Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1993, Qupperneq 25
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 1993
25
ÞJÓDLEIKHÚSID
Sími 11200
Stórasviöiðkl. 20.00.
DANSAÐ Á HAUSTVÖKU
eftir Brian Friel
7. sýn. á morgun, 8. sýn. lau. 20/3, fim.
25/3.
MYFAIRLADYSöngieikur
eftir Lerner og Loeve.
Fim. 18/3, örfá sæti laus, fös. 19/3, upp-
selt, fös. 26/3, uppselt, lau. 27/3, uppselt,
fim. 1/4, fös. 2/4, örfá sæti laus.
MENNIN GARVERÐLAUN DV
HAFIÐ eftir Ólaf Hauk
Símonarson.
Sun. 21/3, uppselt, sun. 28/3, sun. 4/4.
Sýningum fer fækkandl.
DÝRIN í HÁLSASKÓGI eftir
Thorbjörn Egner.
Lau. 20/3 kl. 14.00, uppselt, sun. 21/3 kl.
14.00, uppselt, sun. 28/3 kl. 14.00, upp-
selt, lau. 3/4, örtá sæti laus, sun. 4/4, örlá
sæti iaus, sun. 18/4 kl. 14.00, örfá sæti
laus.
Litlasviðiðkl. 20.30.
STUND GAUPUNNAR eftir
Per Olov Enquist.
Fim. 18/3, lau. 20/3, fös. 26/3, lau. 27/3,
uppselt, fös. 2/4, örfá sæti laus, sun. 4/4.
Ekki er unnt að hleypa gestum I salinn
eftir að sýning hefst.
Smiðaverkstæðið kl. 20.00.
STRÆTI eftir Jim Cartwright.
Á morgun, uppselt, fös. 19/3, uppselt,
sun. 21/3, uppselt, mið. 24/3, uppselt, fim.
25/3, uppselt, sun. 28/3,60. sýnlng, upp-
selt, fim. 1/4, lau. 3/4, mið. 14/4, fös. 16/4.
Ath. að sýnlngin er ekkl vlð hæfi barna.
Ekki er unnt að hleypa gestum i salinn
eftir að sýning hefst.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Aðgöngumiðar greiðist viku fyrir sýningu
ella seldir öðrum.
Miðasala Þjóðleikhússins er opln alla
daga nema mánudaga frá 13-18 og fram
aö sýnlngu sýnlngardaga.
Miðapantanirfrá kl. 10 virka daga i sima
11200.
Greiðslukortaþj. - Græna linan 996160.
LEIKHÚSLÍNAN 991015.
Þjóðleikhúsið -góöa skemmtun.
Starfaldraðra
Dómkirkjusókn: Fótsnyrting í safnaðar-
heimili kl. 13.30. Tímapantanir hjá Ást-
dísi í síma 13667.
Hallgrímssókn: Kl. 12.30. Súpa og leik-
fimi í kórkjallara. Fótsnyrting og hár-
greiðsla fyrir aldraða. Upplýsingar í
kirkjunni.
Safnaðarstarf
Breiðholtskirkja: Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu í dag kl. 18.30. Fyrir-
bænaefnum má koma á framfæri við
sóknarprest í viðtalstímum hans.
Kársnessókn: Samvera æskulýðsfélags-
ins í safnaðarheimilinu Borgum í kvöld
kl. 20.
Grindavíkurkirkja: Foreldramorgunn í
dag kl. 10-12.
Ráðstefnur
„Berið hvers annars byrðar“
I samvinnu við landssambönd launþega
og atvinnurekenda boðar þjóðmálanefnd
Þjóðkirkjunnar til ráðstefhu um málefni
atvinnulausra í Norræna húsinu 17.
mars. Þar verður í senn leitast við að
skilgreina þann mikla vanda sem at-
vinnuleysi fylgir og um leið að skoða
nýjar leiðir til úrbóta þar sem sjónarmið
kristinnar trúar verða í öndvegi og rétt-
urinn til vinnu og gildi vinnunnar verða
rædd í Ijósi hins kristna mannskilnings.
Ráöstefhan hefst kl. 13.30 og er öllum
opin og án þátttökukostnaðar.
Tónleikar
íslensk tónlist á
Háskólatónleikum
Miðvikudaginn 17. mars verða Háskóla-
tónleikar í Norræna húsinu kl. 12.30.
Flytjendur tónlistarinnar verða Signý
Sæmundsdóttir sópran og Chalumeaux-
trióið, sem samanstendur af Sigurður I.
