Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1992, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1992, Blaðsíða 28
48 MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1992. Menning Litríkar persónur Þessi skáldsaga segir frá íslenskri fjöl- skyldu allt frá því um 1920 og fram á síðustu ár. Þarna birtast þrjár kynslóðir eða öllu heldur íjórar, sögumaður er af þeirri yngstu. Þetta eru litríkar persónur, eins og vænta mátti af höfundi. Afinn hafði verið hand- genginn Einari Ben. og er gagntekinn af hugsjón aldamótakynslóðarinnar sem hér er orðuð svo kaldhæðnislega að hún snúist bara um að græða mikla peninga hratt. En þann- ig orðuö er hugsjónin það sem allar kynslóð- Bókmenntir örn Ólafsson imar eiga sameiginlegt. Einnig hitt að bæta sér ófarimar með brennivíni. Nú munu ein- hverjir segja að aldamótakynslóðin hafi svo sannarlega átt aðrar og háleitari hugsjónir. En einmitt skógræktaráhuginn er mestur hjá helsta svindlaranum og brennivínsberserkn- um af miðkynslóðinni, fóður sögumanns. Andblær tímans Ekki er ástæða til að rekja söguþráð en hér birtast lifandi persónur, hver meö sinn sér- kennilega talanda og hegðun, sem getur ver- ið mjög ýkt, en hins vegar em hugðarefni þeirra dæmigerð fyrir hverja kynslóð. Þar ■ vil ég sérstaklega nefna ættfræðinginn Geira, sem fæddist fyrir miðja 19. öld, og Fúsa parta- sala yngra, sem sífellt fjargviðrast yfir vit- leysunni og sóuninni í þjóðfélaginu, eins konar holdgervingur lesendabréfa dagblað- anna. Fúsi eldri er einfari um fjöll og einræð- iðssinni, gott ef ekki nasisti, Bárður sonur hans stríðir honum svo, mynd beggja skerp- ist viö andstæðumar. Þetta em oft skemmti- legar skrípamyndir en hitt skiptir þó meiru að saman mynda þessar persónur eins konar heildarmynd af íslensku samfélagi. Stíllinn er ekki eins kaldhæðnislegur og í fyrri sögum Einars, heldur blæbrigðaríkari lýsingar, ýmist dapurlegar eða gáskafullar, jafnvel viðkvæmnislegar. Á móti drykkjuskap karl- manna kemur t.d. að húsmóðir leggst í rúm- ið og flýr vonbrigði sín inn í danska rómana en krakkastóðið verður að ganga sjálfala. Úr þeirri öskustó rís svo kolbítur, alveg eins og í ævintýrunum, fríður og drengilegur íþróttamaður sem gerir ísland frægt erlendis og giftist prinsessunni (fegurðardrottningu). En það er rökrétt framhald af þessu að hann verður óhugnanlegur viðskiptahákarl sem einskis svífst í fégræðginni. Aðrir sigurveg- arar em ekki síður takmarkaöir, svo sem aflakóngurinn sem ekkert getur annað en aflað, síst notið fengsins, feiminn og öryggis- laus utan lúkars. Þetta stef er í margvíslegum tilbrigðum en allt samstillt í áhrifaríka heild sem sækir á mann löngu eftir lestur. Einar Kárason hefur skapað litríkjar og lif- andi persónur í Heimskra manna ráð. Stundum birtast í fjölmiðlum yfirborðsleg- ar ásakanir í garð fyndinna höfunda um að þeir séu svo dæmalaust yfirborðslegir. Þessi bók afsannar það enn einu sinni, upp af drep- fyndnum frásögnum rís óhugnanleg heildar- mynd af því hvemig mannshugsjón íslend- inga eyðileggur líf þeirra, skilur eftir andlega bæklað fólk og hálft. Frásöguháttur er nokkuð annar en í Eyja- sögum Einars, nokkuð módem. Fyrirvara- laust er stokkið milli viðtals, þar sem viðmæ- landinn einn heyrist, yfir í 1. persónu frásögn og i ópersónulegri frásögn, sem rekur sögu- sagnir, er eins konar almannarómur. Þá er stutt yfir í goðsögur en miklu minna ber á þeim hér en í Eyjasögunum, það er helst fyrr- greind