Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1992, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1992, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1992. 3 Fréttir Svavar Gestsson alþingismaöur: Sex milljarða skatta- hækkanir á launafólk - óábyrg stjómarandstaða - segir Davíö Oddsson forsætisráöherra Svavar Gestsson, alþingismaður Alþýðubandalagsins, sagði á Alþingi 1 gær að þegar allt væri tiltekið þýddu efnahagsaðgerðir ríkisstjóm- arinnar sex miUjarða skattahækkan- ir á almenning í landinu. Svavar sagði að á næsta ári yrðu skattar hækkaðir um 27,1 prósent og 30,9 prósent 1994. „Þetta er 100 þúsund króna skattur á hveija fjögurra manna fjölskyldu," sagði Svavar Gestsson. Harðar deilur vom á Alþingi í gær um aðgerðir ríkisstjómarinnar í efnahagsmálum. Stjórnarandstaðan fullyrti að ríkisstjóm Davíðs Odds- sonar myndi slá öll fyrri met í skatt- heimtu. Davið Oddsson forsætisráð- herra deildi hart á stjómarandstöð- una - sagði hana óábyrga. Hann mótmælti málflutningi Svav- ars og sagði þann hluta þjóðarinnar, sem minnst hefði úr að spila, verða að þola rúmlega þriggja prósenta kaupmáttarskerðingu en aðra tæplega sex prósenta skerðingu á kaupmætti. Forsætisráðherra vék að fuRyrð- ingum um að ríkisstjórnin hefði ekki haft samráð áður en aðgerðimar vom ákveðnar. Hann sagði sökina vera stjómarandstöðunnar sem væri óábyrg. Davíð sagði að þegar þjóðar- sáttin hefði verið gerð árið 1990 hefði Sjálfstæðisflokkurinn verið ábyrgur stjórnarandstöðuflokkur. Vildu 9 milljarða Davíð Oddsson upplýsti á Alþingi í gær að í þeim viðræðum, sem aöUar vinnumarkaðarins hefðu átt áður en ríkisstjórnin ákvað aðgerðir, hefði verið rætt um að flytja 9 múljarða króna frá launafólki yfir til fyrir- tækjanna. Forsætisráðherra sagði einnig í gær að ASÍ hefði vUjað setja fjár- magnstekjuskatt á allar fjármagns- tekjur - þar á meðal á aUan spamaö almennings. Hátekjuskattsræfill Hátekjuskatturinn á að gefa 300 miUjónir króna á næsta ári og 100 miUjónir 1994. Hækkun á tekjuskatti á hins vegar að gefa 2.850 mUljónir króna. Breytingar á virðisaukaskatti eiga að gefa 1.800 mUljónir, hækkun á bensíngjaldi 350 miUjónir króna, lækkun bamabóta á að spara 500 miUjónir 1993 og lækkun vaxtabóta á að spara 500 milljónir á árinu 1994. Þegar aUt þetta var tekið saman sagði Svavar Gestsson að skattahækkunin væri um 44 prósent. Steingrímur J. Sigfússon, alþingis- maður Alþýöubandalagsins, sagðist fagna því að hátekjuskattur yrði sett- ur á þótt hann hefði vUjað sjá hann meiri. Steingrímur sagði þennan há- tekjuskatt vera óttalegan ræfU en þó vísi að öðru og meira. Þrátt fyrir aö búið sé að leggja fram vUja ríkisstjórnarinnar er ekki búið að ganga frá öUum endum. TU dæm- is á eftir að útfæra og samþykkja niðurskurðartiUögumar. -sme Hátekjuskattur ríkisstjómarinnar: Leggst á 4 prósent alls landverkafólks Hjálmar H. Ragnarsson, forseti Bandalags íslenskra listamanna, afhenti Davíð Oddssyni forsætisráðherra í gær áskorun allra þeirra sem njóta lista- mannalauna í heiðurslaunaflokki. Þar styðja heiðurslistamennirnir baráttu gegn bókasköttum og skora á íslensk stjórnvöld að hverfa frá öllum áform- um um aukna menningarskatta. DV-mynd GVA - ráðstöfunartekjur einstaklinga skerðast um samtals 6 milljarða Boöaðar efnahagsaðgerðir ríkis- stjómarinnar gera ráð fyrir að ráð- stöfunartekjur einstaklinga skerðist um samtals 6 miUjarða á næsta ári. Munar þar mestu að tekjuskatturinn á að hækka um 1,5 prósentustig og skUa ríkissjóði aukalega 2.850 miUj- ónum króna. Þá á 5 prósenta hátekju- skattur á tekjur yfir 200 þúsund krónur að skUa ríkissjóði 300 mUljón- um króna. Að stærstum hluta munu auknar tekjur ríkissjóðs í tengslum við efna- hagsaðgerðimar renna tíl sveitarfé- laganna eða tæplega 4,3 miUjarðar. Um er að ræða bætur vegna afnáms aðstöðugjaldsins. Eftir í nkissjóði verða þó 1,8 miUjarðar. Samkvæmt upplýsingum, sem DV hefur aflað sér hjá Kjararannsókna- nefnd, vora meðaUaun landverka- fóUcs um 110 þúsund krónur á