Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1994, Blaðsíða 2
2
MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 1994
Fréttir
Nær allur fiskiskipaflotinn í höfh vegna verkfaUs sjómanna:
Krefjast óskertra kjara
við kvótakaup útgerðar
- lágmarksverð á afla kemur til álita, segir Guðjón A. Kristjánsson
„Ég fæ ekki séð að sjómannasam-
tökimum sé stætt á að ljúka þessari
deilu án þess að tryggja að sjómönn-
um sé ekki nauðgað inn í kvótavið-
skipti. Ef útvegsmenn kjósa að eiga
viðskipti sín á milli þá verður að
finna því farveg sem ekki tengist sjó-
mönnum. Að okkar mati verður að
tryggja þaö aö kvótakaup tengist á
engan hátt uppgjöri til sjómanna,"
segir Guðjón A. Kristjánsson, form-
aður Farmanna- og fiskmannasam-
bands íslands.
Nær allur fiskiskipafloti lands-
manna liggur nú bundinn við
bryggju vegna verkfalls sjómanna
sem hófst í fyrrakvöld. Verkfalhð
nær þó ekki til sjómanna á Vestfjörö-
um sem felldu á félagsfundi að fara
í aðgerðir. Dragist deilan á langinn
kann hún að koma í veg fyrir að
loðnuveiðar hefjist í lok mánaðarins.
Forsvarsmenn margra fískvinnslu-
stöðva óttast að fyrir vikið kunni að
koma til varanlegrar rekstrarstöðv-
unar. Eitthvað á sjötta þúsund land-
verkamenn eru nú án vinnu vegna
hráefnisskorts.
Að sögn Guðjóns hafa sjómenn lagt
til að leigukvótasala verði bönnuð
þar sem útgerðarmenn hafi ekki
fengist til að ræða raunhæfar leiðir
til aö koma í veg fyrir þátttöku sjó-
manna í kaupum. Á hinn bóginn
komi einnig til greina að krefjast lág-
marksverðs á afla, til dæmis með
viðmiðun í það verð sem fæst á fisk-
mörkuðum.
Guöjón segir mörg rök fyrir þvi að
tekið verði að nýju upp lágmarks-
verð á afla. Veiðar og vinnsla hafi til
dæmis í auknum mæh færst th sömu
aöilanna, nú síðast með sölunni á
SR-mjöh. Fyrir vikið sé ekki hægt að
tryggja eðlilega verðmyndun. Að
sama skapi sé auðvelt fyrir útgerðina
að fela kvótakaup í lágu fiskveröi.
Að sögn Guðjóns eru það viss von-
brigði að sjómenn á Vestfjörðum
skyldu ekki sýna stuðning við aö-
gerðimar í verki. Sumpart sé afstaöa
þeirra þó skhjanleg þar sem vandi
Vestfjarða sé það mikih að þar megi
menn ekki viö frekari áfohum. Að
auki leggist þeir gegn kvótakerfinu
sem shku og telji sig því ekki eiga
samleið með þeim sem vilja breyting-
ar á núverandi kerfi.
„Auðvitað hefði verið albest að
menn tækju á þessu vandamáli sam-
eiginlega og keyrðu í gegn nauðsyn-
legar lagfæringar th að eðlileg og
heiðarleg viðskipti geti átt sér stað.
Þetta er hins vegar niðurstaða þeirra
ogviðþvíerekkertaösegja.“ -kaa
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra:
Deiluaðilar eru ætíð velkomnir
- vll ekki taka fram fyrir hendumar á sáttasemjara með lagasetningu
„Sérhver dagur sem fiskiskipaflot-
inn stöðvast er mjög þungbær fyrir
íslenskt þjóðfélag. En þetta er kjara-
deha á mhh sjómanna og útvegs-
manna og það er skylda þeirra að
leysa hana. Það er nýbúið að stað-
festa fyrir dómi að hún beinist ekki
gegn stjómvöldum. Sáttastörfin
hvha á ríkissáttasemjara og ég ætla
ekki að taka fram fyrir hendumar á
honum eða samningsaðilum," segir
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra.
