Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1992, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1992.
Útlönd
Námuslys á Nova Scotia 1 Kanada:
Elleff u lík f undin og
f immtán er saknað
Björgunarsveitir fundu lík ellefu
námumanna á Nova Scotia í Kanada
í gær og leit hélt áfram aö fimmtán
öörum sem hafa verið innilokaðir á
um eins og hálfs kílómetra dýpi frá
því á laugardagsmorgun þegar gas-
sprenging varö í námunni.
Björgunarmenn voru vonhtlir um
að mennimir fyndust á lífi þar sem
sprengingin eyöilagði loftræstikerfi
námunnar sem er við bæinn Stellar-
ton á norðurhluta eyjunnar.
Stjómendur námafélagsins sögðu
síðdegis í gær að það mundi taka
nokkrar klukkustustundir að kom-
ast í gegnum brakið sem fyllti göngin
sem liggja dýpra inn í námuna og
koma loftræstikerfinu aftur í gang.
Mælingar á andrúmsloftinu djúpt
í námunni sýndu að þar var hættu-
Um fjögur þúsund Rúmenar
komu saman í miðborg Búkarest,
höfuðborgar Rúmeníu, um helg-
ina og kröfðust þess aö Micheal
fyrrum Rúmeniukonungur fengi
að snúa aftur heim. Safnaðist
fólkið saman fyrir framan kon-
ungshöllina og veifaði rúmenska
fánanum með skjaldarmerki
konungsíjölskyldunnar í miðj-
unni.
Hinn sjötugi Michael var rek-
inn frá völdum af sovéskum
kommúnistum árið 1947 og fékk
ekki að koma til Rúmeníu fyrr
en nú á dögunum er honum leyfð-
ist að koma í þriggja daga heim-
sókn. Þá tóku á móti honum
hundruð þúsunda Rúmena.
réttarsölum
Svo kann að fara að Biblían
hverfi úr réttarsölum á Nýja Sjá-
landi. Hafa þarlendir dómarar og
lögfróðir menn lagt til að hún
verði ekki lengur notuð við rétt-
arhöld og vitni verði þess i stað
beðin um að segja sannleikann.
Að söp þarlends dómara er
kenningin sú að vitni ættu að
vera beðin um að segja sannleik-
ann en menn ættu ekki að blanda
Guðiimálið. Reuter
lega mildð magn af metangasi og eitt-
hvað af kolmónoxíði.
„Miðað við fyrri reynslu erum við
nokkuð áhyggjufullir," sagði Cohn
Benner, framleiðslustjóri námufé-
lagsins Curragh Resoyurces, á fundi
með fréttamönnum. „Við vitum ekki
hvað við munum fmna.“
Hann sagði að sprengingin, sem
varð klukkan tæplega hálfníu á laug-
ardagsmorgun að íslenskum tíma,
hefði orsakast af meþangasi sem
safnaðist saman og sprakk áður en
viðvörunartæki námunnar námu
það.
Fánar voru dregnir í hálfa stöng
um gjörvallt Nova Scotia þar sem
námuslys hafa verið tíð. Meira en sex
hundruð námumenn hafa látist af
slysförum þar á þessari öld, þar af
nær helmingurinn í gassprenging-
um.
Lík mannanna voru flutt úr nám-
unni í bráðabirgðalíkhús í skauta-
höll í nágrannabænum New
Glasgow. Syrgjandi ættingjar biðu
eftir því í nærliggjandi kirkju að bera
kennsl á líkin en aðrir biðu eftir frétt-
um af mönnunum sem var saknað
og hugguðu hver annan á slökkvi-
stöðinni í Stellarton.
„Við erum ekki mjög vongóð,“
sagði maður nokkur sem átti mág
meðal þeirra sem saknað var.
Svo virðist sem mennimir ellefu,
sem fundust í gær, hafi látist sam-
stundis.
