 miUj. kr. Meðalverð var 92,49
kr. kg. Aflinn var eingöngu karfi sem
seldist á 92,58 kr. kg.
England:
Verð á BiUingsgate að undanfórnu
Verö á smærri laxi.....292 kr. kg
Verö á stærri laxi.....397 kr. kg
SUungur...................238 kr. kg
Stórlúða..................905 kr. kg
Smálúða................888kr.kg
Sólkoli...................224 kr. kg
Þorskur, hauslaus......314 kr. kg
Þorskflök................391 kr. kg
Ýsuflök..................391 kr. kg
Reyktýsuflök.............466 kr. kg
Skötuselur...............819 kr. kg
Roðrifinn steinbítur..466 kr. kg
FersksUd..............0,93kr. kg
Reykt sfid............1,45 kr. kg
Frakkland:
Fystu daga marsmánaðarins féU
verð á fiski verulega og ekki er séö
fyrir hvemig framhald verður. TaUð
er aö vegna þess hvað margir fóm í
vetrarfrí hafi eftirspumin minnkað.
í París var UtU umferð og merkja
mátti það á ýmsu ööru að fækkað
hafði verulega í borginni.
Fiskmarkaður
Ingólfur Stefánsson
Nokkrir fiskkaupmenn lokuðu
búðum sínum og töldu að það væri
ekki ábatasamt að hafa opið. Nokkuð
af fiski lá á markaðnum, sumt orðið
vikugamalt og ekki kræsUeg vara.
Var þar aðaUega um lax að ræða.
Sundurliðun eftirtegundum: Seltmagníkg Verðíerl.mynt Meðalverð á kg Söluverðisl. kr. Kr. á kg
Þorskur 168.291,00 225.050,45 1,42 23.106.491,07 145,97
Ýsa 112.681,00 202.178,45 1,79 20.760.077,97 184,24
Ufsi 11.487,00 8.616,63 0,75 884.908,24 77,04
Karfi 26.172,00 22.056,87 0,84 2.265.071,56 86,55
Koli 20.943,00 32.056,95 1,53 3.291.494,78 157,16
Grálúða 13.960,00 19.825,00 1,42 2.036.542,95 145,88
Blandað 50.508,00 67.426,07 1,33 6.922.998,11 137,00
Samtals: 394.042,00 577.210,45 1,46 59.267.587,77 150,41