Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1992, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1992.
Útlönd dv
Nýjar framhjáhaldssögur það eina sem gæti orðið Bill Clinton að falh:
Hélt framhjá með
fegurðardrottningu
- fyrrum ungfrú Ameríka hefur þegar orðið einum stjómmálamanni að falli
vekurreiði
Kvenréttíndakomir í Japan eru
öskureiðar vegna útgáfu leiö-
sögubóka fyrir karlmenn sem eru
einir á ferðalagi og segja þær
stuðla að vændi.
„í rauðljósahverfmu í Seoul er
ekki vitlaust að heíja ástarleikina
með smáfaðmlögum," segir m.a.
í kaflanum um Kóreu. Og í kafl-
anum um Filippseyjar er vakin
athygli á því hversu víða hægt
er njóta ásta þar um slóðir.
Kvennahópur í japönsku borg-
inni Osaka hefur farið fram á að
bækurnar tvær, önnur um Suö-
austur-Asíu og hin um Evrópu
og Bandarikin, verði teknar úr
umferð.
Drapkonusína
ogfékkellefu
kúasekt
Maöur nokkur í hinu afskekkta
héraðí Irian Jaya á Indónesíu
hefur verið sektaður um ellefu
kýr fyrir að drepa eiginkonu sína
með flösku þegar þeim varð
sundurorða í síðasta mánuði.
Morðingjanum var einniggert að
láta af hendi steinasafn sem hann
heldur mikiö upp á, svo og fræ.
Að sögn dagblaðsins Kompas í
Jakarta var sekt mannsins
ákveðín á fundi þorpsbúa sem
báðu hann jafhframt um að jarð-
setja konu sína í húsinu þeirra
hjóna.
Haft var eftir þorpshöföingjan-
um að refsingin væri til þess fall-
in að minna þá sem framhjá hús-
inu gengju á að gerast ekki sekir
um sama glæp.
Dani reyndi að
smygla hassií
krossviði
Fjörutíu og fimm ára gamall
Dani hefur verið hnepptur í
gæsluvaröhald í Noregi fyrir til-
raun til að smygla flmm kílóum
af hassi inn til landsins með feij-
unni til Kristiansand.
Daninn var á leið í vetrarfrí í
Stavangri þegar tollverðir
ákváðu að rannsaka bifreið hans.
í skottinu fannst stór kassi úr
krossviöi sem klæddur var með
áli. Einn hasshundanna sýndi
kassanum mikinn áhuga og í Ijós
kom að í krossviðarplötunum var
hassið geymt.
Tollverðir í Kristíansand höfðu
aldrei fyrr séð þessa aðferð not-
aða til smygls. „Smygltilraunirn-
ar verða sífellt flóknari og ekki
er vitað til að þessari aðferð hafi
verið beitt áöur,“ sögöu tollverö-
ir
David Bowie
kastalahanda
Blaöafulltrúi rokkstjömunnar
Davids Bowies ber til baka fréttir
um að popparinn sé búinn að
festa kaup á tvö hundruð ára
gömium írskum kastala fyrir eig-
inkonuna sína tilvonandi, sóm-
ölsku tískufyrirsætuna Iman.
Fréttir í gær hermdu að Bowie
heföi greitt 3,2 miUjónir dollara,
eða sem svarar tæplega 200 miUj-
ónum króna, fyrir Humewoodk-
astala, sem kemur með ölium
græjum, tumum og brjóstvörn-
um. Kastalinn er í skóglendi suð-
ur af Dublin og fjarri alfaraleið.
„David býr í Los Angeles með
unnustu sinni og hann vissi ekki
einu sinni aö kastalinn væri til,“
sagöi blaöafulltrúinn.
Skötuhjúin gifta sig í júní.
Rewter og NTB
Bill CUnton, ríkisstjóri í Arkansas,
er öruggur með útnefningu sem for-
setaefni demókrata í komandi kosn-
ingum nema nýtt hneyksUsmál verði
honum að falli. Clinton hefur staðið
af sér fyrstu framhjáhaldssöguna en
sú næsta gæti orðið honum erfiðari.
