Dagblaðið Vísir - DV - 20.03.1992, Síða 17
FÖSTUDAGUR 20. MARS 1992.
25
num þrátt fyrir að vera tekinn föstum tökum af varnarmönnum Hoilendinga.
Simamynd/Reuter
Alfreð ekki með í B-keppninni:
Júlíus leikur
næstu 5 leiki
- Tekur landsliðið fram yfir Bidasoa
Steön Kristjánsson, DV, Linz:
„Það er gaman að vera kominn til
liðs við strákana. Forráðamenn Bid-
asoa vilja að ég verði kominn aftur
til Spánar þann 26. mars til að spila
leik með Bidasoa sem er 28. mars.
En ég ætla mér að spila síðasta leik-
inn með íslenska liðinu í milliriðlun-
um þann 27. mars, sama hvaö for-
ráðamenn Bidasoa segja," sagði Júl-
íus Jónasson í samtali við DV í gær-
kvöldi.
Eins og greint var frá í DV í gær
setti Bidasoa Júlíusi það skilyrði að
hann yröi að vera kominn aftur til
Spánar þann 26. mars og hefur þessi
ffamkoma félagsins vakið mikla
reiöi og furðu á meðal forystumanna
landshösins hér í Linz.
- Nú hafa forráðamenn Bidasoa
leikið þennan leik áður. Hvað kemur
til nú að þú ætlar að gefa forráða-
mönnum liðsins langt nef.
„Ég er mættur hingað til Austur-
ríkis og mér finnst það bara fárán-
legt að þeir skuli vera að banna mér
að vera hér einum degi lengur til að
ég geti mætt á æfingu hjá Bidasoa
þann 27. mars þegar síðasti leikurinn
í milliriðlunum fer fram hér. Ég get
ekki skihð af hverju þeir eru að
banna mér að spila þennan mikil-
væga leik.“
- En hvað um síðasta leik íslands
í B-keppninni, leikinn um sæti
sunnudaginn 29. mars. SpUar þú með
þá.
„Það verður bara að koma í ljós
hvernig staðan verður þá. Ég verð
að spUa þennan leik á Spáni 28. mars.
Staða okkar í úrsUtakeppninni á
Spáni er þannig að ég skil ekki þessa
framkomu hjá Bidasoa," sagði Júl-
íus.
Þorbergur Aðalsteinsson sagði í
samtali við DV í gærkvöldi að það
væri öruggt að Júlíus myndi spUa
næstu fimm leiki íslenska Uösins en
síðan yrði það metið fyrir leikinn um
sæti hvort JúUus kæmi í lokaleikinn.
Þorbergur sagði ennfremur að nú
væri endanlega ljóst að Alfreð Gísla-
son léki ekki í þessari B-keppni.
„Forráðamenn Bidsoa
brjóta allar reglur“
Jón Hjaltalín Magnússon kom hing-
að tíl Linz skömmu fyrir leik íslands
gegn HoUandi. Hann er ekki mjög
ánægður með framkomu Bidasoa í
garð Júlíusar. „Spánska félagið brýt-
ur allar samskiptareglur sem í gUdi
eru í handknattleiknum og fram-
koma þeirra er alveg furðuleg. Þetta
mál verður skoðað og vonandi mun
Júlíus styrkja íslenska Uðið hér í
B-keppninni.
Stefán Kristjánsson
íþróttafréttamaður DV
skrifar frá
Austurríki »/
i og frábær byrjun í B-keppninni:
byrjun
jllandi, 30-20. Bergsveinn varði 18 skot
Austurrískir og
tékkneskir dómarar
Austurrískir dómarar dæmdu leik ís-
lands og HoUands í gærkvöldi og var
leikurinn auðdæmdur. Hitt dómara-
parið í riðlinum kemur frá Tékkósló-
vakíu. Um 500 áhorfendur fylgdust með
leiknum hér í Linz og þar af var um
20 manna hópur frá íslandi sem lét vel
í sér heyra úr áhorfendapöUunum.
