Dagblaðið Vísir - DV - 30.01.1993, Qupperneq 8
8
LAUGARDAGUR 30. JANÚAR 1993.
Svipmyndin
Af hverri er
svipmyndin?
Sumar fallegar konur kunna
ekki að bera fegurð sína svo vel sé.
Aðrar gera það með glæsibrag.
Sú sem svipmyndin er af er í
seinni hópnum. Að auki hefur hún
bein í nefinu. Það sýndi hún þegar
hún var enn táningur en þá lenti
hún í miklu rifrildi við kvikmynda-
versforstjórann kunna, Louis B.
Mayer, ýmsum til mikillar hrell-
ingar.
„Þú og kvikmyndaverið þitt getið
farið til fiandans!" hrópaði hún á
kvikmyndaj öfurinn.
Rifrildið var svo hart að sagt er
að Louis B. Mayer hafi froðufellt.
En hann gat ekki rekið stjörnu sem
líkja mátti við lifandi peningakassa
og færði verinu jafnmikla peninga
og raun bar vitni. Samstarfið hélt
því áfram en reynt var að gæta
hlutleysis.
Sú sem hér er lýst kom fyrst fram
í kvikmynd þegar hún var níu ára.
Árið eftir fékk hún fyrsta stóra
hlutverkið. Mótleikara hennar,
Roddy McDowell, fannst. hún hta
út eins og lítíl brúða.
Kvikmyndatökumaðurinn bað
hana að skjótast aftur inn á fórðun-
ardeildina svo þurrka mætti af
henni hluta augnabrúnahtarins.
Gallinn var bara sá að hún var
ekki með neinn augnabúnaht.
Þetta var í fyrsta sinn sem nokkur
gerði athugasemd vegna þykku
augnabrúnanna hennar.
Fyrstu kvikmyndimar hennar
voru hver annarri ólíkar. Og í einu
tilviki má halda því fram með réttu
að dýr hafi leikið aðalhlutverkið.
Sextán ára
í ástarmyndum
En brátt fékk hún hlutverk sem
„ung kona“. Og þegar hún var orð-
in sextán ára þótti hún nógu þrosk-
uð til að leika í eldheitum ástaratr-
iðum. í myndinni „Samsærismað-
urinn“ lék hún á móti einum fræg-
asta leikara MGM, Robert Taylor.
Hann var þá þrjátíu og átta ára en
hún sautján ára.
Nám sitt stundaði sú sem svip-
myndin er af í litilli skólastofu í
kvikmyndaverinu. Við töku ofan-
nefndrar myndar kom það fyrir að
kennslukonan tók námsmeyjuna
úr örmum Roberts Taylor og sagði:
„Ég biðst afsökunar, en hún er ekki
búin með lexíumar sínar.“
Sú sem hér er lýst hefur hfað afar
viðburðaríku lífi. Hún hefur þótt
standa sig mjög vel í ahs kyns hlut-
verkum. Þá hefur hún hlotið mikla
umfjöhun fyrir ástarævintýri sín
og kynni af karlmönnum.
Einkum em þaö slúöurblöðin
sem sinnt hafa þessari hhð lífs
hennar. Einn þeiira manna sem
hrifust af henni lék á móti henni í
stórmynd. Þau urðu afar ástfangin.
En bæði voru þá gift og upp kom
hneyksh.
Sú sem svipmyndin er af hafði
þá nýlega ættleitt htla þýska
stúlku. í Páfagarði þótti hún þá
ekki lengur hæf til að vera móðir
og var þar lagt th að bamið yrði
tekið af henni.
Stórdemanturinn
vakti athygli
Ástin sem kviknaði við gerð stór-
myndarinnar leiddi th nýs og um-
talaðs hjónabands. Eiginmaðurinn
gaf henni afar dýra skartgripi. Við
brúðkaupið, sem stóð í London, bar
hún hinn gríðarstóra Kmpp-
demant. Um hríð stóð Margaret
prinsessa þar við hhð hennar og
starði hrifin á hringinn með eðal-
steininum.
„Er þetta demanturinn frægi?“
spurði prinssessan.
„Já,“ svaraði sú sem hér er lýst.
„Mikiö er hann stór,“ sagði prins-
essan.
„Já, er það ekki?“
„Hefurðu nokkuð á móti því að
ég setji hann upp?“
Það hafði sú sem svipmyndin er
af ekki. Henni þótti gaman af að
vekja athygli á þennan hátt.
Hjónabandið var ástríkt um tíma,
en þaö gekk samt á ýmsu og varö
því ekki nefnt dans á rósum. Er á
þá það leiö kom th vandræða. Loks
skhdu hjónin. En þau urðu aftur
hjón síðar.
í endurminningunum sínum seg-
ir sú sem hér er lýst að hún hafi
ahtaf látið ástríðumar ráða. Og
þrátt fyrir dehur og skhnaði vildi
hún ekki hafa orðið af einni mínútu
í hjónaböndunum tveimur með
manninum sem hún kynntist við
töku stórmyndarinnar.
Þegar hún tók að eldast tók hún
að sér nokkur dramatísk hlutverk.
En þá var hún farin að láta á sjá
vegna þess hvemig lífi hún hafði
lifað. Hún tók að fitna en fór í megr-
un og varð aftur tágrönn. Þá settist
hún viö skriftir og sendi ffá sér bók
um fegurð, megrpn og Ustina að
kynnast sjálfum sér.
Um tíma virtist sem hún væri
oröin svo veik að hún ætti skammt
eftir ólifað. Fréttir bárast um að
hún væri fársjúk. Nokkur vikublöð
skýrðu frá því að hún berðist fyrir
lifínu. En hún náði sér á ný.
