Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1993, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1993, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1993. Útlönd Nýirsamningar i Danmörku af- stýraverkfalli Danskir atvinnurekendur og stærsta verkalýðsfélag landsins hafa gert með sér tveggja ára samning um kaup og kjör og þannig afstýrt yfirvofandi verk- falli Þá hefur leiðin einnig verið vöröuð fyrir kjarasamninga ann- arra stéttarfélaga. Samkomulagið, sem náöist í gær, tekur til 200 þúsund verka- manna. Það felur i sér hækkun lágmarks timakaups, tætra veik- indaorlof og bætt eftirlaunakerfi. Danskir iðnrekendur telja að það hafl í fór með sér 1,3 prósenta hækkun launakostnaöar á samn- ingstímanum, 0,2 prósenta hækk- un á þessu ári og 1,1 prósenta hækkun 1994. Fæstumferðar- slysíEvrópu verða í Bretlandi Dauðaslys 1 umferðinni eru fæst á Bretlandi af öllum löndum Evrópu. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem samgönguráðuneyt- iö birti í gær. í skýrslunni eru slysatölur frá 23 löndum bomar saman, þar á meðal frá öllum löndum Evrópu- bandalagsins, Bandaríkjunum og Japan. I tjós kom að dauðasiys i umferðínni, þegar slys á gang- andi vegfarendum voru tekin með í reikninginn, voru færri í aðeins þremur löndum, Hollandi, Noregi og Svíþjóö. Áriö 1990 létust 42,9 notendur bifreiða fyrir hvetja milljón íbúa á Bretlandi og 7,1 maður iét lifið fyrir hvern ekinn milljarð kíló- metra, en þetta eru tvær staðlað- ar aðferðir til að meta fjölda dauðsfalla í umferöarslysum. Tveir breskir landgönguliðar, sem voru við vetraræfmgar í Noregi, fundust látnir í tjaldi sínu í gær. Svo viröíst sem þeir hafi látist af kolmónoxíðeitrun út frá parafíniampa. Þriðji hermaðurinn, sem svaf í sama tjaldi, var fluttur í ofboði á sjúkrahús og gert er ráð íyrir að hann muni iifa. Hinir látnu voru við æfingar ásamt um eittþúsund öðrum her- mönnum. Rifistum fransk- Deilur um franskar kartöflur eru farnar að skyggja á áform hamborgarastaöakeðj unnar McDonaJd’s um að opna veitinga- stað í ísrael í desember. Kartöfluafbrigöið sem McDon- ald’s notar vestra er ekki ræktað í ísrael og landbúnaðarráðuneyt- ið veitir ekki innflutningsleyfi. Að sögn hæfa ísraelskar kart- öflur ekki í gerð hinna frönsku. Reynt verður að leysa deiluna á morgun. Brigitte Bardot erámótiródeó Franska ieikkonan og dýravin- urinn Brigitte Bardot hefur beðið borgarstjórann í Toulouse að banna kúrekasýningu, eða ródeó, sem áformað er að haida í bæn- um. Hún sagði i hréfi til borgarstjór- ans að ródeóið væri ekkert ósvip- að nautaati að því leyti að þaö væri ill meðferð á dýrum sem væri hvorki „tíl sæmdar þeim sem horía á eða taka þátt í slíkum skrípalátum". Heuter Clinton Bandaríkjaforseti boðar þjóðinni skattahækkanir og niðurskurð: Stefnu Clintons líkt við hrossalækningar - takist honum ekki að sannfæra þjóðina í þessari viku bíða fjögur erfið ár Sjónvarpsræðu Bills Clinton Bandaríkjaforseta í gærkvöldi er misjafnlega tekið og hafa stjórnmála- skýrendur vestra líkt henni við hrossalækningar, sem forsetinn verði að troða upp á þjóðina strax í þessari viku, annars bíði hans fjögur erfið ár í embætti. Clinton boðaði að skattar á mið- stéttina yrðu hækkaðir þrátt fyrir að hann hefði lofað öðru í kosningabar- áttunni. Nýir skattar eiga að leggjast af mestum þunga á fólk með meira en 100 þúsund daii í árstekjur. Þeir sem hafa minna verða einnig að greiða meiri skatta. í kosningabar- áttunni var lofað að skattar yrðu aðeins hækkaðir á fólk meö yfir 200 þúsund í tekjur. Skattar verða lagðir á eftirlaun og skattar á fyrirtæki hækkaðir. Orku- skattar verða einnig teknir upp en margir Bandaríkjamenn leggjast hart gegn skatti á bensín. Clinton sagði í ræðunni að þessir skattar myndu hvetja fólk tíl að spara og nota umhverfisvæna orku. Á sama tíma á