Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1992, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 25. NÓVEMBER 1992.
11
Meruiing
Skóli í kreppu
Helga Siguijónsdóttir flallar um marga mark-
verða hluti í bók sinni Skóli í kreppu. Hún hef-
ur einna helst áhyggjur af þeim nemendum sem
faUa á grunnskólaprófi (ca 25%) en vilja samt
halda áfram í skóla og gengur þá ekki sem best.
Bókmenntir
Árni Blandon
Samkvæmt skoðunum Helgu er sá skóli bestur
sem sinnir þessum nemendum mest.
Menntaskólarnir eftirbátar
fjölbrautaskólanna
Það hefur gengiö illa að skoða skólamál á ís-
landi í hlutlægu ljósi. Þetta byggist m.a. á því
að fátt er um rannsóknir og kannanir á skóla-
málum og ef um slíkt er að ræða er eins víst
að blaðamenn séu búnir að komast í rannsókn-
arniðurstöður áður en þær eru tilbúnar og al-
hæfa síðan eftir eigin höfði um það sem þeir
lesa út úr rannsóknunum. Eitt slíkt dæmi gerð-
ist nýlega og var þar fullyrt aö fjölbrautaskól-
arnir væru efdrbátar menntaskólanna vegna
þess að nemendur úr fjölbrautaskólunum fá
lægri einkunnir í Háskóla íslands en mennta-
skólanemendur. Þarna var ekki tekið tillit til
þess með hvaða einkunnir nemendur koma inn
í framhaldsskólana. Það gefur auga leið að verk-
menntaskóli sem fær nemendur í skólann með
meðaleinkunn 4,5 í stærðfræði stendur ekki
jafnt að vígi og menntaskóli sem fær nemendur
með meðaleinkunn 8,5 í stærðfræði. Og sam-
kvæmt mælikvarða Helgu Sigurjónsdóttur eru
fiölbrautaskólamir betri en menntaskólamir
vegna þess að þeir sinna slakari nemendum
betur en menntaskólamir.
Skóli í kreppu
Helga Siguijónsdóttir hefur verið námsráð-
gjafi í Menntaskólanum í Kópavogi og hefur hún
látið sér sérstaklega annt um nemendur sem
gengur illa í framhaldsskóla. Niðurstöður henn-
ar í bókinni Skóli í kreppu eru afar markverð-
Helga Sigurjónsdóttir fjallar um marga mark-
verða hluti í Skóli í kreppu.
ar. Að mörgu leyti markar þessi bók tímamót í
íslenskri skólaumræðu vegna þess að Helga
hefur til að bera nægilegt þor til að segja sínar
skoðanir skýrt og skorinort jafnvel þó þær gangi
þvert á þær fræðilegu stefnur sem ráðið hafa
ríkjum í skólamálum undanfarin ár. Einn gall-
inn á bókinni er þó sá að of mikið er um endur-
tekningar vegna þess að bókin er samansett af
ýmsum stuttum greinum, sem skrifaðar hafa
verið undanfarin sjö ár, og fialla margar um
svipað efni.
Eitt af því sem Helga bendir á er sú vanræksla
í grunnskólunum sem felst 1 því að greina ekki
nógu vel námsvandamál nemenda sem eiga í
mestum erfiðleikum með nám og hjálpa þeim
síðan á þann hátt sem nauðsynlegt er. Vanda-
málið þar felst líka í því, eins og Helga bendir
á, að kennarar eru menntaðir til að kenna nem-
endum sem eiga auðvelt með að læra, en ekki
þeim sem eiga við námsvandamál að efia.
Þegar komið er í framhaldsskóla er það því
oft á tíðum ekki greindarskortur sem háir nem-
endunum, eins og kennarar vilja oft skýla sér á
bak við þegar þeim gengur erfiðlega að kenna
„tregum“ nemendum, heldur það að grunnskól-
inn hefur ekki kennt viðkomandi nemendum
að læra.
Opni skólinn
Eitt af því sem Helga Siguijónsdóttir hefur
lagt áherslu á í vinnu sinni sem námsráðgjafi
er aukin samvinna við foreldra nemendanna.
Hún telur slíkt mjög mikilvægt og talar um
nýja tegund af opnum skóla, sem er þá opinn
foreldrum. Slíkt er góðra gjalda vert en þó tel
ég mikilvægara að skólinn afli sér virðingar
með því að aga nemendur betur, en það er eitt
af því sem Helga virðist vera hrædd við og fer
þá gjaman að ræða um hermennsku. Hún vill
frekar leggja áherslu á sjálfsaga án þess að
greina frá því hvemig hann er kallaður fram.