Hennar verður minnst sem afar
htríkrar konu.
Hver er hún?
SvaráMs.56
Matgæöingur vikunnar
Pottréttur úr
höfrungakjöti
„Ég er ekki mjög duglegur í eldhúsinu þegar ég er
heima en elda þó við ýmis hátíðleg tækifæri eins og á
jólum og þegar gesti ber að garði,“ segir Sæmundur
Ólafsson, sjómaður í Grímsey, sem í dag fer í kistu
sína og finnur þar uppskrift að óvenjulegum rétti.
Sæmundur lærði matreiðslu á sínum tíma en segist
hafa hætt því námi og lært bakstur. Hann er því lærð-
ur bakari.
„Rétturinn, sem ég gef uppskrift að, er ekki mín
uppskrift en ákaflega góður. Höfrungakjöt er líka al-
veg sérstaklega gott hráefni. Það er ekkert líkt öðra
hvalkjöti og ekki af því þetta bragð sem mörgum líkar
ekki af kjöti úr sjónum. Ég meðhöndla höfrangakjötið
alvag á sama hátt og nautakjöt, það er hægt að gera
allt við þetta kjöt og m.a. er það mjög gott á grillið,"
segir Sæmundur.
Höfrungapottréttur
1 kg höfrungakjöt
1 rauð paprika
1 græn paprika
2 laukar, meðalstórir
1 púrrulaukur
6 gulrætur
1 msk. hvítlaukssalt
1 tsk. engifer
5 dl vatn
2 tsk. hunang
1 msk. súpukraftur
2 msk. borðedik.
Höfrangakjötið er skorið í strimla, kryddað með sea-
son all og steikt smástund í potti áður en það er tekið
upp úr.
Sæmundur Ólafsson.
Grænmetið er allt léttsteikt í ohu og kjötið síðan
sett út í ásamt því sem eftir er. Þetta er látið malla í
eina klukkustund. Sósan er síðan þykkt með maesína-
mjöh.
Þetta er gott að bera fram með hrísgijónum, hvít-
lauksbrauði og sojasósu en einnig er mjög gott að
hafa með þessu gott brauð.
Næsti matargæðingur okkar kemur einnig frá eyj-
unni í norðri því Sæmundur hefur skorað á Sigrúnu
Þorláksdóttur, sem býr í næsta húsi, að gefa lesendum
DV uppskrift að góðum réttum í næstu viku.
Hinhliðin
Mér leiðist aldrei
- segirMagnús Scheving, Norðurlandameistari í þolfími
„Nú undirbý ég Islandsmeistara-
mótið í þolfimi, sem verður í febrú-
ar, og síðan heimsmeistaramótið
sem haldið verður í Japan í apríl,“
segir Magnús Scheving, Norður-
landameistari í þolfimi. „Svo kenni
ég á Sauðárkróki, Akureyri, í Finn-
landi, Danmörku og Svíþjóð á
næstunni. Þar að auki smíða ég í
miðri viku og skemmti um helgar.
Mér leiðist aldrei."
Fullt nafn: Magnús Scheving.
Fæðingardagur og ár: 10. 11. 1964.
Maki: Ragnheiður Melsteð.
Börn Fuht.
Bifreið: Subaru ’87 (Van).
Starf: Smiður, kennari, dansari,
skemmtikraftur.
Laun: Góð.
Áhugamál: Nánast aht.
Hvað hefur þú fengið margar réttar
tölur í lottóinu? Eina sem reyndist
svo vitlaus þegar tíl kom.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Vera með konunni minni.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Tala við fólk sem er erghegt.
Uppáhaldsmatur: Lambalæri, ég er
svo gamaldags.
Uppáhaldsdrykkur: Trópí.
Hvaða íþróttamaður finnst þér
standa fremstur í dag? Jón Hah-
dórsson, fyrrverandi handknatt-
leiksmaður í Val.
Uppáhaldstímarit: Bo bedre eða
önnur húsbúnaöarrit.
Hver er faUegasta kona sem þú
hefur séð fyrir utan maka? Whitney
Houston.
Ertu hlynntur eða andvígur ríkis-
stjórninni? Andvígur.
Hvaða persónu Iangar þig mest til
að hitta? Nýfæddan frænda minn
sem ég hef enn ekki séð.
Uppáhaldsleikari: Siggi Siguijóns.
Magnús Scheving.
Uppáhaldsleikkona: Edda Heiðrún
Backmann.
Uppáhaldssöngvari: Eghl Ólafsson.
Uppáhaldsstjómmálamaður: Sigr-
ún Magnúsdóttir.
Uppáhaldsteiknimyndapersóna:
Maggi nærsýni.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Fréttir.
Ertu hlynntur eða andvígur veru
varnarliðsins hér á landi? Óákveð-
inn því ég þekki ekki nógu vel th
þeirra mála nú.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Allar orðnar eins.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Eiríkur
Jónsson.
Hvort horfir þú meira á Sjónvarpið
eða Stöð 2? Horfi nánast aldrei á
sjónvarp.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Sig-
mundur Emir.
Uppáhaldsskemmtistaður: Ingólfs-
kaffi.
Uppáhaldsfélag í iþróttum: Kor-
mákur á Hvammstanga.
Stefnir þú að einhveiju sérstöku í
framtíðinni? Að klára skrifstofuna
í Tékk-kristal.
Hvað ætlar þú að gera i sumarfrí-
inu? Vinna 1 húsinu mínu.