Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Blaðsíða 36
O T I
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993.
Dagur hækkana:
Bækur, bensín
ogfargjöld
F'jórtán prósenta viröisaukaskatt-
ur'leggst á allar bækur í dag en að
sögn Ólafs Ragnarssonar, varafor-
manns Félags íslenskra bókaútgef-
enda, hefur verið talsverð viðbótar-
sala á bókum síðustu daga.
„Fólk hefur þá aðallega keypt dýr-
ari verk þar sem hægt er að spara
þúsundir króna með því að kaupa
þær án virðisaukans," sagði Ólafur.
Samkvæmt mati hagfræðistofnun-
ar HÍ kemur bóksala til með að drag-
ast saman um allt að 20% þegar á
þessu ári. Ólafur sagði að nýju bæk-
urnar sem koma í haust verði jafnvel
enn dýrari en sem nemur fjórtán
’ prósenta virðisaukaskatti þar sem
áhrif gengisbreytingar og annarra
hækkana kæmu til viðbótar.
Flugfargjöld hækka
Flugfargjöld Flugleiða í millilanda-
flugi hækka um 4% í dag og hækka
þá algeng lægri sumarleyfisfargjöld
um rúmar þúsund krónur. Hækkun
í innanlandsflugi er 4,4% og er sú
hækkun á bilinu 170-370 krónur á
fargjald.
Að sögn Einars Sigurðssonar,
blaðafulltrúa Flugleiða, lendir mest-
ur hluti sumarleyfisfargjalda fyrir
utan hækkunina þar sem þau hafa í
mörgum tilfellum verið að fullu
greidd. Ef hins vegar greitt hefur
verið inn á ferðir hækkar sá hlutinn
ekki, aðeins eftirstöðvarnar.
Allir hækka bensínverð
Olíufélögin hækka öll bensínverð í
dag. Lítrinn á mest seldu tegund-
inni, 92 oktana bensíni, hækkar hjá
Skeljungi úr 66,20 kr. í 67,70. kr. eða
um 1,50 kr. Hjá Olís hækkar sama
tegund úr 65,70 kr. í 67,90 kr. eða um
2,20. Esso hækkar einnig þessa teg-
und um 2,20 kr. eða úr 65,60 kr. í
67,80 kr.
-bm/ingo
Frá og með 1. júlí leggst 14% virðis-
aukaskattur á áskrift og lausasölu
dagblaða og tímarita og afnotagjöld
útvarps og sjónvarps.
Áskriftarverð DV verður áfram kr.
1.200 á mánuði en á það leggst 14%
virðisaukaskattur, kr. 168, svo að
áskriftarverð í heild verður kr. 1.368.
Lausasöluverð á virkum dögum
verður með sama hætti kr. 130. Helg-
arblað mun kosta kr. 170.
LOKI
Allt hækkar í dag - nema
auðvitað vinsældir ríkis-
stjórnarinnar!
É>*
Við erum að fara 1 sumarffí“
Sendir telpurnar
út fyrir Istanbúl
„Það er of seint fyrir dómarann
aö koma með þetta núna. Ég er
búinn að senda börnin út fyrir Ist-
anbúl. Hann getur ekki stöðvað
mig núna. Það er of seint. Stúlkurn-
ar eru farnar í frí og ég er að fara
lika,“ sagði Halim Al, íyrrum eigin-
maður Sophiu Hansen, í samtali
við DV í gærkvöldi.
Halim var spurður um úrskurð
sem undirréttardómari í hverfi
hans, Bakirkoy í Istanbúl, kvað
upp í gærmorgun þess efnis að
Halim eigi að koma með dæturnar
Dagbjörtu og Rúnu til Sophiu að
aðsetursstað hennar í Istanbúl
klukkan 17 á morgun, íostudag.
Sophia á að hafa dætumar hjá sér
þangað til á sama tima á sunnudag
og síðan hverja helgi fram í október
- þegar aftur verður dæmt í forsjár-
málinu í Istanbúl - í raun á sama
hátt og gert var í nóvember þegar
Halim voru dæmd börnin.
Halim var spurður um það atriði
dómsúrskurðarins að tyrknesku
lögreglunni bæri að hafa uppi á
föðurnum og bömunum komi
hann ekki meö þau til Sophiu á
morgun:
„Ég hef ekki fengið tilkýnningu
um neitt slíkt. Ég get farið hvert
sem er i Tyrklandi. Það kemur eng-
um þaö við. Við erum að fara í
sumarfrí."
