Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1992, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1992, Blaðsíða 26
34 FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1992. Afmæli Ragnheiður Ólafsdóttir Ragnheiöur Ólafsdóttir, skrif- stofustjóri Sálarrannsóknafélgs ís- lands, Hákotsvör 3, Bessastaða- hreppi, er fimmtug í dag. Starfsferill Ragnheiöur fæddist á Bíldudal en ólst upp í Stykkishólmi og varö þaö- an gagnfræðingur. Við tók félags- fræðibraut í öldungadeild Fjöl- brautaskólans á Akranesi og ýmis námskeið, þ.á m. í Tölvuskóla Reykjavíkur, Myndlistaskóla Reykjavíkur og einkanámskeið. Ragnheiður hefur unnið við ýmis verslunar- og skrifstofustörf og var heimavinnandi í u.þ.b. 25 ár. Hún hefur verið formaður Lands- samtaka heimavinnandi fólks frá stofnunþeirra, var 1. varamaöur í hreppsnefnd Tálknafjarðar.og var bæði fyrsta konan sem sat hrepps- nefndarfundi þar og sú fyrsta sem sat í Samtökum sveitarfélaga á Vest urlandi. Hún var bæjarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins á Akranesi, fyrsta konan sem kjörin var fyrir flokkinn sem aðalmaður þar, formaður Sjálfstæð- iskvennafélagsins Báru á Akranesi, i stjóm og framkvæmdastjórn Landssambands sjálfstæðiskvenna, formaður skólanefndar Fjölbrauta- skóla Akraness, formaður Kvenfé- lags Akraness og í stjórn kvenna- deildar Slysavarnafélagsins þar, í stjóm Kvenfélags Tálknafjarðar og formaöur Slysavarnafélagsins þar. Ennfremur var Ragnheiður vara- þingmaður fyrir Borgaraflokkinn í Reykjaneskjördæmi og sat í sam- ráðsnefnd um fiskveiðistjórnun á vegum Alþingis fyrir flokkinn, í nefnd um tengsl atvinnulífs og skóla á vegum menntamálaráðuneytisins og er í nefnd á vegum félagsmála- ráðuneytisins vegna Alþjóðaárs fjöl- skyldunnarl994.Ragnheiðursatí' heilbrigðisnefnd og í undirbúnings- og framkvæmdanefnd þjóðhátíðar í Vatnsfirði fyrir V-Barðastrandar- sýslu 1974 og hefur ennfremur unnið ýmis önnur trúnaðarstörf og ritstörf. Fjölskylda Ragnheiður giftist 19.10.1963 Sölva Steinberg Pálssyni, f. 19.7.1944, skipstjóra. Hann er sonur Páls Sölvasonar, fyrrv. sjómanns í Reykjavík, og Ólínu Helgu Friðriks- dóttur. Börn Ragnheiðar og Sölva eru: Ólafur Páll, f. 17.11.1964, bifvéla- virki, kvæntur Jóhönnu Árnadótt- ur, f. 3.1.1967, danskennara, og eiga þau tvö börn; Bjarni Friðrik, f. 8.1. 1966, nemi í matvælafræði við HÍ, kvæntur Fríðu Tómasdóttur, nema í KHÍ, og eiga þau eina dóttur; Ást- hildur Helga, f. 14.12.1967, verslun- armaður, gift Ásgeiri Ásgeirssyni, f. 5.1.1965, skrifstofustjóra, ogeiga þau tvö börn; Rakel, f. 22.9.1975, nemi í MA. Systkini Ragnheiðar eru: Stein- unn Dorothea, f. 27.1.1935, hjúkran- arkona í Reykjavík, fráskilin og á fjögur börn; Björn, f. 30.11.1936, skólastjóri í Hafnaríirði, kvæntur Sigrúnu Pétursdóttur, f. 21.9.1939, ljósmóður, og eiga þau fjögur börn; Bergljót, f.