Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1994, Blaðsíða 20
20
íþróttir
Ágóðiitn minnkar
Áætlaöur ágóði af ólympiuleik-
unum í Atlanta 1996 minnkar
jafht og þétt og er talinn vera
kominn niður fyrir 100 milljómr
doliara en var upphafleqa áætlað-
ur um 156 miUjónir.
Auglýsendurvantar
í fjárhagsáætlun leikanna er
ennfremur gert ráð íyrir 1,6 mUlj-
örðum króna i auglýsingatekjur
en enn sem komið er hafa aðeins
700 miUjónir verið tryggðar.
Steinn aðstoðar Hörð
Steinn Helgason, sem þjálfaði
kvennalið 'Breiðabliks síðasta
sumar, veröur aðstoðarmaður
Harðar Helgasonar, þjálfara ís-
landsmeistara ÍA í knattspyrnu
■'karla. '■'
Paul Ince og Lee Sharpe ættu
að geta leikiö með Manchester
United gegn Liverpool i ensku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu
annað kvöld, en þeir hafa veriö
meiddir, og Bryan Robson og Roy
Keane missa þá væntanlega sæti
sín í liðinu.
HeimsmethjáPopov
Alexander Popov frá Rússlandi
setti heimsmet í 100 metra skrið-
sundi í 25 metra laug á heimsbik-
armóti i Hong Kong á nýársdag,
synti á 47,83 sekúndum.
Ástralska sundkonan Elli Over-
ton sló í gegn á mótinu í Hong
Kong með þvi aö vinna til fernra
guilverðlauna og hún skyggði al-
veg á Dai Guohong frá Kina sem
vann aðeins tvær greinar eftir að
hafa stefnt á sex sigra.
Horskursigur
Espen Bredesen frá Noregi sigr-
aði í heimsbikarmóti í skíöa-
stökki scm haldiö var í Þýskaland
á nýársdag. Þjóðvetjinn Jens
Weissflog varð annar og hann
heldur naumu forskoti á Bredes-
en i stigakeppni heimsbikarsins.
Indurain og Egerszegi
ítalska íþróttablaöiö Gazzetta
dello Sport hefur útnefnt hjól-
reiðakappann Miguel Indurain,
Spáni, sem besta íþróttamann
árins og sundkonuna Krisztinu
Egerszegi frá Ungveriandi sem
bestu íþróttakonuna.
PapintilMarseille
Franski landsliðsmaöurinn Je-
an-Pierre Papin sem leikur með
AC Milan á ítaiíu fer aftur tD
MarseiIIe eftir aö samningur
lians viö Milan rennur út. „Þaö
er aðeins hjá Marseille sem mér
liður virkilega vel,“ sagöi Papin
við franska dagblaðið L’Kquipe
en hann lék í 6 ár með Marseille
áður en hann fór til Ítalíu og skor-
aði 203 mörk fyrir félagiö á þeim
árum.
Celtic í Skotlandi á yfir höfði
sér þungar sektir eftir að ólæti
brutust út í leik liðsins gegn
Rangers á nýársdag. Stuðnings-
maöur Celtic reyndi að ráöast á
markvörö Rangers og ýmsu laus-
legu var kastað aö forráðamönn-
um Rangers.
Evrópuliðiii sterk
Sex Evrópuþjóðir eru komnar i
8-hða úrslit Hopman-bikarkeppn-
innar í terniis, sem nú stendur
yfir í Pertlt í Ástralíu, en til þessa
liafa sigurvegarar hennar alltaf
komiö frá Evrópu, í 8-liða úrslit-
um mætast Þýskaland-Banda-
rikin, Sviss-Tékkland, Ástraiía-
Frakkland og Spánn-Austurríki.
-VS/GH
Price látinn fara
frá Skaganum
- forráðamenn ÍA á fullu að leita að leikmanni í hans stað
Sigurður Sverrisscm, DV, Akxanasi;
Nýliðar Skagamanna í úrvals-
deildinm í körfuknattleik koma til
með að skarta nýjum Bandaríkja-
manni þegar síðari hluti deildar-
innar hefst um miðjan mánuöinn.
Hann verður því þriðji erlendi
miðherjinn hjá Akumesingum á
þessu fyrsta ári þeirra í úrvals-
deildinni.