Þorsteinn segir þátttöku sjómanna
í kvótakaupum vera óheimila sam-
kvæmt kjarasamningi. í ljósi þess að
ákvæði kjarasamninga hafi lagastoð
sé ekki ástæða til að banna kaup sjó-
manna á veiðiheimildum með sér-
stökum lögum.
„Ég hef sagt það við báða aðha frá
því í vor að mér væri ljóst að ágrein-
ingur um þetta efni væri í uppsigl-
ingu og væri reiðubúinn að ræða við
þá um lausn. Þeir hafa lögvarinn
rétt th að gera út um samninga sín
á mihi og þeir verða að rísa undir
þeirri ábyrgð. En ef þeir telja nauð-
synlegt að ræða við stjómvöld þá em
þeir ætíð velkomnir á minn fund.“
-kaa
Stuttar fréttir
Japanskir menningardagar hófust á gamlársdag með opnun Ijósmyndasýningar í Ráðhúsinu. Þar voru lika kynnt-
ir japanskir tesiöir og japönsk rittákn og gafst gestum kostur á að bragða á teinu og spreyta sig i skriftinni undir
leiðsögn sérfræðinga. Sá sem reiö á vaðið var forseti borgarstjórnar, Magnús L. Sveinsson, sem hér býr til tákn
eldfjallsins. DV-mynd HMR
Bjöm Grétar Sveinsson:
Verkfall
þarf ekki
að koma
neinum
áóvart
„Stuðningur Verkamannasam-
bandsins við sjómenn er ótvíræð-
ur og við lýsum fuhri ábyrgð á
hendur vinnuveitendum. Með þvi
að skjóta máhnu til félagsdóms
var máhð sett í óþarfa hörku.
Vonandi tekst þó aö ná lendingu
1 þessu á næstu dögum þannig
að th langvarandi vinnustöðwm-
ar þurfi ekki að koma,“ segir
Bjöm Grétar Sveinsson, formað-
ur Verkamannasambands ís-
lands.
Bjöm Grétar segist áætla að
verkfah sjómanna hafi í fór með
sér atvbinumissi aht að 5 þúsund
landverkamanna. Hann bendir
þó á að undanfarin ár hafi fisk-
vinnslustöðvar sagt upp fjöl-
mörgu verkafólki. Til uppsagna
hefði því komiö burtséð frá verk-
fallinu. Dragist verkfahið á lang-
inn muni það hins vegar bitna á
landverkafólki.
„Fuhtrúar útvegsmanna vom í
raun byrjaðir að boða verkfah
um mitt síðasta ár með yfirlýs-
ingum sínum um að sjómenn
fengju kröfum sínum ekki fram-
gengt nema með átökum. Þetta
er undarieg afstaða í Ijósi þess að
fiöldi nýgreina í sjávarútvegi
hafa enga samninga og að auki
tíðkast víðtækt kvótabrask sem
skerðir kjör sjómanna. Verkfahið
nú þar þarf því ekki aö koma
neinum á óvart."
-kaa
Ríkisráðiðíundaði
Ríkisráð fundaði á Bessastöð-
um á gamlársdag. Þar staðfesti
forseti Islands fiáriög ársins 1994,
lánsfiárlög, lög um prestsetur og
kirkjumálasjóð. í embætti voru
skipaðir þeir Rúnar Guðjónsson,
sýlsumaður i Reykjavik, Guögeir
Eyjólfsson, sýslumaður á Siglu-
firði, og Siguröur Hallur Stefáns-
son, héraðsdómari í Reykjavík.
Heiisugæslan á Akureyri
Rikissjóður hefur fest kaup á
2.214 fermetra húsnæði í Hafnar-
stræti á Akureyri. Rekin verður
hehsugæslustöö í húsnæðinu.