-2.12.1938, kennari í Hafn- arfirði, gift Bimi Péturssyni kenn- ara og eiga þau þrjú börn; Baldur, f. 14.5.1940, bankamaðuríReykja- vík, giftur Maríu Frímannsdóttur, f. 22.6.1940, starfsm. ísaga og eiga þau tvö börn; Jón, f. 23.3.1945, húsa- smíðameistari í Hafnarfirði, kvænt- ur Ingibjörgu Guðmundsdóttur, f. 24.10.1946, bókbindara, ogeiga þau íjögur börn; og Sverrir, f. 13.5.1948, myndhöggvari í Hafnarfirði, kvænt- ur Camillu Rainer, f. 20.7.1946, kennara, og eiga þau fjögur börn. Ragnheiður er dóttir Olafs Páls Jónssonar, f. 5.10.1899, d. 1.12.1965, fyrram héraðslæknis, og Ástu Jó- hönnu Jónínu Guömundsdóttur, f. 24.8.1908, fyrrum húsfreyju, nú á Skjóh við Kleppsveg. Ætt Ólafur var sonur Jóns Dagbjarts Guðmundssonar, f. 30.7.1862, d. 27.2. 1907, b. á Ósi og í Hokinsdal í Auð- kúluhr., og Bjömfríðar Benjamíns- dóttur, f. 27.3.1868, d. 19.2,1950, ljós- móður. Ásta Jóhanna er dóttir Guðmund- ar Péturssonar, f. 24.3.1873, d. 18.2. 1944, nuddlæknis á Eskifirði, og Ragnheiður Ólafsdóttir. Steinunnar Sverrisdóttur, f. 8.3. 1867, d. 15.11.1934, húsmóður. Foreldrar Jóns Dagbjarts voru Guðmundur Jónsson, f. 3.6.1834, d. 1873, b. í Hrafnseyrarhúsum, og Lovísa Rannveig Jónsdóttir, f. 9.6. 1841, d. 25.8.1884, húsmóðir. Foreldrar Björnfríðar voru Benja- mín Hansson, f. 15.12.1834, d. 19.5. 1919 (talinn launsonur Hjálmars Jónssonar skálds í Bólu), og Jónína Guðmundsdóttir, f. 20.7.1833, d. 27.7. 1909, verkakona. Ragnheiður verður að heiman á afmælisdaginn. Steingnmur L. Bragason Steingrímur Lárus Bragason framhaldsskólakennari, Vogabraut 34 Akranesi, er fimmtugur í dag. Stafsferill Steingrímur fæddist í Svínaskála á Eskifirði en ólst upp að Egilsstöð- um á Völlum í Fljótsdalshéraði. Hann lauk landsprófi miðskóla frá Eiðaskóla 1958 og stúdentsprófi frá MA1962. Var við nám í verkfræði- deild HÍ1962-63, hætti því og hóf nám í íslenskum fræðum 1964. Lauk síðan BA-prófi frá HÍ í íslensku, sagnfræði og bókasafnsfræði vorið 1969. Veturinn 1969-70 var Steingrímur stundakennari í íslensku við Kennaraskóla íslands. Kenndi bæði íslensku og sagnfræði við Gagn- fræðaskólann á Akureyri 1970-77 og hefur kennt íslensku við Fjölbrauta- skóla Vesturlands á Akranesi frá stofnun hans. Sumarið 1971 lauk Steingrímur prófi í uppeldis- og kennslufræðum og veturinn 1990-91 stundaði hann nám í íslenskri málfræði á kandí- datsstigi við HÍ. Hann var formaöur Kirkjukórs Akraness 1975-76 og formaður svæðisfélags HÍK á Vesturlandi eitt kjörtímabil. Steingrímur hefur ennfremur unnið ýmis ritstörf tengd skólaút- gáfu á Gunnlaugs sögu ormstungu fyrir Iðnskólaútgáfuna í félagi við aðra. Fjölskylda Steingrímur kvæntist 15.7.1967 Kristínu Sesselju Einarsdóttur, f. 28.11.1943, fulltrúa á tæknideild Sementsverksmiðju ríkisins. Hún er dóttir Einars Kristins Gíslasonar, sjómanns á Akranesi, og Elísabetar Sveinbjörnsdóttur ljósmóður. Börn Steingríms og Kristinar era: Elísabet, f. 20.3.1968, kennaranemi á Akranesi, í sambúð með Rúnari Sigríkssyni íþröttakennara og eiga þau tvö börn; Sigurbjörg, f. 11.5. 1969, fulltrúi hjá Tryggingastofnun ríkisins; Sigfús, f. 27.8.1971, verslun- armaðurá Akranesi;ogBragi,f. , 13.1.1980, nemi. Hálfsystkini Steingríms eru: Erík- ur, f. 24.2.1928 (samfeðra), verka- maður á Selfossi, kvæntur Halldóru Jónsdóttur; Angela Baldvinsdóttir, f. 7.5.1931 (sammæöra), starfsmaður Pósts og síma, gift Stefáni Val Páls- syni og eiga þau þrjár dætur. Alsystkini eru; Grímhildur, f. 10.10.1937, bókasafnsfræðingur á Akranesi, gift Hauki Guðlaugssyni og eiga þau tvo syni; Baldur Bárð- ur, f. 18.6.1939, tannlæknir á Sauð- árkróki, k væntur Elínu Esmat Pai- mani og eiga þau einn son. Fyrir átti Baldur þrjá syni; Halldór, f. 16.4. 