Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1992, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.1992, Síða 32
r U1 FR ÉTTAS KOTIÐ i iffiúi,, iram - mm C3 0.2 ® 25 • 25 Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- —> 1— hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- —3. í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími €3 27 00 Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 8. SEPTEMBER 1992. Skagafiörður: Milljónatjón í hlöðu- og fjósbruna Milljónatjón varð á bænum Skúfs- stöðum í Hjaltadal í Skagafirði í fyrrinótt þegar hlaða og fjós brunnu til kaldra kola. Heimilisfólkið á bæn- um varð eldsins vart um miðnætti og logaði glatt þá þegar. Á síðustu stundu tókst að bjarga um 70 naut- gripum úr fjósinu en allt heyið brann, meðal annars fjöldi rúllu- bagga sem var í súrheysgryfju. Hlað- an og fjósið eru áföst. í rústunum standa aðeins steyptir veggir eftir. Slökkviliðsmenn frá Sauðárkróki og Hofsósi unnu slökkvistarf ásamt heimamönnum. Þegar þeir komu á vettvang logaði glatt og möguleikar engir á að bjarga heyinu. Búið var að koma nautgripunum út. Slökkvi- starf gekk greiðlega. Eldurinn var slökktur á rúmum klukkutíma. „Það brann allt sem brunnið gat. Við fórum úr fjósinu um hálfníuleyt- ið á sunnudagskvöldið og rúmum þrem tímum síðar stóð allt í ljósum logum. Dóttir okkar heyrði bresti frá fjóshlöðunni og þá logaði upp úr þak- inu,“ sagði húsfreyjan á Skúfsstöð- umísamtaliviðDV. -bjb Njarðvlkurhöfn: Synti í land í f lotgalla Björgunarsveitarmaður úr Stakki frá Keflavík var hætt kominn í Njarðvíkurhöfn í gærkvöldi þegar hann var við æfingar ásamt tveim félögum sínum. Félagarnir voru að ná manninum upp úr sjónum þegar vélarbilun varð í gúmbátnum sem þeir voru á og bátinn rak stjórnlaust frá manninum. Slæmt var í sjó þegar þetta gerðist og aðstæður slæmar. Óttast var um manninn, Gunnar Ásgeirsson, og leit hófst að honum. Hann fannst fljótt því hann gerði sér lítið fyrir og synti í land. Gunnar tók land við brimbrjótinn í Njarðvík. Hann var nokkuð þrekaður eftir volkið en varð að öðru leyti ekki meint af. Gunnar var í nýrri tegund björgunarflotgalla. Félaga Gunnars rak upp í land við Narfakot í Njarðvík en sakaði ekki. -bjb SlysiðíFljótum: Pilturinnsem lést Pilturinn, sem fannst látinn eftir bílveltu hjá Hrauni í Fljótum um helgina, hét Björgvin Davíð Björns- son. Björgvin bjó í foreldrahúsum á Sigluflrði. -bjb Borgarfulltrúar hafa ekki heyrt um samninginn Markús Örn Antonsson skrifaði undir samkomulag milli Reykja- víkurborgar, fyrirtækis Egils Skula Ingibergssonar, verkfræð- ings og fyrrverandi borgartjóra, og þriggja hollenskra fyrirtækja um aö þessir aöilar í sameiningu geri vandaða hagkvæmnisúttekt á orkusölu um sæstreng til Hollands. Samkomulagið var gert og undir- ritað í bytjun júli, samkvæmt því sem heimildir DV herma. Samkvæmt heimildum DV mun Reykjavíkurborg sjá um lagalega og íjárhagslega hlið þess hluta út- tektarinnar sem snýr að sæ- strengsverksmiðju, sem hugmynd- in er að byggja í Reykjavík, og leggja henni til lóð og hafharað- stöðu. Athuganirnar roiða að því að þetta fyrirtæki geti orðíð að veruleika ekki seinna en árið 2005. Ekki náöist x Markús Örn Ant- onsson borgarsfjóra vegna þessa máls. Árni Sígfússon, einn af borg- arfulltrúum Sjálfstæðisflokksins, sagðist hins vegar ekki þekkja þetta mál þar sem það hefði ekid verið rætt í valdastofnunum borg- arinnar, það er hvorki í borgarráði né borgarstjóm. Ámi sagðist ekki trúa því að borgarsfjóri hefði með einhvetjum hætti skuldbundið borgina fjárhagslega vegna