Snoirasyni, Óskari Ingólfssyni og Kjart-
ani Óskarssyni. Meðlimir triósins spila
allir á klarínettur og bassetthom.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Stóra sviðið:
RONJA RÆNINGJADÓTTIR
eftir Astrid Lindgren
Tónlist: Sebastian.
Lau. 20/3 kl. 14.00, fáein sæti laus, sun.
21/3, uppselt, lau. 27/3 kl. 14.00, örfá sæti
laus, sun. 28/3, fáein sæti laus, lau. 3/4,
sun. 4/4.
Miöaverð kr. 1.100, sama verðfyrir börn
ogfulloröna.
Skemmtilegar gjafir: Ronju-gjafakort,
Ronju-bolir o.fl.
Stórasviðki. 20.00.
BLÓÐBRÆÐUR
Söngleikur eftir Willy Russell.
Fös. 19/3, fáein sæti laus, sun. 21/3, lau.
27/3, fáein sæti laus, fös. 2/4.
TARTUFFE ensk leikgerð á verki
Moliéres.
3. sýn. fim. 18/3, rauð kort giida, uppselt,
4. sýn. lau. 20/3, blá kortgilda, fáein sæti
laus, 5. sýn. mlð. 24/3, gul kort gllda, 6.
sýn. fös. 26/3, græn kort gilda.
Litiasviðkl. 20.00.
DAUÐINN OG STÚLKAN eftir
Ariel Dorfman
Fös. 19/3, fáein sæti laus, lau. 20/3, upp-
selt, fim. 25/3, fáein sæti laus, lau 27/3, fá-
ein sæti laus, fös. 2/4.
GJAFAKORT, GJAFAKORT
ÖÐRUVÍSIOG SKEMMTILEG GJÖF!
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17.
Miðapantanir í síma 680680 alla virka
dagafrá kl. 10-12.
Greiðslukortaþjónusta -
Faxnúmer 680383.
Leikhúslínan, simi 991015.
Aðgöngumiöar óskast sóttir þrem
dögum fyrir sýn.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús.
Magni Wentzel
á íslandi
Norska djasssöngkonan Magni Wentzel
er stödd á íslandi þessa viku í boði
Nordjazz og Jazzdeildar F.Í.H. Hún syng-
ur á tónleikum á Sóloni íslandusi þriöju-
dagskvöldiö 16. mars kl. 21. Meðleikarar
hennar verða þeir Kjartan Valdimarsson,
Þóröur Högnason og Pétur Grétarsson.
Fyrirlestrar
Fyrirlestrar um
alkóhólismann
Fræöslu- og leiðbeiningarstöð SÁÁ
(göngudeildin) hefur í rúmt ár staðið fyr-
ir vikulegum fyrirlestrum fyrir alkóhól-
ista, aðstandendur og annað áhugafólk.
Þessir fyrirlestrar em haldnir á þriðju-
dögum kl. 17 og em öllum opnir. I fyrir-
lestrunum em tekin fyrir ýmis mál sem
snúa að meðferð við alkóhólisma og
áhrifum hans á aðstandendur. Þriðjudag-
inn 16. mars verður fjallað um ófulikom-
inn bata. Einnig er minnt á reglulega
kynningarfundi um alkóhólisma sem em
haldnir á fimmtudagskvöldum kl. 20.
Helgina 19.-21. mars býöst alkóhóhstum
að sækja námskeið sem ber heitið „Bati
og ófullkominn bati“. Fyrirlestramir og
námskeiðin em haldin í húsakynnum
SÁÁ í Síðumúla 3-5 og fást þar allar nán-
ari upplýsingar í sima 812399.
Staða tæknimenntunar
á Islandi
Á morgun, miðvikudagmn 17. mars, kl.
16.15, flytur Guðbrandur Steinþórsson
fyrirlestur við Kennaraháskóla Islands í
stofu B-301. Heiti fyrirlestrarins er: Staða
tæknimenntunar á íslandi. Fyrirlestur-
inn er öllum opinn og þeir sem áhuga
hafa á efninu em hvattir til að koma.
Guðbrandur Steinþórsson er rektor
Tækniskóla íslands.
Leikhús
Leikfélag Akureyrar
tiínx vbínk&xx
Óperetta eftir Johann Strauss
Sýningar kl. 20.30: Fös. 26. mars,
frumsýning, UPPSELT,
lau. 27. mars, fös. 2. apríl, lau. 3.
apríl, mið. 7. april, fim. 8. apríl, lau.
10. apríl, fos. 16. apríl, lau. 17. apríl.
Sýningar kl. 17.00: Sim. 4. apríl, mán.
