Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1992, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1992, Qupperneq 14
14 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆEAND JÓNSSON Fréttastjóri: JONAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, 105 RVlK, SlMI (91)63 27 00 SlMBRÉF: Auglýsingar: (91)63 27 27 - aðrar deildir: (91)63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDGÖTU 25. SlMI: (96)25013. Blaðamaður: (96)26613. SlMBRÉF: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1200 kr. Verð í lausasclu virka daga 115 kr. - Helgarblað 150 kr. Kjarklaust frumvarp Ríkisstjómiii hefur meö nýju íjárlagafrumvarpi gert fjármálaráðherra sinn aö skattakóngi íslandssögunnar annaö áriö í röö. Skattahlutfallið hækkar milh ára úr 26,8% í 26,9%. Fara menn nú senn aö sakna fyrrverandi fjármálaráðherra, sem kom hlutfallinu aöeins í 26,3%. Ráðherrann hefur sér til afsökunar, að dregist hefur saman landsframleiöslan, sem skatturinn er tekinn af og skattahlutfalhö miöaö viö. Alþekkt tregðulögmál rík- isfjármála gerir ríkinu erfitt um vik að draga saman seglin, þegar harðnar í ári hjá þjóöinni í heild. Ástandiö er engan veginn eins og í Færeyjum. Þar varö landsstjómin óbeint aö segja sig til sveitar hjá danska ríkinu og veröur aö semja ný og raunhæfari íjár- lög undir eftirhti hagfræöinga Alþjóöa gjaldeyrissjóðs- ins. Hurö landssjóösgjaldþrots skall þar nærri hælum. Þótt íslenzku ríkisstjórninni vegni aö þessu leyti bet- ur en færeysku landsstjóminni, er fjárlagafrumvarpið markaö hugleysi, sem gat gengið í blíðviðrinu, en sker í augu, þegar þjóöarskútan er lent í stórsjó. Þaö einkenn- ist af uppsöfnuðu kroppi í marga þætti ríkisútgjalda. Miklu áhrifameira og í rauninni sársaukaminna er að skera stóra og skaðlega útgjaldaliði niöur viö trog. Þar er efstur og bólgnastur á blaði hinn heföbundni landbúnaöur, sem kostar skattgreiðendur átta milljarða króna á næsta ári og neytendur tólf milljarða að auki. Meö því að skera ríkisútgjöld til hins hefðbundna landbúnaöar og leyfa innflutning ódýrrar búvöru er hægt aö bæta lífskjör þjóöarinnar um leið og hahinn á ríkissjóöi er strikaður út. í staö þess kroppar ríkisstjórn- in mhdhega utan í þennan skaölega útgjaldahö. Af því aö ríkisstjómin hefur ekki þor til aö hreyfa rækhega viö útgjöldum th heföbundins landbúnaðar, veröur hún aö ráðast aö útgjaldaliðum, sem eru í sjálfu sér nytsamlegir, eins og ýmsum þáttum skólamála og hehsugæzlu, sem stuðla aö betri framtíö þjóðarinnar. Margvíslegt kropp utan í útgjaldaliði minnir aö sumu leyti á fyrri tilraunir til flata niðurskurðarins, sem var oft og árangurslaust reyndur á fyrri árum. Er skemmst aö minnast, aö ekki tókst á þessu ári að skera niður heilbrigðisútgjöld, þrátt fyrir sáran hamagang. Óhætt er aö slá föstu, aö margt af slíkum niður- skuröi muni ekki ná fram aö ganga í reynd, af þvi aö tölum í fjárlagafrumvarpi fylgja ekki fyrirmæh um, hvernig eigi að standa að honum. Enn einu sinni er boöiö upp á dansinn: Fariö þiö fram úr fjárlögum. Þessu fylgja thraunir th sjónhverfmga, sem stappa nærri geðklofa, eins og þegar ríkisstjórnin gælir meö annarri hehahliöinni viö aö skera niður vegafram- kvæmdir á fjárlögum og með hinni hhöinni viö aö auka þær jafnframt meö sérstökum atvinnubótaaögeröum. Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu á aö setja rekstur feija og flóabáta á vegasjóð og draga þar meö úr getu hans th vegagerðar um sömu upphæö. Samkvæmt tillög- um ríkisstj ómarinnar gegn atvinnuleysi á hins vegar aö taka lán th að búa th atvinnubótavinnu í vegagerð. Fjárlagafrumvarp ríkisstjómarinnar fyrir áriö 1993 felur ekki í sér, aö látið sé reka á reiðanum eins og fyrsta Qárlagafrumvarp færeysku landsstjómarinnar. En þaö felur ekki heldur í sér, aö ríkisstjómin hafi kjark th að haga fjármálum í sth við erfiöa tíma. Frumvarpið fer bh beggja og kroppar dáhtiö í marga útgjaldaliði. Þaö setur þjóöina ekki á hausinn, en gerir henni erfitt fyrir í þrengingum, sem standa fyrir dyrum. Jónas Kristjánsson FlMMTpPfVíjyK g,pKTÓBkm.390a. Höfundur segir það eflaust rétt að kaupið sé lágt hjá veðurfræðingum og meinatæknum en það sé lika lágt á eyrinni. DV-mynd S v Einum sagt upp - aðrir segja upp Vinnumarkaöurinn er voðalega skondinn. Samt er hann svolítið alvarlegur þessa stundina. Það er skemmst frá því að segja að á hon- um er einum sagt upp á meðan aðrir segja sjálfir upp störfum sín- um og eru farnir. Hvert fara þessir íslensku „starfskraftar"? Líklegt er að menn, sem fá upp- sagnir, fái