Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.1993, Page 18
18
FIMMTUDAGUR 1. JÚLÍ 1993
Iþróttir
Ótrúlegur
Helgi Jónsson, DV, ÓlaMrði:
Leiftursmenn komust aftur í
toppsæti 2. deildar eftir 3-2 sigur
á KA á Ólafsfiröi í gærkvöldi.
Leikurinn einkenndist af mikilli
baráttu beggja liða en þó voru
Leiftursmenn sterkari aðilinn.
Fyrri hálfleikur var markalaus
en Gunnar Már Másson skoraði
fyrsta markiö fyrir Leiftur og
þannig var staðan þar til undir
lokin en þá var stiginn mikili
darraðardans. Halldór Kristins-
son náði að jafna fyrir KA og
þegar stutt var eftir komust Ak-
ureyringar yfir með marki ívars
Bjarklind. Leiftursmenn neituðu
að gefast upp heldur skoruðu í
tvígang á lokamínútunum. Fyrst
jafnaði Pétur Björn og síðan skor-
aði Páll Guömundsson sigur-
markið og heimamenn fógnuöu
ævintýralegum sigri.
Menn Ieiksins: Páll Guðmunds-
son, Leiftri, og Ormarr Örlygs-
son, KA.
Markaregn
á Kröknum
ÞórhaHur Ásmundsson, DV, Króknum:
Stjörnumenn gerðu góða ferð á
Krókinn og unnu þar Tindastói,
3-5, í miklum markaleik í 2. deild-
inni í gærkvöldi. Stólarnir fengu
óskabyrjun og skoruðu strax á
fyrstu mínútu þegar Sverrir
Sverrisson skallaði í mark gest-
anna. Gestirnir náðu að jafna á
25. mínútu úr vafasamri vita-
spymu sem Jón Þórðarson skor-
aði úr. Stjömumenn komust síö-
an yfir á 33. mínútu þegar Leifur
Geir Hafsteinsson skoraði og
Magnús Gylfason bætti síöan
þríðja markinu við meö ævin-
týralegu skoti utan af kanti sem
sveif í boga yfir Gísla í marki
Tindastóls. Stólunum tókst þó að
klóra í bakkann rétt fyrir leikhlé
þegar Björn Björasson skoraði
með laglegum skalla.
Eínum leikmanni Stjörnunnar,
David Paikidze, var vikið af leik-
velli snemma í seinni hálfleik en
það virtist ekki há Garðbæingum
að leika einum færri þvi Bjarni
Benediktsson bætti fjórða mark-
inu við. 5 mínútum fyrir leikslok
fengu Stjömumenn víti og Jón
Þórðarson skoraði af öryggi. Á
lokasekúndunum minnkaði Guö-
bjartur Haraldsson muninn fyrir
heimamervn.
Maður leiksins: Jón Þórðarson,
Stjörnunni.
fyrir horn
Guöjón Þoisteinssan, DV, fsafeði:
Isfirðingar voru heppnír að fá
stig á heimavelli sínum í gær-
kvöldi þegar þeir fengu Þróttara
í heimsókn í 2. deildinni. Leikn-
um lauk með 2-2 jafntefli og ís-
firðingar em því enn án sigurs í
deildinni. Þróttarar komust í 0-2
með mörkum Steinars Helgason-
ar á 9. minútu og Ingvars Ólafs-
sonar 5 mínútum síðar. Á 43.
mínútu var Jóhann Ævarsson
felldur af Axel Gomes, markveröi
Þróttar, i vitateignum og Axel var
vikiö af leikvelli. Tofic Dorse
skoraöi úr vítaspymunni og
Dorse var síðan aftur á ferðinni
í upphafi síðari hálfleiks þegar
hann jafnaði beint úr auka-
spymu. Þróttarar voru betri þaö
sern eftir var leiksins en þeim
tókst ekki að tryggja sér sigur og
fsfirðingar máttu i lokin þakka
fyrir stigið.
Maður leiksins: Tofic Dorse, BÍ.
