Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1993, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1993, Side 3
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993. 3 Hann var vænn, þorskurinn sem Guðmundur Haraldsson og félagar hans á Nirði EA voru að landa í Sandgerði. Þeir voru nýkomnir í land og Guð- mundur sagði að talsverð bræla hefði verið þegar þeir voru að draga net- in og reyndar hefði verið ótíð meira og minna frá áramótum. Guðmundur og félagar lögðu netin 2. janúar. DV-mynd BG Guömundur Haraldsson skipstjóri: Fer aftur á hrefnuveiðar „Ég bíð eftir að leyft verði að veiöa hrefnuna aftur. Ég verð ekki lengi að gera mig kláran á hrefnu, byssan er tilbúin, það er bara aö setja hana um borð. Eg á efdr að fara aftur á hrefnuveiðar," sagði Guðmundur Haraldsson, skipstjóri á Nirði EA. Njörður er á netaveiðum og leggur upp í Sandgerði. Þegar DV ræddi við Guðmund var hann nýkominn í land með um eitt tonn af stórþorski. „Meðalvigtin er inn níu kíló,“ sagði Guðmundur. „Ég bjó áður á Akureyri og var þá á hrefnuveiðum. Þegar það var fékk ég um áttatíu prósent af laununum fyrir hrefnuveiðar. Þetta er því mikil breyting. Ég veit að það verður fljót- lega leyft að veiða hrefnu og ég get trúað að það verði jafnvel næsta sumar," sagði Guðmundur Haralds- son á Nirði E A. -sme ___________________________________Fréttir Berglind Gísladóttir, einstæð tveggja bama móðir: Fisk frá bróður mínum í matinn - getekkileyftbaminuaðfaraíbíó Berglind Gísladóttir. Henni var sagt upp vinnunni. Hún segist samt hafa verið heppin. Berglind fær fisk gefins og hefur hann þvi í matinn alla daga vikunnar, viku eftir viku. DV-mynd BG „Ég var mjög heppin eftir aö mér var sagt upp því ég fékk strax hálfs dags vinnu í heimilishjálp. Ég er því atvinnulaus hálfan daginn. Þetta breytir samt miklu fyrir mig þar sem launin hafa dregist saman um tíu til tólf þúsund krónur á mánuði og ég satt best að segja mátti ekki við því,“ sagði Berglind Gísladóttir, einstæð móðir í Keflavík. Berghnd starfaði áður í þvottahúsi hjá bandaríska hernum. „Það bjargar miklu fyrir mig að bróðir minn, sem er sjómaður, gefur mér fisk og ég hef því fisk í matinn aUa daga vikurmar, annað er algjör undantekning. Ég er heppin að böm- in eru hrifin af fiski en hann getur verið leiðigjam þegar hann er í mat- inn dag eftir dag.“ BergUnd á tvö böm, eins og hálfs árs og átta ára. „Stelpan er átta ára og ég get ekki leyft henni nærri allt sem mig langar til að gera. TU dæm- is er ekki mögulegt að ég geti leyft henni að fara í bíó ef myndirnar em með íslensku tah vegna þess að þá er svo dýrt inn eða 500 krónur. Það er erfitt að ná saman endum en það tekst - það tekst af því þaö verður að gera það.“ BergUnd sagði að sér hefði ekki komið neitt sérstaklega á óvart þegar henni var sagt upp þar sem hún var ekki fastráðin og samdrátturinn var öUum augljós. - En sérð þú eitthvaö framundan - eitthvað sem getur breytt þessu ástandi? „Nei, það geri ég ekki, þó vona ég að það komi einhver kippur hjá Vamariiðinu, það er það eina sem mér sýnist að geti unnið á þessu,“ sagði Berglind Gísladóttir. -sme PEUGEOT 106 AVEC SA MARVEILLEUSE SUSPENSION, CONDUIRE DEVIENT UNE SATISFACTION! ÞÚ ÞARFT EKKI AÐ KUNNA FRÖNSKU TIL AÐ ÁTTA ÞIG Á EINSTÖKUM EIGINLEIKUM PEUGEOT 106. KOMDU í REYNSLUAKSTUR UM HELGINA! Opið laugardag og sunnudag frá 12-16. JÖFUR Nýbýlaveg 2, Kópavogi - Sími 42600

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.