Dagblaðið Vísir - DV - 25.03.1993, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 25. MARS 1993
9
Utlönd
Valdakerfið í Rússlandi
Stjórnmálabaráttan í Rússlandi snýst um einfalt atriði: Hver á að stjóma landinu; forsetinn eða
þingið? Aðalmennirnir í valdataflinu og helstu valdastofnanir:
Löggjafarvaldið
FULLTRÚAÞINGIÐ
1033 menn eiga sæti á
þinginu. Þeir voru
kjörnir á tímum
Sovétríkjanna. Tvo
þriðju atkvæða þarf til
að svipta Jeltsín
völdum. 86%
þingmanna eru lyrrum
embættísmenn ur
kommúnistaflokknum.
Þingið stýrirtveimur
mikilvægum
stofnunum:
SKRIFSTOFU
RÍKISEIGNA
SEÐLABANKA
RÚSSLANDS
ÆÐSARÁÐIÐ
247 fulltrúar, flestir
fyrrum kommúnistar.
Það getur beðið
stjómlagadóm að meta
gerðirforseta.
VARAFORSETI
Alexander Rútskoj,
íhaldssamur
umbótamaður,
andstæðingur
Jeltsíns. Rútskoj
verður sjálfkrafa
forseti ef Jeltsín
verður settur af.
VARNARMÁLA-
RÁÐHERRA
Pavel Grachev.
Ræður yfir herafla
landsins. Vill ekki
beita hervaldi í
valdabaráttu þings
og forseta.
Framkvæmdavaldið
FORSETI
Borís Jeltsín. Eini
lýðræðislega kjörni
áhrifamaðurinn.
Fulltrúaþingið vill
setja hann af.
Jeltsín segist ekki
taka mark á slíkum
ákvörðunum.
FORSÆTIS-
RAÐHERRA
Viktor
Tsjernomyrdin.
Fyrrum
harðlínumaður sem
tekið hefur afstöðu
með Jeltsín. Hefur
ORYGGISMALA-
RÁÐHERRA
Viktor Barannikov.
Ræður KGB. Hefur
ekkert látið uppi um
afstöðu sína. Gaf
áður í skyn að
hann yrði hlutlaus.
staðið utan
valdabaráttunnar
síðustu daga.
INNANRÍKIS-
RÁÐHERRA
Viktor Jerh. Ræður
lögreglunni og
hersveitum
innanríkisráðuneytis
og villhalda liði sínu
utan við baráttuna.
Heimild: USATODAY
HAGKVÆMIR
DeLonghi
HITAGJAFAR
Rafmagnsþilofnar með þrískiptum
hita og sjálfvirkum hitastilli:
500 W f/baðherb.
750 W
400/600/1000 W
600/900/1500 W
750/1250/2000 W
2000 W m/viftu
Kr. 5.215,-
Kr. 4.460,-
Kr. 5.350,-
Kr. 5.605,-
Kr. 6.165,-
Kr. 10.305,-
Olfufylltur rafmagnsofn m/vlftu.
33% fljótari að hita en nokkur annar
rafmagnsofn.
Þrlskiptur hiti 750/1250/2000 W og
þú notar ofninn með eða án blásturs
eða blástur eingöngu. Tlmarofi með
fyrirframstillingu.
Verð aðeins kr. 11.970,- stgr.
Innrauður gashltaofn með þremur
hitaflötum og -stillingum.
Eldsneyti: Progangas
Varmaorka: 1400-4500 W
Eyðsla: 120-350 g/klst.
Utanmál: 844xD39xH72 cm
Verð aðelns kr. 11.940,- stgr.
Rafmagnshitablásarar, 1000/2000 W
+ kaldur blástur með hitastilli til jafnr-
ar hitunar.
