Dagblaðið Vísir - DV - 16.02.1993, Síða 32
U1
F R ÉTT AS KOTI
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Dreifing: Sími
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRUAR 1993.
Grayson í far-
banni en
Feeney áfram
w
I
Hæstiréttur hnekkti í gær úrskurði
Héraðsdóms Reykjavíkur um gæslu-
varðhald yfir Bandaríkjamanninum
James Brian Grayson, fyrrum eigin-
manni Emu Eyjólfsdóttur, vegna
svonefnds bamsránsmáls. Honum er
hins vegar gert að sæta farbanni
fram til 3. mars. Þetta þýðir að Gray-
son verður frjáls ferða sinna hér á
landi þann tíma sem líður fram að
dómi en réttarhöld í máli hans og
Donalds Feeney vegna sakamáls,
sem ákæruvaldið höfðar gegn þeim,
hefjast í héraðsdómi á fimmtudag.
Hæstiréttur staöfesti á hinn bóginn
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Feeney
og féllst á kröfu ákæruvaidsins um
að hann skuli verða í haldi fram að
þeim tíma sem dómur gengur.
Eins og fram hefur komið í DV seg-
ist Grayson ætla að halda áfram að
beijast fyrir því að fá 5 ára dóttur
sína með sér til Bandaríkjanna. Það
hyggst hann gera með þvi að sækja
um forræði fyrir íslenskum dómstól-
um. Forræðismál í þessu sambandi
er óháð sakamálinu sem snýr að
bamsránsréttarhöldunum. Hæsti-
réttur hefur þegar sagt að bandarísk-
um dómi, sem kveður á um forræði
Graysons, verði ekki framfylgt hér.
-ÓTT
Stúlkaslasast:
Ökumaður
stakk af
f rá slysstað
Ein stúlka var flutt á slysadeild
eftir að keyrt hafði verið á hana á
gangbraut á Fríkirkjuvegi við Mið-
bæjarskóla skömmu fyrir miðnætti
í gær.
Hún var ásamt tveimur vinkonum
sínum að ganga yfir gangbrautina
þegar bíll kom aðvífandi á miklum
hraða suður Lækjargötu og inn á
Fríkirkjuveginn. Tvær stúlknanna
urðu fyrir bílnum. Önnur handleggs-
brotnaði og hlaut skrámiu' í andliti
og hin féll í götuna og reif fótin sín.
Ökumaður bifreiðarinnar hélt
áfram för sinni án þess að stöðva.
Bíllinn var svartur að ht, straum-
línulagaður og liklega evrópskur.
Ökumaður var ungur og hann var
ekki einn í bílnum. Lögregla biður
þá sem geta gefið upplýsingar að
hafa samband við sig.
-ból
LOKI
Vantar þá ekki hárskera í
lögguna?
Komu að dánarbúi föð
winsi
„Eg var að koma með systur
mina sem kom heim frá Bandaríkj-
unum til að vera viöstödd útför föð-
ur okkar. Hún ætlaði að gista i
húsínu. Þegar við komum inn
sáum við að búið var að róta öllu
til í dánarbúinu,“ sagði Auður
Steinþórsdóttir í samtali við DV í
gær.
Það var imæðilega aðkoma fyrir
Auði og systur hennar, Ásdisi Ingu
og Kolbrúnu, þegar þær sáu hús
föðm- þeirra að Móaflöt í Garöabæ
í gærmorgun. Þar var allt á rúi og
stúi eftir innbrotsþjóf eða þjófa.
Rótað hafði verið í nánast öllum
herbergjum i húsinu. Faðir systr-
anna lést í síðustu viku og verður
jarðsunginn á morgun. Móðir
þein-a lést i ágúst síðastiiðnum.
