Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1992, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1992, Blaðsíða 20
40 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1992. íþróttir Hressir keiluspiiarar i KR. Fremri röð frá vinstri: Janus Sigurlónsson, 12 ára, Reykjavíkurmeistari i 3. ilokki. Hans besta skor er 246 stig, Hafdís Vala Freysdóttir, 14 ára, sem varð í 3. sæti í 3. flokki. Hennar besta skor er 127 stig, Orri Freyr Jóhannsson, 8 ára, 3. sæti i 3. flokki. Besia skor 127 stig. Aftari röð frá vinsfri: Reykjavik- urmeistarinn í 2. fiokki, Chrislian Friðrik Burreil, 14 ára. Besta skor 237 stig, Sigríður Rut Hilmarsdóttir, 14 ára, Reykjavikurmeistari í 2. fiokki. Besta skor 225 stig og Birgir Kristinsson, 14 ára, 2. sæti i 2. flokki. Besta skor 144 stig. Þjálfari þeirra er Ragnar Halldórsson. DV-mynd Hson Reykjavlkurmót unglinga í keilu: KR haf ði betur Reykjavfluirmóti unglinga í keilu, það er í einstaklingskeppni, lauk um helgina í Keiluhöllinni i Öskjuhlíð. Keppendur komu frá tveimur félögum, það er frá KR og frá Keilufélagi Reykjavíkur. Keppt var í þremur flokkum stúlkna og þremur flokkum pilta. KR-ingar unnu til flögurra meist- aratitla en Keilufélagiö tveggja. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hveijum flokki. Urslit urðu eftirfarandi: 3. flokkur stúlkna: 1. AldaHarðardóttír...... 2. AmandaBrand...:........ 3. DagnýE.Þórisdóttir..... 3. flokkur pilta: 1. Janus Sigurjónsson... 2. GunnarGunnarsson...... 3. OrriFreyr Jóhannsson.... 2. flokkur stúlkna: 1. Sigríður Hilmarsdóttir ... 2. HafdísV.Freysdóttir.... 2. flokkur pilta: 1. ChristianBurrell...... 2. BirgirKristinsson..... .. KR 3. Ingímar Þ. Richter........ ..KFR 1. flokkur stúlkna: 1. RagnheiðurJónsd....... ...KR 2. Edda Ýr Garðarsdóttir.. ..KKK I. flokkur pilta: ...1. Davíð Guðmundsson............ 2. Viktor Sigurðsson...... ...KR 3. Konráð Ólafsson........ ...KR KR ...KR •KFR ,.KFR ..KFR ...KR ...,KR ..KFR B-liða keppni 4. flokks KAmeð f ullt hús Leikið var í síðustu viku í 16 liða úrslitum í bikarkeppni HSÍ í yngri flokkunum. Er þetta í fyrsta skipti sem leikið er í 4. flokki karla og kvenna en í fyrra hófst keppni í 2. og 3. flokki að nýju eftir nokkurt hlé. Urslit leikja, sem lokið er, urðu sem hér segin 2. flokkur karla: Haukar-Völsungur.......18-13 Fram-Valur 14-20 ÍBV-Grótta Þá er leíkjum Stjörnuni 19-12 tar og ÍR og UBK og KR ólokið. 3. flokkur karla: Víkingur - Valur 17-20 ÍBV-tR 17-12 Fylkir - Sfjarnan 8-18 Fjölnir og ÍA ieika í íþróttahúsi Fjölnis á morgun og í daf leikur Hauka og KR. ’ferfram 4. flokkur karla Stjaraan - Völsungur... 14-11 Fram-b - Víkingur 11-20 KR-Haukar 20-14 Fyikir-f'ram ........... . ...15-14 Fjölnir • Þór.V 19-21 ÍR-b-ÍA Þá er ólokið leik Gróttu .,,.,.,13-19 og ÍR og 3. flokkur kvenna Fram-Fylkir 11-4 FH-ÍR 13-10 Stjaman • Grótta 7-6 inn á föstudaginn. 