Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1993, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 20.09.1993, Síða 4
4 MÁNUDAGUR 20. SEPTEMBER 1993 Fréttir Ný gjaldskrá Fjarskiptaeftirlits skyldar björgunarsveitir til að greiða milljónir: Sum gjaldanna hækka um f imm hundruð prósent - viðbrögð okkar eru mjög hörð, segir Bjöm Hermannsson, framkvæmdastjóri Landsbjargar iÍWMIIiMieij MiÍaiiBHiill — hækkun frá gjaldskrá Pósts og síma* 443% 523% 408% Fjarskiptatæki stærri skip Fjarskiptatæki í minni skip Talstöövar í landl *Heimilt veröur aö veita aöilum meö neyöar- og hjálpartiöni á fjarskiptatækjum sínum 50% afslátt af gjaldskrárveröi. ....., ........................s........... -4351= Nýverið sendi Fjarskiptaeftirlitið út reikninga í fyrsta sinn samkvæmt gjaldskrá sem tók gOdi 1. apríl síö- astliðinn. Þar hækka gjöld til leyfis- hafa Qarskiptatækja um rúmlega 500 prósent í sumum tilvikum. í gjald- skránni er einnig að finna lið sem kveður á um að aðilar í útvarps- og sjónvarpsrekstri greiði tryggingu fyrir truflanalausum útsendingum. Lífgjafar og fleiri rukkaðir Þeir sem hafa gagnrýnt hækkunina hvað haröast eru talsmenn björgun- arsveita og smábátaeigendur. „Viðbrögð okkar eru mjög hörð. Hjá björgunarsveitunum í landinu er um milljónir að ræða. Þetta geng- ur náttúrlega ekki. Þarna er ákveðið að búa til einhveija stofnun sem á að fá tekjur frá aðilum sem nota fjar- skiptatæki. Við borgum yfirdrifið nóg til Pósts og síma með því að nota bílsíma og síma. Það er náttúrlega ekki hægt að skatt- og skuldleggja menn sem eru í sjálfboðastarfi við að bjarga mannslífum og halda uppi öryggi í þessu landi. Þetta verða ráðamenn að skilja," segir Björn Hermannsson hjá Landsbjörg, lands- sambandi björgunarsveita. Björn segist hafa greitt í fyrra rúm- lega fjögur þúsund krónur í leyfis- gjald fyrir talstöðvar í björgunar- stöðvum. Núna sé hann hins vegar búinn að fá reikning upp á hundrað þúsund krónur einungis fyrir stjórn- stöðina og þá sé eftir að greiða fyrir íjarskiptatæki einstakra björgunar- sveita. „Þetta greiðum við aldrei. Það á að minnsta kosti mikið vatn eftir að renna til sjávar áður en það verður gert. Ég held að menn viti ekki hvað er að gerast. Þetta eru sennilega ein af þessum lögum sem eru sett fín á pappirana og svo þegar menn fara í framkvæmdina þá kemur í ljós að þau eru ekki jafn sniðug og þau áttu að vera,“ segir Björn. Þór Magnússon hjá Slysavarnafé- laginu segir að björgunarsveitimar í landinu hafi verið að byggja upp endurvarpskerfi fyrir fjarskipti sín undanfarin ár og kostnaður við það hlaupi á milljónum. „Við þurfum að borga starfrækslugjald fyrir hveija stöð en á sama tíma eru opinberir aðilar að óska eftir að komast inn á þetta kerfi,“ segir Þór. Hann segir ennfremur að á sama tíma og björg- unarsamtökin hafi verið að bæta sitt kerfi sé ekkert neyðarkerfi til fyrir farstöðvar á landi. „Síminn stoppar ekki hjá okkur útaf þessari breytingu. Við viljum að þetta sé fært í sama horf og að menn séu ekki skikkaðir til að vera undir einmitt þessari stofnun heldur geti valið um það hverjir sjá um þennan þátt eftirhtsins," segir Arthúr Boga- son, formaöur Landssambands