Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1993, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 01.02.1993, Qupperneq 8
8 MÁNUDAGUR1, FEBRÚAR1993 Útlönd Danir setja Færeyingum ströng skilyrði fyrir flárhagsaðstoð: Styrkurinn fæst með pólitískum skilyrðum - eyjunum verði breytt 1 eitt kjördæmi til að útiloka hrossakaup Sjóvinnubankinn færeyski rambar á barmi gjaldþrots. Danir ætla að bjarga honum gegn ströngum skilyrðum. DV-mynd ból Jens Dalsgaard, DV, Færeyjum; „Þetta er ekkert annað en yfirgang- ur í sósíalískum embættismönnum,“ segir Óli Brekkmann, ristjóri og lög- þingsmaður í Færeyjum, um skilyrð- in sem danska stjórnin setur fyrir að bjarga Sjóvinnubankanum og þar með öllu efnahagslífi eyjanna frá gjaldþroti. Landstjórn Færeyja leitar nú samninga við dönsku stjórnina um björgunaraðgerðir. Þegar eru komnar fram kröfur Dana um breytta efnahagsstefnu en vitað er að þeir hafa einnig uppi kröf- ur um breytta kjördæmaskipan í þeim tilgangi að koma betri skipan á stjóm eyjanna. Danir segja að það sé helsta ástæðan fyrir óstjórninni. Krafa Dana um eitt kjördæmi Nýja stjómin í Danmörku vill að eyjunum verði breytt í eitt kjördæmi til að þingmenn úr fámennum kjör- dæmum geti ekki notað sér oddaað- stöðu á þingi til að knýja fram fjár- veitingar til heimabyggða sinna. Dæmi er tekið af Sandey þar sem íbúar em 1700 og þeir kjósa tvo menn á þing. Þessir menn hafa verið í odda- aðstöðu og segja Danir að ekki sé mögulegt að taka upp harðar að- haldsaögerðir nema breyting verði gerð á kjördæmaskipaninni. Sjóvinnubankann vantar 350 millj- ónir til að komast hjá gjaldþroti. Landsjóðinn vantar líka fjármagn og talið er að það sé ekki minna en bankann vantar. Færeyjabanki fær væntanlega fé frá eigendum sínum í Danmörku. Mestu skiptir að bjarga Sjóvinnubankanum. Bankinn hefur tapað 4,5 milljörðum Sjóvinnubankinn hefur tapað 4,5 miUjörðum íslenskra króna frá því hann fékk fimm milljarða aðstoð í október. Danir setja þaö að skilyrði að vaxtatekjur veröi skattskyldar. Þeir viija að lagður verði á eigna- skattur, sem ekki hefur verið, og opinberar fjárfestingar stöðvaðar, leggja niður ríkisflugfélagið Atlantic sem hefur lifað á landssjóði. Þá verði lagður á 50% hátekjuskattur. „Ef við fáum ekki peningana þá fórum við á hausinn," segir Jógvan Sundstein fjármálaráðherra. Hann vill þó að enn verði reynt að semja við Dani um hagstæðari skilyrði en óvíst er að það takist. Sundstein er í Danmörku ásamt Maritu Petersen lögmanni að semja við Dani. GALLABUXNATILBOÐ KR. 3.900,> (Ath. venjulegt verð kr. 5.900,- Verslunin Gæjnr, Bnnknstræti 14 Kvikmyndaleikararnir Franco Nero, Vanessa Redgrave og Roger Moore mótmæltu yfirgangi nýnasista í Þýskalandi um helgina. Simamynd Reuter Þjóöveijar minntust valdatöku Hitlers: Vinstrisinnar lentu í ryskingum við lögreglu Vinstrisinnaðir mótmælendur börðust við lögreglu í gær eftir frið- söm mótmæli við kertaljós gegn upp- gangi nýnasista í austur-þýsku borg- inni Cottbus. Talsmaður lögreglunnar sagði að um eitt hundrað herskáir vinstri- sinnar hefðu kastaö grjóti í lögregl- una að loknum tíu þúsund manna fjöldafundi gegn ofbeldi hægrisinna. Atvik þetta átti sér stað daginn eft- ir að hundruð þúsunda Þjóðveija j tóku þátt í götumótmælum gegn ný- I nasistum á