IBVdróumsókn
sínatilbaka
ÍBV hefur dregið til baka um-
sókn sína um að kvennalið félags-
ins í knattspyrnu verði tekið aft-
ur inn í deildarkeppni KSÍ. Málið
var tekið af dagskrá mótanefndar
KSÍ, sem fór fram í gær, og kom
því ekki til umræðu. Þar með er
endanlega ljóst að ÍBV leikur ekki
meira með á þessu tímabili og
þarf að leika í 2. deild á næsta ári.
„Við drógum beiðni okkar til
baka vegna þess að við höfðum
heyrt það í kringum okkur að það
væri ekki fræðilegur möguleiki á
því að við fengjum að komast inn
aftur, reglugerðin byði ekki upp
á það,“ sagði Þór Vilhjálmsson,
formaður Þórs Vestmannaeyjum,
í samtali við DV. -ih
Agassi úrleik
áWimbledon
Bandaríkjamennirnir Jim Co-
urier, Pete Sampras, Svíinn Stef-
an Edberg og Þjóðverjinn Boris
Becker tryggðu sér í gær sæti i
undanúrslitunum á Wimbledon-
mótinu í tennis. Pete Sampras
sigraði landa sinn Andre Agassi,
Wimbledon meistara síðasta árs,
6- 2, 6-2, 3-6, 3-6 Og 6-4. Agassi
er þar með úr leik og mun ekki
geta varið titilinn. Agassi náði sér
aldrei á strik í leiknum sem þótti
ekki sérlega góður. Jim Courier
sýndi góð tilþrif þegar hann sigr-
aði landa sinn, Todd Martin, 6-2,
7- 6 og 6-3. Stefan Edberg sigraði
Frakkann Cedric Pioline, 7-5,7-5
og 6-3, og Boris Becker vann
landa sinn, Michael Stich, 7-5,
6-7, 6-7, 6-2 og 6-4 eftir rúmlega
ijögurra klukkutíma leik. -RR
Ameríkubikarinn:
Mexíkó
Ekvador
Mexíkó stöðvaði sigurgöngu
Ekvador í keppninni um Am-
eríkubikarinn í knattspyrnu
þegar þjóðirnar mættust í
undanúrslitum keppninnar í
Quito, höfuðborg Ekvador, í
nótt. Mexíkó vann 2-0 og leikur
til úrslita gegn Argentínu eða
Kólumbíu sem mætast í síöari
leik undanúrslitanna í nótt.
Það var hinn gamalkunni
miðherji, Hugo Sanchez, fyrr-
um leikmaður Real Madrid,
sem kom Mexíkó yfir á 24.
mínútu og Ramon Ramirez
innsiglaði sigurinn þegar tíu
minútur voru liðnar af síðari
hálfleik. -VS
Ómar Bendtsen, KR-ingur, reynir hvað hann getur til að ná boitanum af Valsmanni
sæti Getraunadeildarinnar.
leik liðanna i gærkvöldi. KR-ingar
Getraunadeildin 1 knattspymu:
Stefnum upp
í
sagði Atli Eðvaldsson eftir að KR sigraði Val 1 g;
„Þetta var mikilvægur sigur og bar-
átta upp á líf og dauða að vinna þetta.
Við erum komnir í 2. sætið og það
er sætið sem við lentum í í fyrra og
nú liggur leiðin bara upp á við,“ sagöi
Atli Eðvaldsson, leikmaður KR, eftir
lið hans hafði sigrað Val, 2-0, í Get-
raunadeildinni í gærkvöldi. KR-
ingar veröskulduðu sigurinn fylli-
lega og þeir virðast líklegir til að
berjast áfram í toppbaráttu deildar-
innar. Valsmenn em hins vegar lík-
lega búnir að missa af lestinni og
miðað við þennan leik verða þeir að
berjast fyrir sæti sínu í deildinni.
KR-ingar náðu forystunni á 18.
mínútu þegar Bjarki Pétursson gaf
góða sendingu fyrir markið á Tómas
Inga Tómasson sem tók boltann nið-
ur og sendi hann rakleitt í netið með
'hnitmiöuöu skoti. KR-ingar voru
mun hættulegri í sóknaraðgerðum
íþróttafréttir eru einnig á bls. 32
sínum og vora klaufar að bæta ekki við
marki á lokamínútu fyrri hálfleiks en
Bjarki skaut þá í stöngina fyrir galopnu
marki.
