Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1992, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.1992, Blaðsíða 14
14 MÁNUDAGUR 11. MAÍ 1992. Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÖNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SiMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsirigar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð i lausasölu virka daga 115 kr. - Helgárblað 150 kr. Misnotkun barna Samkvæmt íslensku réttarfari eiga dómstólarnir síö- asta oröið. Þeir dæma menn sýkna eða seka og máltæk- iö segir að enginn deili viö dómarann. Almenningur verður aö treysta því aö dómarar við héraösdóma eöa Hæstarétt hafi þau gögn og þær upplýsingar aö þeir geti reist á þeim grundvelh niöurstööur sínar. Allt rétt- arfarið gengur út á að tryggja sakborningum rétt til að bera hönd fyrir höfuö sér og sömuleiðis aö málatilbúnað- ur komi ekki í veg fyrir réttláta refsingu ef því er að skipta. Alla jafna verður aö treysta aö svo sé. IDV á laugardaginn segir frá því að Hæstiréttur hafi sýknað mann af ákæru um misnotkun á fjögurra ára dóttur sinni. Hann var sakaður um aö hafa misnotaö hana kynferðislega. Settur héraösdómari í Sakadómi SkagaQarðarsýslu hafði áöur dæmt manninn í átta mánaöa fangelsi og þegar málinu var áfrýjað krafðist ríkissaksóknari þyngingar á dómnum. í þessari frétt segir aö grunsemdir hafi vaknaö um meinta misnotkun stúlkubamsins. Læknir var fenginn til að skoöa stúlkuna og hans álit var aö hún heföi ver- ið misnotuð og í kjölfarið var máliö kært til lögreglu. Grunur lék á aö stúfkubarnið heföi verið misnotað kyn- ferðislega þegar stúlkan var ein meö fööur sínum í nokkra daga. Sakadómari taldi misnotkunina sannaða. í dómi Hæstaréttar var maöurinn hins vegar sýknaö- ur á eftirtöldum forsendum: í fyrsta lagi vegna eindreg- innar neitunar föðurins. í ööru lagi vegna ófullkom- innar rannsóknar, einkum vegna þess að læknirinn, sem skoöaöi bamið, var ekki sérfræðingur. í þriðja lagi vegna þess að vitni höfðu ekki séð neitt óeðlilegt við framkomu barnsins. í íjórða lagi vegna þess að dómur- inn leit svo á að barnasérfræðingar, sem komu við sögu málsins, hefðu gengið út frá því sem gefnu að bamið hefði orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi. Með öðrum orðum: Hæstiréttur hefur sýknað hinn ákærða vegna formgalla við meðferð málsins. Læknir- inn var ekki nógu góður læknir. Bamasérfræðingar vom of vissir í sinni sök. Bamið hagaði sér eðlilega. Faðirinn neitaði að játa á sig hirin meinta glæp! Leiðarahöfundar DV hafa ekki lagt það í vana sinn að vefengja dóma Hæstaréttar. En hér er á ferðinni svo sérstakt mál og viðkvæmt og hér er svo mikið skeyting- arleysi um kjarna málsins að ekki verður orða bundist. Fómarlambið í þessu máli getur ekki tjáð sig. Málavext- ir em ekki krufnir til mergjar. Sálarlíf bams er að engu haft. Eðh hins meinta glæps er nánast aukaatriði, vegna þess að málatilbúnaði er ábótavant og formsatriði gera það að verkum að verknaðurinn sjálfur fer fyrir ofan garð og neðan. Hér verður að sjálfsögðu ekki kveðinn upp dómur um sekt föðurins eða sakleysi. En varla er ákæran af engu sprottin. Það gerir það enginn að gamni sínu að bera fram svo alvarlega ákæru á hendur foreldri, algjör- lega að tilefnislausu. Það er varla að ástæðulausu, sem bæði læknir, bamasérfræðingar og dómur í héraði kom- ast að þeirri niðurstöðu að sekt sé sönnuð. Er það for- svaranlegt að æðsti dómstóh landsins sýkni ákærðan vegna formgaha á meðferð málsins? Er það verjandi að lýsa hinn meinta sakborning sýknan saka vegna þess að kalla heföi átt til fleiri lækna til að skoða stúlkubarn- ið þegar grunur lék á kynferðislegri misnotkun? Kynferðisleg misnotkun barna er því miður almenn- ari en fólk gerir sér grein fyrir. Réttarkerfið á ekki að vera skálkaskjól fyrir slíka glæpi. Ellert B. Schram „Jafnvel þótt vió búum við afleita ríkisstjórn er skárra að hafa hana yfir sér en útlendinga.