T-02 sá mest seldi Kr. 3.790,-
PT-2 með rofahlíf Kr. 4.075,-
V-02 m/veggfestingu Kr. 4.095,-
Beðið eftir úrslitastund í valdabaráttimni í Rússlandi:
Jeltsín treystir
á málamiðlun
- þingfundur á morgun ræður úrslitum um framtíð forsetans
Borís Jeltsín Rússlandsforseti hef-
ur lýst áhuga sínum á að ná sam-
komulagi við Ruslan Kaspulatov,
forseta þingsins um framtíð stjórn-
skipunar landsins. Þeir komu saman
til fundar í gær og reyndu að finna
lausn á ágreiningsmálum sínum en
án árangurs.
Fulltrúaþingið kemur saman til
fundar á morgun og þar kann að
ráðast endanleg hver verður framtíð
Jeltsíns forseta. Þingið er honum
andsnúið en þar þarf aukinn meiri-
hluta eða tvo þriðju atkvæöa til að
vísa honum frá embætti.
Þar eru kommúnistar liðsterkir
enda þingið kjörið meðan Sovétríkin
voru enn til. Óvist er þó hvort þing-
menn leggja í að hrekja Jeltsín úr
embætti því hann á traust fylgi með-
al þjóðarinnar og auk þess hika her
og lögregla við að beita sér gegn lýð-
ræðislega kjömum forseta.
Jeltsín bauð að falla frá fyrri
ákvörðun sinni um að stjórna með
tilskipunum gegn því að þingið félhst
á að þjóðaratkvæði um framtíðar-
skipan stjómkerfisins færi fram í
friði þann 25. apríl. Um þetta varð
ekki samkomulag en búist er við að
Jeltsín forseti leiti enn málamiðlana
í dag.
Jeltsín nýtur þess að leiðtogar á
Vesturlöndum hafa almennt lýst yfir
stuðningi viö hann. Þetta ræður þó
ekki úrshtum því víða í Rússlandi
er htið á yfirlýsingar erlendra þjóð-
höfðingja sem afskipti af innanröds-
málum. Reuter
Hægri mönnum í Frakklandi spáð enn stærri sigri:
Táraflóð á síðasta f undi
ríkisstjórnar sðsíalista
Tárin flóðu þegar ríkisstjóm sós-
íalista í Frakklandi hélt síðasta fund
sinn í gær mitt í spám um að sigur
hægri flokkanna í síðari umferð
þingkosninganna á sunnudag gæti
orðið miklu stærri en áður var búist
við.
Leiðtogar hægri flokkanna deildu
hins vegar um kröfur um afsögn for-
setans og um frambjóðendur í að
minnsta kosti tólf kjördæmum.
Valéry Giscard d’Estaing, fyrram
forseti og leiðtogi lýðræðisbanda-
lagsins, UDF, setti ofan í við Jacques
Chirac, leiðtoga gaulhsta, fyrir að
krefiast afsagnar Mitterrands.
„Það verður aö virða leikreglur
stjómarskrárinnar. Við eram ekki
land án laga og stjómarskrár,” sagði
Giscard.
Francois Mitterrand Frakklandsfor-
seti var i forsæti síöasta fundar rfkis-
stjórnar sósíalista í gær.
Teikning Lurie
Gaullistinn Edouard Balladur, sem
tahð er að verði næsti forsætisráð-
herra Frakklands, reyndi að lægja
deilurnar og sagði að ekki ætti að
gera of mikið úr yfirlýsingum
Chiracs.
Skoðanakannanir eru bannaöar
milh umferða en einn sérfræðingur
sagði í viðtali við sjónvarpsstöðina
TFl að rökrétt væri að ætla að hægri
flokkarnir fengju 500 þingsæti af577.
Leiðtogar sósíahsta sögðu að flokk-
ur þeirra myndi hugsanlega ekki
halda í nema 40 þingsæti af þeim 276
sem hann hefur nú nema vinstri-
menn og þeir sem heima sátu í fyrri
umferðinni fylktu hði á bak við fram-
bjóðendur flokksins.
Reuter
Dé Longhl raf- og gashitarar:
Úrvalsvara á verði sem á sér
vart nokkra hliðstæðu.
GÓÐIR GREIÐSLUSKILMÁLAR
ÆOnix
HATUNI 6A SÍMI (91)24420