Dagblaðið Vísir - DV - 08.12.1992, Qupperneq 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 8. DESEMBER 1992.
Útlönd dv
Skilnaður Karls prins og Díönu fer fram í áföngum:
Díana flutfti með
leynd að heiman
- býr nú ein með prinsunum tveimur í íbúð í Lundúnum
Karl og Díana fóru saman i leikhús i Lundúnum í gærkvöldi þegar boðið
var upp á konunglega sýningu í Dominion-leikhúsinu. Þau voru með glað-
legra móti. Simamynd Reuter
Nýjar sannanir um pyntingar 1 Júgóslavíu:
Hluta ennis vantaði
eftir barsmíðarnar
Héltsambýlis-
konuífangelsií
átta mánuði
Fertugur maður í Landskrona í
Svíþjóö er grunaður um aö hafa
haldið sambýliskonu slnni 1 stofu-
fangelsi í átta mánuði á þessu ári.
Konan, sem er 37 ára gömul, slapp
úr prísundlnni um helgina og
kærði karlinn fyrir lögreglunni.
Hann var handtekinn.
Konan segir að sambýlismaður*
inn hafi beitt sig ofbeldi og m.a.
nauðgað sér. Þá hafi hún ekki
mátt fara út úr húsi frá því þau
hófu sambúð í vor.
Sviptforræði
fyrSraðlátabarn
sofaúti
Búið er að svipta foreldra í
Kalmar i Sviþjóð forræði yfir sex
mánaða gömlu bami sínu vegna
þess að þaö var látiö sofa úti á
svölum. Um leið var tveggja ára
barn tekiö af þeim.
Fjölskyldan þykir undarleg og
hefur ekki viljað fara að ráöum
félagsmálastoíhunar við uppeldi
barnanna. Mál þeirra fór fyrir
dóm og þar var niðurstaðan aö
foreldrarair væru óhæfir upp-
alendur.
Dódrottnisínum
íréttarhléi
Maöur á áttræðisaldri lést í
réttinum í Málmey í Svíþjóð með-
an dómarar gerðu hlé á störfum
sínum. Dæma átti manninn fyrir
óspektir á almannafæri en af því
varð aldrei.
Nú hefur ungur maöur veriö
handtekinn grunaöur um að vera
valdur að dauða gamla mannsins
en þeir höfðu átt í ryskingum
áður en til réttarhaldanna kom.
Talið er að sá gamli hafi þá feng-
iö höfuðáverka sem drógu hann
til dauða. tt
Díana prisessa heldur ekki lengur
heimili með Karli manni sínum í
Highgrove-kastala á Vestur-Eng-
landi. Áreiðanlegar heimildir em
fyrir því að hún hafi í fyrra mánuöi
pakkað fóggum sínum niður og flutt
í íbúð í Lundúnum. Þar býr hún ein
ásamt prinsunum tveimur, Vilhjálmi
og Hinrik. í Buckingham-höll er eng-
in viðbrögð að hafa við þessari frétt
sem þó hefur verið borin fram af hin-
um’virtari blöðum.
Flutningurinn fór fram meö leynd
enda er það vilji prinsessunnar að
sem minnst beri á skilnaði hennar
og Karls prins. Þau em hins vegar
aö sögn löngu ráðin í að hætta sam-
búð og hafa ekki verið undir saman
þaki um tíma. í gær létu þau sig þó
hafa það að koma fram saman viö
opinbera samkomu í Lundúnum og
héldu friðinn.
Fréttir um skilnaðinn skyggja á
gleðilegri tíðindi af brúðkaupi Onnu,
systur Karls, og Timohty Lawrence.
Þau ganga væntanlega í það heilaga
í skoskri kirkju um næstu helgi.
Drottning hefur glaðst yfir þessum
tíðindum og er sátt við nýjan tengda-
son, enda hefur hann verið í hennar
þjónustu. Hann var einn af hesta-
sveinum drottningar þegar Anna
kom auga á hann.
Það skyggir og á brúðkaupið að
Elisabet drottningarmóðir verður
ekki viðstödd. Sum bresk blöö leiða
að því getum að gamla konan sé and-
víg ráðahagnum og vilji ekki mægðir
við hestasveina. Onnur benda á að
óvarlegt sé fyrir konu á tíræðisaldri
aö leggja upp í langferö um miöjan
vetur til að sitja í kaldri sveitakirkju.
