Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1994, Síða 36
36
MÁNUDAGUR 3. JANÚAR 1994
Kristjáni Jóhannssyni leiðist allt
tal um peninga.
Talað um
peninga
og launa-
kostnað
„Já, það kemur öðruvísi við
mann. Umtalið er líka meira og
annars konar. Heima er talað um
peninga og launakostnað sem
þekkist ekki annars staðar á op-
inþerum vettvangi. Ég kem tD
íslands með opnum hug og mik-
illi ánægju og vona að þetta geti
orðið eftirminnileg uppákoma,"
segir maður ársins hjá DV,
Kristján Jóhannsson, um vænt-
anlega sýningu Þjóðleikhússins.
Urrunæli dagsins
Barátta við lík
„Ég er að fara í samkeppni við
líkið á sjálfum mér,“ segir Gunn-
ar Smári Egilsson, fyrrum rit-
stjóri Pressunnar, en hann ætlar
að gefa blað sitt, Eintak, út viku-
lega, á fimmtudögum.
„Það er líka meira fútt í því að
gefa út vikurit. Á krepputímum
er meira gaman að gefa út eitt-
hvaö sem er tiltölulega ódýrt og
hratt."
Pólitískt ofbeldi
„Hér er um að ræða pólitískt
ofbeldi. Siðleysið er þvílíkt að ég
á ekki til orð yflr þetta,“ segir
Haraldur Haraldsson í Andra en
tilboði hans og fleiri í SR-mjöl var
ekki tekið þar sem fjárhagsstaða
þeirra þótti ekki nægileg traust.
„Það er stóralvarlegur hlutur
af sjávarútvegsráðherra að full-
yrða að þessir aðilar sem með
mér standa hafi ekki fjárhagslegt
bolmagn til að standa við tilboðið.
Ég skil ekki hvemig hægt er að
fullyrða slíkt.“
Óléttublanda
„Þetta er það alira ánægjuleg-
asta sem við gerum hér. Konurn-
ar snerta varla jörðina, þær eru
svo glaðar þegar allt gengur upp
og þær verða bamshafandi," seg-
ir Olöf Einarsdóttir við Alþýðu-
blaðið en hún og móðir hennar,
Ásta Erlingsdóttir grasalæknir,
hafa gefið konum, sem illa gekk
að eignast böm, sérstaka grasa-
blöndu. Fimmtán konur bíða þess
að fæða eftir að hafa drukkið
blönduna góðu.
Vinafélagið
Fundur er í safhaðarhebnili
Bústaöakirkju kl. 20.001 kvöld.
Fundir
Félagsvist ABK
Spilað verður í Þinghóli,
Hamraborg 11, í kvöld kl. 20.30.
Listaklúbbur stofnaður
Undirbúningsstofnfundur
Lístaklúbbs Uiikiniskjallarans
verður haldinn í kvöld kl. 20.30
og öllum opinn. Ræddar verða
hugmyndir að reglum og Itígð
fram dagskrá næstu tveggja mán-
aða.
Hægt kólnandi
Stormviðvörun kl. 6 í morgun. Búist
er við stormi á Austfjarðamiðum og
suðausturmiðum.
Veðrið í dag
Það verður áframhaldandi norð-
austanátt, sums staðar allhvöss í
dag, einkum suðaustan til. Dálítil él
verða austanlands og í útsveitum
norðanlands og á Vestfjörðum. Sunn-
anlands og vestan verður aftur á
móti léttskýjað. í nótt má reikna með
hægari austanátt um mestallt land
og úrkomulaust verður víðast hvar,
nema hvað að einhver él verða enn
á norðausturhorninu. Veður fer
hægt kólnandi.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
austan og norðaustan kaldi og létt-
skýjað. Frost 1 til 3 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 15.48
Sólarupprás á morgun: 11.15
Síðdegisflóð í Reykjavík: 22.26
Árdegisflóð á morgun: 10.47
Veðrið kl. 6 I morgun:
Akureyrí alskýjað -3
Egilsstaöir alskýjað * -1
Galtarviti snjókoma -3
Keíla víkurflugvöUur léttskýjað -1
Kirkjubæjarkiaustur skýjað 2
Raufarhöfn alskýjað -2
Reykjavík léttskýjað -2
Vestmannaeyjar alskýjað 3
Bergen skýjað -3
Helsinki snjókoma -1
Ósló skýjað -8
Stokkhóhnur þokumóða -5
Þórshöfn rigning 5
Amsterdam þokumóða 4
Barcelona léttskýjað 11
Berlín snjókoma 1
Chicago snjókoma -1
Feneyjar þokumóða -1
Frankfurt skúr 6
Glasgow léttskýjað 4
Hamborg snjókoma 1
London alskýjað 6
Madríd súld 9
Malaga hálfskýjað 14
MaUorca léttskýjað 5
Montreal skýjað -18
New York alskýjað 1
Nuuk snjókoma -3
Orlando rigning 18
París alskýjað 7
Valencia léttskýjað 14
Vín léttskýjað 5
Winnipeg snjókoma -21
„Ég hef alltaf starfað á sjúkra-
húsi: þar til núna og ég kveð það
með töluverðum söknuði. Bara
tilhugsun að vera fjarri þessum
starfsvettvangi sem Landspítalinn
er reynir töluvert á mig þótt ég
hlakki auðvitaö til þessara nýju
viðfangsefha," segir Ragnheiður
Haraldsdóttir sem tekur rfð starfi
deildarstjóra í heilbrigðis- og trygg-
ingaráðuneyti í dag. Ragnheiður
lauk B.S. prófi í hjúkrunarfræöi frá :
HÍ og M.S. prófi frá Bandaríkjun-
um árið 1984. Hún hefur starfað
sem hjúkrunarfræðingur á ýmsum
deildum Borgarspítala og Land-
spítala. Hún var stundakennari í
hjúkrunarfræði og frá árinu 1989,
lektor við námsbraut í hjúkrunar-
fræði. Hún var hjúkrunarfraíðslu-
Ragnheiður Haraidsdóttir.