4. flokkur kvenna ÍBV - Grótta............12-8 Fylkir-Fram-b.............5-4 Völsungur - KR..........11-20 ÍR-b-UMFA................11-9 Víkingur - Fram.........12-14 Valur-b-FH...............5-12 Valur-FJölnír............10-5 Haukar og ÍR eigast sföan viö í kvöld kl. 18.30 í Strandgötu. Aðeins elnn leikur fór fram í 2. flokki kvenna og vann Valur iið Víkings,-16-14. -HR Tveimur umferðum í B-liða keppni 4. flokks karla og kvenna er lokið og tilkynntu íjögur félög fimm lið til keppni hjá strákunum, Fram, ÍR, Víkingur og FH, en ÍR sendi tvö lið til keppni. Fimm félög sendu sex lið til keppni hjá stúlkunum þar sem ÍR sendi einnig inn tvö B-lið. Keppni þessi á fullan rétt á sér Þetta er í fyrsta skipti sem reynt er að halda úti B liöa keppni í 4. flokki. Er óhætt að fullyrða að fyrstu um- ferðimar hafi sýnt fram á að hún á fuflan rétt á sér og er vonandi að lið- um fjölgi þegar á líður veturinn. Að sögn Vigfúsar Þorsteinssonar, starfs- manns HSÍ, verður áfram tekið við þátttökutilkynningum. Þess má geta að allir leikmenn sem ekki leika með A-liöi félags síns í síð- ustu töm á undan B-liða keppninni era löglegir með B-liðinu. FH kemur sterkt til leiks FH-ingar hafa komið mjög sterkir til leiks í 4. flokki og unnið alla sína leiki. ÍR hefur veitt þeim mestu keppnina um efsta sætið og hafa leik- ir þessara liða verið nokkuð jafnir. Víkingur og Fram hafa verið um miðja deild og í seinni umferðinni skildu þessi lið jöfn. ÍR-b ekki unnið leik til þessa Framarar unnu fyrstu umferðina í kvennaflokknum þar sem liö þeirra tapaði ekki leik en ÍR, sem varð í öðru sæti, sneri dæminu við í ann- arri umferðinni, vann alla leiki sína og tryggöi sér efsta sætiö. KR-ingar drógu sig út úr keppninni Víkingar og Stjarnan hafa verið um miðja deild í báðum umferðunum og ÍR-b í fimmta sæti. KR, sem varð í neðsta sæti í fyrstu umferðinni, dró lið sitt úr keppni og mætti ekki til leiks um síðustu helgi. Norðurlandsriðill KA hefur unnið alla sína leiki í Norðurlandsriðli 4. flokks karla og kvenna og virðist fátt geta komið í veg fyrir aö KA komist í undanúrslit í þessum flokkum. Ekki er þó ástæöa fyrir Þór, Völs- ung og Hugin að örvænta því margt getur breyst í þeim þremur umferð- umsemeftirem. -HR Ársþing KSÍ næstu helgi: B-lið í 4. flokki karla í5.flokki -og C-liö Þing Knattspymusambands ís- lands verður haldið næstu helgi. Tvö mál, sem varða 5. og 4. flokk karla, verða til umræðu og fá von- andi bæði happasæla afgreiðslu. í 5. flokki karla hefur verið í gangi C-liö á vegum þjálfaranna í A- og B-riðli íslandsmótsins vegna fjölda barna. Áhugi virðist mikill hjá mörgum þjálfumm þessa aldurs- hóps að KSÍ samþykki íslandsmót fyrir C-liðið. Til þess að mæta þess- ari fjölgun úr 5. flokki karla er eðli- legast að bæta við B-liði í 4. flokki og reyndar hið besta mál því einnig má benda á að víða er skortur á leikmönnum í 3. flokki. Kannski er orsökin sú að of fáir leikmenn skili sér upp úr 4. flokki? Já - snjóboltinn hleöur utan á sig en bara ef aðstæður eru eðlilegar. -Hson Fjölliðamót í körfubolta: Skallagrímur og ÍR á uppleið Helgina 21.-22. nóvember fór fram fjölliðamót í 9. flokki karla í B-riðli sem ÍR vann og í minnibolta karla, C-riðli, þar sem Skallagrím- ur sigraði. Þetta era síðustu fjöll- iðamótin fyrir jól en strax í janúar verður þeim haldið áfram. Úrslit í fyrrnefndum tveim mótum urðu sem hér segir. 