Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Page 2
2
MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 1994
Fréttir
Sameiginlegur framboðslisti miimihlutans:
Sigrún líklega í fyrsta
sæti og Ingibjörg áttunda
- baráttusætið fyrir borgarstjóraefnið - samkomulag milli flokkanna á næsta leiti
Samkomulag er í sjónmáli í óform-
legum „kaffibollaviðræðum“ full-
trúa minnihlutaflokkanna í borgar-
stjóm og Alþýðuflokksins um sam-
eiginlegt framboð flokkanna í borg-
arstjórnarkosningunum í vor. Mál-
efnavinna flokkanna er í fullum
gangi og er nú verið aö vinna að sam-
eiginlegum málefnasamningi. Enn er
margt ófrágengjð og er stefnt að því
að „binda alla lausa hnúta“ áður en
samkomulagið verður kynnt fyrir
fulltrúaráðum flokkanna og félags-
fundi Kvennalistans. Á þessari
stundu er þó ljóst að stefnt verður
að því að láta jafnræði ríkja milli
flokkanna varðandi uppröðun á hsta
þannig að allir verðir ánægðir með
sinn hlut.
Samkvæmt heimildum DV er ekki
enn farið að raða mönnum á fram-
boðslistann þó að mestur tími hafi
farið í það að undanförnu að skipta
sætum milli flokkanna. Allar líkur
eru á því aö Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir alþingismaðm- verði borgar-
stjóraefni listans og skipi áttunda
sætið, sem er baráttusætið í borgar-
stjóm, náist samkomulag milli flokk-
anna og að Sigrún Magnúsdóttir,
borgarfulitrúi Framsóknarflokksins,
skipi efsta sæti listans.
Ingibjörg Sólrún hefur ekki gefið
endanlegt svar um þátttöku í fram-
boðinu og segist ekki gera það fyrr
en ljóst sé hver málefnin verða,
hveijir verði í framboði og hvort
flokkamir haíi gefið samþykki sitt
fyrir framboðinu. Hún segist fylgjast
með viðræðunum úr fjarlægð. DV
hefur heimildir fyrir þvi að Ingibjörg
Sólrún sé reiðubúin að setjast í bar-
áttusætið gangi dæmið upp. Tahð er
að hún vilji verða „póhtískur borgar-
stióri".
Enn er óljóst hveijir verða á fram-
boðshstanum fyrir hönd Alþýðu-
bandalags og Alþýðuflokks. Talið er
að Alþýðuflokkurinn verði að halda
prófkjör um þaö sæti sem hann fær
á sameiginlegum hsta. Innan Al-
þýðubandalagsins hafa nú þegar far-
ið í gang vangaveltur um hugsanlega
kandídata flokksins í borgarstjóm.
Þar ber helst að nefna Harald Ást-
ráðsson og kennarana Árna Þór Sig-
urðsson og Arthúr Morthens. Ekki
er ljóst hvemig alþýðubandalags-
menn hyggjast ganga frá þeim mál-
um. -GHS
Nefhd leiti lausnar í Sólheimadeilu:
Trúnaðarbrestur innan
stjórnar Sólheima
segir Margrét Frímannsdóttir
„Eg tel að það hafi orðið alvarlegur
trúnaðarbrestur innan fuhtrúaráðs
og stjómar Sólheima þegar bréfið frá
félagsmálaráðherra var ekki lesið
upp á fundi fulltrúaráðsins sl. föstu-
dag þrátt fyrir að það heföi borist
þangað," sagði Margrét Frímanns-
dóttir en hún situr í nefnd sem full-
trúaráð Sólheima skipaði þennan
sama dag th að leita lausna í Sól-
heimadeilunni á grundvehi thlagna
Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmála-
ráðherra.
„Við höfum engar skýringar fengið
á því af hverju við fengum ekki að
sjá bréfið en það var sent Halldóri
Júlíussyni, framkvæmdastjóra Sól-
heima, sem staðfesting á fyrirspurn
hans. Ég vissi ekki af bréfinu fyrr
en ég heyrði það frá ráðherra. Það
hefur ekki geflst tækifæri til þess að
krefja framkvæmdastjórann svara.
Á þessum fulltrúaráðsfundi vomm
við kosin í nefnd til viðræðna við
ráðherrann en nú hefur hún í bréf-
inu vísað deilunni alfarið tU biskups
svo við munum væntanlega ræða við
hann allra næstu daga,“ sagði
Margrét.
Tillögur félagsmálaráðherra, sem
stuðst verður við, felast m.a. í því að
fram fari mat á þjónustuþörf fatlaðra
og að í framtíðinni verði framlög til
Sólheima grundvölluð á því mati.
„Einnig lagði hún til að gerður yrði
þjónustusamingur miðað við þær
fjárlagatillögur sem eru í fjárlögum
1994. Hins vegar mætti athuga með
leiðréttingar þegar ársreikningar
1993 lægju fyrir,“ sagði Margrét.
Ekki náðist í framkvæmdastjóra
Sólheima vegna bréfsins þrátt fyrir
ítrekaðar tUraunir.