12. apríl.
Miðasala er í Samkomuhúsinu,
Hafnarstræti 57, alla virka daga
nema mánudaga kl. 14 til 18. Sím-
svari fyrir miðapantanir allan
sólarhringinn.
Greiðslukortaþjónusta.
Simi i miðasölu:
(96)24073.
ÍSLENSKA ÓPERAN
__jiiii
óardasfurstjnjan
eftir Emmerich Kálmán.
Föstudaglnn 19. mars kl. 20.00.
Öriá sætl laus.
Laugardaglnn 20. mars kl. 20.00.
öriá sæti laus.
Föstudaglnn 26. mars.
Laugardaginn 27. mars.
Miðasalan er opin frá kl.
15.00-19.00 daglega en til kl.
20.00 sýningardaga. SÍM111475.
GREIÐSLUKORTAÞJÓNUSTA.
LEIKHÚSLÍNAN 99-1015.
Námskeid
Menning þjóða á tímum
alþjóðlegrar fjölmiðlunar
Þann 17. mars nk. verður haldið í Há-
skóla íslands námskeið um menningu
þjóða á tímum alþjóðlegrar fjölmiðlunar
á vegum Endurmenntunarstofnunar og
hagnýtrar fjölmiölunar. Leiðbeinandi
verður bandarískur gistiprófessor, dr.
Kenneth Starck prófessor og forstöðu-
maður fjölmiðladeildar Iowa-háskóla.
Þetta námskeið er fyrst og fremst sniðið
fyrir blaðamenn, en er opið öllum sem
áhuga hafa. Skráning á skrifstofu Endur-
menntunarstofnunar Háskólans í s.
694923.
Aðlögunarnámskeið fyrir
fatlaða
Dagana 16.-18. apríl nk. gengst Sjálfs-
björg, landssamband fatlaðra, fyrir nám-
skeiði sem ætlað er hreyfihömluðu fólki.
Þetta er í fjórða sinn sem slíkt námskeið
er haldið en þau eru sniðin eftir fmnskri
fyrirmynd og hafa gefið mjög góða raun.
A námskeiðinu verður fjallað um félags-
legar afleiðingar fótlunar. Námskeiðið er
einkum miðað viö fólk eldra en 16 ára
sem hefur fatlast af einhveijum orsökum.
Þátttaka tilkynnist fyrir 5. apríl til Lilju
Þorgeirsdóttur á skrifstofutíma í síma
29133.
Fundir
Kvenfélag Óháða
safnaðarins
Aðalfundur verður haldinn nk. fimmtu-
dagskvöld kl. 20 í Kirkjubæ. Gestur
kvöldsinS verður Sigríður Hannesdóttir
leikkona.
Tilkyimingar
Havnar Hornorkestur
leikur í Kringlunni
Lúðrasveitin Havnar Homorkestur frá
Færeyjum spilar í Kringlunni í dag,
þriðjudag, kl. 15. Sveitin er skipuð 28
hljóðfæraleikurum.
Gítarinn hf.
fimm ára
Gítarinn hf. hljóðfæraverslun, Laugavegi
45, sími 22125, er fimm ára um þessar
mundir. Verslunin sérhæfir sig í
strengjahljóðfærum af öllum gerðum.
einnig eru á boðstólum fylgihlutir alls
konar fyrir strengjahljóðfæri. Á mynd-
inni má sjá eigandann, Anton Kröyer og
einn af viðskiptavinum verslunarinnar,
Rúnar Þór hljómlistarmann.
„Hárhönnun“, ný
hárgreiðsiustofa
Hárgreiöslumeistaramir Sigríður Dóra
Jóhannsdóttir og Olga Björg Másdóttir
hafa opnað nýja og glæsilega stofu að
Skólavörðustíg 6b, Hárhönnun, sími
13130. Sigríður Dóra rak áður hár-
greiðslustofuna Perlu, Vitastíg 18a. Olga
Björg starfaði einnig á hárgreiðslustof-
unni Perlu, síðasta árið sem hárgreiðslu-
meistari. Stofan er opin kl. 9-18 virka
daga og 10-13 laugardaga.
