Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Blaðsíða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Blaðsíða 40
T Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 3.000 krónur. Ritstjórn - Augiýsingar - Áskr - : IÍ?I Frjálst,óháð dagbíað MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 1994. Banaslys: Klemmdist milli bfls og hurðar Þrjátíu og átta ára gamall maður lét lífið er hann klemmdist milli bif- reiðar, sem hann var að gera við, og bílskúrshurðar. Hinn hörmulegi at- burður átti sér stað um hádegi á laug- ardag. Bíllinn hafði verið hækkaður upp með búkkum og var maðurinn að bjástra við hann að aftan þegar bíllinn féll niður með þessum afleið- ingum. Maðurinn var meðvitundar- laus þegar að var komið og komst aldrei til meðvitundar. Hann hét Sig- urður Jakob Ólafsson, til heimihs að Norðurtúni 29 í Bessastaðahreppi -ELA Fyrsta loðnan til Eskifjarðar Emil Thorarensen, DV, Eskifirði: Fyrstu loðnunni á nýbyrjuðu ári var landað á Eskifirði eftir hádegi í gær. Það var norski loðnubáturinn Heröytraal sem kom með tæp 120 tonn. Aflann fékk skipið í fjórum köstum út af Héraðsflóa. Að sögn Atla V. Jóhannessonar, sem sá um að landa úr bátnum, var loðnan fremur smá og lítið af hrognum í henni. Grænlenski loðnubáturinn Amma- sat er enn á miðunum austnorðaust- ur af Langanesi og heldur áfram leit norður eftir kantinum. Báturinn hafði enn ekkert fundið til að kasta á þar sem loðnan stóð djúpt og var hka dreifð. Auk þess var bræla og þungur sjór og spáin verri fyrir dag- inn í dag, að sögn skipveija um borð í Ammasat í gær. Fíkniefna- fundur Tollgæslan á Keflavíkurflugvelh fann 90 grömm af kókaíni, tæp 2 grömm af heróíni og 20 óþekktar töfl- ur í fórum 38 ára gamals Hollendings á föstudag. Töflurnar hafa verið sendar til efnagreiningar. Hollendingurinn var að koma frá Amsterdam og leiddi fyrsta tollskoð- un í ljós að í fórum hans voru áhöld th neyslu fíkniefna. Við nánari skoð- un fundust efnin svo innanklæða á honum og í farangri Máhð var sent fikniefnadeild lög- reglu til rannsóknar. Ekki fengust upplýsingarþaðanímorgun. -pp Eskiflörður: Sýsluf ulltrúi al varlega slasað ur eftir árás Sýslufulltrúinn á Eskifirði liggur stórslasaður á Landspítalanum eft- ir að þrír menn um tvítugt réðust á hann með hrottaskap á heimilí hans á laugardagsmorgun. Menn- irnir munu hafa ráðist á sýslufull- trúann með hnefum og spörkuðu í hann þannig að hann hlaut hfs- hættuleg meiðsl af. Hann var flutt- ur með sjúkraflugi til Reykjavíkur og þaðan á Landspítalann þar sem hann gekkst undir aðgerð. Aðdraganda að máh þessu má rekja til fíkniefnamáls sem upp kom um hátíðirnar og einhverjir af þessum mönnum tengjast. Þeir munu síðan hafa hitt sýslufulltrú- ann á bar á hótelinu á föstudags- kvöld þar sem til harðra orðaskipta kom milli þeirra vegna þess máls. Það var síðan á laugardagsmorg- un að mennirnir þrír komu heim til sýslufulltrúans, þar sem hann býr einn í sýslubústað, og réðust aö honum með fyrrgreindum hörmulegum afleiðingum. Sýslu- fuhtrúinn gat konúst í síma og gert lögreglu viðvart 'eftir að mennirnir voru á brott og var honum þá strax komið undir læknishendur. Fjórir rannsóknarlögrcglumenn frá RLR voru sendir austur í gær og fóru yfirheyrslur fram yfir mönnunum i allan gærdag. Eimt mannanna hefur verið úrskurðað- ur í gæsluvarðhald til 21. febrúar en hinir tveir þar til á morgun. Mennirnir mega eiga von á dómi vegna húsbrots og líkamsárásar. Mennirnir 'hafa áður komið við sögu lögreglunnar á Eskifirði. Sýslufuhtrúínn var úr lífshættu í gær. -ELA Komið með hinn slasaða mann á Borgarspítalann um kvöldmatarleytið á laugardagskvöld. DV-mynd S Kópadrápið óupplýst Rannsókn á útselskópagómum og gónum (hausum), sem fram fór vegna dráps á kópum í Skjaldabjarn- arvík á Ströndum í haust, er lokið. Ljóst er að gómarnir eru ekki úr þeim hausum sem náð var í 1 Skjalda- bjamarvík. Rannsóknin fór fram að beiðni sýslumanns á Hólmavík. Lögreglan á ísafirði lagði hald á gómana og voru tveir menn yfir- heyrðir vegna málsins en drápið varð ekki sannað á þá. Að sögn Rík- harðs Mássonar, sýslumanns í Hólmavík, virðist það ljóst að menn- irnir hafi engan þátt átt að drápinu í Skjaldabjarnarvík og er rannsókn málsinsþvíafturábyijunarreit. -pp Vestflrðir: Heiðar ófærar Allar heiöar á Vestfjörðum vora ófærar í morgun. Mjög hvasst hefur verið um helgina og færð spihst til fjalla sökum skafrennings. Að sögn Vegagerðarinnar á ísafirði er færð góð í byggð og á milli Hnífs- dalsogBolungarvíkur. -pp Mikiðhvassviðri Mikið hvassviðri gekk yfir austan- og norðanvert landiö í nótt og morg- un. Töluverð ófærð skapaðist af og féll skólahald víða niður á Austfjörð- um. DV hafði engar fréttir af óhöppum sökum veðurs en tvísýnt var með flug á áætlunarleiðum Flugleiða í morgun og hafði orðið að seinka ein- hveijumbrottförum. -pp Slys í Landmannalaugum: Lærbrotnaði er vélsleða hvolfdi Maður slasaðist illa er vélsleða, sem hann var á, hvolfdi þar sem hann var á ferð í giljunum í Land- mannalaugum á laugardag. Tilkynn- ing barst til Landhelgisgæslunnar um kl. 17.20 frá Hveravöhum en þangað hafði verið kallað í gegnum Gufunes-radíó. Búið var að ná mann- inum, sem var iha lærbrotinn, upp úr gihnu þegar þyrlan kom á stað- inn. Og var hann í bíl áleiðis að skál- anum. Flugmenn þyrlunnar notuðu sérstaka hitamyndsjá til að finna fólkið og hjálpaði það mjög til enda skhyrði góð. Þyrlan lenti í Land- mannalaugum klukkan 18.20 og við Borgarspítalann klukkan rúmlega sjö um kvöldið þar sem gert var að sárummannsins. -ELA LOKI Þarfékk kerfið selbita! Veðriöámorgun: Hlýjast á Suðaustur- landi Á morgun veröur austlæg eða norðaustlæg átt, víða hvöss, eink- um um norðvestanvert landið. Slydda eða rigning um austan- vert landið, snjókoma eða élja- gangur norðan th á Vestfjörðum en annars þurrt að mestu vestan- lands, skúrir vestur með suður- ströndinni. Frostlaust á láglendi, hlýjast suðaustanlands. Veðrið í dag er á bls. 44 s. 814757 HRINGRÁS ENDURVINNSLA Tökum á móti brotajárni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.