Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.1993, Page 29
MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ1993
41
Veiðivon
Leikhús
Allt í veiðiferðina
ÞÓRISVATN OG ODDASTAÐAVATN
GÓÐ VEIÐI
Þverá í Borgarfirði:
135 laxar hafa veiðst
LAUGAVEGI 178, SÍMAR 16770 - 814455, FAX 813751
Styrkur úr Minning-
arsjóði Jóns Jóhann-
essonar prófessors
Styrkur var nýlega veittur úr Minningar-
sjóði dr. phil. Jóns Jóhannessonar pró-
fessors. Styrkinn hlaut að þessu sinni
Aðalheiður Guðmundsdóttir. Aðalheiður
hefur stundaö nám við Háskóla íslands.
Hún er nú að semja kandídatsritgerð í
íslenskum bókmenntum um ævintýra-
minnið um vondu stjúpuna, þ.e. „stjúpu-
og álagaminnið". Minnignarsjóður dr.
phil. Jóns Jóhannessonar prófessors er
eign Háskóla íslands. Tekjum sjóðsins er
varið til þess að veita stúdentum eða
kandídötum í íslensku og sagnfræði
styrki til einstakra rannóknaverkefna er
tengjast námi þeirra.
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu í dag kl. 13-17. Frjáls
spilamennska, kafB og spjall.
Orðuveitingar
Samkvæmt tillögu orðunefndar hefur
forseti íslands sæmt eftirtalda íslendinga
heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu:
Böðvar Bragason, lögreglustjóri, Reykja-
vík. Stórriddarakross fyrir störf í opin-
bera þágu. Gestur Fanndal, kaupmaður
Siglufirði. Riddarakross fyrir störf að fé-
lags- og atvirmumálum. Guðjón Ármann
Eyjólfsson, skólastjóri Stýrimannaskól-
ans. Riddarakross fyrir störf aö fræðslu-
málum sjómanna. Hanna Johannessen,
Reykjavik. Riddarakross fyrir störf að
líknarmálum. Indriði Pálsson forstjóri,
Reykjavík. Stórriddarakross fyrir störf
að atvmnumálum. Jón I. Guðmundsson
yfirlögregluþjónn, Selfossi. Riddarakross
fúrir störf að félagsmálum. Jón Ólafsson
bóndi, Eystra-Geldingaholti, Gnúpveija-
hreppi. Riddarakross furir störf að fé-
lagsmálum. Jónas Bjamason yfirlæknir,
Hafnarfirði. Riddarakross fyrir læknis-
störf. Jósafat Hinriksson forstjóri,
Reykjavík. Riddarakross fyrir störf aö
atvinnumálum. Markús Runólfsson
bóndi, Langagerði. Riddarakross fyrir
uppgræðslu og skógrækt. Ólöf Kolbrún
Harðardóttir óperusöngvari, Reykjavík.
Riddarakross fyrir störf að tónlistarmál-
um. Rannveig Böðvarsson, Akranesi.
Riddarakross fyrir störf að útgerðarmál-
um. Stefanía María Pétursdóttir, formað-
ur Kvenfélagasambands íslands, Reykja-
vík. Riddarakross fyrir störf að félags-
málum. Þorkell Sigurbjömsson tónskáld.
Riddarakross fyrir tónsmiðar.
Safnaðarstarf
Áskirkja: Opið hús fyrir alla aldurshópa
þriðjudag kl. 10-12 og 13-16.
Hallgrímskirkja: Fyrirbænaguðsþjón-
usta þriðjudag kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Langholtskirkja: Aftansöngiu- alla virka
daga kl. 18.00.
Seltjarnarneskirkja: Foreldramorgunn
þriðjudag kl. 10-12.
Svölúleikhúsið
Svöluleikhúsinu hefur verið boðið á tvær
erlendar listhátíðir nú í júní. Dans- og
tónlistarhátíðina i Kuopio í Finnlandi og
ReyKjavíkurdaga í Bonn, Þýskalandi.
Flokkurinn fer með sýningu sem ber yfir-
skriftina „Ertu svona kona?“. Hún var
sýnd á Listahátíö 1 Keykjavík í fyrra og
er samansett af tveimur sjálfstæðum ein-
þáttungum. Annar einþáttungurinn ber
heiti sýningarinnar „Ertu svona kona?“
en hin heitir „Andinn í rólunni". Sýning-
in er samin af Auði Bjamadóttur við tón-
list eftir Hákon Leifsson. Sýningin var
samvinnuverkefhi við Þjóðleikhúsið.
Tilkynrdngar
Kringlukast í Kringl-
unni 22.-24. júní
Á morgun hefjast markaðsdagar Kringl-
unnar sem nefndir era Kringlukast. þar
bjóða 65 verslana- og þjónustufyrirtæki
Kringlunnar ótal tilboð á nýjum vörum.
Kringlukast stendur frá þriðjudegi til
fimmtudags og er hægt að gera mjög góð
kaup á sumarvörum og ýmsum öðrum
vörum, fá mat á veitingastöðum á tilboðs-
verði og taka þátt í skemmtilegum leikj-
um. Efnt er til tveggja skemmtilegra
leikja á Kringlukasti sem báðir tengjast
vel markaðsþema daganna.
Iðnskólanum í Reykja-
vík slitið
Iðnskólanum í Reykjavík var slitið
fimmtudaginn 27. maí. Athöfnin fór fram
í Hallgrímskirkju. í ávarpi Ingvars Ás-
mundssonar skólameistara kom fram að
á haustönn stunduðu 1590 nemendur
nám í dagskóla og 294 í kvöldskóla eða
tæplega 1900 nemendur alls. Skólinn fékk
sérstaka viðurkenningu fyrir markvisst
vinnuvemdarstarf á vinnuvemdarári.
