Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1993, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.03.1993, Qupperneq 32
x T A O X I Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Riístjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími ÞRIÐJUDAGUR 16. MARS 1993. Hæstaréttur í dag: Nýirfletiríbarns- ránsmálinu Málflutningur hófst í Hæstarétti í __inorgun í sakamáli ákæruvaldsins á hendur Bandaríkjamönnunum Don- ald M. Feeney og Brian Grayson vegna bamsráns. Samkvæmt heim- ildum DV verða nýjar áherslur lagð- ar fram í málinu - bæði frá veijend- um og Hallvarði Einvarðssyni ríkis- saksóknara sem flytur máhð sjálfur af hálfu ákæruvaldsins. Hallvarður mun m.a. kynna undir- skriftir fjögurra lögreglumanna frá Lúxemborg sem útbjuggu skýrslu með endursögn af yfirheyrslum þeirra yfir þremur Bandaríkjamönn- um sem fóru með eldri dóttur Emu Eyjólfsdóttur þangað. Skýrslan hef- ur einmitt verið bitbein lögmanna sem koma að máhnu enda hefur ákæruvaldið byggt sókn sína að tals- Vert miklu leyti á henni. Gögn með undirskriftunum eru nýlega komin th landsins. Það sem verjendur munu m.a. leggja áherslu á í dag era staðreynd- ir sem komið hafa fram í gögnum málsins. Þar kemur fram að dóttirin, sem var numin á brott til Lúxem- borgar, upplýsti hjá RLR eftir að hún kom heim að stjúpafi hennar, faðir Ernu, sem starfar hjá Fríhöfninni í Keflavík, hefði hringt í Lúxemborg- arlögregluna og tilkynnt um j>bamsrán“ áður en íslenska lögregl- an hringdi út. Þetta þýðir að sú full- yrðing ákæruvaldsins fyrir héraðs- dómi að Lúxemborgarlögreglan hefði ekki getað verið búin að mynda sér skoðun á máhnu áður en íslenska lögreglan hringdi utan stenst ekki. Veijendumir hafa að einmitt að miklu leyti kastað rýrð á trúverðug- leika skýrslunnar sem ekki var und- irrituð afi þeim sem hún var tekin af, það er Bandaríkjamönnunum þrem- ur. Búist er við að málilutningur standi fram yfir hádegi í dag og er dóms að vænta á næstu vikum. -ÓTT ÚA og Mecklemburger: Samningar innsiglaðir Gylfi Kristjánsson, DV, Akuieyri: Kaupsamningur Utgeröarfélags Akureyringa á meirihluta í þýska útgerðarfyrirtækinu Mecklemburg- er Hochseefisheri verður skrásettur í Berlín á morgmi og kaupin eru þar með frágengin. í vikulokin verður samningurinn síðan undirritaður á Akureyri að viðstöddum sjávarút- vegsráðherrum íslands og Þýska- lands. ÚA kaupir 60% hlutafjár fyrirtæk- isins fyrir um 240 mihjónir króna en fyrirtækið á 8 frystitogara sem era fullkomnir og vel búnir tækjum. Eig- infjárstaða fyrirtækisins er jákvæð um 1200 mihjónir íslenskra króna. LOKI Getum við ekki hefnt okkar á frönsku kartöflunum? Glataði greiðslu kortanótum fyr- ir 2 milljónir Komið hefur í Ijós að fyrrum starfsmaður hjá Flugferðum-Sólar- flugi hf. glataði um 80 greiðslu- kortaseðlum, að andvirði hátt í 2 mihjónir króna, þegar ferðaskrif- stofan var enn í fuhum rekstri. Félagið telur sig nú eiga þessa upp- hæð inni hjá 80 einstaklingum. Guðni Þórðarson, sem rak feröa- skrifstofuna, hefur fengið lögmann tii að innheimta kröfurnar hjá þeim viðsiuptavinum sem þarna eru taldir hafa átt hlut að máli. Að sögn lögmanns Guðna kom í ljós þegar varið var að stemma af bókhaid fyrirtækisins fyrir árið : 1991 að engar tekjur vegna greiöslukorta höfðu komið inn fyr- ir þeim reikningum sem skrifaðir voru út til viðskiptavina dagana 18.