sameiginleg hugsjón. Annars hefst sagan í miðjum kliðum, sögumaður er að kanna rætur sínar. Framan af eru því helstu persónur þjóðsagnakenndar en smám saman öðlast lesandi skilning á samhenginu í gegn- um starf sögumanns. Þetta heldur uppi spennunni. Þessi saga minnir auðvitað mikið á Eyja- sögur Einars. En hún minnir ekki síður á t.d. Hversdagshölhna eftir Pétur Gunnars- son, íslenska drauminn eftir Andra Thors- son, jafnvel Skuggabox Þórarins Eldjáms. Þetta er mikiö vegna sameiginlegs efniviðar, allar þessar sögur segja frá hópi einstaklinga af þremur kynslóðum eða fleiri, allar segja frá fyrirheitum og ósigrum, ahar era þær með nokkrum hætti íslenskt þjóðfélag í hnot- skum. En vissulega era þessar sögur hver með sínum hætti og allar ánægjuleg og auðg- andi lesning. Einar Kárason: Heimskra manna ráð. Mál og menning 1992. 233 bls. 16.11. 1992. Hafið Hafið snýst um járnkarhnn Þórð útgerðarmann, sem „elskaði þilíor“, og bömin hans. Hann er bundinn við hjólastól eftir að hann fékk blóðtappa. Þórður býr í sjávarplássi og kahar á bömin sín um áramót til að tilkynna þeim að hann geri þau arflaus en hins vegar fái Bergur sjómaður, uppeldissonur hans, aht eftir sinn dag. Skítapakk Þórður hefur ekki fengið hlýlegt uppeldi frá hendi Kötu móður sinnar. Þau era orðljót og hranaleg bæði; svo er einnig um böm Þórðar sem era þjösnar hinir mestu, oröhákar, þjófar og lygarar. Öll fjölskyldan virðist vera meö blótsyrði og hægöir á heilanum. Kata segir m.a.:...ekki þurfti það að kvarta yfir harðlífi, helvítis brækjan lak úr rassgatinu á því“ (10). Það er því eðhlegt að Þórður taki fram að móðir hans verði skeind þegar hún deyr (19). Annars gefur Þórður skít í fólk (49) og býður Ágúst son sinn velkominn heim frá námi erlendis með þvi að segja: „Æth honum sé það of gott að reka við af þrumara...“ (28). Haraldur, elsti sonur Þórðar og forstjóri útgerðarfyrirtækisins, segir Bergi að éta skít (24). Ragnheiður, elsta dóttir Þórðar, er óánægð með ljóð Hjördísar systur sinnar, karlahatarans og segir um þau: „Eftir fáeinar síöur af þeirri gaddvírstussulýrík þeysa niður af mér hægð- imar“ (56). Ekki er hún heldur stolt af námsafrekum Haraldar bróður síns: „Þú skeist meira að segja í bux- umar þennan eina vetur sem þú fórst í Samvinnuskól- ann..." (68). Jón, bróðir Ragnheiðar, er ekki ánægður með íburðinn í kvikmyndafyrirtæki hennar og segir Úr uppsetnlngu Þjóðleikhússins á Hafinu. um það: „Þið skítiö ekki með skraufþurra rassga- tinu“ (36). Þeim stöðum, sem hann hefur flogið th á vegum Rauða krossins, lýsir hann sem löndum „þar sem fólk drekkur úr sér hlandið" (49). Ágúst lýsir freð- fiski sem „togaradrullu" (46) og telur mág sinn hafa verið með drullu (37) þegar hann er sagður hafa verið á klósettinu. Áslaug, kona Haraldar, lýsir sjávarpláss- inu sem þau búa í sem rassgati (22). Þjófar Það kemur fram í leikritinu að áöur en það hefst hefur Ragnheiður stohð frímerkjasafni foður síns sem er tveggja mihjóna króna virði. Jón hefur stohð mynt- safni hans. Ágúst hefur haft fé út úr fóður sínum með því að ljúga því að hann sé í námi tengdu fiskveiðum en ekki bókmenntum eins og raunin er. Við upphaf verksins fær Haraldur móðursystur sína, sambýhs- konu Þórðar, til að skrifa upp á víxh fyrir sig, sem hún heldur að standi í sambandi við íbúðakaup henn- ar. Þegar Þóröur deyr sjáum við Jón stela Kjarvalsmál- verki og sjónauká, Ragnheiður stelur borðsilfrinu, stofuklukku og standlampa, Haraldur