Skortur á aga og virðingu er einmitt það sem
Helga virðist flaska á, ekki síst þegar hún lýsir
dæmi um dreng sem fellur þrisvar í fyrsta bekk
menntaskóla. Móðir drengsins og námsráðgjaf-
inn (Helga) standa tvístígandi hjá þegar nem-
andinn ákveöur að fara allt of erfiða námsleið
og fellur síðan alltaf. En námsráðgjafinn (Helga)
hefur ekki bein í nefinu og tækni til aö sann-
færa strákinn um að hann verði að fara hægari
leið en hann vill. Námsráðgjafinn (Helga) er
vafalaust hrædd við að fá á sig stimpilinn „Þeg-
iðu og hlýddu“-kennari, sem hún minnist á í bók
sinni. Með þessari linku sinni og misskildu góð-
semi, ásamt eftirgjöf til þess að nemandinn finni
frelsi sitt (til að falla), er nemandanum alls ekki
gert eins gott og „frelsissinnar" ætlast til.
Helga Siguijónsdóttir lætur sér annt um les-
blinda nemendur og vill að nemendur tenfii sér
sjálfsaga. Bók hennar ber þess þó ekki merki
að hún sé í þjónustu við lesblint fólk eða að
Helga hafi tamið sér mikinn sjálfsaga. Ég hef
ekki áður lesið bók með jafn mörgum prentvill-
um.
Skóli i kreppu, 149 bls.
Helga Sigurjónsdóttir
Náms- og foreldraráögjöf
Helgu Sigurjónsdóttur, 1992
Sviðsljós
Herrakvöld UMFS eni orðin landaþekkt síðan hattur utanrikisráðherra
var boðinn þar upp i tyrra. Hetðursgeaturinn i ár var Sunna Borg letk-
kona sem hér er að aðstoða iélaga í UMFS við að krúnuraka Jón Krist-
krónur en því tll viðbótar keyptl Jón Kristlnn ársmlða á iótboitaleiki
UMFS á 25 þúsund ogterði því fátagi sinu dágóðartekjur samanlagt.
DV-mynd Heimir Kristinsson, Dalvík
Á Sólon íslandus, sem opnaður var nýlega, geta gestir neytt veitinga og
skoðað sýningar og uppákomur sem þar verða. Staðurinn, sem er á horni
Bankastrætis og Ingólfsstrætis, er í eigu nokkurra aðila og ekki var annað
að sjá en þeir væru bjartsýnir með reksturinn. DV-mynd Brynjar Gauti
Ein af jólabókunum i árfjallar um Guðna Guðmundsson, rektor i Menntaskó-
lanum í Reykjavík. Ómar Valdimarsson ritaði bókina og nemendúr MR
buöu honum að sjálfsögöu í heimsókn til að lesa upp úr bókinni. Guðni
hefur frá ýmsu að segja og hér er Ómar sennilega að vitna í einhver
spaugileg samskipti hans við nemendur. DV-mynd GVA
Börnin eru sennilega sá hópur sem fagnar vetrarkomunni mest. Þá
gefst tækifæri til ýmissa leikja í snjónum og þarf ekki alltaf mikið til.
Krakkarnir í Ásgarði voru allavega fljótir að nýta sér brekkurnar og
settu ekki fyrir sig þótt snjórinn væri lítill og snjóþoturnar ennþá niðri
igeymslu. DV-mynd Sveinn
LOKSINS - LOKSINS
Mario-bræður og Pétur
Pan á myndböndum
með islensku tali
Vinsæli Nintendoleikurinn nú gefinn út I
teiknimynd. Mario og Luigi dulbúast sem
sjóarar til að bjarga prinsessunni sem
kaftelnn Koopas heldur nauðugri um
borð i báti sinum.
Fylslö uppóliíild. luikmDrniuin ykkur Or
ttllvulrriltjunum 4 vitwsllesrq fuvlntýrct
Vinsæli Nintendolelkurlnn nú gefinn úf i
teiknimynd. Mario-bræður. Hver er
hræddur við kllkkaða karla?
Langar þig að sjá alvöru ævintýri?
Fylgdu þá Pétri Pan og Tingaling til
landslns hvergi þar sem allt getur gerst.
í landlnu hvergl lelðlst engum. Þar mor-
ar allt af sjóræningjum, indlánum, krókó-
dilum og spennandl ævlntýrum.
Fijlfist mei Pétii Pm i tnjjum Mintijm
Fæst í verslunum
um land allt.
Pantanasími 91-651288.