“ samningurinn Stefna Framsóknarflokksins var að standa að samningum um Evr- ópskt efnahagssvæði, enda væri ákveðnum skilyrðum fullnægt. Nú stöndum við frammi fyrir gerðum samningi sem ríkisstjórnin hefur ákveðið að fullgilda. Þar eru ekki þeir fyrirvarar sem upphaflega voru settir fram af íslands hálfu, nema einn, um eignarhald íslend- inga að útgerö og frumfiskvinnslu. - Hinir fyrirvaramir eru ýmist nýög útvatnaðir eða horfnir. Ég hef haft tækifæri til að vinna að Evrópumálum fyrir hönd Fram- sóknarflokksins í Evrópustefnu- nefnd, utanríkismálanefnd og í þingmannanefnd EFTA-ríkjanna og gert það með því hugarfari að kanna þessu flóknu mál sem best, greina undanbragðalaust frá því sem ég hef orðið áskynja, tíunda þá kosti, sem ég kem auga á og eru vissulega fyrir hendi, en jafnframt aö hafa augun opin fyrir göllum og hafa orð á þeim. Ég hef varast að vera með upphrópanir. Ég vil ekki segja á spilin mín fyrr en gefið hefur verið allt úr stokirn- um. Ég segi hvorki mörg grönd né pass fyrr en ég hef talið alla punkt- ana. Það er ekki ennþá alveg búið að gefa úr stokknum. Tvíhhða samningur um fiskveiðiheimildir er ógerður. Ríkisstjómin getur ennþá sett upp dálitiar giröingar og fengið yfirlýsingar sem kynnu að bæta heildarpakkann. Ég vil reyna til þrautar að fá út úr þessu skástu kringmnstæður. Síðan er skynsamlegt að leggja pólitískt mat á þessa samninga. Fullveldið er mikilvægt Fuilveldið er okkur íslendingum ákaflega dýrmætt, sennilega dýr- mætara en öllum öðrum þjóðum. Við erum færri en aðrir, þess vegna er torveldara fyrir okkur að fá út- lendinga til að taka tillit til okkar. Jafnvel þótt við búum viö afleita ríkisstjóm er skárra að hafa hana yfir sér en útiendinga. Með þessum EES-samningi er fúllveldi óneitan- lega skert. Við undirgöngumst aö sníða lög okkar að lögum EB. Það heftir í sjálfu sér frelsi okkar en er e.t.v. ekíti hættulegt. Hitt er vara- samara að við verðum aö lögleiða í framtíðinni það sem þeim í EB kann að detta í hug að lögleiða hjá sér. Við segjum stundum að Al- þingi sé afgreiðslustofnun fyrir rík- isstjómina. Alþingi verður öðram þræði afgreiðslustofnun fyrir EB. Stjórnarskrá er samningum æðri Stjómarskrá okkar mæhr fyrir kosninga og fá stjórnarskrárbreyt- inguna samþykkta á nýju þingi. Hagsmunir íslands Okkur ber að taka ákvarðanir með stjómarfarslega og efnahags- lega hagsmuni íslendinga fyrir augum. Við höfum um þrjá kosti að velja: ganga í EB - þeim kosti hafna ég alfarið, samþykkja samn- ing um EES eða búa áfram við bók- un 6 og fá hana endurbætta. Hún hefur gefist okkur vel og 70-80% af útflutningi okkar fara nú til EB á grundvelh hennar. EES-samningur gefur okkur hk- lega hærra verð fyrir saltfisk og sumar aðrar fiskafurðir, að því gefnu að verðlag og verðmyndun breytist ekki í EB. Iðnaður fær ódýrara vinnuafl og eitthvað ódýr- „Þjóðarréttarsamningur, sem stangast á við stjórnarskrá, er ógildur. Ríkis- stjórnin getur látið núverandi meiri- hluta Alþingis breyta stjórnarskránni, síðan verður hún að rjúfa þing og efna til kosninga og fá stjórnarskrárbreyt- inguna samþykkta á nýju þingi.“ Kjallariim Páll Pétursson alþingismaður um, í annarri grein, að löggjafar- vald eigi að vera hjá forseta íslands og Alþingi. Formlega séð verður svo áfram í fyrstu lotu, lög verða afgreidd á Alþingi en alþingismenn hafa bundnar hendur. Þeir veröa að haga lagasetningu eftir ákveð- inni forskrift, ekki einungis stjóm- arskránni. Við verðum líka bundn- ir af þvi sem EB ákveður eða kem- ur til með að ákveða. í 61. gr. stjóm- arskrárinnar segir: „Dómendur skuh í embættisverkum sínum fara einungis eftir lögunum." Eftir gerð EES-samnings hafa dómendur í fleiri hom að líta, þeir verða t.d. samkv. 103 gr. samnings aö láta ákvörðun EES-nefndar um lagabreytingu gilda til „bráða- birgða" þótt stjómarskrárkröfum hafi ekki verið fullnægt. Á það hvort hér sé farið eftir efni og anda stjómarskrárinnar verður hver og einn alþingismaöur að leggja mat áður en samningur gengur.til at- kvæða. Þjóðarréttarsamningur, sem stangast á við stjórnarskrá, er ógildur. Ríkisstjórnin getur látið núverandi meirihluta Alþingis breyta stjórnarskránni, síðan verð- ur hún að rjúfa þing og efna til ari aðfóng. Neytendur fá eitthvað ódýrari vöra í sumum tilfehum. Á hinn bóginn missa íslendingar störf við framleiðslu og atvinnu- leysi eykst. EES-samningur er upp- segjanlegur. Það var Gamh sátt- máh raunar líka og segjum við samningi upp búiun viö áfram við bókun 6. Brotið prinsipp Gmndvaharatriði í samskiptum íslendinga og EB hefur verið í 20 ár að ekki komi th greina að veita fiskveiðiheimhdir í staðinn fyrir tohaívilnanir. Þetta prinsipp er brotið með EES-samningi. Tvíhhða samningur um veiöiheimhdir var algjört skhyröi frá EB fyrir gerð EES-samnings. Þess vegna telja þeir sér ótvírætt ávinning að svo- kölluðum „gagnkvæmum veiði- heimhdum". Leiðir EES-samningur okkur inn í EB? Þeirri spurningu þurfum við að reyna að svara hvert fyrir sig. Er hér um að ræða áfanga á leið- inni inn í EB eða varanlega enda- stöð? Sé einungis um áfanga að ræða eigum við ekki að fullgilda þennansamning. Páll Pétursson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.