Elísabet er 92 ára gömul en vel em
ogfádæmavinsæl. Reuter
Bandaríska utanríkisráðuneytiö
birti í gær nýjar sannanir um pynt-
ingar, aftökur og nauöungarflutn-
inga í lýðveldum fyrrum Júgóslavíu
þar sem Serbar eru yfirleitt gerendur
og íslamstrúarmenn þolendur.
í skjölum þessum, sem vom send
til Sameinuðu þjóðanna, er Serbum
einum þó ekki kennt um mahnrétt-
indabrot þessi.
Bandarískur læknir skýrði frá
frumstæðum umskurði sem Afganar
eða Saudiarabar gerðu á Serbum,
Króati skýrði frá barsmíðum af hálfu
íslamstrúarmanna og Bosníubúi
sagði frá því er Serbar drápu hverjir
aðra.
„Þama em mörg dæmi um dráp
Tveir bandarískir lífefnafræðing-
ar, sem fengu nóbelsverðlaunin í
læknisfræði fyrir árið 1992, sögðu í
gær að rannsóknir þeirra kynnu
hugsanlega að leiða til þróunar lyfs
gegn krabbameini en vömðu þó við
því að það yrði ekki á næstu árum.
Edmond H. Fischer og Edwin G.
Krebs létu þessi orð falla á fundi með
fréttamönnum í Stokkhólmi þar sem
þeir munu veita verðlaununum við-
töku á fimmtudag.
„Krabbamein er mjög flókið ferli
af yfirlögðu ráði, pyntingar fanga,
vísvitandi árásir á óvopnaða borg-
ara, tilefnislausa eyðileggingu eigna
og önnur brot á mannréttindalögum,
þar á meðal stórtækir nauðungar-
flutningar óbreyttra borgara," sagði
Richard Boucher, talsmaður utan-
ríkisráðuneytisins við fréttamenn.
Meðal þess sem er í skýrslunni er
frásögn 36 ára gamals íslamstrúar-
manns af dauða mágs síns í fanga-
búðum Serba í Omarska. „Hann
hafði verið barinn svo illyrmislega
kvöld nokkurt að hluta ennisins
vantaði á hann. Þaö haföi að því er
virtist verið fjarlægt með jámstöng.
Hann andaðist skömmu síðar.“
og það er mjög erfitt að ímynda sér
að eitt lyf muni leysa vandann,"
sagði Fischer.
Fischer og Krebs fengu nóbelsverð-
launin fyrir rannsóknir á frumuprót-
ínum. Krebs sagði að rannsóknir
þeirra væru byrjaðar að ryðja braut-
ina fyrir hugsanleg ný lyf til að nota
við líffæraflutninga.
Tvímenningamir skipta með sér
verðlaunafénu sem er 1,2 milljónir
dollara, eða rúmar sextíu milljónir
íslenskrakróna. Reuter
VarKennedy
áreittur kynferð-
islegaíæsku?
Út er komin í Bandaríkjunum
bókin JFK: Ástlaus æska. Þar
segir frá uppvexti Johns F.
Kemiedy Bandaríkjaforseta og
m.a. gefiö í skyn að hann hafi í
æsku sætt kynferðislegri áreitni
af hálfu fóöur síns.
Systkiniforsetans, þau Edward,
Jean, Eunice og Patricia, hafa séð
ástæðu til að andmæla þessum
áhurði og skrifað um málið grein
í New York Times. Þar segjast
þau hafa alist upp við ást og
umhyggju og allar sögur um ann-
að séu uppspuni þvi höfundur
bókarinnar hirði meira um gróð-
ann en sannleikann.
Fergiegafsjúk-
umbörnumí
Póllandibækur
Sara Ferguson, sem enn er her-
togaynja af Jórvík, var á dögun-
um á ferð í Póliandi og fór þar á
sjúkrahús til að hughreysta
krabbameinssjúk böm. Hún hef-
ur jafnan látið sér annt um sjúka
eins og Díana, svilkona hennar.
Fergie gaf börnunum bók eftír
sig en hún stefndi aö frama sem
barnabókahöfundur áður en allt
fór á háaloft í hjónabandi hennar
og Andrésar, prins og hertoga.
Nú vilja Bretar síður gefa böm-
um bækur eftir þessa umdeildu
konu.
