Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1993, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 16.FEBRÚAR.1993.
Fréttir
Einstæð móðir með tvö böm atvinimlaus 115 mánuði:
Fyllist vanmetakennd
og verð fyrir f ordómum
„Þegar manni er þráfaldlega neitaö
um vinnu á þeirri forsendu að eiga
tvö böm og vera of gamall verður
maður vonlaus og missir trúna á
sjálfan sig, fyllist vanmetakennd.
Mér hefur oft fundist ég vera einskis
nýt fyrir þjóðfélagiö. Það er mjög
niðurdrepandi, ekki síst þegar mað-
ur hefur alla tíð getað bjargað sér
sjálfur og greitt sína skatta og skyld-
ur. Svo bætast fordómamir við, það
er furðulegt. í augum margra, sem
hafa vinnu og geta séð fyrir sér og
sínum, er ég ekkert nema aumingi
sem ekki nennir að vinna. Þetta fólk
hugsar ekki rökrétt og lætur for-
dóma gagnvart atvinnuleysi og að-
stoð Flagsmálastofnunar blinda sig,“
- fólk kallar mig aumingja sem ekki nennir að vinna
segir Hulda Jóhannsdóttir, atvinnu-
laus.einstæð móðir með tvö böm, 4
og 6 ára stúlkur.
Hulda hefur verið atvinnulaus í 15
mánuði og ekki haft neitt upp úr
krafsinu í atvinnuleit.
„Það er ekki haft fyrir því að svara
manni þó að ur leggi vinnu í að aug-
lýsa. Annars finn ég að fólk vill ekki
ráða einstæða konu með tvö ung
böm í vinnu. Það er síðan ekki til
að auðvelda mér atvinnuleitina að
vera nýlega orðin fertug, ég hef svo
sannarlega fundið fyrir því. Yngra
fólkið gengur fyrir.“
Ekkert eftir í buddunni
Hjá Félagsmálastofnun era greiðsl-
ur til Huldu miðaðar það sem hún
fær í meðlag og mæðraiaun. Þar fær
hún síðan þá peninga sem vantar upp
á til að ná lágmarkslaunum, rúmum
43.000 krónum á mánuði.
Hulda býr í leiguíbúð í eigu Reykja-
víkurborgar sem hún segir bót í
máli en endar nái þó alls ekki saman.
„Meðlagið og mæðralaunin ganga
upp í húsaleiguna, um 20.000 krónur.
Þá greiði ég 17.600 krónur fyrir vist-
un fyrir stelpumar á dagheimili. Síö-
an þarf ég að greiða þessa venjulegu
reikninga, þó ekki bankalán. Þegar
því er lokið er nær ekkert eftir í
buddunni til að lifa af. Til að eiga
fyrir mat þarf ég að geyma reikninga
til skiptis. Það bjargar mér að okkrn-
er reglulega gefinn fiskur í matinn.
Ef í harðbakkann slær get ég stxmd-
um slegið vini og kunningja um smá-
lán.“
Bjarga námskeiðin?
Hulda hefur unnið ýmis störf um
ævina, verið á sjó, unnið við beitn-
ingu, á heimih fyrir þroskahefta en
síðastliöin 12 ár hefur hún unnið í
verslunum.
- Verða bömin mikið vör við afleið-
ingar atvinnuleysisins?
„Sú eldri verður vör við þær. Hún
veit nokkum veginn hvað er á seyði.
Hún veit að þetta er erfitt og að
mamma getur ekki gert mikið fyrir
þær. Þá spyr hún reglulega hvort ég
sé nokkuð að fá vinnu.“
Hulda er á námskeiðum í ensku og
bókhaldi hjá Námsflokkum Reykja-
víkur, byijaöi nú í febrúar. Hún seg-
ir allan daginn fara í námskeiðin og
strætóferðir með bömin í og úr
gæslu.
„Námið hefur veriö til þess að lyfta
manni aðeins upp. Ég kemst innan
um annað fólk og þarf ekki lengur
að eyða deginum í að mæla götunar
eða hanga sífellt á sama blettinum
heima hjá mér eins og fyrstu mánuð-
ina í atvinnuleysinu. Þar fyrir utan
geta þessi námskeið aukið möguleika
mína á að fá vinnu," segir Hulda.
-hlh
Stuttar fréttir
Skuldirrtkissjóðs
Skuldir ríkissjóðs á árslok 1991
voru 18 milljónir umfratn eignir.
Að frádregnum kröfum var heild-
arskuldin 131,4 milljarðar. Gjald-
fallnar og óinnheimtar eftirstöðv-
ar tekna voru tæplega 20 mihj-
arðar, þar af 3,4 milljarðar vegna
vanskila á staögreiðslu. Á árinu
1991 voru 2 milljarðar afskrifaðir.
