Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.1994, Blaðsíða 16
MÁNUDAGUR 10. JANÚAR 1994 16 Ökuskóli Islands hf. Námskeið til undirbúnings að auknum ökuréttindum hefjast 20. janúar. Innritun stendur yfir. Ökuskóli íslands M. Dugguvogi 2 - s. 683841 Geymið auglýsinguna Útboð Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. bygg- ingadeildar borgarverkfræðings, óskar eftir til- boðum í endurmálun á leiguíbúðum Reykjavík- urborgar. Útboösgögn veröa afhent á sk;rifstofu vorri, Frí- kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn kr. 5.000,- skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað fimmtudag- inn 27. janúar 1994, kl. 14.00. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 - Simi 25800 11ft} | & NYTT NÝTT SON GLEIKJAN AMSKEIÐI Hópnámskeið fyrir ungt fólk sem hefur áhuga á að tjá sig í söng og dansi. Stefnt er að nemendauppsetningu á íslenskum og erlendum lögum frá hippaárunum. SONGLEIKJANAMSKEIDII Hópnámskeið fyrir alla þá sem hafa einhvem gmnn í söng, dansi eða leiklist. Einnig fyrir fyrri nemendur Söngsmiðju- nnar. Á þessu námskeiði verður farið dýpra í söng-, dans- og leiklistina. Stefnt er að uppsetningu á úrdrætti úr Vesaling- unum. 0NNUR HOPNAMSKEID # Byrjendanámskeið # Framhaldsnámskeið li Kór Söngsmiðjunnar || Krakkadeild ný deild innan Söngsmiðjunnar: Hópar: 4-5 ára • 6-8 ára • 9-11 ára EINSONGVARADEILD Skemmtileg og lifandi söngkennsla, þar sem brotið er upp hið hefðbundna og haldið inn á ferskari brautir. LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA A VALOA ÞÉR SKAÐA! <-i"a Merming Saga Evu Lunu Isabel Allende er mikill frásagnameistari og sögur hennar svífa oft á mótum draums og veruleika. í þeim er falin skörp ádeila á rangsnúið stjórnarfar og persón- umar spanna allt litróf mannlífsins. Þær berjast gegn- um þykkt og þunnt við að halda reisn í öfugsnúnum heimi þar sem mannvonskan ræður oftar en ekki ríkj- um. Þessar hversdagshetjur verða lesandanum ógleym- anlegar, jafnvel þó að mörgum þeirra bregði aðeins fyrir rétt í svip. Olgandi suður-amerískar ástríður og lífsþorsti togast á við siði og venjur þjóðfélags í viðjum ógnarstjómar og ótta þar sem frelsishetjan og helsta von alþýðunnar í dag er orðin harðstjóri á morgun. í persónu Evu Lunu kristallast margt af þessu. Hún LeikList Auður Eydal gerir sér lífið léttbærara með draumum og ævintýra- legum sögum, sem hún spinnur upp, sjálfri sér og áheyrendum sínum til óblandinnar ánægju. Allt frá barnæsku er hún munaðarlaus og falin kaldranalegri umsjá óviðkomandi fólks. En mótlætið brýtur ekki niður óbilandi lífsvilja og réttlætiskennd Evu Lunu. Hún er heillandi og hugmyndarík, fulltrúi hinnar lífseigu alþýðu sem þrátt fyrir allt lifir kúgar- ana og rís að lokum upp fijáls og sterk. Það er ekkert áhlaupaverk að koma svo flókinni og margbrotinni sögu og allri þeirri mannlífsílóru, sem í henni er falin, til skila á leiksviði. En þeir Kjartan Ragnarsson, Óskar Jónasson og Egifi Ólafsson leggja ótrauðir til atlögu og tekst að skapa nýtt og athyglis- vert verk, sjálfstætt leikverk með söngvum sem að mörgu leyti höndlar inntak og persónulýsingar bókar- innar og kemur þeim til skila í miklu sjónarspih á Stóra sviði Borgarleikhússins. Þar er tækni leikhússins beitt af yfirvegaðri fag- mennsku, leikmynd Óskars Jónassonar er formfógur og hlaðin táknum, lýsing Lárusar Bjömssonar er óað- skiljanlegur hluti hennar, búningaflóran