Úr kommóðu frá síðustu öld, sem
stóð í stofu hússins og var i eigu
móður systranna, hafði efsta skúff-
an verið tekin burt í heilu lagi en
í henni var silfurborðbúnaður. Víð
hliðina á kommóðunni lá kúbein
og munir sem höföu verið í öðrum
skúffum, meðal annars minningar-
greinar og skej'ti frá ættingjum frá
þeim tíma sem móðir systranna var
jarösungin síöastliðiö sumar. .
Af skrifötofu í húsinu haföi einnig
verið tekinn kassi með öðrum
borðbúnaði og þar var búið að
hreyfa við persónulegum munum
hins látna, meðal atmars verð-
launagripum og bókum. í svefnher-
berginu var allt á hvoifi. Þar höfðu
skúffur með ýmsum verðmætum
og skjölum veriö iagðar á rúm og
gólf og rótað í þeim. Systumar telja
að þar hafi verið á annað hundrað
dollarar.
„Þeir hafa hengt teppi fyrir svefn-
herbergisgluggann með kiemmum
þannig að ekki sæist til þeirra á
meðan þeir voru að athafna sig
héma inni,“ sagði Ásdís Inga.
Greinilegt var á ummerkjum að
farið haföi verið í allar hirslur í
húsínu, skápa, skúður og á aðra
staði, í þeirri von að verðmæti
fyndust.
Systurnar sögðu verst a
að húsinu með þessum hætti um
það leyti sem verið væri að und-
irbúa jaröarför föður þeirra. Þær
segjast vonast eftir að einhverjir
geti gefið þeim vísbendingar um
skúffuna úr hinni verðmætu kom-
móðu sem var í eigu móður þeirra
og hún iét endurnýja á sínura tima.
Rannsóknarlögregla ríkisins
rannsakar innbrotið í Garðabæ.
Þegar síðast fréttist hafði ekki
náðst til þoirra sem þama voru að
verki. Talið er ljóst að brotist hafi
verið inn aðfáranótt sunnudags eða
mánudags.
Fallhlífarstökkvara hlekktist á þegar hann sveif inn til lendingar á Sandskeiði í gærdag. Maðurinn lenti töluvert
harkalega og var talið að hann hefði farið úr axlarlið og brotið einhver rifbein. Hann var fluttur á slysadeild.
DV-mynd Sveinn
Veðriöámorgun:
Hlýnandi
veður
Á hádegi á morgun verður suð-
austankaldi og slydda en síðar
rigning um landið norðanvert en
sunnan og suðvestan stinnings-
kaldi eða allhvasst og rigning eða
súld sunnanlands. Hlýnandi veð-
ur.
Veðrið í dag er á bls. 28
Bridgehátíð:
Loksins íslensk-
ursigur
Sveit Glitnis náði að tryggja sér
sigur með góðum endaspretti í svei-
takeppni bridgehátíðar Flugleiða
sem lauk í gær á Hótel Loftleiðum.
Sveit Glitnis skoraði 190 stig, fjórum
stigum meira en sveit hoHenska
landsliösins sem hafnaði í öðru sæti.
Á síðustu 10 árum hafa erlendir gest-
ir haft sigur 9 sinnum. Fyrir lokaum-
ferðina áttu um 5 sveitir möguleika
á sigri. Spffarar í sveit GHtnis eru
Helgi Jóhannsson, Guðmundur
Sveinn Hermannsson, Aðalsteinn
Jörgensen, Björn Eysteinsson og
Ragnar Magnússon. Lokastaða efstu
sveita varð þannig:
1. Glitnir 190
2. Holland 186
-3. Zia Mahmood 182
4. S. Ármann Magnússon 181
5. Norge Landsbréf 180
16. Sparisjóður Siglufjarðar -ÍS
Klippt af bflum
Undanfarinn sólarhring hefur lög-
regla á höfuðborgarsvæðinu og í
Keflavík kHppt númerin af um 300
óskoðuðum bOum.
Lögreglan verður með sérstakt
umferðarátak út þessa vikuna.
-ból
Peglvrs
GUFULOKAR
lniilxen
Suöurtandsbraut 10. 8. 686489.