þessa verkefnis. Ekki fengust upplýs- ingar um hversu mikið þessi úttekt á að kosta né hvemig kostnaður skiptist. Fyrirtæki Egils Skúla Ingibergs- sonar sér um þann hluta úttektar- inrxar sem snýr að ffutningi rafork- unnar að sæstrengnum og bygg- ingu spennistööva hér á landi og í HollandL Hollendingar sjá um könnun á dreifingu og sölu erlend- is, samkvæmt því sem heimildir DV herma. „Við höfum undirgengist aö frá okkur fari ekkert til fjölmiðla fyrr enn á ákveðnum tímapunkti sem er ekki kominn. Að fara að bijóta þaö og setja jafnvel eitthvað í hættu með því, þaö geri ég ekki,“ sagði Egill Skúli Ingibergsson þegar DV leitaði til hans með þetta mál. -sme Kjötstríð: Kjúklingar lækka um nær 20 prósent Kjúklingar hafa lækkað í verslun- um nú í byrjun vikunnar um allt að 20% og nautakjöt um allt að 15%. Miklar birgðir em til af nautakjöti í landinu og vom þeir Jón Ásgeir Jó- hannesson í Bónusi og Guðjón Sveinsson í Fjarðarkaupum sam- mála um aö það væri að koma fram í verðinu og bjuggust við að hægt væri að ná verðinu enn lengra nið- ur. Til dæmis hefur verð á nauta- hakki lækkað um rúmlega 20% í Fjarðarkaupum frá því fyrir ári, að sögn Guðjóns. Samkvæmt heimildum DV ríkir hins vegar hreint verðstríð milli smásöluverslana með kjúklingakjöt- ið en verð frá framleiðendum hefur ekki lækkað. Bæði í Fjaröarkaupum og Bónusi var búist við að verð á kjúkhngakjöti myndi enn lækka á næstu dögum. Kílóverðið á kjúkling- um hefur lækkað um allt að 20% frá þvi í síðustu viku og i dag kostar kílóið 450 krónur í Bónusi og 480 krónur í Fjarðarkaupum. Þaö hafði lækkað um tæplega 14 prósent milli vikna í Bónusi og um 20% í Fjarðar- kaupum. -Ari Tveir bílar skemmdust mikið i Kópavogi i gærmorgun þegar vinnupallar hrundu ofan á þá. Bílarnir voru á bila- stæði við Ástún. Hvassviðriö tók vinnupallana niður en taka átti þá niður um næstu helgi. Til allrar hamingju voru bílarnir mannlausir. DV-mynd GVA Átök um áritun: Ávarpa konung aðsiðSnorra „Bókin er afar falleg. Þetta er út- gáfa af Landnámu frá 1974, bundin í geitarskinn. Hún er árituð til minn- ingar um daginn í dag. Áritunin er á íslensku og hjónin eru ávörpuð herra og frú á sama hátt og jafnan hefur verið að norrænum hætti samkvæmt þeirri hefð sem var á dögum Snorra Sturluspnar - Herra Haraldur kon- imgur Ólafsson og frú Sonja drottn- ing,“ sagði Geir Waage, sóknarprest- ur í Reykholti, um gjöf þá sem norsku konungshjónunum verður færð er þau heimsækja Reykholt í dag. Formaður sóknamefndar mun afhenda konungshjónunum gjöfina. Þegar sá aðih sem fenginn var th að skrautskrifa áritunina í Land- námu hafði samband við forsetaemb- ættið í Reykjavík kom í ljós að emb- ættið vildi hafa áritunina aö opinber- um hætti - þannig yrðu konungs- hjónin nefnd hans og hennar „há- tign“. Prestur og sóknamefnd ákváðu eigi að síður að hafa áritim- ina með gamla norræna hættinum. „Á þessum staö og í þessu sam- hengj höldum við okkur við hinn gamla norræna hátt,“ sagði séra Geir Waage. Geir tók fram að samvinna við forsetaembættið um undirbúning heimsóknar konungshjónanna hefði gengjðmeðmiklumágætum. -ÓTT LOKI Auðvitað eiga Islendingar aðveraalþýðlegirvið frændursína, konungana! Veðriðámorgun: Svattverður íveðri Á hádegi á morgun verður norðlæg átt, stinningskaldi eða ahhvasst norðvestanlands en hægari í öömm landshlutum. Rigning verður norðanlands en skýjað og úrkomuhtiö syðra. Svadt verður í veðri. Veðrið í dag er á bls. 28. 1 1 ■HP—■ I -Brook I (rompton | RAFMÓTORAR Poukefi SuAuriandsfaraut 10. 8. 686489.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.