Dwayne Price fór heim til
Bandaríkjanna í jóialeyfi og átti
að snúa hingað til lands í gær.
Honum var hins vegar tilkynnt á
gamlársdag að krafta hans væri
ekki lengur óskað. Price leysti Ser-
bann Zoran Gavrilovitch af hólmi
rétt áður en mótið hófst.
Skagamenn eru á fulli ferð að
leita að miðherja í stað Price. Að
sögn Ólafs Óskarssonar, formanns
Körfuknattleiksfélags Akraness,
vænta menn árangurs af þeirri leit
á allra næstu dögum.
Skagamenn sitja á botni síns rið-
ils ásamt Valsmönnum með 6 stig.
Þeir mæta Keflavík í fyrsta leik á
nýju ár’u en síðan Val, Snæfelli og
Skallagrími. Ljóst er að úrslit í
þeim þremur leikjum ráða miklu
um hvort hðinu tekst að halda
sæti sínu í deildinni.
„Við erum staðráðnir í að gera
allt sem í okkar valdi stendur til
þess að halda sæti okkar og bind-
um miklar vonir við nýjan mann,“
sagði Ólafur. Hann sagði Price
hafa verið ágætan félaga en
frammistaða hans inni á vellinum
hefði verið mjög misjöfn og því
yrði leitað eftir sterkari manni.
Martha náði besta
tímanum frá upphaf i
- mesta þátttaka 1 sögu gamlárshlaups ÍR-inga
Martha Emstdóttir úr ÍR náði á
gamlársdag besta tíma kvenna frá
upphafi í hinu árlega gamlárshlaupi
ÍR, sem þá var haldið í 18. sinn.
Martha, sem hljóp 9,5 kílómetrana á
32.57 mínútum fyrir þremur árum,
sigraði að þessu sinni á 31.52 mínút-
um og kom tæpum fjórum mínútum
á undan næstu konu í mark.
Þetta var væntanlega kveðjuhlaup
Mörthu hér á landi í bili en hún flyt-
ur til Noregs í þessum mánuði og
keppir þar fyrir félagið Vidar frá
Ósló. Hún fer þó til móts við stöllur
sínar úr ÍR, þær Önnu Cosser, Huldu
Björk Pálsdóttur og Gerði Rún Guð-
laugsdóttur, á Ítalíu í byrjun febrúar
en þar keppa þær fyrir hönd ÍR í
Evrópukeppni félagsliða í víðavangs-
hlaupi. Þær Anna, Hulda Björk og
Gerður Rún uröu í öðru, þriðja og
fjórða sæti í hiaupinu.
Gunnlaugur náði
öðrum besta tímanum
Gunnlaugur Skúlason úr UMSS sigr-
aði í karlaflokki í hiaupinu, hijóp
sömu vegalengd á 30.07 mínútum.
Það er annar besti tími karla í sögu
hlaupsins, en Már Hermannsson frá
Keflavík náði tímanum 29.55 mínút-
ur fyrir fimm árum.
Gunnlaugur fékk heldur meiri
keppni en Martha en var þó 35 sek-
úndum á undan bróður hennar,
Sveini, í mark, og Ragnar Guð-
mundsson, betur þekktur sem sund-
maður, náði þriðja sætinu eftir harða
baráttu við Braga Þór Sigurðsson úr
Ármanni.
Laufey Stefánsdóttir, Fjölni, sigr-
aði í flokki kvenna 18 ára og yngri á
38.34 mínútum.
Ursula Junemann sigraði í flokki
kvenna 40-44 ára á 43.20 mínútum.
Ema Hlöðversdóttir sigraði í flokki
kvenna 45-49 ára á 48.39 mínútum.
Þómnn Guðnadóttir sigraði í flokki
kvenna 50-54 ára á 55.46 mínútum.
Þuríður Bjömsdóttir sigraði í
flokki kvenna 55-59 ára á 58.04 mín-
útum.
Guðmundur Valgeir Þorsteinsson,
UMSB, sigraði í flokki karla 18 ára
og yngri á 31.40 mínútum.
Sighvatur Dýri Guðmundsson, ÍR,
sigraði í flokki karla 40-44 ára á 34.48
mínútum.
