Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1993, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1993, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 25. MARS 1993 Fréttir Sólbaðsstofuræninginn neitar að haf a nauðgað - ber fyrir sig minnisleysi vegna lyfla- og áfengisneyslu Sólbaðsstofuræninginn svokallaði, Björgvin Rikharðsson, 26 ára, sem ákærður er fyrir tvær nauðganir á síðasta ári, neitaði fyrir héraðsdómi í vikunni aö hafa þröngvað til sam- ræðis við sig þeim konum sem hlut áttu í viðkomandi málum. Réttar- höldum í máii Björgvins er svo gott sem lokið. Málflutningi er lokið en þó á eftir að yfirheyra Gunnlaug Geirsson réttarlækni fyrir dómi vegna vinnu hans viö læknisrann- sóknir og hlut hans aö DNA-þætti annars nauðgunarmálsins. Dómurinn í héraðsdómi er fjölskip- aður. Dómsformaður er Steingrímm- Gautur Kristjánsson en héraðsdóm- aramir Ingibjörg Benediktsdóttir og Pétur Guðgeirsson eru meðdómend- ur hans. Réttarhöldin hafa farið fram í vikunni fyrir luktum dyrum eins og oftast er þegar um kynferðisafbrot er að ræða. Önnur nauðgunin, sem Björgvini er gefin aö sök, var framin á Akur- eyri síðasthðið sumar. Þá kærði kona mann sem braust inn í íbúð til henn- ar og neyddi hana til ýmissa kynferð- islegra athafna eftir að hafa hótað að gera bömum hennar mein. Þessu neitar Björgvin þrátt fyrir niðurstöð- ur úr DNA-rannsókn lögreglu sem bendir til að hann hafi verið að verki. Vegna þessa máls hefur konan kraf- ist þriggja milljóna króna í skaða- bætur. Hin nauðgunin sem Björgvini er gefin að sök átti sér staö í Hafnar- firði í september. Björgvin hefúr við- urkennt að hafa haft samræði við konuna sem kærði þá nauðgun en ekki að hafa þröngvað henni til þess. Björgvin er einnig ákærður fyrir aö hafa rænt og ógnað konu með hnífi á sólbaðsstofunni Sól Saloon í nóvember. Vegna þessa máls hefur ákærði ekki þrætt fyrir það sem á hann er borið en kveðst lítið muna vegna lyfja- og áfengisneyslu. Fjórða málið er ákæra vegna fjög- urra fjársvikabrota, svika með bíla- leigubíl, hótelsvik og fleira. Fimmta málið er vegna ölvunaraksturs. Björgvin Ríkharðsson hefur setið í gæsluvaröhaldi frá í nóvember en þá var hann handtekinn eftir sól- baðsstofuránið. Máhð verður endan- lega tekið til dóms eftir að réttar- læknirinn hefur verið yfirheyrður í næstu viku. Búast má við að dómur gangi í apríl. -ÓTT Hrefha Einarsdóttir, sem gekkst undir lifrarskiptaaðgerð á Sahlgrenska sjúkrahúsinu 2. mars síðastliðinn, var útskrifuð af sjúkrahúsinu á fóstudaginn.' Býr hún nú í leiguibúð í Gauta- borg ásamt Ernu systur sinni. Fer Hrefna reglulega í skoðun á sjúkrahúsinu fyrst um sinn. „Hrefna var í skoðun í fyrradag og kom mjög vel út úr öllum próf- unutn. Þetta hefur gengið afskap- lega vel fram til þessa og gerir það vonandi áfram,“ sagði Erna viðDV. Erna sagði aö einkenni um að líkaminn haihaði nýju lifrinni gætu komið fram allt að einu ári eftir aögeröina. Þótt velgengni eftir aögerðina gæfi tilefhi til bjartsýni tæki Hrefna þó einn dag í einu. -hlh Lögreglumenn í Grafarvogi og Breiðholti, Þórhallur Arnason og Amþór Bjarnason, með þýfi sem kom í leitirnar i gær. Buið var að selja það inn á heimili vitt og breitt um borgina. DV-mynd Sveinn Þýfi finnst úr mánaöargömlu innbroti: Unglingar hjálpuðu til við lausn málsins Lögreglumenn í Breiðholti og Grafarvogi hafa fengið í hendurnar þýfi úr um mánaðargömlu innbroti i Seljaskóla. Haft var uppi á þýfmu í samvinnu við unglingana í Breiðholti og Graf- arvogi. Um vikuvinna hefur farið í að hafa uppi á góssinu en búið var að selja það inn á heimili vítt og breitt um borgina. Meðal þess sem stohð var og komið hefur í leitimar er tölva, tvær ritvél- ar og útvarpstæki. Þýfinu verður skhað í hendur réttmætra eigenda í Seljaskóla. -ból Tvítugur karlmaöur tekinn með amfetamín: Ætlaði að drýgja ef nið og selja Fíkniefnalögreglan réðst til inn- göngu í hús í miðbænum aðfaranótt laugardags og fann við húsleit um 15 grömm af amfetamíni. Húsráð- andinn, sem er tvítugur karlmaður, var handtekinn og færður til yfir- heyrslu. Við yfirheyrslu viðurkenndi hann að hafa ætlað að drýgja