Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Síða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Síða 27
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ1993 39 Menning Antidogma Musica Tónleikar voru í Hafnarborg í Hafnarfiröi. Voru þeir liður í Listahátíö í Hafnarfirði, sem staðið hefur undanfarinn mánuð og hillir nú undir endann á. ítölsk kammersveit, Antidogma Musica, lék verk eftir Gott- fredo Petrassi, Hauk Tómasson, Noccolo Castiglioni, Salvatore Sclarrino, Giacinto Scelsi og Enrico Correggia. Tónlist Finnur Torfi Stefánsson Antidogma Musica hefur lagt mesta áherslu á nútímatónlist og bar efnisskrá þessara tónleika þess merki. Hópurinn var aö þessu sinni skipaður Tommaso Valletti, flautu, Edmondo Tedesco, klarinett, Mar- --------------------------------------- inella Tarenghi, píanó, og Nfiis Cranitch, fiðlu. Þá var í för með hópnum Enrico Correggja, tónskáld og skipuleggjandi. Flest verkin voru í anda sjötta og sjöunda áratugarins og var að mörgu leyti fróðlegt að heyra það. Ekki fer milli mála að verk þeirra ára munu standast tímans tönn misvel og flest sennilega illa. Þau verk sem einna best hljómuðu voru verk Scelsis „Ko Lho“ og verk Sciarrino „Preghiera di ringraziamento". Styrkur beggja þessara verka var sá að ekki fór milli mála hver hugmyndin var og hvað tónskáldið var að reyna að segja. Bæði byggðu á einni tiltölulega einfaldri hugmynd tónefnis sem látið var taka á sig ýmsar fjölbreytilegar myndir. Hjá Scelsi var efnið átök tvíunda og kvarttóna við einund. Hjá Sciarrino var unnið með stutta hendingu í trillum, sem fékk á sig ýmis litbrigði. Bæði verkin voru of löng miðað við þróunarmöguleika efnisins og hlj’ómuðu eins og höfundarnir vissu ekki alveg hvað timanum leið. Sjö Miniatures eftir Hauk Tómasson hljóm- aði mjög fallega á þessum tónleikum. Þar takast á miklar andstæður, sem haldið er í böndum samhengis með skýru tónaefni. Leikur Antidogma Musica var mjög góður. Flautuleikarinn fékk einkum að spreyta sig og gerði það með sérstakri prýði. Aðrir hljóðfæraleikarar stóðu sig einnig með ágætum. Nokkrum vonbrigðum olh hve mikið var un einleiksverk og dúetta, en htið um raunveruleg samleiksverk. Það veröur að segjast eins og er, að einleiksverk fyrir flautu eru áreiðanlega eitt af því sem fólk hefur fengið leiða á eftir margra ára ofnotkun. Sviðsljós Kaplakrika Bára Sigurjónsdóttir ásamt Selmu Hannesdóttur. DV-myndir GVA Sextugsafmæli Selmu Kjarnakonan Selma Hannesdóttir nefna að hún dreif sig eftir stúdents- átti sextugsafmæh mánudaginn 21. próf 1984 í Flugskóla Helga Jónsson- júní. Selma er þekkt meöal vina ar og lauk þaðan einkaflugmanns- sinna fyrir að gera það sem hana prófi en þær eru ekki margar sem langar til. Sem dæmi um það má hafa leikið það eftir henni. Selma er gift Ríkharði Pálssyni tannlækni og á sunnudaginn tóku þau á móti gestum í sal tannlækna í Síðumúla. HMR Síðustu tónleikamir á Listahátíö í Hafnarfirði fóru fram í Kaplakrika í gærkvöldi. Þar lék enski fiðlusnill- ingurinn Nigel Kennedy ásamt hljómsveit sinni. Verk- efnin voru að mestu eftir hann sjálfan með tihagi frá kunnum meisturum eins og Vivaldi, Hendrix, Kodaly og fleirum. Stílnum má lýsa sem rokki með klassísku ívafi. Hljóðfæraskipan var að því leyti óvenjuleg að þarna lék rafmagnaður strengjakvartett með hefð- bundinni sveit tveggja gítara, bassa og tromma. Kennedy er ekki fyrsti klassískt þjálfaði tónlistar- maðurinn sem spreytir sig á því að tengja klassíska tónlist og dægurtónhst samtíma síns. Gítarleikarinn John Wihiams reyndi þetta t.d. Þá má nefna samleik þeirra fiðlara Yehudi Menuhins og Stephans Grappell- is fyrir allmörgum árum. Viðfangsefnið er ekki eins auðvelt og sýnist. Klassískt þjálfuðum tónhstarmönn- um hættir