stjóri á Landspítalanum og hjúkr-
unarframkvæmdastjóri fræðslu-
deildar frá 1987. Þá var hún vara-
sviðsstjóri á alraennu hjúkrunar-
: sviði og staðgengill hjúkrunarfor-
stjóra á Landspítalanum frá 1990
tiljúlí 1993.
„Hjúkrunarmenntunin nýtist
mjög víða og gefur manni tækifæri
til að bera niður á miög mismun-
andi starfsvettvangi."
Ragnheiðui’ er gift Hailgrimi
Guðjónssyni lækrn og eiga þau úög-
ur börn. Elstir eru synimir sem eru
16 og 19 ára, þá kemur dóttir sem
er 7 ára en yngstur er 1 'á árs gam-
ail drengur.
Auk hjúkrunarstarfa hefur
Ragnheiður starfað að félagsmál-
um stéttar siirnar og er nú vara-
formaður BHM.
„Á undanfömum áram hef ég
haft iitil tækifæri til að sinna öðru
en vinnu og fjölskyldu. Ég hef
mikla ánægju af lestri bókmennta.
Ég nota hvert tækifæri til að
hlaupa úti og stunda lílmmsrækt
enda alveg nauðsynlegt að hreyfa
sig,“ segir Ragnheiður Haralds-
dóttir.
Myndgátan
íþróttahom Sjónvarpsins verð-
ur á sama tima í dag eöa kl. 18.25.
Að venju veröur farið yfir
íþróttaviðburði helgarinnar. Af
innlendum vettvangi ber hæst
gamlárshlaup ÍR og jóla- og ný-
ársmót í kvennahandbolta á veg-
um HSÍ. Mikið hefur verið að
gerast úti í hinum stóra heimi.
DV í dag er líka með fjórar síð-
ur af íþróttafréttum og ber hæst
umfjöllun um íþróttamann ársins
sem lesendur kusu.
Skák
Lausnin á þessari þraut, sem er eftir
Healey frá því herrans ári 1862, er svo
sannarlega óvænt. Hvítur leikur og mát-
ar í 3. leik:
Hvítur á marga fi-eistandi möguleika
en dularfullur hróksleikur, 1. Hhl!! leiðir
einn til máts í 3. leik. Svartur á ekki
marga kosti; ef riddarinn hreyfir sig kem-
ur 2. Dd6 mát. 1. - Be8 2. Dbl Bb5 Eini
leikurinn til að hindra 3. Db4 mát en nú
kemur í ljós hvers vegna hrókurinn varð ,
að vikja í homið hægra megin: 3. Dgl
mát!
Jón L. Árnason
Bridge
Bandariska parið Bob Hamman og Bobby
Wolff er jafnan talið með þeim sterkari í
heiminum. Þeir báðir eru gæddir vissri
sniUigáfu sem oft fær að njóta sín við
spilaborðið. Spil dagsins er í sterkum
sveitakeppnisleik vestanhafs þar sem
þeir félagar sátu í vörninni í AV. Sagnir
gengu þannig, suður gjafari og NS á
hættu:
♦ D62
¥ 1098742
♦ G85
4. 7
♦ K1087
¥ DG3
♦ 43
+ KD108
♦ --
¥ 6
♦ ÁKD76
* ÁG96543
Suður Vestur Norður Austur
Bergen Wolff Cohen Hamman
1+ pass 1» 24
3Ó 44 pass pass
4 G pass 54 dobl
P/h
Fjögur grönd hjá Marty Bergen vora ekki ásaspuming, heldur ábending til félaga
um að velja annan hvom láglitanna til
að spila. Utspil Wolffs var spaðaáttan,
Hamman setti gosann og Bergen tromp-
aði. Hann tók nú laufás og trompaði lauf
með tíguláttu. Eins og sést, þá gat Ham-
man nú yfirtrompað. Ef hann hefði gert
það og til dæmis spilað aftur spaða, þá
trompar suður, trompar síðan láuf með
tigulgosa og tekur trompin tvisvar. Þá fer
hann aðeins einn niður, missir slag á lauf,
tromp og þjarta. En þannig gekk vömin
ekki fyrir sig. Hamman yfirtrompaði
ekki! Hann henti lágu hjarta þess í stað.
Eins og lesendur geta sannreynt, tryggir
þessi vöm Hammans að sagnhafi getur
ekki lengur gert sér mat úr laufum sín-
um. Sagnhafi fékk ekki nema 8 slagi í
reynd, 5 á tígul heima, tvær trompanir í
blindum og laufás og Hamman og Wolff
fengu 800 í sinn dálk.
isak örn Sigurðsson