Sjúkradeiídum lokað
Eín álman á öldranardeild Rík-
isspitalanna í Hátúni verður lok-
uð í sex vikur í sumar vegna við-
gerða. Þá fyrirhugar stjóm Rík-
isspítalanna að láta helming
rúma á bamadeild Landspítala
standa auðan í tæpa þijá mánuði.
Dutinnfjársjóður
Sjávarútvegsráðuneytið á fjár-
sjóði, þar á meðal hvalasjóð, sem
ekki era ttigreindir í ríkisreikn-
ingi og eru ekki nefhdir í fjárlög-
um. í nýrri skýrslu Ríkisendur-
skoðunar sæta þessir duldu sjóð-
ir gagnrýnL
Undirhópar
íkjaradeilu
Á fundi ASÍ og VSÍ í gær var
ákveðiö að skipa þijá undirhópa
sem leita eiga uppi samstööu í
atvinnumálum. Þeir eiga að ræða
sjávarútvegsmál, atrvinnuleysi og
langtímastefnu í atvinnumálum.
ÚAborgar
240 mílljónír
Útgerðarfélag Akureyrar mun
greiða um 240 mitijónir fyrir 60
prósenta hlut í þýska útgerðar-
fyrirtækinu Mecklenburger
Hochseefisherei veröi af kaupum.
Að því er segir í Morgunblaðinu
er stefiit að því aö Ijúka kaup-
samningi fýrir 1. apríl.
BiskuptílFæreyja
Ólafur Skúlason biskup heim-
sækir á morgun Færeyjar í boði
þarlends biskups. Heimsókmn
stendur í viku og er i tílefiti ís-
landsdaga á eyjunum.
btymsr versiunarraos
Ámi G. Hauksson, nemi í mark-
aðsfræðum, og Jóhann Viðar
ívarsson hagfræöinemi hlutu
námsstyrki Verslunarráðs í ár.
Hvor um sig fær 185 þúsund
krónur í styrk.
Bombaldi Togga baróns heitir árshátíöarlagið 1993 sem frumflutt var i
Ráðhúsinu í gærkvöldi að viðstöddu fjölmenni. Tilefnið var 110 ára afmæli
Framtíðarinnar, málfundafélags M.R., sem haldið verður hátiðlegt næstu
daga. DV-mynd BG
Friörik Sophusson vegna Fómarlambsins:
Overjandi að
veita ekki ábyrgð
„Bústjóri þrotabús Fómarlambs-
ins segir svo skýrt að gengið hafi
veriö á hlut ríkisins að óveijandi
var fyrir ríkið að veita ekki ttitekna
ábyrgð vegna kyrrsetningar á eign-
um Hagvirkis-Kletts. Við voram að
gera nákvæmlega það sama og í
öðrum hliðstæðum málum og höf-
um tti þess óumdetianlega heimtid.
Ríkiö leggur fram ábyrgð tti að
veija sína hagsmuni sem era vera-
legir. Ríkið er stærsti kröfuhafinn.
Ég vti að gögn varðandi máliö komi
fram þar sem forsvarsmenn Hag-
virkis-Kletts hafa látið að því hggja
að óeðltiega hafi verið staðiö að
málunum af hálfu ríkisins," sagði
Friðrik Sophusson fjármálaráö-
herra á blaðamannafundi sem
hann boðaði til vegna mála Hag-
virkis-Kletts.
Á fundinum hrakti Friðrik orð
forsvarsmanna Hagvirkis-KIetts
um að kyrrsetningarmálið dræpi
ágreiningsmál ríkisins og Hagvirk-
is-Kletts, svokölluð flugstöðvar- og
söluskattsmál. Hann sagði kyrr-
setningarmálið ekki koma þeim
málum neitt við. Þá sagði hann
kyrrsetningarmálið eitt og sér ekki
leiða tti gjaldþrots Hagvirkis-Kletts
og engin ástæða væri fyrir bústjóra
Fómarlambsins að krefjast gjald-
þrots. -hlh
Gert að lifa aflaunum konu sinnar:
Ekki annað ráð en
slíta sambúðinni
„Það er náttúrlega ekki auövelt að
þurfa að segja sig á bæinn en það
fyllti alveg mælinn þegar mér var
tilkynnt að konan skyldi sjá fyrir
mér í fjóra mánuði. Ég hef alla tíð
séð um mig sjáifur og er því mjög sár
og reiður yfir þessu. Niðurlægingin
er algjör þegar þessum biðtíma er
náð. Eg sé í fljótu bragði ekki annað
ráð en að slíta sambúðinni, fá mér
herbergi úti í bæ tti að fá fulla aö-
stoð,“ segir Hreinn Bjamason sem
verið hefur atvinnulaus í yfir 52 vik-
ur. Hann fær því ekki lengur at-
vinnuleysisbætur, er kominn á 16
vikna biðtíma þar sem aðstoð frá
Félagsmálastofnun er eina leiðin til
að fá fé. Hreinn var áður Sjómaður
og veiöieftirlitsmaður en hætti störf-
um snemma á síðasta ári samkvæmt
læknisráöi. Hreinn er eignalaus, hef-
ur eytt miklum hluta ævinnar í að
sigla um heimshöfm. Hann er i sam-
búð með konu og hefur verið þaö í
tvö ár. Er íbúðin skráð á hana. Strax
á þessu ári fór Hreinn að hugsa sinn
gang þar sem hann gæti ekki lifað
peningalaus þessar 16 vikur.