Reuter
Þetta eru þrjár fallegustu konur heimsins, ef marka má úrslit fegurðarsamkeppninnar unfrú alheimur sem fram fór
í Bangkok á Tælandi á laugardag. Sú í miðið er fegurst þeirra allra, Michelle McLean frá Namibiu. Til hægri á
myndinni er Paola Turbay frá Kólumbiu sem varð í öðru sæti og til vinstri er hin indverska Madhu Sapre sem hafnaði
í því þriðja. Þær eru greinilega hæstánægðar með úrslitin. Símamynd Reuter
Ný samsteypustjórn í Tadzhíkístan
Stjórn og stjómarandstaða í fyrr-
um Sovétlýðveldinu Tadzhíkístan
komust að samkomulagi í morgun
um skipan nýrrar samsteypustjóm-
ar til að binda enda á blóðuga stjóm-
arkreppu í landinu.
í frétt frá höfuðborginni Dusjanbe
sagði Itar-Tass-fréttastofan að and-
stæðingar Rakhmons Nabijevs
mundu fá átta af tuttugu og fjóram
ráðuneytum í nýju stjóminni, þar á
meðal vamarmálaráðuneytiö.
Tass hafði það eftir Vjasjeslav Za-
blotníj ofursta, yfirmanni hersveita
Samveldis sjálfstæðra ríkja í Du-
sjanbe, að samkomulagið hefði náöst
eftir fundi í alla nótt.
Leiðtogar stjórnarandstöðunnar
féllust á að halda lög og reglur í lýð-
veldinu, opna aftur vegi og flugvelli
og sjá til þess að hðsmenn sínir af-
hentu stjómvöldum öh vopn sín.
Sérstök nefnd verður sett á laggim-
ar til að rannsaka skotárás sem var
gerð á stjómarandstæðinga í gær
með þeim afleiðingum að átta þeirra
féllu og margir særðust.
Mótmælendumir, samfylking lýð-
ræðissinna og íslamstrúarmanna,
voru fyrir utan víggirtar höfuðstöðv-
ar öryggislögreglunnar KGB þegar
skothríðin hófst.
Nabijev, sem er fyrrum kommún-
isti og hefur stjórnað lýðveldinu í um
tvo áratugi, hafði leitað hæhs í bygg-
ingunni eftir að margra vikna mót-
mæU höföu hrakið hann úr þinghús-
inu.
Reuter
EININGABRÉF 1
Saga um blóðsugu varpar
skugga á kosningarnar
Raunávöxtun
sl. 3 mánuái
8,0%
KAUPÞING HF
Löggi/t verðbréfafyrirtœki
Kringlutim 5, sími 689080
í eigu li únaðarbanka Islands ogsparisjóðanna
Þær sögur ganga nú fjöllunum
hærra á Filippseyjum að þar sé nú
blóðsuga. Hefur saga þessi jafnvel
varpað skugga á kosningabaráttuna
þar í landi og komist á forsíður dag-
blaðanna. Ekki hefur enn tekist aö
ná neinni blóðsugu, en það sem
menn leita að er kona sem ræðst á
ungaböm í fátækrahverfum Manila.
Trúa FiUppseyingar því að konan
sé svipuö því sem þjóðsögur segja að
blóðsögur TransUvaníu hafi verið,
þ.e. að efri partur hennar fljúgi um
á nætumar en við dögun verði hún
aftur heil og gangi um meðal fólks.
Ganga nú fullorðnir karlmenn um í
fátækrahverfunum vopnaðir hnífum
og járnstöngum.