Júlía Roberts
reiðubúinað
leika b nýrri
kvikmynd
Leikkonan Júlía Roberts hefur
haft hægt um sig aUt frá því hún
lék í myndinni Hook á síðasta
ári. Menn voru famir að óttast
að hún hygðist setjast í helgan
stein á unga aldrí og þótti mörg-
um miður.
Nú er komið á daginn að Júlía
er í rólegheitum að undirbúa sig
fyrir leik í nýrri kvikmynd sem
Jœ Roth ætlar að framleiða.
Hann var áður yfirmaður kvik-
myndagerðar hjá 20th Century
Fox en er nú óháður með samn-
ing viö Disney um dreifingu.
Gulapressan
meðtakáClint-
onogSokka
i Ameríku henda menn gaman
að því að hin æsilegri blöð hafi
náö taki á BiU Clinton, verðandi
forseta. Um er að ræða ótrúlegt
fólskubragö því heimilisköttur-
inn Sokki er nauðugur notaður
gegn húsbónda sínum.
Svo er mál með vexti að blaða-
mennirnir hóta aö brjóta frétta-
banniö, sem Clinton setti á
Sokka, ef forsetaefiiið gerir ekki
eða segir eitthvaö fréttnæmt
reglulega. Clinton getur því váUð
um aö útvegá eina stórfrétt á viku
eða kötturinn fer í heimsfréttim-
ar á ný.
Rússarsenda
Dönum „fals-
aða“sjúklinga
Danskar hjálparstofnanir segja
að Rússar hafi misnotað boð um
lækningar fyrir fórnarlömb
Tsjernobyl-slyssins meö því aö
fela hjálparstofnununum umsjá
barna sem ekki hafi orðið fyrir
geislavirkni.
Grunur leikur á að sama sé
uppi á teningnum í Þýskalandi
og Svíþjóð. Mörg barnanna þurfa
aöeins mat og aðhlynningu.
Greiðsluáskorun
Sýslumaðurinn á Selfossi skorar hér með á gjaldend-
ur, sem ekki hafa staðið skil á gjöldum, sem voru
álögð 1990, 1991 og 1992 og féllu í gjalddaga fyrir
15. ágúst 1992 og eru til innheimtu hjá ofangreind-
um innheimtumanni, að greiða þau nú þegar og
ekki síðar en innan 15 daga frá dagsetningu áskorun-
ar þessarar.
Gjöldin eru þessi: tekjuskattur, útsvar, eignaskattur,
sérstakur eignaskattur, slysatryggingagjald vegna
heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðn-
aðarmálagjald, lífeyristryggingagjald skv. 20. gr. I.
nr. 87/1971, slysatryggingagjald atvinnurekenda
skv. 38. gr„ atvinnuleysistryggingagjald, kirkjugarðs-
gjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra, skattur af
verslunar- og skrifstofuhúsnæði, launaskattur, bif-
reiðaskattur, slysatryggingagjald ökumanna, þunga-
skattur skv. ökumælum, þungaskattur fast árgjald,
viðbótar- og aukaálagning sölu- og launaskatts
vegna fyrri tímabila og skemmtanaskattur og miða-
gjald, virðisaukaskattur, virðisaukaskattur af skemmt-
unum, tryggingagjald af skipshöfnum ásamt skrán-
ingargjöldum, skoðunar- og vitagjöld, vinnueftirlits-
gjald, vörugjald af innl. fiamleiðslu, aðflutningsgjöld
og útflutningsgjöld, verðbætur á ógreiddan tekju-
skatt og verðbætur á ógreitt útsvar, einnig stað-
greiðsla opinberra gjalda fyrir 1.-10. tímabil 1992,
svo og vanskilafé ásamt álagi og sektum skv. 29. gr.
I. nr. 45/1987 og ógreiddum virðisaukaskatti fyrir
tímabil 08-40 1992, svo og skipulagsgjald álagt
1991 og fyrr.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir van-
goldnum eftirstöðvum gjaldanna að liðnum T5 dög-
um frá dagsetningu áskorunar þessarar.
Selfossi, 8. desember 1992.
Sýslumaðurinn á Selfossi
Reuter
Handhafar nóbelsverölauna í læknisff æði:
Nýtt krabbameinslyf
á ennþá langt í land