að skera niður út- gjöld til heilbrigðismála og gera þjón- ustuna þar skflvirkari. Sömuleiðis Bill Clinton hefur kynnt efnahags- Stefnu SÍna. Simamynd Reuter verður dregiö enn meira úr útgjöld- um til hermála en gert var ráð fyrir í fyrri áætlunum. Efnahagstillögurnar verða lagðar fyrir þingið á morgun og þá á eftir að koma í ljós hvort Clinton hefur þann stuðning sem hann þarf. Clint- on hyggur einnig á ferð um landið þar sem nýja stefnan verður kynnt. Þá sést hvort almenningur trúir að stefna forsetans dugi til að bæta úr efnahagsvanda þjóðarinnar. Takist það ekki missir almenningur trúna á Clinton og hans verður minnst fyr- ÍTSVÍkÍnloforð. NTBogReuter Gamli rokkarinn í uppskurð Fætur gamla rokkarans Rods Stewart voru að gefa sig eftir áralangar fettur á sviðinu og varð hann að láta skera upp hné I New York nú á dögunum. Hér koma þau heim til Englands eftir aðgerðina, Rod, sonurinn Renee og eiginkonan Rachel. Simamynd Reuter Dularfull morð á sjúkrahúsi í Austur-Englandi: Kona kærð fyrir að myrða fjögur ungbörn - grunuð um að hafa eitrað fyrir ellefu böm önnur Búið er gefa út ákæru á hendur bresku hjúkrunarkonunni Beverley Allitt fyrir að vera völd að dauða fiögurra tmgbarna sem hún hafði umsjón með á sjúkrahúsi á Austur- Englandi. Hún er einnig grunuð um að hafa reynt að myrða ellefu böm önnur með eitri. Kona neitar öllum ásökun- um en læknar á sjúkrahúsinu segja að vart fari mflli mála að Allitt beri ábyrgð á dauöa bamanna íjögurra og veikindum hinna. Fyrst varð vart við að ekki væri allt með felldu á sjúkrahúsinu í upp- hafi árs 1991 þegar böm tóku að veikjast án þess að sýnileg ástæða fyndist. í ljós kom að bömin sem lét- ust höfðu kafnað en önnur vom orð- in alvarlega veik vegna stórra skammta af insúlíni. Lögreglan var kölluð til og Allitt handtekin. Engin ástæöa hefur fund- ist fyrir morðunum og hjúkrunar- konan heldur fast viö sakleysi sitt. Læknar segja að eitt fari ekki milli mála; það gekk morðingi laus á fæð- ingardeildinni. Réttað verður í mál- inu næstu daga. Reuter Sprengjuregn í Sarajevo Uppreisnarmenn Serba létu sprengjum rigna yftr Sarajevo, höfuðborg Bosníu, og komu í veg fyrir aö bílalest Sameinuðu þjóð- anna með matvæh og lyf til svelt- andi íslamstrúarmanna í austur- hluta lýðveldisins kæmist leiðar sinnar. Auk sprengjuregnsins úr hæð- unum fyrir ofan borgina réðust Serbar með skriðdrekum og fót- gönguliði að varnarsveitum Bos- níumanna í úthverfunum Stup og Azici í vesturhluta Sarajevo. „Þannig hefur þetta verið í fimm daga,“ sagði Ibro, bosnisk- ur hermaður sem leitaði skjóls í þröngu húsasundi. Bílalest SÞ er enn við landa- mæri Serbíu og Bosníu þar sem ekki hefur tekist að fá Serba tíl að leyfa henni aö halda áfram tfl Cerska þar sem 25 þúsund ísl- amstrúarmenn svelta. Jeltsínræðirvið Khasbulatovum hverráði Borís Jeltsín Rússlandsforseti ætlar að hitta Ruslan Khasbula- tov þingforseta í dag til að leysa ágreining um hver fari með völd- in í landinu. Jeltsín hafði áður sagt að hann ætlaði að taka sér tólf daga frí. Jeltsín er undir vaxandi þrýst- ingi íhaldsmanna um að gefa eftír af völdum sínum. Fyrsti fundur þeirra á föstudag varð árangurs- laus. Nokkrum klukkustundum eftir að tilkynnt var um frí Jeltsíns lagði Khasbulatov tíl að samhliða þjóðaratkvæðagreiðslu um stjórnarskrá landsins yröi lands- mönnum gert kleift að lýsa yfir traustí eða vantrausti á Jeltsín. Alvarlegur kjarnorkuleki í Sellafield Bresk stjómvöld sögðu í gær aö leki á geislavirkum efnum úr kjarnorkuenducvinnslustöðinni í Sellafield í norðurhluta Englands á fostudag hefði verið alvarlegur en þó innan hættumarka. Seflafield er umdeildasta kjam- orkuvinnslustöð á Bretlandseyj- um. Umhverfisráðherra lands- ins, David Maclean, sagöi að lek- inn yrði rannsakaður. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.