„Það era nokkrir símatímar hjá
Félagsmálastofnun í Skógarhlíð en
gjörsamlega ómögulegt aö komast í
samband við nokkum mann, minnir
mann á fangelsi. Þegar ég loks komst
í samband eftir vikuhringingar var
ég beðinn að koma í viðtal og hafa
meö mér stimpilkortið mitt, yfirht
yfir greiðslur frá Atvinnuleysis-
tryggingasjóöi og síðast en ekki síst
launaseðti konimnar minnar. Var
lögð mikil áhersla á launaseðtiinn en
ekki eins mikti áhersla á pappíra yfir
lán sem ég þarf að greiða af.“
Hreinn segir að félagsráðgjafinn
hafi virst mjög hissa aö sjá mann á
hans aldri og frekar ráðvilltan. Eftir
fundinn hringdi Hreinn oftsinnis í
Félagsmáiastofnun án árangurs en
fékk loks að vita að hann ætti þar
peninga. Það voru hins vegar aðeins
12 þúsund krónur. Hann sætti sig
ekki við þau málalok og hafði aftur
samband við félagsráðgjafa sem
sagðist ætla að athuga málið.
„Síðan var hringt og það var stúlk-
an á skiptiborðinu. Þá var verið að
láta hana segja mér þaö að búið væri
að fara yfir mitt mál. Ég hefði fengið
12 þúsund krónur 1. febrúar og þar
sem konan hefði atvinnu fengi ég
ekki meiri bætur. Konan hefur um
70 þúsund á mánuði og ég á að lifa á
henni."
Hreinn segist ætla aö ráðfæra sig
við lögfræðing og fá viðtal við félags-
málastjóra en eins og er sjái hann
enga leið út úr þessu aöra en að fara
frá konunni. „Það lifir enginn af 12
þúsund krónum og þeirri niðurlæg-
ingu að auki að vera algerlega upp á
aðramanneskjukominn.“ -hlh
Að verða vitlaus á að hanga
- segir Stefán Guðmundsson á Akureyri
Gylfi Kristjánssan, DV, Akureyri:
„Það má segja að ég sé búinn aö
vera meira og minna atvinnulaus
síðan seint á árinu 1991. Síöan þá hef
ég ekki fengið aöra vinnu en í nokkra
daga sem afleysingamaöur hjá Eim-
skip og á sláturhúsinu í sláturtíðinni
í 6 vikur," segir Stefán Guðmunds-
son, verkamaöur á Akureyri.
Stefán, sem er 34 ára, er í hópi
þeirra sem hafa verið svo lengi á at-
vinnuleysisbótum að hann fær þær
ekki lengur greiddar en eftir bóta-
greiðslur í 260 daga veröa atvinnu-
lausir aö vera án bóta í 6 vikur. „Ég
datt út af atvinnuleysisbótunum
snemma í janúar en vonandi fæ ég
aftur greiddar bætur í næsta mán-
uði,“ segir hann.
Stefán er giftur og á eitt bam og
kona hans hefur vinnu hálfan dag-
mn. Þau búa í leiguhúsnæði og segir
Stefán aö atvinnuleysið hafi haft
slæm áhrif á sig. „Þetta er ekki gott
ástand, það hefur haft slæm áhrif á
mig og ég er að verða vitlaus á að
hanga svona og hafa ekkert að gera.
Mér finnst tími tti kominn að ég fari
að fá einhverja vinnu.“
Fjárhagslega segir Stefán afleiðing-
ar atvinnuleysisins slæmar. „Fjár-
hagurinn er verulega slæmur og ég
hef lent í vanskilum t.d. í bönkum.
En þar hefur þó verið reynt að koma
til móts við mig. Þetta er svart og því
miður ekkert bjart framundan nema
þetta átaksverkefni á vegum bæjar-
ins. Ég vona að ég verði í þeim hópi
sem fær vinnu 1 sambandi við það.“