Kaupveröið var 82 mihjónir. í
fiárlögum er gert ráð fyrir 17,4
mihjónum dl endurbóta.
Eimskiphagnast
Hagnaður Eimskipafélagsins
fyrstu 11 mánuði síðasta árs var
um 250 mihjónir. Árið á undan
nam tapið 214 mihjónum króna.
í síöasta mánuöi seldi félagiö Sel-
foss og hefur skipið verið afhent
nýjum eigendum í Noregi.
Wihiam J. Perry, vamarmála-
ráöherra Bandarikjanna, er
væntanlegur th landsins í dag.
Perry hittir Davíð Oddsson aö
máh og mun ræöa við Jón Bald-
vin Hannibalsson um íyrirkomu-
lag varnarsamstarfs Bandaríkj-
anna og íslands.
EES-brothjáríkinu
Verslunarráð íslands hefur
beðið Eftirhtsstoíhun EFTA aö
kanna hvort starfsemi ÁTVR
samrýmist EES. Verslunan-áðið
bendir á að áfengisauglýsingar
eru bannaöar á íslandi, aö erlend-
ir framleiðendur hafi ekki sama
aðgang og innlendir aö markað-
inum og aö ríkið hafi einokunar-
réttthsölu. -kaa
Þórarinn V. Þórarinsson, framkvæmdastjóri VSÍ, um sjómannaverkfallið:
Afleit staða og dýrmætur tími hef ur tapast
„Þetta er afleit staða sem er komin
upp og það hefur tapast dýrmætur
tími. Agreiningurinn snýst um það
hvort viðskipti með veiðiheimhdir
eigi að vera heimil eða ekki. Það er
eðh kvótakerfisins aö geta látiö veiði-
heimhdimar þangað sem hagræð-
ingin er meiri. Þaö kemur ekki th
áhta aö skemma þetta," segir Þórar-
inn V. Þórarinsson, framkvæmda-
stjóri Vinnuveitendasambandsins.
Þóraririn segir það sannfæringu
sína að náist ekki samningar á næstu
dögum muni verkfah sjómanna vara
í minnst 4 th 5 vikur. Hann á von á
því að á fundi ríkissáttasemjara í dag
fari viðræðurnar í það far sem þær
voru í um miöjan desember þegar
sjómenn shtu samningaviðræðum.
Aðspuröur segist Þórarinn trúaöur á
að fijótlega náist samkomulag varð-
andi ýmiss konar sérveiðar. Hins
vegar kunni að verða torsóttara aö
ná landi varðandi þátttöku sjómanna
í kvótakaupum.
Þórarinn bendir á að fá dæmi séu
um óeiningu mihi útgerðarmanna og
sjómanna varðandi kvótakaup. Þá
segir hann þessi viðskipti nánast al-
fariö bundin bátflotanum, einkum á
suðvesturhominu, og því snerti deh-
an sem slík mjög fáa sjómenn.
Að sögn Þórarins eru útgerðar-
menn reiðubúnir að koma í veg fyrir
svokahað kvótabrask enda sé slíkt
brask andstætt yfirlýstum viija
þeirra. Hann segir þaö hins vegar
einsdæmi að útgerð selji kvóta, án
þess að skipta ávinningnum af söl-
unni með áhöfninni og kaupi síöan
aftur kvóta með þátttöku sjómanna.
„Okkur hefur verið bent á eitt slíkt
dæmi en við veröum ekki varir við
þetta. Við höfum því thhneigingu th
að halda að þetta séu ýkjusögur. Við
vhjum hins vegar ganga eins tryggi-
lega frá þessum þætti og nokkur
kostur er þannig að það sé ekki verið
að keyra niður aflahlut sjómanna
með þessum hætti. En æth menn að
fara aö nálgast máhð með eitthvað
víðari formerkjum, eins og að banna
öh viðskipti með kvótann teljum við
að það sé verið að eyðheggja hluti
semerumjögmikhvægir." -kaa