fíkniefnið og selja það síðan. Maðurinn hefur áður komið við sögu lögreglu vegna fíkni- efna. Máhð er tahð upplýst og er maðurinn laus úr haldi. -ból í dag mælir Dagfari Iðrunarf ullur dómari Dómstólar landsins hafa yfirleitt það verkefni að taka fyrir ágrein- ingsefhi og úrskurða um rétt og rangt. Dómstólar dæma þá sem eru ákærðir, ef þeireru fundnir sekir, og sýkna þá sem ranglega em bom- ir sökum. Dómstólar era sem sagt öryggisventhl í réttarríkinu, þar sem almenningur má jafnan treysta því aö dómar falli í sam- ræmi viö lög og rétt. Þessu verkefni sínu sinna dómarar landsins aha jafna. Þeir taka við stefnum, taka fyrir máhn og kveða svo upp sína dóma þegar málflutn- ingur hefur farið fram. Með þeim hætti er málsaðhum yfirleitt kunn- ugt um hvað málum hður og fá fyrstir aö heyra málalok. Sama ghdir um Hæstarétt en þangað geta dæmdir menn og sakbomingar áfrýjað sínum málum ef þeir telja von um aðra og hagstæðari niöur- stöðu. Hæstiréttur hefur lokaorö um sekt eða sakleysi þeirra sem skjóta ágreiningi sínum th dóm- stóla. En þAta er ekki ahtaf svona. Þaö er ékki ahtaf eða allir dómstólar og dómarar sem hta á þaö sem hlut- verk sitt að dæma í málum. Og jafn- vel þótt þeir dæmi er það ekki endi- lega verkefni þeirra að birta dóma þeim sem þá hljóta og þaö er ekki heldur skoöun ahra dómara að nauðsynlegt sé að fuhnusta þeim dómum sem þeir að lokum kveða upp. Hjá héraðsdómi Reykjaness era starfandi dómarar sem telja það í hæsta máta óviðeigandi að þeir taki mál fyrir sem þeim er gert að fjalla um. Þar að auki finnst þessum sömu dómuram alger óþarfi að eyöa tíma eða pappír í það að birta dóma sína, heldur sé það meira prívatmál þeirra sjálfra hvaða dóma þeir kveða upp. Þannig hefur nýlega verið bent á dómsmál sem var kært árið 1986 og þar sem það tók dómarann í héraðsdómi Reykjaness þrjú ár að kveða upp dóminn. Síðan hðu önnur þrjú ár, áður en dómarinn sá ástæðu th að birta hinum dæmda dóminn. Þetta er athyghsverð dómgæsla og sjálfsagt hefðu margir skúrk- amir í landinu áhuga á því aö fá þennan dómara th að fjaha um sín mál. Dagfari bendir á að það er farælast fyrir skúrkana að fremja sín afbrot í Reykjaneskjördæmi, ef þess er nokkur kostur, vegna þess aö héraðsdómur Reykjaness er frægur fyrir aö eiga fleiri en einn og fleiri en tvo dómara sem láta ekki dómsmál sín tefja sig frá öðr- um störfum eða áhugamálum. Hvers vegna ættu líka dómarar að flýta sér við dómsuppkvaðningar? Þeir veröa að gefa sér góðan tíma og jafnvel þótt þeir komi því í verk að kveða upp dóminn, þá geta atvik verið með þeim hætti að það komi hinum dæmda hla að fá birtan dóminn th fullnustu hans. Þetta mál dómarans í Reykjanesi, og sá dráttur sem varð á dómtöku og birtingu, hefur orðið thefni þess að Hæstiréttur hefur veitt um- ræddum dómara áminningu. Sak- sóknari ætlar að gefa út ákæra á hendur dómaranum fyrir afglöp í starfi. Það mál verður væntanlega tekið fyrir í héraðsdómi Reykja- ness og er óþarfi að hafa miklar áhyggjur af því, ef miðaö er við fyrri reynslu. Þaö mun sjálfsagt taka ein sex ár að finna út hvort þessi dómari er hæfur eða ekki. Þeir gera ekki mikið annað á með- an. Það er auðvitað miklu hagkvæm- ara fyrir skúrka og afbrotamenn að dómstólamir einbeiti sér að því að dæma dómara í stað þess aö dæma sakbominga. Ef dómstólam- ir og sjálfur Hæstiréttur fá mörg svona mál th meðferöar, þar sem dómar snúast um dómara, geta dómarar tekið sér góðan tíma th að finna út hvort það telst glæpur að stinga þeim dómum undir stól, sem hugsanlega orka tvímæhs og geta verið meiri áfelhsdómar yfir dómurunum heldur en þeim sem dæmdir era. Þeir sem dæma geta sem sagt auðveldlega og augljós- lega veriö verri en þeir sem dæmd- ir era. Og ef það er niðurstaöan að dóm- arinn sé skúrkminn í þessu máh en ekki sá sem dæmdur var, hvers vegna ætti þá dómarinn að flýta sér að opinbera sinn eigin aumingja- skap? Er þá ekki miklu betra að reyna að gleyma þessum dómi heldur en að kveða hann upp og birta hann öðrum manni en þeim sem raunverulega er sekur í mál- inu? Átti dómarinn kannske að dæma sjálfan sig? Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.