Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Side 9
FIMMTUDAGUR L JÚLÍ 1993
Utlönd
Gorbatsjovfor-
dæmir árásina á
Míkhaíl
Gorbatsjov,
fyrrum leiötogi
Sovétríkjanna,
sem studdi her-
sveitir banda-
manna undir
forustu Banda-
ríkjamanna í
Persaflóastríðinu, segir að flug-
skeytaárósin á Bagdad á sunnu-
dag sé afturhvarf til kaida stríðs-
ins þegar Bandaríkjamenn lítu á
sig sem lögregluþjón heimsins.
„Clinton forseti gerði alvarleg
mistök,“ segir Gorbatsjov í grein
sem hann skrifaði í blaðið Neza-
visimaja Gazeta í gær.
Gorbatsjov sagði að rússneska
stjómin hefði verið of fljót á sér
að leggja blessun sína yfir aðgerö-
irnar.
Ástralirþiggja
kjarnorkubætur
fráBretum
Áströlsk stjómvöld skýrðu frá
því í vikunni að þau hefðu fallist
á rúmiega tvo mifijarða króna i
bætur frá Bretum vegna hreins-
unar á menguðum kjamorkutil-
raunasvæðum í Suður-Ástralíu.
Tilraunimar voru gerðar á sjötta
áratugnum.
Hópur ástralskra fmmbyggja
bjó á tilraunasvæðinu og höföu
Ástralir farið fram á það við
Breta að þeir greiddu mestallan
hreinsunarkostnaðinn sem nam
um sjö milljörðum íslenskra
króna á núvirði.
Drykkjufélaginn
erfði þúsund
ferðirábarinn
Breski bóndinn Terry Oxley,
sem las erfðaskrána sína fyrir
nokkmm mánuðum áður en
hann lést, arfleiddi drykkjufélaga
sinn aö eitt þúsund krúsum af
bjór.
Oxley skipaði svo fyrir að lög-
fræðingur hans skyldi í viku
hverri ganga frá skrifstofu sinni
í bænum Goole að klúbbi nokkr-
um í grenndinni og borga drykki
ofan i George Cawkwéll. Sá fær
35 kr úsir af dökkum bjór á viku.
„Þetta er rétta leiðin til að
minnast Terrys. Honum þótti
sopinn góður, reyndar drakk
hann tíu krúsir á dag,“ sagði lög-
fræðingurinn.
Oxley var á sextugsaldri þegar
hann lést. Læknar höfðu varaö
hann við of mikilli drykkju og of
miklura reykingum.
Heilsufar
Francois Mit-
ierrands er við-
unandi
Francois Mit-
terrand Frakk-
landsforseti,
sem gekkst
undir aðgerð
vegna krabba-
meins í blöðm-
hálskirtli fyrir
tíu mánuðum,
er við viðunandi heilsu ef marka
má niðurstöður nýjustu rann-
sókna á honum.
Líflæknir- forsetans, Claude
Gubler, sagði í gær að forsetinn
hefði farið í læknisskoðun á
þriggja mánaða fresti fiá því að-
gerðin var gerð og allt hefði verið
eðlilegt.
Læknar Mitterrands sögðu í
desember að krabbameinið hefði
ekki tekið sig upp að nýju og for-
setinn vinnur nú fúllan vinnu-
dag. Reuter
Asökunum fyrrum ráðherra haf nað
Breska ríkisstjórnin vísaði í gær á
bug fullyrðingum Michaels Mates,
fyrrum aðstoðarráðherra írlands-
mála, um að fjársvikadeild lögregl-
unnar hefði ekki farið rétt að í rann-
sókn sinni á máli kaupsýslumanns-
ins Asil Nadir sem nú er á flótta
undan réttvísinni.
Mates hélt því fram í afsagnarræðu
sinni í breska þinginu á þriðjudag
að fjársvikadeildin hefði lekið upp-
lýsingum til fjölmiðla og beitt dómar-
ann sem fór með málið óhóflegum
þrýstingi. Hann krafðist þess að gerð
yrði opinber rannsókn á deildinni.
Nicholas Lyell, ríkislögmaður
Bretlands, hafnaði opinberri rann-
sókn. „Það er ekkert fordæmi fyrir
óháðri rannsókn og ekkert sem rétt-
lætir hana,“ sagði Lyell í ræðu í þing-
inu. Hann sagði að fullyrðingar Mat-
es hefðu verið kannaðar og þær
hefðu reynst tilhæfulausar.
Nadir flúði til norðurhluta Kýpur
í maí. Hann átti þá yfir höfði sér
ákærur fyrir þjófnað og bókhalds-
svindl í tengslum við gjaldþrot fyrir-
tækjasamsteypu sinnar.
Þá var það upplýst í fyrra mánuði
að Nadir hefði gefið íhaldsflokknum
rúmar 40 milljónir króna. Stjómar-
andstæðingar segja að með því hafi
hann verið að koma sér í mjúkinn
hjá stjórnvöldum. Reuter
Breska fjársvikadeildin fór rétt að
Asil Nadir, segir ríkisstjórnin.
rannsókn sinni á máli auðkýfingsins
Simamvnd Reuter
„Ég legg skylduspamaðinn
beint á Stjömubók.“
Svala Björk Amardóttir, fegurðardrottning íslands.
Qóðar fréttir fyrir þá sem vilja treysta
fjárhagsstöðu sína í framtíðinni!
-----0-----
Reglulegur sparnaður hefur margoft sannað gildi sitt þegar ungt fólk leggur í kostnaðarsamt nám, stofnar heimili
eða kaupir húsnæði. Nú, þegar skyldusparnaður heyrir sögunni til, er brýnt að sparnaður haldi áfram á raunhæfan hátt.
Spariáskrift að STJÖRNUBÓK er tvímælalaust góður kostur.
X Verðtryggð inneign með háum vöxtum.
X Lánsréttur til húsnæðiskaupa, allt að 2,5 milljónum króna til allt að 10 ára.
X Spariáskrift - öll innstæðan laus á sama tíma. ,
X 30 mánaða binditími. Unnt er að losa bundna innstæðu gegn innlausnargjaldi.
Það er auðvelt að safna í spariáskrift - með sjálfvirkum millifærslum af viðskiptareikningi eða heimsendum gíróseðlum.
STJQRNUBOH
BUNAÐARBANKINN
Traustur banki
I