stelur postul- ínsglösum, heiðursmerkjum og verðlaunapeningum. Bókmenntir Árni Blandon Ágúst stelur leðurinnbundnu bókunum. Og ef Hjördís hefði getað stungið flyglinun niður í tösku hefði hún líklega stohð honum þvi faðir hennar vhdi ekki eign- ast dætur. Það er sem sé ekki miklum heiðarleika fyrir að fara í þessu verki. Kata vih meina að Kristín hafi drepið systur sína með því að stela Þórði frá henni. í ljós kemur að Þórður er faðir Maríu, dóttur Kristínar. María vih sifjaspehssamband við Ágúst. Kata segir við Kristínu: „... þú ferð th helvítis" (80). Þegar Ágúst flýr frá Maríu segir hún: „Ég vona að þú fáir aldrei annað að éta en svínakjöt í helvíti" (81). Margar raddir Aftan við Hafið er ritgerð úr leikskrá Þjóðleikhúss- ins eftir Gísla Pálsson. Hann telur að í Hafinu ómi margar raddir eins og í Fjórum kvartettum eftir T.S.Ehot. Eliot skrifaði engin stórverk fyrir leikhús og líklega væri Ólafi Hauki hohara að lesa minna af Eliot en lesa betur verjí Shakespeares, Chekovs og Æskhosar ef hann vih semja margradda verk þar sem sársauki og fjölbreytni era bundin fágaðri og hstrænni hlutum en þjófnuðum og þarma-kveini. Haflð, 85 bls. Ólafur Haukur Sfmonarson Forlagið, 1992 íbúarnir í þorpinu hennar Bellu gera góðlátlegt grín að henni vegna lestraráhuga hennar. Sam-bíóin: - Fríöa og dýriö: ★★★ Ævintýrið sem aldrei eldist Það eru margir sem hafa einhvern tímann á lífsleiðinni lesiö ævintýrið um Fríðu og dýrið, fahegu ungu stúlkuna og samskipti hennar við for- ljótt dýr sem er í raun prins í álögum. Ævintýri þetta hefur löngum heih- að snjalla sögumenn, kvikmyndagerðarmenn og síðan lesendur og áhorf- endur, enda inniheldur það aht það sem þarf að prýða gott ævintýri. Árið 1946 gerði franski leikstjórinn Jean Cocteau leikna útgáfu af ævin- týrinu þar sem hann fór að vísu eigin leiðir en skapaði samt einstaklega fallegt meistaraverk. Fríða og dýrið (Beauty and the Beast), sem Disney- fyrirtækið hefur nú gert, er jafn hehlandi og franska myndin en af aht öðram ástæðum. Hér hafa snihingamir í teiknimyndadeild fyrirtækisins farið einkar mjúkum höndum um ævintýrið og þessi heihandi saga í tah og tónum gerir Fríðu og dýrið að einhverri bestu teiknimynd í fuhri lengd sem gerð hefur verið. Það er ekki nóg að segja ævintýri og sýna teikningar með. Það þarf meira th. í myndinni era einnig nokkrar sérlega myndrænar og skemmti- Kvikmyndir Hilmar Karlsson legar „persónur" í álögum sem auka ghdi myndarinnar og þá era tónhst- aratriðin mjög góð. Era þau það vel af hendi leyst að það hggur við að hægt sé að kaha myndina söngleik. Aht frá því fyrsta teiknimynd Disneys í fuhri lengd, Mjahhvít og dverg- amir sjö, var frumsýnd 1937 við mikla hrifningu (sú hrifning er enn fyr- ir hendi) hefur fyrirtækið gert þrjátíu slíkar myndir en aðeins fimm þeirra hafa verið gerðar eftir klassískum ævintýrum á borð við Mjall- hvíti og Fríðu og dýrið. Þessar fimm myndir, sem auk tveggja fyrr- nefndu, era Öskubuska, Þyrnirós og Litla hafmeyjan, standa upp úr mikl- um fjölda teiknimynda og höfða th ahra unnenda ævintýra og sagna. Kynslóð eftir kynslóð nýtur myndanna og vist er að það verður einnig raunin þegar fram hða stundir með Fríðu og dýrið. Búið er að gera klass- íska teiknimynd. FRÍÐA OG DÝRIÐ (BEAUTY AND THE BEAST) Lelkstjórar. Gary Trousdale og Kirk Wise. Handrit: Linda Woolverton. Tónllst: Alan Menken. Söngvar: Howard Ashman og Alan Menken.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.