Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1992, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 12.10.1992, Blaðsíða 36
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn- hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta- í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Askrift - Dreifing: Síml 63 27 00 Stórmótið 1 Tilburg: Margeir vann Jóliann Margeir Pétursson vann fyrri skákina í einvígi við Jóhann Hjartar- son í 2. umferð á stórmótinu í Til- burg í gær og nægir jafntefli í seinni skákinni í dag til að komast áfram. Margeir hafði hvítt í drottningarind- verskri vörn og knúði Jóhann til uppgjafar eftir 50 leiki. Teflt er með útsláttarfyrirkomu- lagi og hófu 96 skákmenn keppni. Jóhann og Margeir tefla einir íslend- inga á mótinu og réð tilviljun því að þeir drógust saman. í fyrstu umferð vann Margeir Júgóslavann Krnic 1,5-0,5 en Jóhann vann úkraínska stórmeistarann Novikov 3-1 eftir að hafa tapað fyrstu skákinni. Hann jafnaði á elleftu stundu í seinni skákinni og vann síð- an tvær atskákir í bráöabana með miklumtilþrifum. -JLÁ Þremurbjargað: Sá hönd slá í sjóinn Þremur mönnum var bjargað af hraðbáti á fostudagskvöld í hafnar- mynninu í Reykjavík. Það var Pétur Kristjánsson, skipstjóri á hafnsögu- bátnum Magna, sem dró mennina upp úr sjónum. „Við vorum að fara út með rúss- neskum togara um tíuleytið á fostu- dagskvöld. Ég renndi á eftir togaran- um en þegar hann var kominn út úr hafnarmynninu sá ég eitthvaö þrí- hyrnt upp úr sjónum og ég hélt fyrst að það væri seglbretti, en eitthvað fannst mér skrítið við þetta svo ég kveikti á kastaranum. Þá sá ég hönd slá í sjóinn og síðar stefni bátsins upp úr sjónum. Mennirnir þrír hrópuðu og kölluðu á hjálp og ég náði þeim upp með erfiðismunum. Þeir voru kaldir og þrekaðir og einn þeirra var eldri en hinir. Á meðan töldu þeir kjark hver í annan. Þegar þeir komu upp voru þeir blautir og þungir. Björgunarsveitin kom síðan og sótti bátinn. Mennimir voru allir bara á peysunni og enginn þeirra var í björgunarvesti," sagði Pétur. Það hefði ekki verið neitt framund- an hjá þeim ef Pétur hefði ekki séð þá. Það var algjör hending að það var einhver skipaumferð þama á þessum tíma. Dælan, sem Reykjavíkurhöfn gaf Slysavarnafélaginu, kom sér -r mjög vel við að dæla upp úr bátnum. Þess má geta að mennimir em grun- aðir um ölvim. -em LOKI Kemur Alþýðubandalagið gult, bláttog marið út úr sænsku tillögunum? Hef séð svona tillögur áður „Ég hef áöur séð svona tillögur frá Alþýðubandalaginu sem hafa verið dálítið sérkennilegar," sagði Davíö Oddsson forsætisráðherra er DV spurði hann hvort hann væri tilbúinn að setjast tii viðræðna við Alþýðubandalagið um nýjar tillög- ur þess um úrræði í efnahags- og atvinnuxnálum sem kynntar verða í dag. Alþýðubandalagiö boðar breytta stjómarandstöðu nú. Forystu- menn þess leggja áherslu á að hætta „skotgrafahemaði" en um- ræddar tillögur verði grundvöllur umræðna milh allra stjómmála- flokka í landinu, þar sem þeir mætist á jafnréttisgmndvelli og taki á málunum. „Ef ég ætti að vænta einhvers af þessum tillögum þá hljóta þær að vera gjörbreyttar frá því sem Al- býðubandalagið hefur talað á þing- inu,“ sagöi Davíð. „Það hefur verið algjörlega óábyrgt tal allt saman um aö halda öllum útgjöldum í toppi. En mér finnst ágætt ef þeir hafa áttað sig á þvi að tilburðir þeirra í stjómarandstööunni hafa ekki ver- ið mjög boðlegir og hafa ekki geng- ið upp. Ég er sammóla þeim í því. En ég hef ekki heyrt um þetta, annað en það að þeir tilkynna þetta á einhveijum fundi, sem maður heyrir svo af frá fréttamamú. Mér finnst vera áróðursbragur að því aö tilkynna þetta með þeim hætti.