Svo er mál með vexti að tímaritiö
Playboy birtir í næsta mánuði viðtal
og myndir af Elisabeth Ward, fyrrum
Borís Jeltsín Rússlandsforseti opn-
aði dymar fyrir málamiðlun í deil-
unni við Úkraínu um eyöileggingu
kjarnavopna þegar hann kom á leið-
togafund Samveldis sjálfstæðra ríkja
í Kiev, höfuðborgúkraínu, í morgun.
Hann bauðst tU að leyfa úkraínsk-
um stjómvöldum að fylgjast með
eyðUeggingunni á rússnesku land-
svæði.
Aðspurður hvort hann ætlaði að
krefjast þess að Úkraínumenn héldu
áfram að flytja vígvaUarkjarnavopn
til eyðUeggingar í Rússlandi sagði
Leoníd Kravtsjúk, forseti Úkraínu, á
■ d.eilum við Borís Jeltstín Rúss-
landsforseta um kjarnavopn.
Teikning Lurie
ungfrú Ameríku. Þetta efni hefur
valdið mUdum taugatitringi í her-'
búðum Clintons og þar era menn
logandi hræddir við að upp komist
að Clinton átti vingott við Ward á
árum áður.
AUt veltur á því hvort Ward lýsir
því yflr í viðtaUnu að hún og Clinton
tiafi átt í ástarsambandi. Þannig fór
Jennifer Flowers að þegar hún seldi
Jeltsín að þeir ættu að standa við
gefin loforð.
Þrætur Rússa og Úkraínumanna
munu líklega setja mestan svip á
leiðtogafundinn í dag. Kravtsjúk ber
á móti því að hafa sagt Borís Jeltsín
Rússlandsforseta að lokið yrði við að
flytja öll vígvallarkjarnavopnin til
eyðUeggingar í Rússlandi fyrir 1. júlí.
„Þeir hafa ekkert ræðst við í heUan
mánuð, engir fundir og engin sím-
töl," sagði blaðafuUtrúi Kravtsjúks í
gær.
Heldur friðvænlegra horfði þó í
átökum þjóðarbrotanna sem hafa
plagað Samveldið frá því það var
stofnað á rústum Sovétríkjanna í
desember. Mahmoud Vaezo, aðstoð-
arutanríkisráðherra írans, tilkynnti
í gær að náðst hefði samkomulag
núlh Azera og Armena um vopnahlé
og gekk það í gUdi klukkan átta í
morgun að íslenskum tíma. Ætlunin
er að nota það til að semja um frið í
Nagomo-Karabakh-héraði. Átökin
þar hafa kostað að minnsta kosti 1500
mannslíf á undanfómum fjórum
árum.
F.innig þokaðist heldur í friðarátt í
Moldóvu, við landamærin að Rúm-
eníu, þegar þingið veitti Dnestr-
héraði takmarkaða sjálfstjórn. Meira
en tuttugu manns hafa falliö í átök-
umþaríþessummánuði. Reuter
tímariti sögu sína fyrir 50 þúsund
Bandaríkjadali. Hún var ein fimm
kvenna sem fjölmiðlar orðuðu þá við
CUnton en hinar neituðu nánum
kynnum af frambjóöandanum. Ward
segir að saga sín sé ósköp saklaus.
Nú er röðin komin að sögu Ward.
Hún hefur þegar bundið enda á feril
eins stjórnmálamanns. Sá er Charles
Robb öldungadeUdarþingmaður sem
er hættur afskiptum af stjórnmálum
eftir að hann gafst upp á að bera af
sér sögur um ástarsamband við
Ward.
Clinton þarf ekki lengur að hafa
áhyggjur af Paul Tsongas því hann
gafst upp í gær á aö leita eftir tilnefn-
ingu demókrata. Nú getur aðeins
Ellefu vikna gamalt vopnahlé í
Króatíu var hætt komiö í gær þegar
sprengjmn rigndi yíir austurhluta
lýðveldisins í margar klukkustundir
á sama tíma og Sameinuðu þjóðirnar
samþykktu fjármögnun friðargæslu-
sveitanna sem eiga að binda enda á
átökin fyrir fuUt og aUt.
