Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1994, Síða 8
8
MÁNUDAGUR 3.. JANÚAR 1994
Útlönd
Hugmyndir um frjóvgun eggja úr eyddum fóstrum vekja hörð viðbrögð:
Henni móður þinni
var kastað ófæddri
- nefna gagnrýnendur sem dæmi um svör við spumingum bama um uppruna sinn
„Mér þætti gaman að vita hvernig
fósturmæður þessara bama ætla að
svara spuminum þeirra um uppmna
sinna. Ætla þær að segja: Henni
móöur þinni var kastað áður en hún
fæddist," segir breski sálfræðingur-
inn Anthony Clare, einn íjölmargra
sem risið hefur öndverður gegn hug-
myndum um að fijóvga egg úr eydd-
um kvenkynsfóstrum og koma þeim
fyrir í konum sem ekki geta átt börn.
Vísindamenn í Edinborg í Skot-
landi hafa gert tilraunir af þessu tagi
á músum og segja að nú sé ekkert
því til fyrirstöðu að reyna aðferðina
á fóstmm kvenna. Með þessu móti
opnast nýir möguleikar fyrir ófrjóar
konur til að eignast börn án þess aö
fá egg frá öðrum konum.
Fréttir af fyrirætlunum Skotanna
hafa vakið upp hörð viðbrögð á Bret-
landi og víðar. Fjölmargir þingmenn
hafa látið málið til sín taka og hafa
menn úr öllum flokkum varað við
öllum „tilraunum á mönnum“ eins
og það er kallað.
David Alton, þingmaður frjáls-
lyndra, kallaði frjóvgun eggja úr
eyddum fóstmm „rán úr móður-
kviði“. Hann sagði og að nú ætti aö
„framleiöa hfandi mannvemr eins
og skyndibita."
Þingkona úr hópi íhaldsmanna
sagðist ekki skilja hvernig heiðvirð-
um læknum og vísindamönnum gæti
dottið í hug að „framleiöa böm
mæðra sem aldrei hefðu verið til.“
Roger Gordon, einn skosku lækn-
anna sem unniö hefur við tilraunim-
ar, segir að úr því lög heimili fóstur-
eyðingar á annað borð þá geti ekkert
mælt gegn því að fóstrin séu nýtt í
þágu mannkyns.
Hugmyndir skosku læknanna hafa
blásið nýju lífi í umræður um hvort
ekki sé kominn tími til að setja skorð-
ur við beitingu nýjustu uppgötvana
í læknavísindum við tilraunir á
mönnum.
Á síðasta ári var sagt frá hugmynd-
um um að breyta erfðaefni manna í
lækningaskyni. Þá var einnig upp-
lýst að hægt væri að búa til mörg
eintök af sama einstaklingnum. Víöa
um lönd komu fram efasemdir um
að tilraunir af þessu tagi væru rétt-
lætanlegar og nú hefur enn einn
möguleikinn á að breyta rás lífsins
verið kynntur.
Reuter
Verslunareigendur athugið!
R VJkSMCUR
í VANDJk?
Ert þú tilbúinn fyrir tvö virðisaukaskattþrep?
Vantar þig sjóðsvél sem reiknar og sýnir
á strimli breytilegan virðisaukaskatt?
MA3Q5 SJÓÐSVÉLIN
FRÁ TEC ER LAUSNIN
MA305 er fullkomin lausn fyrir
rekstraraðila sem gera kröfur um
ódýran og einfaldan búnað.
Helstu eiginleikar MA305 eru:
Útreikningur á tveggja þrepa
virðisaukaskatti auk 0 skatts.
Möguleiki á 10 til 15 deildum.
Allt að 200 vörunúmer með
föstum verðum (PLU).
Þrjár greiðslutegundir, peningar,
ávisanir og reikningsviðskipti.
Hægt að gefa afslætti, leiðrétta,
endurgreiða og taka á móti
innborgunum.
Skilgreining á sölu á klst.
Sundurliðun á sölu fyrir allt að
fjóra starfsmenn.
VERÐIÐ ER AÐEINS KR. 41 .900,- STAÐGREITT M/VSK.
MA305 ER TIL AFGREIÐSLU NÚ ÞEGAR.
Einnig bjóðum við tölvuvædd afgreiðslukerfi
fyrir aðila sem vilja ná betri árangri.
Veljið tækni sem leysir vandann.
Hafið samband við ráðgjafa okkar...
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665
...og peningamirfara ekki í vaskinn!
Kaupmannahöfn:
íslendingur
tekinn fyrir
bankarán
Gizur Helgason, DV, Kaupmannahöfh:
Þijátíu og þriggja ára íslendingur
var dæmdur í 27 daga gæsluvarðhald
í Kaupmannahöfn á gamlársdag eftír
að hann haíði rænt sem svarar um
260 þúsund íslenskum krónum úr
útibúi Jóska bankans við Stóru
kóngsgötu í Kaupmannahöfn.