smá- bátaeigenda. Sambandið hefur þegar krafist fundar í Sighngamálaráði og fundar með samgöngumálaráðherra um máhð. Þeir borga sem njóta Guðmundur Ólafsson, yfirmaður Fjarskiptaeftirhts ríkisins, segir-að áður hafi eftirhtið heyrt undir Póst og síma. Með lögum sem tóku ghdi í apríl hafi stofnunin hinsvegar hlotið sjálfstæði. Meðan eftirhtið heyrði undir Póst og síma hafi tekjur þess verið um 15 mhljónir en gjöldin á bilinu 40 th 50 mhljónir. Mismuninn hafi almennir símnotendur greitt. í dag þurfi eftir- litið hins vegar fjármagn til reksturs- ins og sem fyrr komi það meðal ann- ars frá Pósti og síma en nú í formi gjalds fyrir veitta þjónustu. „Það er tvennt sem ég vh að haft sé í huga þegar talað er um gjald- skrána. Annars vegar að það lá fyrir að sú starfsemi sem fer fram hér var niðurgreidd af símnotendum þegar stofnunin var innan veggja Pósts og síma. Hins vegar var það útgangs- punktur við útgáfu gjaldskrár að þessi stofnun fengi engin framlög úr ríkissjóði," segir Guðmundur Ólafs- son. Með gjaldskránni, segir Guð- mundur að sé gengið út frá því að þeir greiði fyrir þjónustuna sem hennar njóta en ekki almennir sím- notendur eins og áður. -PP Gjaldþrot Miklagarðs hf.: Kaupmenn óska eftir lögfræðilegu áliti Innan nokkurra daga á Félag ís- lenskra stórkaupmanna von á lög- fræðilegu áliti á ábyrgð stjórnar- manna vegna gjaldþrota fyrirtækja. Félagið óskaði eftir þessu áhti fyrr í sumar vegna gjaldþrots Miklagarðs en kaupmenn og heildsalar telja sig hafa orðið fyrir mhljóna tjóni. „Við ætlum að láta reyna á það sem stendur í gjaldþrotalögunum að stjórnarmenn séu persónulega ábyrgir þegar þeim má vera ljóst að eignir hrökkva ekki fyrir skuldum. Menn hafa skotið sér undan ábyrgð með þvi að segja að verið sé aö leita lausna á vandamálinu og ýtt því þannig frá sér. Hvað Miklagarð varð- ar mátti öhum vera það ljóst í mörg ár að dæmiö gengi aldrei upp. En áfram gekk það,“ sagði Birgir Rafn Jónsson, formaður Félags íslenskra stórkaupmanna, í samtah við DV. Birgir sagði að margir félagsmenn sínir ættu um sárt að binda vegna gjaldþrots Miklagarðs og margra annarra fyrirtækja. „Allt siðferði í kringum gjaldþrotamál hefur verið í algjöru lágmarki. Menn eru varla fyrr búnir að loka fyrirtækjum að þeir eru byijaðir aftur. Lausnin ligg- ur í því að menn séu gerðir ábyrgir frá upphafi. Við erum ekki að sækja að einhveijum persónum varðandi Miklagarðsdæmið því málið horfir alveg eins til kaupmannastéttarinn- ar. Ekki má gleyma hlut bankanna þegar þeir halda lífi í „vonlausum" fyrirtækjum og vita jafnvel betur um stööuna en stjórnarmenn," sagði BirgirRafn. -bjb Ertu búinn að borga? „Já, en hann slasaöist í vinn- unni.“ Gvendur gamh á eyrinni slasaði sig hla í vinnunni. Strákamir ruku með með’ann niður á Slysó og blóðiö lak úr Gvendi og hann var nær meðvit- undarlaus af kvölum. Margt fólk beið á biðstofunni misjafnlega á sig komið en enginn með blóðslóð og enginn svo þjáður sem veshngs Gvendur. Strákamir báru Gvend að af- greiðsluborðinu og hrópuðu eftir læknisaðstoð. „Fljótt, fljótt, það má engan tíma missa.