mán- uði síðasthðið sumar. Einungs 4 pró- sent landverkfólks hafði tekjur yfir 200 þúsund krónur. Meðallaun af- greiðslukvenna vora 83 þúsund krónur en iðnaðarmenn höfðu að jafnði um 146 þúsund á mánuöi. TU samanburðar má geta þess að um þriðjungur launþega greiðir ekki tekjuskatt. Tekjuáhrif boðaðra efnahagsað- gerða á einstakUnga nær tíl fjöl- margra annarra þátta en tekjuskatts- ins. Bensíngjald á að skUa ríkissjóði 250 miUjónum aukalega, breyttar reglur um virðisaukaskatt eiga að skUa 1,8 milljörðum. Hækkun á reiknuðum launum einyrkja á að skUa 300 mUljónum og skertar barnabætur 500 mUljónum. -kaa Tekjuskattshækkun - Staðgreiðsluhlutur einstaklinga 'í kr. á mánuði fyrir og eftir efnahagsaðgerðir ríkisstjórnarinnar* - H6 625 □ Fyrir breytingu □ Eftir breytingu 105.500 81.862 75.612 45.725 48.350 15.837 17.337 Mánaðar- tekjur ■J 100 þús. 175 þús. 250 þús. 325 þús. Miðaö viö —— ------ --------3 Hækkun á bflum mismikil - umboðin halda að sér höndum Verð á fólksbUum breytist mismik- ið í kjölfar gengisfelhngarinnar. Bif- reiðaumboðin reyna að draga úr hækkunum og jafna þær út. Sala á nýjum bílum hefur dregist saman um 30% frá því í fyrra og samkeppni á markaðnum er mikU. Viðmælend- ur blaðsins töldu að línur færa ekki að skýrast fyrr en nýtt toUgengi kæmi um mánaðamót. Verð á sænskum bUum, framleidd- um í Svíþjóð, stendur í stað en sænskur Volvo, framleiddur í Hol- landi, hækkar um 5%. Að sögn Egjls Jóhannssonar, markaðsstjóra hjá Brimborg, verða japanskir bUar árg. ’92 á sama verði en ’93 árgangurinn hækkar í fyrstu um 2'/2-3%. Nýtt tollgengi kemur út um mánaðamót. og þá hækka nýjar árgeröir líklega um 4%. Marinó Bjömsson, sölustjóri hjá Heklu, sagði að japanskir bílar myndu hækka um 8% vegna gengis- lækkunar hér og gengishækkunar japanska jensins. Þýskir bUar hækka um 6% en markið lækkaði UtiUega. TU að byrja með veitir Hekla 2% af- slátt tU að draga úr hækkunum. LítUs háttar hækkun verður á Skoda en verð á Peugeot stendur í stað, sagði Birgir Ragnarsson, sölu- stjóri hjá Jöfri. Verðstöðvunin á Pe- ugeot er óháð gengismálum og ákvörðun fyrirtækisins í harðnandi samkeppni. Verð á notuðum bílum verður fyrst í stað stöðugt. Eftir að hækkanir era komnar tU framkvæmda geta sumar tegundir af notuðum bílum hækkað eitthvað. Birgir Ragnarsson sagöi verð á notuðum bUum hafa verið of hátt miðað við nýja og nú myndi munurinn jafiiast. -JJ Hækkun á útsöluverði bensíns Bifr. A: algeng fólksbifreið (1000 kg). Bifr. B: léttur jeppi, stærri fólksbíll. 300 24. nóv. 1992 1. jan. 1993 □ Bitr. A (15 000 km) □ Bifr. B (15 000 km) □ Bifr. A (30 000 km) B Bifr. B (30 000 km) Rúmlega 11 prósenta bensínhækkun á næstu mánuðum: Bensínkostnaður eykst um rúm 10.000 krónur á ári - miðað við venjulegan fjölskyldubíl „Þetta þýðir samtals rúmlega 11 prósenta hækkun á bensíni sem verður komin tíl framkvæmda um næstu áramót. Sé miðað við meðal- bU, sem ekið er 15.000 kílómetra yfir árið, þá þýða þessar verðhækkanir það að bensínkostnaðurinn eykst um ríflega 10.000 krónur á ári,“ sagði Runólfur Ólafsson hjá Félagi ís- lenskra bifreiðaeigenda við DV. í gær hækkaði bensín um 3-3,7 prósent, eftir því um hvaða olíufélag var að ræða. Gasolía hækkaði mn 8,9 prósent og svartolía um 7,8 prósent. Ástæðan fyrir þessum hækkunum er eingöngu sögð vera hækkim á gengi Bandarikjadals. Þá hafa verið boðaðar frekari hækkanir á bensíni á næstunni. Samkvæmt efnahagsráðstöfunum ríkisstjómarinnar hækkar svonefnt bensíngjald um 1,50 kr. Að viöbætt- um sköttum og gjöldum þýðir það hækkun upp á 1,95 krónur í útsölu, eða 3,3 prósent. Þessi umrædda hækkun á bensíngjaldinu rennur í ríkissjóð. í fjárlagaframvarpi fyrir næsta ár er einnig gert ráð fyrir hækkun á bensíngjaldi vegna kostnaðar við yf- irtöku Vegagerðar ríkisins á rekstri feija og flóabáta um næstu áramót. Þessi hækkun nemur 2 krónum. Á nýju ári þurfa bíleigendur því að greiða yfir 11 prósentum meira fyrir bensínlítrann. -JSS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.