1941, bankamaður í Noregi, í sam- Steingrímur Lárus Bragason. búð með Grethe Larsen en fyrir átti Halldór fjögur börn; Kormákur, f. 27.3.1944, pípulagningameistari, kvæntur Guörúnu Nellý Sigurðar- dóttur og eiga þau þrjú börn; Matt- hías, f. 8.8.1945, pípulagningameist- ari, kvæntur Ragnheiði Helgadóttur og eiga þau saman tvær dætur og sitt hvora fyrir; Þorvaldur, f. 1.1. 1948, lögreglumaður í Garðabæ, kvæntur Ólöfu Sighvatsdóttur og eiga þau tvo syni; Kristín, f. 16.12. 1949, skrifstofumaður, var gift Hall- grími Tómasi Sveinssyni. Steingrímur er sonur Braga Matt- híasar Steingrímssonar, f. 3.8.1907 d. 11.11.1971, dýralæknisog Sigur- bjargar Lárusdóttur, f. 12.1.1909, húsmóður sem nú býr í Reykjavík. Steingrímur tekur á móti gestum á heimili sínu þann 10. október eftir kl. 16. Benedikt Guðmundsson Benedikt Guðmundsson, starfs- maður Byggðastofnunar á Akur- eyri, Stapasíðu 17a Akureyri, er fer- tugurídag. Starfsferill Benedikt ólst upp á Akureyri og lauk gagnfræðaprófi frá Reykholti í Borgarfirði 1969-70. Þremur áram síðar lauk hann undirbúningsdeild fyrir Tækniskóla íslands á Akureyri og loks tækniteiknun frá Iðnskóla Reykjavíkur 1975. Loks nam Bene- dikt byggingartæknifræði við Gjö- vik Ingeniör Högskole í Noregi 1976-79. Hann starfaði sem mælingamaöur hjá Vegagerð ríkisins með námi 1970-62 og frá 1982-86 var hann deildarstjóri hjá Iðnaðardeild Sam- bandsins. Loks rekstrarstjóri hjá Henson hf. í Reykjavík 1986-88 og hefur verið hjá Byggðastofnun frá 1. apríl 1988. Benedikt hefur einnig unnið ýmis félags- og trúnaðarstörf. Harni var í stjóm fiskeldisfyrirtækisins Mikla- lax hf. frá 1989, í stjóm útflutnings- fyrirtækisins Árblik hf. frá 1989, í stjóm Drífu hf„ Hvammstanga, frá 1988 og í stjóm Hagfélags V-Hún. frá 1991. Ennfremur var Benedikt formað- ur íþróttafélagsins Þórs á Akureyri 1985-86 og í stjórn knattspyrnu- deildar sama félags 1988-90. Fjölskylda Benedikt kvæntist 29.7.1976 Svan- hildi Sigurgeirsdóttur, f. 3.9.1957, bankastarfsmanni. Hún er dóttir Sigurgeirs Sigurpálssonar, fram- kvæmdastjóra bifrv. Skálafells, og Evu Aðalsteinsdóttur, starfsmanns Hagkaups á Akureyri. Benedikt og Svanhildur eiga þijú böm, þau era: Guðmundur, f. 3.9. 1974, atvinnuknattspymumaður í Belgíu; Einar Logi, f. 2.6.1982, og Eva Björk, f. 24.7.1991. Systkini Benedikts eru: Birgir, f. 7.9.1945, umdæmisverkfræðingur í Borgarnesi, k væntur Brit Bield vedt, f. 14.12.1945, félagsráðgjafa og eiga þau þrjá syni: Birgi Öm, Jón Óttar og Óla Þór; Toríhildur, f. 21.6.1949, húsmóðir á ísafirði, gift Reyni Ragn- arssyni, f. 15.11.1947, vélstjóra, þau eiga þijú böm: Ragnar, Áslaugu og Reyni, og Sigrún, f. 17.9.1950, mót- Benedikt Guðmundsson. tökuritari á Akureyri, gift Gunnari Bill Bjömssyni, f. 27.4.1953, mats- manni hjá Fasteignamati ríkisins, þau eiga þrjú börn: Guðmund Öm, Arnar Bill og Hörpu. Foreldrar Benedikts era Guð- mundur Benediktsson, f. 23.9.1911, fv. rekstrarstjóri Vegageröar ríkis- ins á Akureyri, og Áslaug Guðlaugs- dóttir, f. 8.6.1918, húsmóðir. Þau búa áAkureyri. Afmælisbamið tekur á móti gest- um í