tíl að vanmeta og misskhja aðdráttarafl létttónhstarinnar. Venjulegt rokklag svo dæmi sé tek- ið er ekki merkilegt sé það skoðað sem tónsmíð. í rétt- um flutningi getur það hins vegar haft mikh áhrif vegna tjáningarmátans sem er kjarni þessarar tónhst- arheföar. Það er túlkunin sem hér er aðalatriðið. Hún er oft hrjúf og gróf en bein og persónuleg þegar vel tekst th. Annað atriði sem vefst oft fyrir klassíkst þjálfuðum tónlistarmönnum er improvisationin, spuninn, sem er annað lykhatriði í létttónlist, hvort sem rætt er um djass, rokk eöa jafnvel gömlu dansana. Spuninn birt- ist ekki aðeins í sólóum heldur htar hann ahan flutn- ing þessar tónhstar. Klassískir tónhstarmenn reyna oftast að nálgast spunann um tónstiga og tóntegund. Spuni þeirra verður oftast innantómt skalaspil, sem oft er framkvæmt með leikni og skýrleika, en hefur ekkert lagrænt gildi og verður strax mjög leiðinlegt. Djassarinn og rokkarinn nálgast spuna á allt annan hátt, jafnvel þótt þeir geri sér ekki alltaf grein fyrir því sjálfir. Góður spunamaður kemur sér upp safni af stefjum og lagbútum sem hann þrautæfir og kann aftur á bak og áfram. Þessi stef hafa margvíslegan ht og yfirbragð. Sum tekur spunamaðurinn úr safni hefö- arinnar. Ónnur semur hann sjálfur. í sólóum raðar hann þessum efnivið saman eins og andinn blæs hon- um í brjóst. Allt er vandlega æft og undirbúið fyrir- fram nema val og röðun stefja og svo auðvitað túlkun- in. Þaö er mjög fróðlegt að bera saman leik Menuhins og Grappelhs að þessu leyti. Menuhin leikur í sjálfu sér vel, en sóló hans eru andlausir tónstigar meðan Grappelh rekur upp úr sér samfehdar laglínur með stefjum sínum. Þess má geta að þessi aðferð við spuna er ekki tuttugustu aldar uppfinning. Heimhdir eru fyrir henni aftur til Býsansríkis á fyrstu öldunum eft- ir Kristsburð. Hvort sem hlýtt er á Charlie Parker og Paul Desmond eða Jerry Garcia og Erid Clapton má heyra þessa fornu hst í fuhu ghdi. Þetta má virðast nokkuð langur formáh að gagnrýni um tónleika Kennedys en þó nauðsynlegur. Ekki fór á mihi mála að hann er frábær hljóðfæraleikari. Með honum í för var einnig gott tónlistarfólk. Mikilvægur þáttur í viðfangsefnunum var einleiksspuni ofan á ein- földum hljómagrunni. Flest þau sóló urðu leiðigjörn af þeim ástæðum sem að ofan greinir. Hraði og skýr- leiki dugir skammt ef það sem leikið er hefur ekki lagrænt aðdráttarafl. í sjálfu sér býður hinn rafmagn- VERSLUNIN FLYTUR HUSGOGN , FAXAFENI5 SIMAR 674080 / 686675 /æ/_______________ Enski fiðlusnillingurinn Nigel Kennedy lék ásamt hljómsveit sinni í Kaplakrika í gærkvöldi. Tónlist Finnur Torfi Stefánsson aði strengjakvartett upp á ýmsa möguleika. En það er ekki nóg að endurtaka einfaldar hugmyndir aftur og aftur til þess að koma upp með gott popp eins og Kennedy virtist reyna að gera. Ef efnið er þunnt verð- ur túlkunin að bæta það upp. Hér stóö fiðluleikarinn höllum fæti að því leyti að hljóðfæri hans missir mik- ið af blæbrigðum sínum við rafmögnunina. í stuttu máh sagt var efnið sem strengjakvartettinn lék oftast of einhæft og sólóin voru viðvaningsleg af þeim ástæð- um sem að ofan greindi. Ekki er annað hægt en að hafa samúð meö hinum unga fiöluleikara í viöleitni hans. Auðvitað finnst hon- um freistandi að reyna eitthvað ferskara en gömlu klassíkina að minnsta kosti í bland. Nútímatónlistin mundi fuhnægja tónlistarlegum þörfum hans en ekki eftirsókn eftir frægð og frama. Ef th vhl á Kennedy eftir að ná tökum á því síðar að sameina rokk og klas- sík en af þessum tónleikum að dæma á það enn langt íland. -FTS í veislunni var bæði sungið og dans- að. Hér eru það mæðginin Selma og Smári Ríkharðsson. RAUTT UOS RAUTT LJOSf nias™" Kennedyí

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.