Fyrstu skrefm í að innleiða altæka gæða-
stjómun vora stigin á þessum vetri og
skólinn fékk tilnefningu til hvatiúngar-
verðlauna Gæðastjómarfélags íslands. Á
skólaárinu var nýr hugbúnaður tekinn í
notkun við nemendaskráningu og
stundaskrárgerð.
„Það eru komnir 135 laxar á land
og hann er 18 punda sá stærsti, hann
veiddist í kvöld í Kjarrá,“ sagði Ólaf-
ur Hrútfjörð í veiðihúsinu við Þverá
í gærkvöldi.
„Þetta er allt að lifna við og veiði-
menn verða mikið varir við laxa,
sérstaklega í Þveránni," sagði ÓU í
lokin.
Opnunarhollið
veiddi 20 laxa
„Opnunarhollið veiddi 20 laxa, það
var Upp- og Niðurgengið, núna eru
komnir 28 laxar á land,“ sagði kokk-
urinn í veiðihúsinu við Miðfjarðará
í gærkvöldi.
Frábær silungsveiði
í Rangáropnun
„Það veiddust um 40 siiungar í opnun
Rangánna og hann var 13 pund sá
stærsti, Ægir Garðar Gíslason veiddi
fiskinn," sagði Þröstur Elliðason á
Rangárbökkum í gærkvöldi.
„Þetta voru 20 urriðar, 10 bleikjur
og 10 sjóbirtingar. Flestir veiddust
silungamir á flugu. Það sáust laxar
í Ægissíðufossi en þeir tóku ekki,“
sagði Þröstur ennfremur.
Steinafljótið gaf
17 punda lax
„Víðidalsá hefur gefið 25 laxa og
hann er 17 pund sá stærsti, veiddist
í Steinafljótinu,“ sagði Magnús Jón
Sigurðsson í gærkvöldi er við spurð-
um um ána.
Korpa:
-18 punda lax í Kjarrá í gærkvöldi
• Ægir Garðar Gíslason með 13 punda urriðann sinn í gærkvöldi er Rangárnar voru opnaðar i gær og veiddust
40 silungar fyrsta daginn. DV-mynd G.Bender
„Holhð veiddi 10 laxa en við vor-
um í Víðidalsánni í þrjá daga. Það
hefur veiðst svolítið af niðurgöngu-
fiskum. Það er rosalegt vatn í ánni
og það er flugan og spúnninn sem
gefa fiska. Vatnsdalsáin hefur gefið
kringum 10 laxa á þessari stundu,"
sagði Magnús.
-G.Bender
TFTKTfí
UM LANfí
ALI.T
T>joólcikhusió
ÞJOÐLEIKHUSIÐ
Sími 11200
RÍTA GENGUR MENNTA-
VEGINN
eftir Willy Russel.
Mánud. 21 /6 kl. 20.30 - Akureyri.
Þriðjud. 22/6 kl. 20.30 - Dalvík.
HAFIÐ
eftir Ólaf Hauk Simonarson.
Mánud. 21/6 kl. 20.30 -Ýdölum.
Þriðjud. 22/6 kl. 20.30 - Akureyri.
Mlðvikud. 23/6 kl. 20.30 - Akureyri.
KÆRA JELENA
eftir Ljudmilu Razumovskaju.
Mánud. 21/6 kl. 21.00 - Vík i Mýrdal.
Þriðjud. 22/6 kl. 21.00 - Vestmannaeyjum.
Miðvikud. 23/6 kl. 21.00-Vestmannaeyj-
um.
Miðasala fer fram samdægurs á sýning-
arstöðum. Einnlg ertekið á móti sima-
pöntunum i miðasölu Þjóðleikhússins frá
kl. 10-17 virka daga i síma 11200.
Einn lax á fyrstu vakt
- viö vorum á bökkunum
„Við fengum einn lax í Fossinum
og hann er 5 pund, það var Rafn
Eyfell sem veiddi fiskinn," sagði
Grímur Jónsson er við hittum hann
við Korpu í gær, en áin var opnuð í
gærmorgun.
„Við urðum ekki varir við mikið
af fiski, hann er bara ekki kominn
ennþá,“ sagði Grímur og hélt áfram
að reyna.
Elliðaárnar
hafa gefiðlO laxa
„Það er gaman aö byrja svona vel í
Elhðaánum,“ sagði Sigurvin Ómar
Jónsson er við hittum hann við Ell-
iðaámar, en hann var kominn með
tvo laxa á maðkinn í ánni rétt fyrir
mat í gær. Elhðaárnar hafa gefið 20
laxa og Sigurvin er með þann stærsta
ennþá, 10 punda fisk.
„Eg hef aldrei veitt í Elhðaánum
áður en ég veiddi fyrstu laxana mína
í fyrra, tvo fiska,“ sagði Sigurvin og
hélt áfram að veiöa fleiri laxa.
-G.Bender
—
• Sigurvin Ómar Jónsson með tvo fyrstu laxana sína úr Elliðaánum á
árbakkanum í gær, 10 og 5 punda laxar á maðkinn.
• Grímur Jónsson bregur á leik
með fyrsta laxinn úr Korpu á þessu
sumri og Rafn Eyfell hefur greinilega
gaman af.
DV-myndir G.Bender