Að sögn fiUppsevskra félags- og
þjóðfélagsfræðinga er það möguleiki
að spennan og óttinn í kringum kosn-
ingamar og erfiðleikamir í fátækra-
hverfimum hafi komið þjóðsögunni
um blóðsuguna af stað. Þetta er ein
leið fyrir fólkið í landinu til að tak-
ast á við þá streitu sem fylgir kosn-
ingunum. Og að auki era blóðsugu-
sögur skemmtilegra lestrarefni en
kosningaáróður. Reuter
DV
■■ *
Fergieer
komin heim
Sarah, eiginkona Andrews
Bretaprins, er nú komin aftur
heim til Bretlands eftir að hafa
veriö í burtu í mánuð i Austur-
löndum íjær. Tímann notaöí hún
til að ákveða sig hvort hún segði
endanlega skiliö við Andrew. Að
sögn heimilda mun hún hafa
komist að þeirri niðurstöðu að
best væri að skijja.
Danirámóti
Maastricht
Nú er aðeins tæplega mánuður
þangað til Danir kjósa um svo-
kallað Maastricht samkomulag,
en í því felst nánari efhahagsleg
og stjórnmálaleg sameining
hinna 12 ríkja í Efnhagsbandalagi
Evrópu. í Gallup-könnun kom í
Ijós að 40 prósent Ðana myndu
greiða atkvæði sitt gegn samn-
ingnum ef kosið væri núna, en
aðeins 37 prósent era hliðholl
honum. Þetta veldur dönskum
stjórnmálamönnum þungum
áhyggum þar sem flestir þeirra
styðja samninginn. Mun það hafa
haft áhrif á skoðanir Dana að
Jacques Delores, forseti fram-
kvæmdastjórnar EB, lagði til
breytingar innan bandalagsins
sem myndu draga mjög úr áhrif-
um minni ríkja innan bandalags-
ins.
Bandaríkjamenn
vilja einkaþjóna
sem Ivfverði
Svo vírðist sem uppþotið í Los
Angeles á dögunum hafi oröið
þess valdandi að Bandaríkja-
menn leita nú til Bretlands eftir
einkaþjónum. Að sögn skólayfir-
valda í einkaþjónaskóla í Bret-
landi hafa sex neraendur þaðan
verið ráðnir til Bandaríkjanna
eftir uppþotið. Einkaþjónar þess-
ir eru einnig lifverðir og eru þjálf-
aðir bæði í meðferð skotvopna og
bardagaíþróttum. Er kaup þeirra
um 3,6 milljónír á ári.
Lokkurfyrir
54.000
Lokkur úr hári Byron lávarðar
mun vera seldur á uppboði á
næstunni í Bretlandi og er gert
ráð fyrír að um 54.000 krónur fá-
ist fyrir hann. Byron lávarður
var fæddur 1788 og dó árið 1824.
Hann hlaut frægð fyrir róman-
tísk ljóð sín, en sjálfur var hann
tvíkynhneigður og hafði gefiö
bekkjarfélaga sinum einum lokk-
inn.
Sprengjurí
Brettandi
Sjö sprengjur sprangu á sunnu-
daginn i einni af stærstu verslun-
armiðstöövum Evrópu. Voru
sprengingarnar svipaðar þeim
sera írski lýðveldisherinn hefur
staðið fyrir. Að sögn lögreglu í
Gateshead, 400 kflómeti’a norður
af London, þar sem sprenging-
arnar urðu, ollu þær aðeins litl-
um skemmdum og enginn slasað-
ist. Þrjár aðrar sprengjur fundust
áður en þær sprangu. Sprungu
sprengjurnar án þess að nokkur
varaði við þeim og enginn hefui’
lýst ábyrgð á hendur sér hvað
þær varðar, en þær munu hafa
verið á stærð við hljóðsnældur,
svipaðar þeim sem IRA notaöi í
desember sl. í London, Manchest-
er og Blackpool. Um það bil
100.000 manns urðu að yfirgefa
verslunarmiðstöðina í Gates-
head, Metro Centre, þegar
sprengjanna varö vart á laugar-
daginn. Um 360 verslanir era í
Metro Centre og áætlaö tjón
vegna sprengjanna mun vera um
150 mflljónir. Reuter