- Ertu að segja að þú sért að fara
í felur með börnin?
„Ég er að fara í frí og get farið
hvert sem ég vil.“
- Kemur til greina að þú farir með
börnin til annarra islamsslrúar-
landa eins og þú hefur sagt áður?
„Það getur vel verið. Guð hiálpar
Halim Al. Hann hjálpar alltaf þeim
sem gera rétt."
Gunnar Guðmundsson, lögmað-
ur Sophiu, sagði við DV i gær að
úrskurður dómsins í gær væri
miklu ákveðnari en sá sém unnið
var eftir síðastliðið sumar þegar
Hahm braut umgengnisréttinn í
ellefu skipti. „Þetta er næstum því
bankatrygging,“ sagði Gunnar.
Sophia kvaðst hafa orðiö fyrir
vissu áfalli þegar hún heyrði að
dómarinn hefði ákveðið aö hún
hitti dætumar um hverja helgi í
stað þess að sjá þær í nokkrar vík-
ur samfellt. Hún kvaðst síðan hafa
fyllst bjartsýni þegar henni var tjáð
að hliðstæður úrskurður hefði
aldrei verið kveðinn upp áður.
Guðmundur Guðmundsson,
bróðir Sophiu, sem dvelur einnig í
Istanbúl ásamt Rósu, systur þeirra,
er ekki bjartsýnn á að Halim komi
með bömin á morgun. Hann sagði
úrskurðinn í gær hins vegar gefa
vonir um að lögreglan taki á mál-
inu með afgerandi hætti.
-Ótt
Stálrykið
umsekkjað
ísaQörður:
Nýrfram-
kvæmdastjóri
sjúkrahússins
Guðjón Brjánsson hefur verið ráð-
inn framkvæmdastjóri fjórðungs-
sjúkrahússins á ísafirði frá 1. sept-
ember. Guðjón nam félagsráðgjöf í
Noregi en nemur nú tölfræöi, heil-
brigðisfræði og öldrunarfræði í
Tampa á Flórída.
Guðjón var valinn úr hópi 18 um-
sækjenda. Hann tekur við af Kristj-
áni Sigurðssyni sem ráðinn var
framkvæmdastjóri til bráðabrigða
eftir deilur um stjórn sjúkrahússins
fyrráárinu. -hlh
Dagur hækkana:
Hækka vextina
Hafist var handa við að umsekkja stálrykið við bræðslu Stálfélagsins sáluga í Hafnarfirði í vikunni. Fura hf., sem
rekur málmtætara á svæðinu, tók að sér verkið. Að sögn Sveins Magnússonar hjá Furu verður rykinu komið fyrir
í gámum. Hvað síðan gerist fer eftir niðurstöðum um efnainnihald ryksins en sýni eru til rannsóknar hjá Iðntækni-
stofnun. Sveinn sagði að fyrirtæki á Spáni væri líklegast til að taka við rykinu en ef það reyndist ekki hættulegt
væri möguleiki á að umrætt fyrirtæki tæki að sér að endurvinna það fyrir Furu. -bjb/DV-mynd GVA
Bæði sparisjóðirnir og Búnaðar-
bankinn hækka vexti í dag en slíkt
er enn til athugunar í Landsbankan-
um og íslandsbanka.
Sparisjóðimir hækka vexti í dag
af óverðtryggðum útlánum um 0,5 til
0,75% og vexti af verðtryggðum um
0,3%. Búnaðarbankinn hækkar vexti
af verðtryggðum útlánum um 0,25%.
íslandsbanki er með hæstu vexti út-
lána um þessar mundir og eru meöal-
vextir af víxillánum þar á bæ 12,8%.
-Ari
Veðriðámorgun:
Þurrt á Suð-
austurlandi
Á morgun verður norðlæg og
norðvestlæg átt, sums staðar
strekkingur austan til. Rigning
eða skúrir verða um landið norð-
anvert og ef til vill einnig stöku
síðdegisskúrir suðvestanlands. Á
Suðausturlandi verður aftur á
móti þurrt og lengst af léttskýjað.
Hiti verður 6-10 stig norðan til
en allt að 16 stig suðaustanlands.
Veðrið í dag er á bls. 44
i
i