Norðmenn slakir
gegn Belgum
Norðmenn sigruðu Belga í hinum
leiknum í a-riðli í gærkvöldi með 24
mörkum gegn 19. Staðan í leikhléi var
15-7, Noregi í vil, þannig að Belgía vann
síðari hálfleikinn, 12-9. Norðmenn
voru slakir í leiknum og Belgar sömu-
leiðis en þeir sóttu sig þó er Uða tók á
leikinn. Ole Gustav Gjækstad var
markahæstur Norðmanna í leiknum
og skoraöi 13 mörk. Lið Belga er mjög
slakt og ætti alls ekki að verða nein
hindrun fyrir íslenska Uðið. HoUend-
ingar eru til að mynda með mun sterk-
ara Uð en Belgar.
li málunum
um helsti styrktaraðiU landsUðsins í
þessari keppni. Þeir Þórður Sigurðsson
fararstjóri og Brynjólfur Jónsson,
læknir íslenska Uðsins, hófu nú leit að
saumakonu hér í Linz og fundu að lok-
um gamla konu sem starfar við að
breyta gömlum fótum. Hún geröi sér
Utið fyrir og spretti Landsbankaauglýs-
ingunni af ermum allra búninganna og
saumaði hana á buxurnar. Sú gamla
bjargaði málunum á síðustu stundu og
menn gátu andað léttar.
Þórður Sigurðsson fararstjóri -
hafði uppi á gamalli saumakonu.
Leikið um helgina gegn Belgíu og Noregi:
Getum unnið
íslendinga
með toppleik
- segir Alex Jacobs, þjálfari Belgíu
Ste&n Kristjánsson, DV, Linz:
„Ef við náum toppleik- gegn ís-
landi þá tel ég okkur eiga mögu-
leika á góðum úrslitum, jafnvel
sigri. ísland er hins vegar með
sterkasta höið í A-riðhnum og leik-
menn Uðsins eru með mikla
reynslu. Þetta verður án efa mjög
erfiður leikur fyrir okkur,“ sagði
Alex Jacobs, landsliðsþjálfari
Belga, í samtali við DV í gær. ís-
lendingar mæta Belgum hér í Linz
á morgun og Norðmönnum á
sunnudag.
„Ég tel að íslendingar eigi mikla
möguleika á að sigra í þessari B-
keppni. Mér er þó ekki kunnugt
um undirbúning Uðsins fyrir
keppnina," sagði Jacobs ennfrem-
ur. Hann sagðist nokkuð ánægður
með úrsUt í leikjum belgíska
landsUðsins fyrir B-keppnina: „Við
unnum Sparta Prag frá Tékkósló-
vakíu með 3-4 mörkum, gerðum
jafntefli og töpuðum með þremur
mörkum fyrir Bandaríkjamönn-
um,“ sagði Alex Jacobs. Þess má
geta að 8000 manns iðka handknatt-
leik reglulega í Belgíu.
ísland og Belgía hafa leikið 5
landsleiki og jafnoft hefur Island
sigrað. Samanlögð markatala í
leikjunum er 136-77, íslandi í vil.
Síðast léku þjóðimar árið 1987 og
þá sigraði ísland, -20-24, í Brussel.
„60% líkur á að
Island sigri Noreg“
„Það er alltaf erfitt að leika gegn
íslandi og ég met stöðuna þannig
að möguleikarnir séu frekar ís-
lands megin. Ég myndi segja að
60% Ukur væra á að ísland sigri
Norg,“ sagði Gunnar Pettersen,
landsliðsþjálfari Noregs, í samtali
við DV í gærkvöldi. „íslenska Uðið
lék vel gegn HoUandi í gærkvöldi
og sérstaklega var vörn Uðsins
góð,“ sagði Petterson og bætti við:
„Skrifaðu ekki að ég hafi sagt að
það sé öruggt að Noregur vinni ís-
land. Mér skUst að það hafi verið
haft eftir mér eittlivað svoleiðis í
stærsta blaðinu á íslandi en ég hef
aldrei sagt þetta og aldrei talað viö
blaðamarm þessa blaðs í Noregi."
Leikur íslands og Noregs verður
50. landsleikur þjóðanna í hand-
knattleik. 25 sinnum hefur ísland
sigrað, Norðmenn í 16 leikjum og 8
leikjum hefur lyktað með jafntefU.