Jóhann Heiðar Jóhannsson, ÍR,
sigraði í flokki karla 45-49 ára á 34.52
mínútum.
Jörandur Guðmundsson, TKS,
sigraði í flokki karla 50-54 ára á 37.05
mínútum.
Berghreinn Guðni Þorsteinsson
sigraði í flokki karla 55-59 ára á 43.21
mínútum.
Höskuldur Eyíjörð Guðmannsson,
SR, sigraði í flokki karla 60 ára og
eldri á 42.50 mínútum.
Þátttakendur í hlaupinu vom 176
og hafa aldrei verið fleiri, en mest
hafa áður hlaupið 123. Karlar vom
117, þar af 59 í flokki 19-39 ára, en
konur vora 59, þar af 21 í flokki 19-39
ára. -VS
Bajic til ÍA í
stað Leifturs?
- prófaður með IA í móti á Kýpur
íslandsmeistarar ÍA taka þátt í
alþjóðlegu knattspyrnumóti á Kýp-
ur í byrjun mars og hyggjast þar
prófa reyndan serbneskan vamar-
mann, Srdan Bajic. Sá var á leið til
landsins til aö leika með Leiftri í
2. deild en nú virðast mestar líkur
á að hann gangi tíi liðs við Skaga-
menn.
„Það er í bígerð hjá okkur að
prófa þennan leikmann og sjá
hvemig hann stendur sig með okk-
ur, rétt eins og við gerðum með
Mihajlo Bibercic í fyrra,“ sagði
Gunnar Sigurðsson, formaður
Knattspymufélags ÍA, við DV í
gærkvöldi. Á mótinu á Kýpur leik-
ur meðal annars lið Teits Þórðar-
sonar, Lilleström frá Noregi, og
einnig Öster frá Svíþjóð og félag frá
Finnlandi.
Bajic er 28 ára gamall og lék um
árabil með Sarajevo í júgóslav-
nesku 1. deildinni en spilar nú með
Rudar í 1. deildinni í Serbíu.
-SSv/VS
íþróttireri i einnig á bls. 22,23 og 24
f/ 5 íÉMEÉIi 1% Þorsteinn Þorsteinsson. Þorsteinn gengur í raðir Fjölnis Þorsteinn Þorsteinsson, fyirum Víkingum en með Fram til þess landsliðsmaður í knattspyrnu og tímaogallsleikiðl591eikiíl.deiId. leikmaður með Fram og síðan Vík- Þorsteinn á að baki 9 A-landsleiki ingi, er genginn til liðs við 3. deild- og samtals 27 leiki með öllum fiór- ar lið Fjölnis. um landsliðum íslands og ætti að Þorsteinn tók sér frí á síðasta vera nýhðunum mikill styrkur í 3. ári, hafði þá spilað í tvö ár meö deildarkeppninniísumar. -VS
Sigu
- metþátttaka hjá le
Sigurbjöm Bárðarson, hestaíþrótta-
maður úr Fáki, hefur verið valinn
íþróttamaður ársins af lesendum DV.
Sigurbjöm sigraði með nokkrum yfir-
burðum en metþátttaka var í kjörinu
aö þessu sinni og hlutu vel á annað
hundrað íþróttamenn atkvæöi. Knatt-
spymukappinn Sigurður Jónsson frá
Ákranesi varð í öðra sæti í kjörinu og
Magnús Scheving Eyjólfsson, Norður-
landameistari í þolfimi, varð þriðji.
Þrefaldur heimsmeistari á árinu
Sigurbjöm var ákaflega sigursæll í
íþrótt sinni á árinu 1993 og vann til ótal
verðlauna á mótum hér heima og er-
lendis. Hæst ber sigur á hans á heims-
meistaramótinu í Hollandi þar sem
hann varð þrefaldur meistari. Hann
varð heimsmeistari í fimmgangi og í
gæðingaskeiði og heimsmeistari í sam-
anlögðum greinum á mótinu. Þá vann
hann til bronsverðlauna í 250 metra
skeiði.
Hann vann til sex gullverðlauna og
einna silfurverðlauna á íslandsmótinu
sem haldið var á Akureyri. Á Reykja-
víkurmeistaramótinu sigraði hann í níu
greinum og á stórmóti sunnlenskara
hestamanna vann hann til femra gull-