íslendingurinn hélt peningunum
hins vegar aðeins í örfáar mínútur
áður en hann var handtekinn. Lög-
regluþjónar í eftirhtsbíl tóku eftir
honum þegar hann kom þjótandi út
úr bankanum meö peningana í fang-
inu og skammbyssu í beltinu, hlupu
á eftír honum og náðu manninum í
nærliggjandi götu.
íslendingurinn haföi flúið úr fang-
elsi á Helsingjaeyri tveimur dögum
fyrir jól þar sem hann sat í varðhaldi
vegna annars ráns og átti að koma
fyrir rétt í næstu viku.
Skipskaði á Atlantshafi:
Enginn fannst
umborðí
björgunarbáti
Björgunarbátur af líberísku skipi,
sem fórst í aftakaveðri á Norður-
Atlantshafinu miðju um helgina,
reyndist vera tómur þegar norska
tankskipið Thorsaga kom að honum
í gærkvöldi.
Skipiö, Marika 7, hvarf af ratsjám
á laugardag þegar það lenti í óveðri
1500 kílómetra austur af Nýfundna-
landi. Þrjátíu og sex manna áhöfn frá
Filippseyjum og Grikklandi var um
borð í skipinu sem var á stærð við
þrjá fótboltavelli og var á leið frá
Québec til Hollands með 150 þúsund
tonn af járngrýti.
Það var kanadísk leitarflugvél sem
fann björgunarbátinn um 900 kíló-
metra norðvestur af Azoreyjum.
„Það var ekkert inni í honum, hann
var tórnur," sagði Dan Bedell í björg-
unarmiðstöðinni í Halifax í Kanada.
Norska skipið fór tvisvar fram hjá
björgunarbátnum í tíu metra háum
öldum til að ganga úr skugga um að
enginn væri í honum.
Bedell sagöi að leit yrði haldiö
áfram í dag, bæði með skipum og
flugvélum, þar á meðal portúgalskri
Hercules-vél. Reuter
Stuttarfréttir
StórsíysíSíberíu
í morgun fórust í það minnsta
110 menn þegar flugvél hrapaöi i
flugtaki viö Irkutsk í Síberíu.
Arafaterbálreiður
Yasser Ara-
fat, leiðtogi JSmSSSí
hugmyndum ísrelsmanna
um heima- stjórn til handa Palestínu-
mönnum við
heima
löndin sem hvítir menn í S-Afríku
settu á fót fyrir blökkumenn.
Mikil óvissa ríkir um framhald
friðarviðneðna PLO og ísraels.
Baristaf hörku í Kabúl
Um 70 menn hafa falliö á tveim-
ur dögum í Kabúl í Afganistan.
Viðræður um Kasmír?
í morgun voru taldar líkur á
viðræðum um framtíð Kasmír.
Biskupávigaslóð
Erkibiskupinn af Kantaraborg
var um helgina með skæruliðum
í Súdan, stjórninni til armæðu.
Kúrdar byrja árið vel
Skæruliðar Kúrda hafa drepið
átta menn nú í upphafi árs.
Siagur í Brussel
Slegist var á götum Brussel í
gær þegar Tyrkir mótmæltu veru
Kúrda í borginni.
Kasferóbarmarsér
Fidel Kastró
Kúbuleiötogi
barmaði sér í
áramótaávarpi
sínu til þjóðar-
innar vegna
hnignandi
efnahags-
ástands og
harms vegna falls Sovótríkjanna.
ManndrápíSarajevo
Mannfall varö vegna sprengju-
og skotárása í Sarajveo í nótt.
Ailir á méti fridi
Allir helstu skæruliðahópar á
Noröur-írlandi hafa hafhað áætl-
un Breta og íra um frið.
Skotið á hús þingmanns
Byssukúlum rigndi í gær yfir
hús þingmanns i Belfast.
SkæruriKongó
Þrír féllu í skærum í Brazza-
ville, höfuðborg Kongó, í gær.
Manmkáp í S*Afríku
Óeirðir og manndráp hafa
skyggt á nýrársgleöi í S-Afríku.
TfðbílslysíSvíþjóð
Níu menn létu líflð í bílslysum
í Svíþjóð um helgina.
Tíu þúsund flóttamenn
Norðmenn þurfa að finna hús-
næði fyrir tíu þúsund erlenda
flóttamenn á þessu ári.
Sænska stjórnin í klipu
Enginn ár-
angur varð í
morgum af
fundi Carls
Bfldt, forsætis-
ráðherra Sví-
þjóöar, og sam-
starfsmanna
hans í stjórn
um lausn á deflunni um Eyrar-
sundsbrúna.
sænskir bankastjórar
verða ákærðir fyrir afglöp í starfi.
Björgvinjarbiskup hefur sagt af
sérembættL Reuter, TT og NTB