Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1992, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1992, Page 28
40 MÁNUDAGUR 12. OKTÓBER 1992. Sviðsljós Elsa Waage söng Ijóöasöngva við undirleik Jónasar Ingimundarsonar á fyrstu Ijóðatónleikum vetrarins í Gerðubergi á laugardaginn. Elsa hefur sungið við Saltsbury Lyric Opera i Massachusetts, Summer Opera i Washington D.C. og íslensku óperuna. Á tónleikunum söng Elsa lög eftir Hallgrím Helgason, Emil Thoroddsen, Sibelius, Mahler og Kurt Weill. Gestir á Ijóðatónleikum í Gerðubergi hlýöa á söng Elsu Waage. DV-myndir ÞÖK Viking Brugg hf. stendur þessa dagana fyrir allsherjar bjórhátíð að þýskum slð. Hátiðin byrjaði á Akureyri á föstudaginn en var opnuð formlega á höfuðborgarsvæðlnu á laugardagskvöldið með miklum herlegheitum á Rauða Ijóninu á Eiðistorgi. Meðal gesta var Jón Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra og dóttir hans, Kolfinna. DV-mynd ÞÖK Meiri háttar hártilboð Permanent og klipping frá kr. 2.900. Strípulitanir og klipping frá kr. 1.900. Pantið tíma í síma 68 22 80. HÁRSNYRTIST0FA DÚRU 0G SIGGU DÓRU Ármúla 5 Kringlan er nú opin á sunnudögum og af þvi tilefni er boðið upp á ýmis skemmtiatriði til aö hafa ofan af fyrir viðskiptavinunum. Á sunnudaginn mátti t.d. sjá afriskan dans. Hér voru á ferðinni Chuka dansarar frá Keníu að sýna listir sinar. DV-mynd ÞÖK Sódóma Reykjavík Kvikmyndin Sódóma Reykjavík var frumsýnd í Regnboganum sl. fimmtudagskvöld aö viöstöddu fjöl- menni. Myndin er grín- og spennu- mynd sem fjallar um ungan Breiö- holtsbúa sem flækist í uppgjör tveggja glæpagengja. Góður rómur var gerður að myndinni á frumsýningunni og voru aöstandendur hennar ákaft hylitir. Að því loknu var haldið í Ingólfskaffl þar sem kvikmynda- fólkið og frumsýningargestir skemmtu sér fram undir morgun. Framleiðandinn, Jón Olafsson, og leikstjórinn, Oskar Jónasson, taka á móti Helga Björnssyni, sem ieikur eitt aðalhlutverkanna, og konu hans, Vilborgu Halldórsdóttur. Aðstandendur kvikmyndarinnar samankomnir í frumsýningarpartiinu í Ingólfskaffi. DV-myndir RaSi Merming Ijóðasöngur í Gerðubergi Um helgina hófust Ijóðatónleikar í Gerðubergi og er þetta fimmti veturinn, sem Gerðuberg stendur fyrir slíkum tónlistarflutningi. Að þessu sinni reið á vaðið Elsa Waage, kontraaltsöngkona, en imdirleikari á píanó var Jónas Ingimundarson. Á efnisskránni voru lög efdr Hallgrím Helgason, Emil Thoroddsen, Jean Sibelius, Gustav Mahler og Kurt Weill. í upphafl tónleikanna varð nokkur truflun af dugn- aðarlegum ungum manni með ljósmyndavél, sem gekk víða um salinn og smellti ljósglömpum sínum ótt og títt framan í áheyrendur og flytjendur. Ekki er við það að athuga þótt ljósmyndarar vúji festa tónlistarfólk á mynd, en ólíkt heppilegra er að gera það eftir tónleik- ana eða fyrir og þarf það þá engan að trufla. Efnisvaliö á þessum tónleikum var um margt ferskt og forvitnilegt. Það var t.d. gaman að heyra nokkur lög eftir Hallgrím Helgason. í þeim má heyra sjálfstæð- ar tilraunir með hijómfræði innan ramma sem að öðru leyti er að mestu hefðbundinn. Því er stundum haldið fram að ný hijómfræði kalli á samsvarandi breytingar í öðrum þáttum tónsmíðarinnar. Hér eins og endranær veldur hver á heldur og tilraunir Hall- gríms ganga oft vel upp, einkum fyrir vandaða radd- færslu. Lagið Gamlar vísur hefur skemmtilega hend- ingaskipan og hijómaði einna best. Lög Emils Thor- oddsens, Vöggukvæði og Komdu, komdu kiðlingur, eru klassískar perlur á hvaða mælikvarða sem er og mun fijórri og betri tónlist en þau sönglög Síbeliusar, sem næst komu á efnisskránni. Þótt til séu ágæt sönglög eftir Sibelius er styrkur hans meiri á öðrum sviðum tónlistar. Mahler virðist hins vegar nokkum veginn jafnvel í essinu sínu í sönglögum sínum og öðrum tónsmiðum. Lög hans sem þarna voru flutt voru mjög myndræn og skemmtileg.Tónlist Kurts Weills hefur yflrbragð Tónlist Finnur Torfi Stefánsson dægurlaga, en stundum tekst honum að lyfta stílnum á hærra plan með frumlegri hugkvæmni og voru nokk- ur dæmi um það á þessum tónleikum eins og í hinu fræga lagi „Mack the Knife“. Söngur Elsu Waage var með ágætiun á þessum tón- leikum. Hún hefur nægilegt öryggi og vald til að leggja mikið í túlkunina og sýndi hún oft faflega tilþrif. Jón- as Ingimundarson gerði margt fallegt á píanóið einkum fyrir hlé.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.