Valsmenn voru meira með boltann í
seinni hálfleik en náðu aldrei að ógna
verulega. Leikmenn liðsins voru alltof
lengi að sækja upp völlinn og áttu KR-
ingar ekki í vandræðum að verjast sókn-
um þeirra. KR-ingar vom hins vegar mun
ákveðnari í sóknaraðgerðum sínum og
skoruðu annað mark sitt sex mínútum
fyrir leikslok þegar Ómar Bendtsen sendi
boltann auðveldlega í netið eftir vel út-
færða sókn. KR-ingar hefðu getað bætt við
mörkum en Bjami Sigurðsson, besti mað-
Carecatil Japans
Brasilíski knattspymumaður-
inn Careca er á fórum frá Napoli
á Ítalíu til japanska félagsins
Kashiwa Reysol.
EM í tveimur löndum?
Knattspymusambönd HoUands
og Belgíu stefna að því að sækja
sameiginlega um að halda úr-
slitakeppni Evrópumóts lands-
liða sem fram fer árið 2000.
Serbi á Króknum
Petar Pisanjuk, nýi knatt-
spymumaðurinn hjá Tindastóli,
er Serbi en ekki Úkraínumaður
eins og sagt hefur verið í DV.
Hann er hins vegar af úkraínsk-
um ættum. -VS
Verðskuldað
hjá Þrótti, Nes.
Þróttur frá Neskaupstað vann
verðskuldaðan sigur á Grindavík
í 2. deild íslandsmótsins í knatt-
spymu á Neskaupstað í gær-
kvöldi. Lokatölur 2-1.
Goran Micic kom heimamönn-
um yfir á 10. mínútu. Á 65. mín-
útu fékk Eysteinn Kristinsson í
Þrótti að líta rauða spjaldið en tíu
mínútum síðar bættu heima-
menn fengiö forskot. Þar var Þrá-
inn Haraldsson að verki. Tíu
mínútum fyrir leikslok minnkaði
Þórarinn Ólafsson muninn og
þokkalegur endasprettur gest-
anna kom of seint.
-SK/-MJ
Staðan
Staðan í 2. deild íslandsmótsins
i knattspymu er þessi eftir leik-
ina í gærkvöldi:
BÍ-Þróttur, R...............2-2
Þróttur, Nes.-Grindavík.....2-1
Leiftur-KA..................3-2
Tindastóll-Stjarnan.........3-5
Leiftur.....
UBK.........
Stjaman.....
ÍR..........
Grindavlk...
Þróttur.N...
Þróttur, R..
Tindastóll..
KA..........
BÍ..........
1 1 18-9 16
1 1 11-2 16
2 1 15-8 14
1 3 12-12 10
2 2 8-9 10
1 3 10-16 10
3 2 10-11 9
2 4 13-17 5
1 5 8-14 4
3 4 6-13 3
KR
Valur
(1) 2
(0) 0
1- 0 Tómas I. Tómasson (18.)
2- 0 Ómar Bendtsen (84.)
Lið KR: Ólafur (1), Sigurður (1), Izudin
Daði (2), Þormóöur (1), Atli (1), Rúnar (1),
Einar Þór (2), Bjarki (2) (Steinar (1) 75.),
Heimir (1), Ómar (2), Tómas Ingi (1).
Lið Vals: Bjami (2), Gunnar (1) (Arnljót-
ur (1) 68.), Jón Grétar (1), Jón S. (1), Sæv-
ar (1), Ágúst (2), Steinar (1), Anthony Karl
(1), Hörður Már (19), Sigurbjöm (1), Krist-
inn (1) (Þórður (1) 63.).
Gul spjöld: Þormóður, Einar Þór og
Ómar (KR), Jón S. og Þórður (Val).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Gylfi Orrason, komst vel frá
leiknum.
Áhorfendur: Um 1800.
Aðstæður: Rigning og smágola, völlur-
inn hlautur en góður.