StórskotaUðsdrunur og vélbyssu-
gelt ómuðu við borgina Osijek, ekki
langt frá þeim stað þar sem fram-
varðasveitir SÞ em að koma sér fyr-
ir. Útvarpið í Króatíu sagði að 250
stórskotahðssprengjum hefði verið
Jerry Brown velgt CUnton undir ugg-
um í framboðsslagnum en það er
fjarlægur möguleiki.
Því ganga menn almennt út frá því
að Clinton og George Bush berjist
um forsetaembættið í kosningunum
í haust - það er að segja ef Ctinton
verður þá ekki búinn að leggja árar
í bát vegna kvennamálanna.
Samanburðurinn við Bush forseta
er Clinton fremur óhagstæður í flest-
um málum. Kjósendur hafa meiri trú
á Bush þótt hann njóti takmarkaðra
vinsælda fyrir efnahagsstjórn sína.
Hann þykir á hinn bóginn traustur
og reynsla hans á eftir að skUa houm
drjúgum áfram í keppninni við Clin-
ton. Reuter og NTB
varpað á borgina og sjö manns hefðu
orðið sárir.
Embættismenn í Baranja-héraði
sem Serbar hafa á valdi sínu, sögðu
að Króatar hefðu varpað sprengjum
á þorp í eUefu klukkustundir. Þeir
sögðu að þetta væru hörðustu árás-
imar á Baranja frá því stríðið hófst.
Framvarðasveitir um 400 liðsfor-
ingja SÞ eru búnar að koma sér fyrir
á átakasvæðunum um aUa Króatíu
til að búa undir komu íjórtán þúsund
manna friðargæsluliðs siðari hluta
aprílmánaðar. Reuter
Elisabeth Ward er kunn fyrir náin kynni af stjónmálamönnum. Tímaritið
Playboy, sem tekið hefur viðtal við hana, segir að ekkert sé að óttast fyrir
Clinton en hann er samt á nálum. Símamynd Reuter
Úkraínumenn og Rússar deila um kjamavopn:
Jeltsín boðar mála-
miðlun við Kravtsjúk
Bush
Alit kjósenda á Bush og Clinton c|inton
Besti málsvari
flokks síns
Hefur sýnt
hugrekki og
persónulegan
styrk
Menntamál
Heilbrigðismál
Efnahagsmál
Súluritið er byggt á áliti kjósenda i Flórída og sýnir álit manna á væntanleg-
um forsetaframbjóðendum og getu þeirra til að sinna einstökum málum.
Þorskastríð 1 Kanada:
Tólf kanadískir togarar eru
væntanlegir á þorskmiðin á Grtand
Banks um mánaðamótin til að mót-
mæla miklum veiðum togara frá
Evrópu þar. Þessi mið eru rétt utan
viö 200 milna efnahagslögsögu
Kanada og þeir geta því ekki haft
stjóm á veiðum þar.
Kanadamenn og þó einkum þeir
sem gera út frá Nýfundnalandi
segja að mikil ofveiöi sé á þorski á
Grand Banks og hafa þeim m.a.
viðrað þá hugmynd að Helgi HaU-
varösson skipherra komi með
klippur Landhelgisgæslunnar á ís-
landi tU að stöðva veiðarnar.
Það eru útgerðarmenn í Evrópu-
bandalaginu sem séð hafa sér leik
á borði að nýta raiðin við Ný-
fundnaland meðan veiðar þar eru
óheftar. Heimametm segja að þess-
ar veiðar gangi fyrr eða síðar af
sjávarútvegi þeirra dauðum því
togarar Evrópuþandalagsins gangi
mjög nærri þorskstofnunum.
Rfutur
Sprengjum rigndi
íKróatíuígær