9. flokkur karla, B-riðill: Leikið í íþróttahúsinu Digranesi. ÍR-Breiðablik.................45-31 KR-ÍR 30-38 Höttur-Breiðablik 20-61 Breíðablik-KR 37-51 ÍR-Höttur 55-28 ÍR í efsta sæti og flyst upp í A-riðil. KR varð í 2. sæti, Breiðablik í 3. sæti og Höttur í neðsta sæti. Minnibolti karla, C-riðill: Spilað í íþróttahúsi Akraness. Snæfell-Leiknir...........32-11 Skallagrím j--Þór,A......103-21 ÍA-KRB....................16-37 Leiknir-Skallagrímur......18-60 ÍA-Snæfell................19-60 KRb-Þór, A................56-19 Skallagrímur-ÍA...........78-14 Þór, A.-Leiknir...........28-35 Snæfell-KRB...............52-28 ÍA-Þór, A.................40-25 Snæfell-Skallagrímur......33-48 KR B-Leiknir..............43-54 Þór, A.-Snæfell...........19-66 Leiknir-ÍA................20-12 Skallagrímur-KRB..........58-39 Skallagrímur sigraði og flyst því í B-riðil, Snæfell í 2. sæti, Úeiknir, Rvk í 3. sæti, KR B i 4. sæti, ÍA í 5. sæti og Þór Ak. rak lestina. Unglingaflokkur karla Úrslit víxluðust á unglingasíðu 18. nóv. sl. Það var nefnilega KA A sem sigraði KR B 93-63 en ekki öfugt. Einnig víxluðust úrslitin í leik IR gegn KR B þar sem ÍR sigraði, 86-87. Hér koma ný úrslit, Tinda- stóll sigraði Breiðablik, 88-68, og fór leikurinn fram á Sauðárkróki. -Hson Adrian Sabido íris Anna Randversdóttir, Haukum. „Gaman að æf a handbolta" í {jölliðamóti HSÍ vöktu athygli tveir ungir leikmenn sem léku með Fram í 7. flokki karla en liðið varð í þriðja sæti. Leikmennirnir tveir eru þeir Amór Atlason og Adrian Sabido. Þeir vöktu athygli fyrir hversu iðnir þeir voru við að setja boltann í net andstæðing- anna en þeir skoraðu öll 49 mörk liðs síns í mótinu. Blaðamanni DV lék forvitni á að vita hvort þeir væra búnir að æfa handbolta lengi. „Við höfum báðir æft handbolta með Fram í tvö ár og fmnst það mjög gaman. í þessu móti hefur okkur gengið ágætlega og finnst mótið mjög skemmtilegt. Við unnum íjóra leiki en töpuðum fyrir FH, 4-2, og var það erfiðasti leikurinn. Það hefði verið skemmtilegra að spila um fyrsta sæt- ið en viö erum samt nokkuð ánægðir með árangurinn," svöruðu þeir Adr- ian og Arnór. Margar stelpur ungar í Haukum Þegar fylgst var með leik Vals og Víkings í 6. flokki kvenna fór ekki á milli mála hvar hressar stelpur úr Haukum héldu sig því þær hvöttu óspart lið Vals til dáða. Blaðamanni DV lék forvitni á að vitá af hverju Haukastúlkur héldu með Val í þess- um leik og varð íris Anna Randvers- dóttir fyrir svörum. „Við höldum með Val því þá verða Valsarar að halda með okkur þegar við spilum á eftir. Okkur hefur ekki gengið nógu vel því margar stelpur eru svo ungar í okkar liði. Við töpuðum fyrstu tveimur leikjunum en unnum næstu tvo og mér fmnst þetta mót mjög skemmtilegt og æðislega gaman að leika handbolta. Fram og Stjaman eru best en við eigum að leika við ÍR um sjöunda sætið á eftir og ég hugsa að leikurinn verði jafn því að IR hefur góðan markmann og við líka,“ sagði Iris að lokum og hljóp til að taka þátt í upp- hitun fyrir leikinn gegn ÍR, sem tap- aðist, 2-5. -HR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.