Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1993, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1993, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUK 16. MARS 1993 Útlönd heila óperu Heimsins stysta ópera, sem veröur frumsýnd í verslunarmið- stöö í Wales um næstuhelgi, sótti innblástur sínn í eggjasuðutæki. Breska blaðið Independent on Sunday sagði frá því að óperan væri bara fjöguira mínútna löng en það er sá timi sem þaö tekur að sjóða egg. Verkið segir frá rifr- ildi hjóna við morgunverðar- borðið og er eftir Peter Reynolds. Samkvæmt heimsmetabók Gu- inness er stysta óperan sem flutt hefur verið til þessa sjö mínútur og 27 sekúndur að lengd. Siðasta könnun- Siðasta skoðanakönnunin fyrir þingkosingarnar í Prakklandi í næstu viku var birt á suimudag og samkvæmt henni munu stjórnarandstæðingar í mið- og hægriflokkum gjörsigra sósíal- istaflokkinn sem fer meö stjórn landsins. Kosningabandalagi hægri- flokkanna er spáð tvöíalt meira fylgi en sósíalistum og allt að íjór um sinnum fleiri þingsætum. Þriðjungur kjósenda er orðinn þreyttur á hefbundnum stjónv málum og ætlar að kjósa um- hverfisvemdarsinna, öfgasínn- aða hægrimemi eöa kommúnista í mótmælaskyni. landisökkva Þjófar i rússneska flotabænum Baltiisk sökktu herskipi á grunn- sæví fyrir stuttu svo þeir gætu stohð eins mörgum dýrmætum málrahlutum úr þ\d og frekast var kostur. Stolnu partamir eru seldir í útlöndum í'yrir beinharð- an gjaideyri. Baltiisk er í rússneska hérað- inu Kalíningrad við landamæri Póllands og Litháens og hafa al- mennir borgarar ekki aðgang að henni. í fréttinni var látið að því liggja aö menn úr sjóhemum hetðu sökkt skipinu. Norðmennfáað verameðí söngvakeppni sjónvarpsstöðva Norska stúlkan Silje Vige fær að taka þátt í söngvakeppni evr- ópskra sjónvarpsstöðva og syngja lag sítt „Aile mine Tanker" á ír- landi í vor. Norska rikisútvarpið, NRK, ákvað á fóstudag að ekki skyldi dæma Silje úr leik þótt lag hennar heföi verið spilað í út- varpsstöö í Rogalandi. NRK tók þessa ákvörðun þrátt fyrir yfirlýsingu keppnishaldara þar sem bent er á aö ekki megi leika lögin opinberlega fyrr en lokinni úrslitakeppninni í heima- landinu. Þá er Norömönnum ráð- lagtaðhætta við tilað koma í veg fyrir hugsanleg mótmælí. Þorskkvóti Dana Bjöm Westh, sjávarútvegsráð- lerra Danmerkur, ákvað fyrir helgi að vikuþorskkvóti á togara Eystrasalti og Kattegat skyldi vera 750 kíló eins og áður. Samtök danskra sjómanna höföu krafist þess aö vikukvótinn yröi aukinn upp f 2500 kiló á báL Reuter, NTB og Ritzau A annað hundrað manns létu lífið í óveðri aldarinnar í Bandaríkj unum: Veðrátta á norður- slóðum gjörbreytt - segja veðurfræðingar og rekja óveður við Atlantshaftil breytinga á Kyrrahafi Bandarískir veðurfræðingar segja að í vetur hafi orðið grundvallar- breyting á veðráttu á norðurhveli jarðar. Til þessa megi rekja óveðrið mikla sem gengið hefur yfir Atlants- hafsströnd Ameríku frá Kúbu til Kanada síðustu daga. Veðurfræðingarnir segja að upp- hafið megi rekja til ársins 1991 þegar háloftavindar á Kyrrahafi tóku að skipta sér í tvær meginálmur. Hugs- anlega stafar þetta af áhrifum frá eldgosinu mikla í Pinatubo á Fihpps- eyjum það ár. I vetur hefur vestanvindurinn, sem ræður veðri á norðurslóðum, skipt sér þannig aö hann kemur inn yíir vesturströnd Bandaríkjanna á tveimur stöðum. Syðri álman er rök og hlý en sú nyrðri köld og þurr. Álmumar hafa sameinast yíir aust- anverðum Bandaríkjunum og þar orðið úr óvenju djúpar og illvígar lægðir í vetur. Sú versta kom nú. Veðurfræðinga greinir á um hvort þessi breyting er varanleg en þeir em sammála um að hún hafi valdið ill- viðmnum á norðurslóðum í vetur. Vindur hefur náö allt að 200 hnútum í Bandaríkjunum sem er langt ofan við öll mæld vindstig. Nú er vitað að 114 létu lífið í óveðr- inu. Sú tala á að sögn yíirvalda ör- ugglega eftir að hækka þegar tími gefst til að kanna ástandið á öllu óveðurssvEeðinu. Tjón er enn ekki fullmetið en talið er að það skipti milijörðum dala. Spáð er mikilh hækkun