Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1994, Side 6
6
MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 1994
Fréttir
Niðurstaða ríkissaksóknara 1 tveimur strokumálum frá Litla-Hrauni:
Feeney og nauðgar
inn ekki ákærðir
- sólbaðsstofuræninginn og flórir aðrir aðilar ákærðir 1 hinu málinu
Rikissaksóknari hefur ákveðið aö
ákæra ekki hinn dæmda bandaríska
barnsræningja, Donald M. Feeney,
og nauðgarann Jón Gest Ólafsson
fyrir að hafa strokið af Litla-Hrauni
síöasthðið sumar. Hins vegar hafa
fimm verið ákærðir vegna stroks
þriggja annarra fanga úr fangelsinu
fyrr um sumarið.
Þar er um að ræða sólbaðsstofu-
ræningjann Björgvin Þór Ríkharðs-
son og afbrotamennina Hörð Karls-
son og Hans Erni Viðarsson. Með
þremenningunum eru tveir vitorðs-
menn ákæröir - annar, karlmaður,
fyrir að hafa beðið fanganna á bíl
fyrir utan fangelsið og ekið með þá
í burtu en hinn, kona, fyrir að hafa
skotið skjólshúsi yfir Hörð og Hans
Erni á meðan þeir fóldu sig fyrir lög-
reglunni sem leitaði þeirra.
RLR fór með rannsókn Feeneys og
Jóns Gests. Þegar rannsóknargögn
lágu fyrir taldi ríkissaksóknaraemb-
ættið hins vegar að ekki þættu nægi-
leg rök til þess að saksækja mennina
- sannanir fyrir sammæh þóttu ekki
nægilegar. Sammæh fanga við strok
er í raun skilyrði fyrir því að hægt
sé að fara með strokumál fyrir dóm
og fá þá dæmda fyrir slíkt athæfi.
Þrátt fyrir þessa niðurstöðu hefur
DV þó heimildir fyrir því að Jón
Gestur hafi aö hluta viðurkennt að
hafa sammælst við Feeney um strok-
ið í sumar. Bandaríkjamaðurinn
neitaði hins vegar staðfastlega að um
shkt hefði verið að ræða.
Rannsóknadeild lögreglunnar í
Reykjavík fór hins vegar með rann-
sókn Björgvins Þórs, Harðar og Hans
Ernis. Það mál er annars eðhs að því
leyti að einn aðih virðist augljóslega
hafa undirbúið og aðstoðað þre-
menningana við strokið, sá sem beið
þeirra á bíl fyrir utan fangelsið á th-
teknum tíma. Viðurkenning hggur
fyrir hvað þetta snertir. Aðih var
eins og fyrr segir ákærður fyrir brot
á ákvæði hegninarlaganna sem
kveður á um aöstoð við strok. Sama
ghdir um konuna sem tók tvo af
strokuföngunum inn á heimili sitt.
Héraðsdómur Suðurlands mun taka
mál fanganna þriggja fyrir á næst-
unni. -Ótt
Akureyri:
unáný-
ársnótt
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Það sem einkenndi áramótin á
Akureyri að þessu sinni var mik-
il ölvun i miðbænum eftir að dan-
sleikjum lauk og við vorum langt
fram á morgun að koraa mönnum
heim,“ segir Matthías Einarsson,
lögregluvarðstjóri á Akureyri.
Matthías segir að fram á miðja
nótt hafi veriö rólegt lijá lögreglu
en þá fylltist miöbærinn af fólki
eftir dansleiki. Mikh ölvun var
og menn leiðinlegir, þvargandi
og röflandi út af öllu og engu.
Þrjár rúður voru brotnar en htið
var um alvarlega pústra þótt einn
og eitjn hafi fengið „á kjaftinn".
Ekki gistu nema fimm fanga-
geymslur enda lögð áhersla á að
koma mönnum heim og leyfa
þeim að sofa úr sér þar.
Þær heita Elín Björk og Steinunn þessar ungu stúlkur sem voru á brennunni í Grafarvogi á gamlárskvöld. Þar fór
allt hið besta fram eins og annars staðar á landinu. DV-mynd JAK
Undirmenn á Heijólfi skrifuðu undir á gamlársdag:
Laugardagur vinnu-
skyldur á Vest-
mannaeyjaferjunni
- fá ekki helming af „félagsdómslækkuninni“
Hásetar á Heijólfi samþykktu með
samningi á gamlársdag að hafa laug-
ardaga vinnuskylda daga, það er þeir
fá ekki yfirvinnu greidda þegar þeir
vinna á þeim dögum. Á móti kemur
greiðsla upp á 760 króna „hagræðing-
arálag“ á dag, eða 22.800 krónur á
mánuði sem svokahaður verslun-
arfrídagur og mengunarálag verður
feht inn í.
Samkvæmt upplýsingum DV mun
þetta í raun þýða um 4-5 þúsund
króna nettóhækkun frá þeim laun-
um sem hásetar höfðu eftir að félags-
dómur fehdi úr gildi ákvæði um einn
yfirvinnutíma á dag sem lækkaði
laun þeirra verulega. Dómur félags-
dóms skerti laun undirmanna um
um 13 þúsund krónur.
Grímur Gíslason, stjórnarformað-
ur Herjólfs, sagðist í samtali við DV
vera ánægður með samninginn þar
sem hér væri um nýjan heildstæðan
samning að ræða - nokkuö sem ekki
hefur verið fyrir hendi á síðustu
árum.
Samningar Herjólfsmanna hafa nú
verið samræmdir samningum Sjó-
mannafélags Reykjavíkur að veru-
legu leyti þó ekki sé það hægt að öllu
leyti þar sem félagsmenn í síðar-
nefnda félaginu eru mikið th í milh-
landasighngum. Grímur kvað það
samningsfyrirkomulag sem nú hefur
verið komið á henta vel bæði fyrir
útgerð sem undirmenn á Herjólfi
miðað við þá óvissu sem ríkti áður
enhonumvarkomiðá. -Ótt
Lögreglustöðvar landsins:
Óvenju róleg áramót
Áramótin voru meö þeim róleg- almennt rólega í sakirnar við að
ustu sem menn við löggæslu um
landið muna eftir. Sums staðar var
að vísu ölvun en ekki meiri en gerist
um venjulega helgi. Lögreglumenn
eru sammála um að fólk hafi farið
skemmta sér og yfirleitt verið í góðu
skapi. Flestir telja að mikh veður-
blíða hafi gert útslagið því hvergi var
fólk í vandræðum vegna veðurs eins
ogoftáður. -JJ
f
Greiðslujöfnun allt árið:
Allt frá blaðaáskrift til
greiðslu húsnœðislána
HEIMILISLINAN
®BÚNAÐARBANKI
ÍSLANDS
i
i
i
í
í
í
4
4
4
4
4
4
4
4
4