íþróttir
leikinn
„Þetta var mjög
góður leikur“
„Þetta var mjög góður leUcur hjá
strákunum. Það var að visu svo-
lítil taugaveiklun í þessu í byrjun
en síðan sýndu þeir hvers þeir
eru megnugir. Það var kannski
smákæruleysi í þessu og skortur
á eínbeitingu en þegar á heUdina
er Utið var þetta mjög góður leik-
ur,“ sagði JúUus Jónasson.
Sá holfenski var
alveg nióurbrotinn
„Við lékum sérstaklega Ula í dag
og þetta er versti leikur hoUenska
liðsins í heilt ár. Við höfum lagt
mjög mikla vinnu í undirbúning
fyrir þessa keppni og það var
virkUega mUdlvægt fyrir okkur
að leika vel í dag. Við gerðurn
okkur vonir um að við væram
komnir skrefi nær þenn bestu en
á síðasta stórmóti en sýndum það
ekki í dag,“ sagði Guus Gantel-
berg, landsUðsþjálfari Hollend-
inga, eftir leikinn og hann var
alveg gersamlega niðurbrotinn
maður og með tárin í augunum.
Gantelberg sagði ennfremur í
samtali við DV eftir leíkinn gegn
íslandi: „íslenska liðið er mjög
sterkt en við gerðum þeim auð-
velt fyrir með lélegum leik.“
„Góð byrjun“
„Hollendingar geta ekki annað en
leikið betur gegn Norðmönnum
og þaö er kostur fyrir okkur.
Þetta hlýtm- að vera núkið áfall
fyrir HoBendinga. Ég er alveg
sáttur viö leik íslenska liðsins.
En þetta eru ekki leikirnir sm
skipta máli. Það eru leikirnir
gegn Noregi, Danmörku og Pól-
landi. Það eru leikimir hér sem
skipta öllu máli fyrir okkur og
það verða viðureigiúr upp á líf
og dauða,“ sagði Einar Þorvarð-
arson.
„íslenskaliðiðfer
alla leið í úrslitin“
„Fyrir leikinn gegn íslendingum.
gerðum við okkur miklar vonir
og vorum búnir að leggja á okur
gifurlegan undirbúning, stöðuga
vinnu í tvö ár og höfum æft aUa
daga aBan þann tíma. Úrslitin
voru okkur þvi gífurleg von-
brigði," sagði Lambert Schuurs,
leikreyndasti leikmaður Hollend-
inga (númer 3).
„íslenska liðiö er mjög sterkt
um þessar mundir og það er ekki
spurning í mínum huga að liðiö
fer alla leið í úrslitaleikinn. Þetta
lið íslands er gífurlega sterkt og
líklega jafnsterkt ef ekki sterkara
en liðið sem lék 1 Frakklandi í
B-keppmnni 1989,“ sagði sá hol-
lenski.
„VII óska Þorbergi og
Einari til hamingju“
„Ég vil byrja á því að óska þjálf-
urum islenska liðsins, þeim Þor-
bergi Aðalsteinssyni og Einari
Þorvaröarsyni, innBega til ham-
íngju með þennan glæsilega sig-
ur. Þaö sem ég var mest ánægður
með var leikgleðin, varnarleikur-
inn og markvarslan," sagði Jón
Hjaltalín Magnússon, formaður
HSÍ. eftir leikinn gegn Hollandi.
„Sem gömul vítskytta lands-
liðsins er ég auövitað óhress með
að misnota fjögur víti en það er
hægt að bæta. Þetta var; aðeins
fyrsti áfanginn af mörgum og
þessi fyi’sti leikur gekk vel. Ég
hef trú á því að þetta lið eigi eftir
að fara alla leið á toppinn," sagði
Jón Hjaltalín.
„Fann mig strax vel“
„Ég fann mig strax vel í markinu
og er sáttur við mína frammi-
stööu. Það var gott að byrja raeð
þetta góðum sigri og vonandi
verður framhaldið í svipuðum
dúr,“ sagði Bergsveinn Berg-
sveinsson, besti leikmaöur ís-
lenska liðsins gegn HoBandi í
gær.