Aftur í Kringlukasti
Á morgun, miðvikudag, hefjast í Kringl-
unni markaðsdagar sem nefhdir em
Kringlukast. Þetta er í þriðja sinn sem
verslanir og þjónustufyrirtæki í Kringl-
unni beita sér fyrir tilboðsdögum undir
þessu heiti. Nú veröur hægt að velja úr
yfir 300 tilboðum af nýjum vörum. Til-
boðin gilda einungis þá íjóra daga sem
Kringlukastið stendur yfir. Veitingastað-
imir verða einnig með sérstaka rétti á
tilboði. Algengast er að veittur sé 20-40%
afsláttur af þeim vörum sem tilboðin ná
til en í sumum tilvikum er afslátturinn
enn meiri. Einnig er efnt til tveggja sölu-
leika, „stóra afsláttar" og „bílaleiks".
Útibú íslandsbanka
íFG
Nemendur í verslunarfræði í Fjölbrauta-
skólanum í Garðabæ munu opna útibú í
samvinnu við íslandsbanka miðvikudag-
inn 17. mars kl. 11.30. Útibúið verður
opið á miðvikudögum og fóstudögum út
aprílmánuð. Fjölbrautaskólinn er við
Lyngás 7-9. í útibúinu verður hægt að
sinna daglegum viðskiptum, svo sem að
greiða reikninga, leggja inn, stofna reikn-
inga og skipta ávísunum. Þetta er annað
skólaárið í röð sem nemendur skólans
starfrækja útibú í samvinnu við bankann
og er megintilgangurinn að kynna nem-
endum helstu starfsþætti banka.
Fræðslukvöld í
Háteigskirkju,
Þriðjudaginn 16. mars verður fræðslu-
kvöld í Háteigskirkju á vegum Reykja-
víkurprófastsdæmis vestra og hefst þaö
kl. 20.30. Efni kvöldsins er: Guðsþjónust-
an með sérstöku tilliti til sakramentanna.
Fyrirlesari verður sr. Amgrímur Jóns-
son dr. theol. Að loknu erindi verður
gefin kostur á fyrirspumum og umræð-
um. Kirkjukór Háteigskirkju syngur
undir stjórn dr. Orthulf Pmnner, sem
einnig mun leika á orgel kirkjunnar. Að
lokinni dagskrá mun sóknamefndin
bjóða kirkjugestum að þiggja kaffiveit-
ingar.
Garnleikur Tinnu
Dregið hefur verið í gamleik Gambúðar-
innar Tinnu. Tilefni gamleiksins var að
1. mars var ár síðan Gambúðin Tinna
flutti í nýtt húsnæði að Iljallahrauni 4,
Hafnarfirði. í leiknum var spurt hversu
margir sölustaðir á höfuðborgarsvæðinu
seldu gam frá Tinnu og er rétt svar 7.
Ails tóku um 2000 manns þátt í leiknum
og vill gambúðin þakka þeim fyrir þátt-
tökuna. Fyrstu verðlaun vom gam í
peysur á alla (jölskylduna og komu þau
í Mut Kristjönu G. Jónsdóttur. Annan til
þriðja vinning Mutu Kirsten Pálsson og
Guömunda Askelsdóttir en þær fengu
vömúttekt að upphæð 4.000 kr. Þá vora
einnig sjö ársáskriftir að prjónablaðinu
Ýr í vinning.
Lækjarbrekku
Sú nýbreytni hefur verið tekin upp á
veitingastaðnum Lækjarbrekku að bjóða
upp á Maðborð í hádeginu virka daga.
íflaðborðið inniheldur súpu dagsins með
nýbökuðu brauði, fisk- og kjötrétt í aðal-
rétt með tilheyrandi meðlæti ásamt ýms-
um léttum hádegisréttum. Réttum verður
skipt reglulega út þannig að borðið er
ekki alltaf eins. Þetta er liður í að geta
sinnt viðskiptavininum enn betur með
því að bjóða upp á fijótlegan og ódýran
mat í hádeginu. Verðið er 790 kr. á mann.
Námsstefna um sýningar
sem fjölmiðil
Norræna húsið, Menntamálaráðuneytið,
Sænska sendiráðið og Riksutallningar í
Svíðþjóð standa að námsstefnu sem ber
yfirskriftina: Sýning sem 'fjölmiðill -
Ustallningen som medium. Námsstefnan
fer fram í Norræna húsinu laugardag 20.
mars og sunnudag 21. mars. Hún hefst
kl. 9.30 á laugardag og stendur til kl. 18.
Á sunnudag hefst hún kl. 10 og stendur
til 16.45. Námsstefnan er einkum ætluð
starfsfólki safna og þeim sem vinna við
sýningar en allir sem áhuga hafa em
velkomnir. Skráning fer fram á skrifstofu
Norræna hússins, s. 17030, fyrir 16. mars.
Opið frákl. 18 öll kvöld
Síminn er 67 99 67
178 - Reykjavík
^Laugavegi