-20. júní þaö ár. Nóturnar hafi því aldrei farið i innheimtu. Þegar máhð var kannað betur kom síðan í ljós að Ijóst þótti að starfsmaður hafði einhverra hluta vegna fieygt eða glatað um 80 greiðslukortanót- um. Andvirði þeirra er hátt í 2 milljónir króna. ; Lögmáðurinn hefur þegar sent út 30 bréf til þeirra farþega sem taldir eru hafa greitt ferðir sínar með greiðslukörtúm þessa daga. Unniö er að því aö útbúa bréf th hinna 50. Eftir að bréfin vora send kom lúns vegar í ljós að sumir þessara aðha telja sig vera búna að greiða sína reikninga. Þar af er DV kunn- ugt um einn farþega sem greiddi reikning sinn á annan hátt en með greiðslukorti enda hefur viðkom- andi ahs ekki haft slík kort undir höndum. Að sögn lögmannsins eru Flug- ferðir-Sólarflug ennþá lögaðih - enginn hefur komið fram ennþá sem krafist hefur þess aö félagiö verði úrskurðað gjaidþrota þrátt fyrir að það hafi skyndhega hætt rekstri á síðasta ári. í innheimtubréfum, sem send verða til fárþeganna, er þeim boðið að greiða uppsettar kröfur án vaxta eöa kostnaðar - eingöngu höfuðstól ætlaðrar skuldar. Viðkomandi eru einnig beðnir um að athuga yfirlit: um skuldfærslur á greiöslukorta- reikninga sína. Skuldirnar nema frá um 5-100 þúsund krónum á hvern korthafa. Lögmaðurinn sagði að ef það kæmi í Ijós aö ein- hverjir sem fá bréf hafi þegar greitt ferðir sínar verði viðkomandi beönir afsökunar og slík mál að sjálfsögðu leiðrétt. -ÓTT Veðrið á morgun: * Veður kólnar Á morgun verður suðvestan- eða vestanátt, víðast stinnmgs- kaldi með ahhvössum éljum suð- vestanlands en snýst th vaxandi norðan- eða norðvestanáttar með éljagangi norðanlands. Austan- lands léttir heldur th. Kólnandi veður. Veðrið í dag er á bls. 28 ForsetiASI: Tökum gagnrýni W Jóhönnuekki alltofalvarlega 5 „Ríkisstjómin hefur ekki formlega svarað þeim tihögum í atvinnumál- um sem við lögðum fram. Eina við- bragðið, sem komið hefur, er hin neikvæða afstaða Jóhönnu Sigurðar- dóttur félagsmálaráðherra. Við vhj- um ekki taka það ahtof alvarlega á þessu stigi. Við væntum þess að þetta sé ekki marktækt um almenn við- brögð ríkisstjórnarinnar við tihög- unum. Við leyfum okkur að vonast eftir jákvæðu svari hennar," sagði Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, um gang mála í kjarasamningunum. Ráðherrar hafa sagt að þeir geti ekki tekið afstöðu th atvinnumálatil- lagnanna fyrr en þeir hafi séð allar kröfur ASÍ á hendur ríkisstjóminni. Benedikt var spurður hvenær þeirra væn von: „Vinna við þær kröfur er í gangi milli ASÍ og VSÍ. Við alþýðusam- bandsmenn leggjum á það mikla áherslu, og kannski vinnuveitendur líka, að ná saman um meginþætti þeirra tihagna sem við leggjum fram við stjórnvöld. Við teljum það vigta þyngra ef aðhar vinnumarkaðarins koma sameiginlega fram með thlög- ur í þessum efnum,“ sagði Benedikt Davíðsson. -S.dór Isfanghf. Stöðvar fiskút- f lutning til Frakklands - vegnaóeirða Franskir sjómenn henda kassa með innfluttum fiski í Boulogne. íslenskur fiskur var meðal annars eyðilagður á markaðnum. Símamynd Reuter „Eg hef ákveðið að stöðva allan fiskútflutning th Frakklands vegna þessara skemmdarverka franskra sjómanna á fiskmörkuðunum. Ég flyt fiskinn þess í stað á þýska og belgíska markaði," sagði Ólafur Hall- dórsson, framkvæmdastjóri ísfangs hf. á ísafirði. Ólafur segist hafa beðið umboðsaðila úti að halda frysta fisk- inum í Hohandi. „En ferskum fiski höfum við beint th Belgíu og Þýskalands," sagði Ólaf- ur. Hann hefur flutt út karfa og lúðu. Ólafur sagðist hafa fengið þau svör frá tryggingafélagi sínu að það myndi ekki bæta tjcm Sem hugsanlega yrði vegna óeirða franskra sjómanna. Þó væri hægt að kaupa svokahaða stríðstryggingu sem myndi ná yfir skaða sem orðið gæti á frönsku mörkuðunum. Vilhjálmur Vhhjálmsson, fram- kvæmdastjóri Aflamiðlunar, sagði það áberandi að menn væru að draga úr fiskútflutningi th Frakklands af ótta við að verða fyrir tjóni vegna aðgerða frönsku sjómannanna. -S.dór kúlulegur Poulsett SuAurlandsbraut 10. 8. 686488. I

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.