sextíu ára afmæh valda- töku Adolfs Hitlers. Um eitt hundrað þúsund manns með kerti í hönd röðuðu sér upp á leið þeirri sem stormsveitir nasista fóru í þriggja klukkustunda blysfór gegnum Brandenborgarhliðið í Berl- ín þann 30. janúar 1933 til að fagna valdatökunni. Lögreglan sagöi að 120 þúsund manns hefðu tekiö þátt í mótmælum í Dusseldorf og tíu þúsund í Rostock, auk þúsunda annarra í Bonn, Brem- en, Köln og öðrum borgum víðs veg- ar um Þýskaland. Á síðasta ári gerðu nýnasistar 2300 árásir á erlenda flóttamenn, erlenda íbúa landsins og minnisvarða gyö- inga í Þýskalandi. Sautján manns létu lífið í árásum þessum. Reuter dreifðu pening- um um göturnar Fimm bankaræningjar á Fiiippseyjum sluppu undan lög- reglunni fyrir helgi með því að kasta ránsfengnum í götuna. Svo mikill varö þá ágangurinn í pen- ingana að lögregluþjónarnir komust hvergi. Ræningjarnir höfðu látið til skarar skríða gegn banka í gleði- hverfi höfuðborgarinnar Manila en löggan veitti þeim þegar eftir- för og kom til skotbardaga. Löggan náði bifreið ræningj- anna, poka og haglabyssu en bóf- arnir sjálfir voru á bak og burt. Kaþólsk nunna rekin á brott úr borgíTexas Sextíu og átta ára gömul nunna, sem hafði verið fyrirskipaö að hypja sig á brott úr bænum E1 Paso í Texas innan tveggja sólar- hringa vegna deilna við kirkju- leiðtoga staðarins, lét lokafrest- inn líða á Föstudag án þess að hreyía legg né iið. Systir Rose Jbara sagði að úr- slitakostir biskupsins af E1 Paso væru fáránlegir og ólöglegir. : „Eg læt ekki nokkurn ; mann stjórna mér,“ sagði nunnan sem hefur búiö í Loretto klaustrinu frá 1967. Hún var beðin um að fara þar sem hún er þekkt fyrir að bera sóknarbörnin þungum sökum og fyrir stuttu sakaöi hún yfirmenn kirkjunnar um viilutrú. Fimmtán þús- und lítrarafolíu lekaísnjóinn Firamtán þúsund litrum af oliu var óvart pumpað undir siýóinn í bænum Scoresbysund á Aust- ur-Grænlandi á laugardag. Verið var að fylla olíugeyma raforku- versins þegar þetta gerðist. Olian fer um eins kílómetra langa leiðslu sem liggur á jörð- inni. Um þessar mundir er hins vegar þriggja metra þykkt snjó- lag ofan á benni. Talið er að leiðslan hafi sprungið en í gær hafði bilunin ekki fundist og ekk- ert hafði sést til olíunnar. Lekinn uppgötvaöist þegar búið var aö dælafimmtán þúsund lítr- um út í leiðsluna en ekkert hafði enn borist í raforkuverið. Fyrirtæki h vött aðleggjaeyðni- baráttunni Bið Michel Merson, sem stjórnar baráttunni gegn eyðni innan Al- þjóða heilbrigðismálastofnunar- innar, WHO, hvatti kaupsýslu- menn í gær til að leggja fé af mörkum til að hefta útbreiðslu sjúkdómsins. „Peningum sem er eytt núna til að fá fólk til að breyta hegðun sinni mun skila sér í milljarða doilara tekjum sem amiars hefðu glatast og spamaði í heilbrigðis- kerfinu," sagðí Merson á fundi um efnahagsmál heimsins í bæn- um Davos i Sviss. Merson sagði að beinn kostnað- ur vegna eyðninnar hjá heil- brigðís- og verlferðarkerfum um aiian heim væri nú kominn í rúma þijú hundruð milljaröa króna á ári. Og ef reiknað væri með óbein- um kostnaði vegna minnkaðrar fVamleiðni, glataðra mai-kaða og kostnaði við þjálfun nýrra starfs- manna mætti áreiðanlega marg- falda þá tölu með tíu. Reuter og Ritzau

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.