Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1992, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1992, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1992. 3 Fréttir Áfengismeðferð skorin niður í fj árlagafrumvarpi: Þetta er rosalegt högg og við erum hálf lömuð - segirÞórarinnTyrfmgsson,yfírlæknirSÁÁ „Þetta er rosalegt högg og við erum hálflömuð af undrun. Niðurskurður- inn á sviði áfengismeðferðar er meiri en svo að hann geti staðið í sam- bandi við almennan niðurskurð. Hér er því greinilega um viðamikla stefnubreytingu aö ræða í fjárlaga- frumvarpinu. Við áttirni ekki von á þessu og óttumst afleiðinguna," segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir og formaður SÁÁ. í fjárlagafrumvarpi ríkisstjómar- innar kemur fram sá ásetningur Sig- hvats Björgvinssonar heilbrigðisráð- herra að draga verulega úr áfengis- meðferð. Meðferð að Vífilsstöðum verður hætt og rekstri vistheimilis- ins að Gunnarsholti verður breytt. Samtals er þetta talið spara ríkissjóði um 85 milljónir króna. Auk þessa verða framlög til sjúkrastöðva SÁA skorin niður um 35 milljónir. Að sögn Þórarins hefur SÁÁ óskað eftir sérstökum viðræðum við heil- brigðisráðherra um fyrirhugaðan niðurskiu-ð. Hann bendir á að í fyrra hafi framlögin verið lækkuð úr 236 milljónum niður í rúmar 200 milijón- ir. Nú stefni hins vegar í að framlög- in fari niður í 170 milljónir sam- kvæmt íj árla gafrumvarpinu. „Verði frumvarpið samþykkt óbreytt sjáum við vart annan kost en að loka meðferðarstöð. Frum- varpið hefur einimgis verið lagt fram til umræðu og það er spuming hvemig Alþingi tekur á máhnu. Það hlýtiu- að koma fram í umræðunni hver stefnan er í þessum málum. Enn hefur heilbrigðisráðherra ekkert Orkuverð til jámblendisins: Áhætta að gera ekki neitt - segirHalIdór Jónatansson „Þeir em að tala um þróun orku- verðs sér í hag á þessum erfiöleika- tímum. Talað er um að orkuverðið verði tengt kísiljámsverði á svipaðan hátt og orkuverðið hjá ísal er tengt álverði. Þetta era hugmyndir sem þeir hafa látið okkur hafa og það er meiningin að taka upp viðræður um þær og einnig um gjaldfrest á greiðsl- um fyrir raforku á seinni hluta þessa árs. Það versta sem getur gerst er að verksmiðjunni verði lokað. Þá verðum við af 370 milljónum í orku- sölu á ári. Það getur verið áhætta að gera ekki neitt," segir HaUdór Jónat- anson, forstjóri Landsvirkjunar, en ákveðið hefur verið að ganga til við- ræðna við jámblendiverksmiðjuna um breytingu orkuverðs. Orkuverð til jámblendiverksmiðjunnar hefur verið ákvarðað af heildsöluverði í Noregi og hefur hækkað á fimm ára fresti. Jámblendið borgar nú 13,8 mills fyrir kílóvattstundina sem er heldur hærra en álverið borgar. Halldór sagði að það væri auðvitað fólgin í því áhætta að tengja verðið við heimsmarkaðsverð á kísiljámi. Það væri hins vegar um að ræða neyðaráætlun hjá jámblendifélag- inu, eins konar björgunaraðgerð, þannig að það gæti verið hagur Landsvirkjunar að breyta orkuverð- inu ef það gæti orðið til þess að koma í ve§ fyrir að verksmiðjunni yrði lok- að. I staðinn fyrir að missa raforku- sölu til jámblendifélagsins gæti verið betra að rifa seglin meðan verið væri að fara í gegnum þessa erfiðu tíma. Aðspurður af hveriu ekki hefði verið fariö út í viðræður við fisk- vinnsluna á sínum tíma þegar full- trúar hennar fóra fram á lægra orku- verð sagði Halldór að rætt hefði ver- iö við fulltrúa fiskvinnslunnar á sín- um tíma. Þar væri hins vegar ólíku saman að jafna. Raforkukostnaður jámblendisins nemi 20% af rekstrar- kostnaði en sambærilegt hlutafall hjá fiskvinnslxmni væri aðeins 1-2%, því væri þetta miklu stærra vanda- mál hjá jámblendivérksmiðjunni. -Ari „ÞórshafnartriHukarlar“ landa á Bakkafirði: Þetta snýst um að sprengja verðið upp - segir framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Þórshafnar Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri; „Þetta snýst auðvitað um það að sprengja upp veröið hér en það er engum til góðs að það sé verið að greiða eitthvert óraunhæft rekstrar- verð og það náist ekki einu sinni fyr- ir kostnaði. Það era allt of mörg dæmi undanfarin ár um fiskverkanir sem hafa borgað eitthvað og eitthvert verð og ekki orðið langlífar," segir Jóhann A. Jónsson, framkvæmda- stjóri Hraðfrystistöðvar Þórshafnar. Trillukarlar á Þórshöfn hafa að undanfomu landað afla sínum á Bakkafirði þar sem þeir fá hærra verð en á Þórshöfn. Sem dæmi um verðmuninn má nefna að fyrir 3 kg þorsk greiðir Hraðfrystistöð Þórs- hafnar 72 krónur en á Bakkafirði hafa trillukarlamir fengið 77 krónur. Jóhann A. Jónsson segir að á Þórs- höfn fái karlamir einnig beitu 'og aðstöðu án endurgjalds en ekki á Bakkafirði og það beri auðvitað að meta það einnig. „Við getum ekki greitt hærra verð. Við teljum okkur hafa verið með fiskverð sem er eins hátt og hægt er að greiða. Ef við hefðum einhverjar forsendur til að fara hærra þá fengju sjómennimir sinn hluta af því. Það munar að sjálfsögðu um þessa fiska, sem við töpum, en það þýðir ekki að við greiðum hvaða verð sem er til að fá fiskinn,“ segir Jóhann. rætt um hana við starfsfólk eða sfjóm SÁÁ.“ í ár er gert ráð fyrir að um 2000 sjúklingar innritíst á stofnanir SÁÁ. AUs rekur SÁÁ þrjár meðferðar- stöðvar, að Vogi, í Saltvík og að Stað- arfelli. Að sögn Þórarins mun óhjá- kvæmilega skapast kostnaðm- ann- ars staöar í kerfinu neyðist SÁÁ til að loka meðferðarstöð. í því sam- bandi bendir hann á að dagur á Vogi sé mun ódýrari en í fangelsum lands- ins. í Saltvík sé hann helmingi minni. -kaa í miMu \iíapvailL ADRIA Kr. 3.900,- (fæst einnig beiki/króm) CAFÉ Kr.6.120,- HANNEKr. 5.140,- m i UDINEKr. 5.550,- (fæst einnig hvítt/króm) MILAN Kr. 6.240,- (fæst einnig hvítur og svartur) MARIO Kr . 3.330,- MODENA Kr. 6.930,- (fæst einnig hvítur og svartur) PISA Kr. 6.990,- (fæst einnig hvítt/króm) RIVA Kr. 4.770,- Komdu í stærstu húsgagnaverslun landsins og sjáðu hið mikla fjölbr eytilega úrval húsgagna á verði fyrir alla. ÞÚ JÞAEFT EKKIAÐ FARAANNAÐ. BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199 c“| JROCaRD J munXlán

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.