“ En afgreiðslu- stúlka í hvítum slopp og ábyrg fyr- ir röö og reglu í hehbrigöiskerfinu benti mönnununm á að fá sér sæti. „Hér er afgreitt eftir röð og eftir kortum," sagði stúlkan og tók starf sitt alvarlega. „Já, en maðurinn er stórslasaður og þarfað fá bráðaþjónustu," sögðu strákarnir og horfðu ógnandi á aðra biösjúklinga sem sátu hljóðir og hörkuðu af sér. Þetta vom snarpir strákar, uppmælingahóp- ur, og voru ekki árennilegir, og að lokum ákvað afgreiðslustúlkan að leita sér aðstoðar og kahaði annan og reyndari fulltrúa hehbrigði- skerfisins sér th aðstoðar. Þær bám saman bækur sínar og sögðu: gott og vel, hvað heitir maðurinn? „Guðmundur Lárusson," sögðu strákarnir og studdu viö Gvend greyið, sem varla vissi hvort hann var að koma eða fara og gat verið dauður þess vegna. „Nafnnúmer?" sögðu þær stöllur. Ekkert svar. „Nafnnúmer, hvaða nafnnúmer hefur maðurinn?" Einhvern veginn tókst strákun- um að kreista nafnnúmerið upp úr Gvendi og héldu að nú væri málið leyst. „Hafið þér heilsukortagjald?" „Hefurðu hehskortagjald, Gvendur?" spuröu strákamir. „Nei,“ stundi Gvendur. „Þá getum við ekki sinnt þessum sjúkhngi nema hann greiöi tíu þús- und krónur," sögðu þær stöllur í afgreiðslunni. „Já, en maðurinn er lífshættu- lega slasaður," sögðu strákarnir, „og menn í vinnugalla í verka- mannavinnu bera ekki tíu þúsund krónur á sér,“ sögðu strákarnir í örvæntingu. „Þvi miður,“ sögöu þær í af- greiðslunni. „Hér getur enginn fengið aðhlynningu nema þeir sem annaðhvort geta sannað að þeir hafi borgað hehsukortið eða reiði fram tíu þúsund krónur staögreitt fyrirfram til að fá þjónustu hér á Slysó." „Já, en maðurinn er mhli lífs og dauöa." „Því miður, þetta eru reglumar. Viö getum ekki gert upp á mhli fólks sem hingað kemur. Við vitum ekki um það fyrirfram hvað amar aö manninum. Hanri getur ekki bara labbað hér inn og ætlast th að fá slysaþjónustu fyrir ekki neitt. Annaðhvort hafa menn heilsukort eða þeir hafa ekki hehsukort.” „Menn eiga ekki að slasast í vinn- unni ef þeir hafa ekki hehsukortiö með sér. Það er þá á þeirra ábyrgð. Ef þeir hafa ekki heilsukort af því að þeir tíma ekki að borga hehsu- kort, eiga þeir heldur ekki að slasa sig. Annaðhvort hafa menn efni á að slasast eða ekki. Þaö eru regl- urnar.“ „Ghdir það líka um ellhífeyris- þega?“ spurðu strákarnir og var nú mjög af Gvendi greyinu dregið og spurning hvort hann hefði þetta af. „Er maðurinn ellilifeyrisþegi?” spurðu þær í afgreiðslunni. „Það er annað mál, hvað heitir maður- inn?“ „Guðmundur, Guðmundur Lár- usson.“ „Nafnnúmer?" sagði afgreiöslan. „Þú hefur nafnnúmerið," sögðu strákarnir. „Ekki á Guömundi Lárussyni ehilifeyrisþega. Við verðum að fletta honum upp aftur. Hann er í annarri skrá ef hann er lögght gamalmenni. Það eru reglurnar". „Gvendur hefur aldrei veikst og aldrei slasast um ævina og hefur borgað sína skatta og skyldur og fjandinn hafi það, hann þarf á lækni að halda því hann er að drep- ast hér í höndunum á okkur.“ „Því miður, nafnnúmerið takk.“ „Gvendur minn, manstu nafn- númerið?" Þeir ýttu viö Gvendi en allt kom fyrir ekki. Hann hafði misst of mik- ið blóð og gefið upp öndina. Hann hafði ekki hehsukortið og gat ekki sagt frá nafnnúmerinu en það kom ekki að sök. Hann var dauöur áöur. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.