á verði sykurs og ávaxta vegna skemmda sem hafa orðið á ökmm í suðurríkj- um Bandaríkjanna og á Kúbu. Óróa gætir á mörkuðunum en áhrifm koma ekki fram af fullum þunga fyrr en á næsta ári. Nú voru ávaxtatré aðblómgastfyrirvoriö. Reuter Oveðrið í Nýja England Verslanir og fyrirtæki lokuð. Landbrot i\ við strönd New Hampshire. Ráðstafanir gerðar til að hefta það. New York - llmferð teppt allan mánudaginn. Kennsla féll niður í mörgum skólum, háskóium sem öðrum. Pennsylvania Neyðarástandi iýst og fólki ráðið frá öllum ferðalögum. Skólar lokaðir. Washington DC, Maryland og Virginía I ImírtfA l/nnnni i__ ií ____I! I_t Alabama 430 þúsund notendur án m V,--------! rafmagns. Talið að margir \ dagar líði áður en allt kemst í samt lag. Umferð komst í gær í viðunandi horf. Flugvellir oþnaðir. Fólki þó ráðið frá ferðalögum vegna mikillar vindkælingar. Suðurríkin |FS Mikið frost í gær. Uppskera í hættu. Norður- og Suður Karólína Neyðarástand í báðum ríkjunum. Umferð takmörkuð vegna vatnselgs og ísingar. Georgía Skólar lokaðir. Umferð í lamasessi. Flórída 85% íbúanna án rafmagns á sumum svæðum. Stjómarkreppu afstýrt í Færeyjum: Jógvan Sundstein beygði þá óánægðu Jens Dalsgaard, DV, Færeyjum; Stjómarkreppu hefur verið afstýrt í Færeyjum eftir að Svend Aage Ell- efsen og John Petersen, tveir ráð- herra Fólkaflokksins, létu af and- stöðu við stjómina í gær og ætla aö starfa með henni áfram. Þeir höfðu áður lýst megnri óánægju með aögerðir og aðgerða- leysi jafnaðarmanna í stjórninni og hótuðu stjómarslitum ef ekki yrði gengið að fimm skilyrðum sem þeir settu. Ráðherramir tveir fengu fátt af því sem þeir kröíðust og er altalað að Jógvan Sundstein, formaöur Fólkaflokksins og íjármálaráðherra, hafi beygt sína menn. Sundstein hefur þó ekkert sagt um málið annað en að rétt sé að fara með gát. Hann hefur undanfama daga setið á fundum meö ráðhemm- um tveimur ásamt formanni þing- flokks og varð þetta niðurstaðan. Fundur verður í dag um framtíð atvinnuleysistrygginga og búist við að Svend Aage Ellefsen og John Pet- ersen fái þar framgengt ýmsum kröf- um sínum. Þeir verða hins vegar að gefa eftir aðrar kröfur, þar á meðal að Tommy Petersen, fyrrverandi for- Finnskur ráðherra vill Esko; Aho, forsætisráðherra Finnlands, segir i viðtali sem birt- ist í dagblaði í morgun að lækka eigi laun opinberra starfsmamia um tíu prósent á árunum 1994 og 1995. Aho segir að með launalækk- unum ætti aö vera hægt að komast hjá frekari uppsögnum. Hann telur að þessi tillaga muni áreiðanlega freista margra fyrir- tækja, einnig í einkageiranum. Margir starfsmenn í byggingariðn- aði myndu t.d. fallast á tíu prósenta launalækkun með glööu geði ef þaö tryggði að þeir héldu atvínnunni. Aho leggur áherslu á að án tiu prósenta launalækkunarinnar kunni að vera nauðsynlegt að skera launin ennþá meira niður eða um tugi prósenta. fnb Nýtt lýðræði kom Bildt til bjargar Jógvan Sundstein beygöi óánægju- liðið i sínum flokki til hlýðni. stjóri félagsmálastofnunar, verði rekinn úr embætti ráðgjafa við land- stjómina. Verði Svend Aage og John hins vegar enn ósáttir eftir fundinn má búast við nýjum vandræðum. Marita Petersen lögmaður hefur verið fáorð um ástandið eins og Jógvan Sund- stein. Öllum er ljóst aö ekki er mögu- leiki á myndun nýrrar stjómar nema að undangengnum kosningum. Þar myndu Jafnaðarmannaflokkur og Fólkaílokkur ömgglega tapa fylgi. Nýtt lýðræði, óánægjuflokkur lengst til hægri í sænskum stjórn- málum, hefur ákveðið að styðja rík- isstjóm Carls Bildt með hlutleysi. Stjómarkreppu er þar með forðað í Svíþjóð í bili en Bildt hefur ekki vijjað lýsa yfir að hann sé hættur við að boða til kosninga. Bildt er í minnihluta á þinginu ef þingmenn Nýs lýðræðis kjósa gegn honum. Bildt hefur hins vegar ekki viljað kaupa sér fylgi þeirra með því að taka undir stefnumál flokksins. Þeir vildu ekki sætta sig við minni greiðslur til atvinnuleysistrygginga. tt Carl Bildt hefur bjargað stjórn sinni frá falli. Simamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.