atvinnuleysisbætur en ekki er eins ljóst hvert hinir kunni að fara. Fá þeir störf sem eru betur launuð? Fara þeir til útlanda þar sem beðið er eftir þeim og starfs- kröftum þeirra? Eöa geta þeir hlaupið heim og lifað á því sem þeir hafa safnaö til mögru áranna, þrátt fyrir lélegt kaup? Allt varð„létt“ Um þetta er hægt að brjóta heil- ann endalaust, eins og við segjum í þessu heilabrotalandi, en auðvitað án þess að komast að einhverri nið- urstöðu. Maður þarf samt ekki aö skoða máhö vandlega til þess að sjá ýmislegt markvert sem hefur veriö að gerast í þessu stéttlausa og rétt- láta þjóðfélagi þar sem fólk hefur verið að „létta sér upp“ á öllum sviðum síðustu áratugina. í fyrstu vildi það hafa allt „léttgeggjað" í lífsháttum og tónlist, svo komu „léttar" sígarettur í kjölfarið. Allt varð hght: „létt“ smjör og léttmjólk komu úr kúnum, „léttar" bækur komu frá rithöfundum; og svo var öh þjóðin „léttkennd" um helgar. Núna er aftur á móti þunginn kominn til skjalanna, þegar létt- lynda kynslóðin er komin af „létt- asta skeiði" og á ekkert létt með að taka vandræðum. Svo það hefur eiginlega allt snúist öfugt fyrir okk- ur. Einn öfugsnúningurinn er sá að venjulegu verkafólki er þessa dag- ana sagt upp störfum og það hefur í engin hús að venda en hinir menntuðu og lærðu segja uop störf- um t.d. á Landspítalanum og biðja sjúkhngana vel að lifa. Sömu sög- una er að segja á Veðurstofunni. Sjómenn og bændur, núna getið þið htið til lofts og séð þar blikur, eins og þið gerðuð í gamla daga. Við verðum sjálf komin í loftið til annarra landa eftir fáa daga því hið alþjóðlega veðurfar getur ekki án okkar verið. Kaupið er líka lágt á eyrinni Eflaust er rétt að kaupið sé lágt KjaHaxinn Guðbergur Bergsson rithöfundur hjá veðurfræðingum og meina- tæknum en það er líka lágt á eyr- inni. Og þeir sem eru á henni og á sjónum og í fjósunum hafa hvorki efni á því né menntun tíl að segja sjálfir upp störfum, kveðja kýr og fisk og vera famir. Nú kann einhver að segja: Já, en þama er mikhl munur á, nefnd störf við meinin em þau sem konur sækja í, því karlmenn líta ekki við þeim. Eflaust er þetta rétt hvað varðar meinatækna, þvi eftir viðtölum að dæma er talað um þá í kvenkyni. En þetta er rangt ef dæmt er eftir hlutfalh á mhh karla og kvenna í veðurfræðinni á „skjánum", þótt það fari kannski svohtið eftír sjón- varpsstöövum. Á annarri virðast karlmenn vera í algemm meiri- hluta; þar er veðurfarið líka hressi- legt og ahtaf gamansamt og fyndið. Skýringuna á því hvers vegna lært fólk getur sagt upp störfum en ólært er rekið úr þeim er kannski að finna í því að skipting starfa eftir kynjum hefur verið næstum færð inn í óskráða stjóm- arskrá landsins. Menntaðar konur geta fariö heim, ef þær em giftar hliðstæðum sínum - það er ekki unnið utan heimihsins af fjárþörf heldur andlegri. Hún er reyndar næstum eins mikhvæg og hin í lífi allra manna. En hvers vegna berast ekki frétt- ir af því aö verkakonur hafi sagt upp störfum, konur á saumastof- um, í verksmiðjum eða á öðrum stöðum? Vegna þess að þær hafa ekki efni á því; heimihö ekki heldur. Þær geta ekki sagt: Lifið heilar, lopapeysur, rækja og shd, leggið ykkur sjálfar i dósirnar í lagmetísiðnaðinum. Við erum famar th starfa á Grænlandi þar sem rækjan bíður okkar og mann- sæmandi kaup. Fáránlegt samfélag Aht er þetta htið dæmi um þaö fáránlega samfélag sem við höfum sjálf ákveðið að setja saman eftír stofnun lýðveldisins. Þjóðfélagið er orðið þreytt á sjálfu sér. Það finnur htinn raunverulegan tílgang í smæð sinni, þótt ekkert sé athuga- vert við eða verra að búa hjá lítihi þjóð en stórri. Munurinn er helst sá að hver einstakhngur ber meiri ábyrgð hjá fámennri þjóð en í stóru samfélagi. Um leið er hann meira virði eða gætí verið það. Þaö fer að mestu eftir því hvaða afstöðu hann tekur th lífsins. Annars þarf enginn að hafa vem- legar áhyggjur af uppsögnunum hvað það varðar að alvara verði úr þeim. Listin að hugsa htíö fram í tímann og rjúka upp en „rétta sig svo niður“ er talsvert útbreidd á meðal okkar, eftir að verkalýðsbar- áttunni lauk en geðþóttinn kom í staðinn. Það er kannski ágætt fyrir efnahaginn, ef til skamms tíma er htiö, eins og þeir segja, en slæmt fyrir sjálfsvirðingu einstakhngsinS og allan þjóðarhag. Guðbergur Bergsson „Skýringuna á því hvers vegna lært fólk getur sagt upp störfum en ólært er rekið úr þeim er kannski að finna í því að skipting starfa eftir kynjum hef- ur verið næstum færð inn 1 óskráða stjórnarskrá landsins.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.