“ -JSS Eftir björgunina frækilegu á föstudagskvöld. Kristján Magnússon, Einar örn, Pétur Kristjánsson og Unnur María Sólmundardóttir. DV-mynd S Umhverfisskattar í stað aðstöðugjalds Þingflokkur Alþýðubandalags vill um verði veittar rýmri heimildir en verði tekið upp. Með slíkum skatt- að sveitarfélögum verði heimilað að hingað til að nýta ýmsa hefðbundna breytingum megi ná 6 milljörðum leggja umhverfisskatta á bifreiðar, tekjustofna. í efnahagstillögum inn í ríkissjóð og skapa atvinnutæki- eldsneyti og fleira en fella í staðinn flokksins, sem kynntar verða í dag, færi fyrir allt að 1800 manns. - Sjá niður aðstöðugjöld. Þá telja Alþýðu- er gert ráð fyrir að fjármagnstekju- nánar á bls. 4. bandalagsmenn rétt að sveitarfélög- skattur og hátekjuþrep í tekjuskatti -kaa Veörið á morgun: Snjókoma norðan heiða Á hádegi á morgun verður norðlæg átt, víöast allhvöss eða hvöss. Snjókoma norðan heiða en skýjað með köflum fyrir sunnan. Kalt verður í veðri. Veðrið 1 dag er á bls. 44 vegfarandi lést í slysi Rétt tæplega fertugur maður lést eftir umferðarslys á móts við Hverf- isgötu 67 stuttu eftir miðnætti að- faranótt sunnudagsins. Maðurinn var fótgangandi á leið yfir götuna að því er talið er þegar hann varð fyrir fólksbíl sem ekið var inn Hverfisgöt- una austan Frakkastígs. Sá sem fyrir bílnum varð var ein- samall á ferð og lést stuttu eftir slys- ið. Lögreglan í Reykjavík átti eftir að yfirheyra ökumann og vitni að slysinu í morgun og því óljóst ennþá með málsatvik, svo sem það á hve miklum hraða bifreiðin var þegar slysiðvarð. -ÓTT Leitað að 154 Landhelgisgæslan og Slysavama- félag íslands hófu í morgun eftir- grennslan vegna 154 tonna netabáts, Kristbjargar VE 901, sem ekki hafði tilkynnt sig til Tilkynningaskyld- unnar frá því á laugardagskvöld. Um það bil sem veriö var að senda Fokkervél á loft til leitar í morgun komu þær fréttir frá Færeyjum að báturinn væri nýbúinn að legga það- an úr höfn. Fjórir menn eru í áhöfn Kristbjargar. -ÓTT Spilavítismálin tilRLRídag ElduríHöftimn: Grunur um íkveikju -em ÖFennei Reimar og reimskífur VóulHen SuAurlandsbraut 10. S. 680499. 4 4 4 RLR tekur í dag við rannsókn svo- kallaðra spilavítismála sem upp komu í Súðarvogi og Ármúla um helgina. Rannsóknardeild lögregl- unnar í Reykjavík annaöist frum- rannsókn. Hún var langt komin þeg- ar ákveðið-var aö RLR tæki máhö yfir. Ástæðan er að meint brot ábyrgðarmanna spilavítanna varða við almenn hegningarlög. - Sjá nánar ábls.2. -ÓTT Eldur kom upp í litlu timburhúsi við Réttarveg í Höfnum aðfaranótt laugardags. Grunur leikur á því að kveikt hafi verið í húsinu sem staðið hefur autt í þónokkum tíma. Slökkviliðið í Keflavík kom á staðinn og tókst að ráða niðurlögum eldsins. Húsið skemmdist töluvert í eldinum. Grunur leikur á að um íkveikju hafi verið að ræða en lögreglan hefur engar vísbendingar um hver hafi staðið að verkinu. Engin raflögn var í húsinu. 4 \

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.