Hamri, félagsheimili Þórsara við Skarðshlíð, á milli kl. 18.00 og 20.30 á afmælisdaginn. Hrönn Kristinsdóttir Hrönn Kristinsdóttir verslunar- maður, Höskuldarvöllum 5, Grinda- vík, erfertugídag. Starfsferill Hrönn fæddist að Norðurkoti á Kjalamesi og ólst þar upp. Hún lauk gagnfræðaskólaprófi frá Brúar- landsskóla 1969 og hefur unnið við fiskvinnslu og verslunarstörf síðan. Árið 1983 fluttist hún til Grinda- víkur og starfar nú í versluninni Staðarkjöri. Fjölskylda Hrönn giftist 15.7.1978 H. Magnúsi Sigurössyni, f. 20.10.1953, sjómanni. Hann er sonur Sigurðar Jónssonar og Sigríðar Jónsdóttur sem nú er látin. Hrönn og Magnús eiga soninh Davíð Pál, f. 5.1.1985, en fyrir átti Hrönn dótturina Á. Grétu Alfreðs- dóttur, f. 11.11.1969, sem á soninn Þröst Marel. Magnús átti fyrir dæt- urnar Evelyn og Ástu Björk. Systkini Hrannar eru: Gerður, f. 28.3.1950, fulltrúi, gift Birni Bergs- syni kennara og eiga þau eina dótt- ur. Gerður átti tvö börn fyrir; Sig- fús, f. 16.3.1954, rafvirki og umsjón- armaður á Vífilsstaðaspítala, Hrönn Kristinsdóttir. kvæntur Hildi Friðþjófsdóttur sjúkraliða og eiga þau fjögur börn; Birgir Ragnarsson, f. 22.11.1956, prentari. Hann á eina dóttur; og Kristrún Ragnarsdóttir, f. 28.7.1962, aðstoðarræstingastjóri, og á hún einn son. Foreldrar Hrannar era þau Krist- inn Sigfússon, f. 10.9.1929, smiður og fyrrv. b„ og Gréta Jónasdóttir, f. 19.9.1933, húsmóðir. Þau era skil- in. Hrönn og Magnús taka á móti gestum á heimili sínu frákl. 21.30 laugardaginn 10. október. Til hamingju með afmælið 8. október 75 ára Jón Pálsson, Laugarbraut 17, Akranesi. 70 ára Guðmundur Magnússon, Brekkugötu 50, Þingeyri. Kristján G. Jónsson, Austurgötu 26, Hafnarfírði. Katrín Jónsdóttir, Langholtskoti, Hrunamannahreppi, Kristin Ingimundardóttir, Ásbraut 9, Kópavogi. 60 ára Hörður Arason, Austurvegi 12, Grindavik. Óiafur Guðjónsson, Skólagerði 37, Kópavogi. Guðný Friðfinnsdóttir, Noröurgötu 14, Siglufiröi. Sigurður Teitsson, Glæsibæ 12, Reykíavík. Henning Finnbogason flugvirki, Ljósheimuni 18, Reykjavik. Henning veröur sextugtir á morg- un, 9. október. Eijónkona hans er Sigríður Jó- hannsdóttir sjúkraliði. Þau taka á móti gest- um á afmælis- daginn í Safnað- 50 ára Sigriður A. Jósefsdóttir, Jóftíðarstaðavegi 7, Hafharfíröi. Heimir Jóhannsson, Vörðuhnín 1, Keflavik. Sigurður Jónsson, Brekkugötu 44, Þingeyrarhreppi. Gunnar Andersen, Fagradai 7, Vogum. Guðbjörg Einarsdóttir, Unufelli 26, Reykjavik. Þórey Þörðardóttjr, Hrauntungu 28, Kópavogi. 40 ára Eyrún Ingibjartsdóttir, Kambahrauni 20a, Hveragerði. Eyrún tekur á móti gestum sunnudag- inn 11.10. í sal Verkalýðsfélagsins aö Austurmörk 2 milii kl. 15 og 19. Jakob Andreas Andersen, Logalandi 13, Reykiavík. Reynir Baldursson, Víöibergi 3, Hafharfirði. Þórarinn Jóel Oddsson, Miðgarði 16, Neskaupstað. Ómar örn Jósepsson, Miðhúsum 19, Reykjavik. Arnór Erlingsson, Þverá 2, Hálshreppi. Ásgeir Gunnlaugsson, Ægisgrund 19, Garðabæ. Jensia Leo, Ásabraut 3, Keflavík. Guðmar Weihe Stefánsson, Hásteinsvegi 12, Vestmannaevjum. arheimili Langholtskirkju, Sólheimum 13-15 Reykjavík, á milli kl. 13 og 18. Jónas Friögeirsson, Tjarnarbólí 8, Seltiamamesi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.