-ingo
„Ég er ákaflega þakklátur og ánægður með að ég skyldi verða valinn maður ársins. Sjálfur tel ég árið 1993 hafa
verið mitt besta ár,“ sagði Kristján Jóhannsson söngvari er hann tók við viöurkenningu sinni, íslensku alfræði-
orðabókinni, úr hendi Ellerts B. Schram, ritstjóra DV, á laugardag. Kristján kom hingað heim yfir helgina til að
vera viðstaddur brúðkaup mágs síns og gat því tekið á móti viðurkenningu sinni. Eins og lesendur muna var
Kristján Jóhannsson valinn maður ársins af DV. -ELA/DV-mynd JAK
Stuttar fréttir
Kópavogur:
Kvennalistiog
Alþýðubandalag
viijaKristján
ásínnlista
Kvennalistakonur í Kópavogi
ákveða á þriðjudaginn hvort þær
fara út 1 sameiginlegt framboö
með Alþýðubandalaginu fyrir
bæjarstjómarkosningarnari vor.
Rætt hefur veriö við Krístján
Guðmundsson, fyrrverandi bæj-
arstjóra, um að hann taki fýrsta
sæti á sameiginlegum lista þess-
ara flokka en hann hefur ekki
gefið neitt svar. Þá hefur DV
heimildir fyrir því aö aðrir flokk-
ar og áhugamenn um óháðan
lista hafí rætt við Kristján.
„Ég get staðfest að það hefur
verið nefnt við mig að taka sæti
á Usta KvennaUsta og Alþýðu-
bandalags en ég vil ekki láta hafa
neitt annað eftir mér á þessu stigi.
Það er ekki tímabært,“ segir
hann.
Áhugamenn um sameiginlegt
framboö KvennaUsta og Alþýðu-
bandalags telja talsveröar Ukur á
góðri útkomu sameiginlegs lista
í kosningunum í vor þegar
ástandið í þjóömálunum og stað-
an í bæjarmálunum eru höfö i
huga. TaUð er að ágreiningurinn
innan Sjálfstæðisflokkshis veiki
stöðu hans í bænum auk þess sem
óánægjan innan Framsóknar-
flokksins með Sigurð Geirdal
bæjarstjóra kalh á róttækar
breytingar. -GHS
MagnúsÁrni
kjörinn
formaðurSUJ
Magnús Ámi Magnússon, vara-
formaður Sambands ungra jafri-
aðarmanna, var kjörinn formaö-
ur þess með yfirgnæfandi meiri-
hluta á fundi sambandsstjómar
SUJ á laugardag. Enginn bauö sig
ffam á móti honum en fundinn
sóttu 30 manns af þeim 40 sem
em í stjóminni.
Fráfarandi formaður, Sigurður
Pétursson, sagði af sér á miðju
kjörtímabih vegna persónulegra
aðstæðna og vegna aldurs, en
hann er 35 ára gamaU.
„Það er rúmlega hálft ár til
næsta þings, sem verður í haust,
svo ég heföi lögum samkvæmt
getað klárað kjörtímabUið en
íannst ekki sérstök ástæða til
þess,“ sagði Sigurður. -
Á fundinum á laugardaginn var
að sögn Sigurðar staða sam-
bandsins rædd og starfshættir.
-ingo
Verdiag mun hækka
Fjármálaráðimeytið spáir því
að verðlag lækki ekki á þessu
ári. Þvert á móti hækki verðlagið
en vegna skattabreytinga í byrj-
un árs verði hækkunin minni en
eUa. Sjónvarpið skýrði írá þessu.
Elsti ísiendingurínn
Tuttugu og fimm landsmenn
eru nú 100 ára eða eldri. Skv.
Morgunblaðinu er elsti íslend-
ingurinn Valgerður Friðriksdótt-
ir á Akureyri, 104 ára.
Hert innheimta á sektum
Lögreglustjórinn í Reykjavík
stefnir að því að innheimta 250
miUjónir króna í sektir í ár. Hátt
hlutfaU lögreglusekta hefur
íyrnst undanfarin ár og skv.
Morgunblaðinu ætlar embættið
að herða innheimtuna.
Söluvirði SR*mjöis
ofháttmetið
Rikissjóður gæti tapað 200
milljóna króna skatttekjum
vegna sölunnar á SR-mjöU. F.ignir
voru uppfæröar um 650 milljónir
og nýtast til afskrifta. Vegna
þessa var raunverulegt söluvirði
fyrirtækisins því 200 miUjónum
lægra en ætlað var eða rífiega 500
mfiljónir. Sjónvarpið skýrði frá
þessu.
Smokkaríieigubíia
Sala á smokkum hefst bráðlega
í leigubílum. Samkvæmt Mbl.
ákváöu leigubflsljórar aö hefja
smokkasölu að ósk landlæknis.
Albert og borgarstl'órnin
Albert Guömundsson kveðst
hafa áhuga, heilsu og erindi í
borgarstjórn. Tíminn haföi þetta
eftir honum.
Minna satt á göturnar
Gatnamálastjórinn í Reykjavík
stefnir að því að draga úr salt-
austri á götur borgarinnar um 30
til 35% í vetur. Samkvæmt Mbl.
á með hjálp veðurathugunar-
tækja að salta göturnar um leið
og hálka myndast
Vinnubrögðin hörmuð
Þroskaþjálp hefur lýst yfir
furðu á þeirri hótun stjórnenda
Sólheima að hefja brottflutning á
heimilisfólkinu. Landssamtökin
harma vinnubrögöin.
-kaa