hreint ótrú- leg og yfirleitt er öll úrvinnslan svo góð að sómi væri aö á hvaða leiksviði sem væri. Sérstaklega ber að fagna góðum söng í mörgum atrið- um, spennandi tónhst eftir Egh Ólafsson í skemmtíleg- um flutningi hljómsveitar undir stjórn Árna Scheving, óvenjulega vel útfærðum dönsum og öruggum hreyf- ingum leikara og dansara undir stjórn Micaelu von Gegerfelt og metnaðarfuhri stjórn höfundar og leík- stjóra sýningarinnar, Kjartans Ragnarssonar. Hann tekur auðvitað stórt stökk út í óvissuna með því að fela ungri leikkonu, Sólveigu Amarsdóttur, svo veigamikið hlutverk sem Evu Lunu en þegar upp er staðið verður ekki séð annað en það hafi verið rétt ákvörðun. Hún á auðvitað margt ólært, t.d. í tækni og raddbeitingu en að öhu samanlögðu sýndi hún inn- lifaðan og tilfinningaríkan leik sem spannaöi vítt svið tjáningar. Eva Luna varð í meðfórum hennar sönn og marght persóna og eldri leikkona hefði ekki á sama hátt getað túlkað bamið sem smám saman þroskast og breytist í fuhþroska konu. Edda Heiðrún Backman sýndi glæshegan stjörnuleik í hlutverkum Mimiar/Melechios og söng afburðavel. Eghl Ólafsson lagði ekki einungis th fmmsamda tón- hst í sýninguna heldur sýndi hka þmmugóðan leik í hlutverkum velgjörðarmannsins og Tyrkjans Ríads Halabi. í síðartalda hlutverkinu sýndi hann hvers hann er megnugur í persónusköpun og bjó th eina eftirminnilegustu persónu sýningarinnar. Margrét Ólafsdóttir var prýðisgóð í hlutverki Elvíru en ég var ekki sátt við útfærslu leikstjórans á Guðmóö- urinni sem Soffia Jakobsdóttir lék. Valgerður Dan og Sigurður Karlsson vora lunkulega góð sem systkinin Sólveig Arnarsdóttir, sem leikur Evu Lunu, og Pétur Einarsson í einu atriði leikritsins. DV-mynd BG og Karl Guðmundsson fór á kostum í gervi Maddöm- unnar. Þór Tuhníus náði ekki sannfærandi tökum á hlutverki Rolfs og þó að Ehert Ingimundarson ynni vel eftir atvikum úr hlutverki Hubertos vantaði eitt- hvað upp á í handritinu þannig að persónan varð brotakennd og fékk ekki teljanlega vigt sem var til baga í sýningunni. Þá má nefna Steindór Hjörleifsson, sem sýndi sleipan hentistefnumann, Aravena, og Ásu Hlín Svavarsdóttur í mildu móðurhlutverki. Pétur Einarsson var kannske einum of sléttur og fehdur sem hinn hættulegi Rodr- iguez hershöfðingi, eins og ógnina vantaði. Steinunn Olafsdóttir, Magnús Jónsson og Þröstur Leo Gunnars- son skhuðu sínu vel. Áður var minnst á góða útfærslu dansa og hópatriða og ekki má gleyma söngatriðum Margrétar Pálmadótt- ur sem briheraði á tveimur stöðum í sýningunni. Það er mikið í lagt í þessari uppfærslu og ekki annað hægt að segja en alhr aðstandendur sýningarinnar hafi góðan sigur. Þó að mikið skorti á að munúð og mannúð bókartextans komist th skha og meiri áhersla sé lögð á það sem teljast má krassandi í frásögninni hefur markmiðið án efa ekki verið að færa bókina kórrétt th sviðs, enda vísast ómögulegt, heldur miklu fremur að skapa sjálfstætt og margslungið leikverk, byggt á þeim htríku persónum og mannlífsmyndum sem hún greinir frá. Og það tekst. Leikfélag Reykjavíkur sýnir í Borgarleikhúsi: Eva Luna. Höfundar: Kjartan Ragnarsson og Óskar Jónasson. Byggt á samnefndri skáldsögu eftir Isabel Allende (þýðing Tómasar R. Einarssonar). Tónlist og söngtextar: Egill Ólafsson. Búningar: Guörún Sigriður Haraldsdóttir og Þórunn Elisabet Sveinsdóttir. Lýsing: Lárus Björnsson. Hljómsveitarstjóri: Árni Scheving. Dansar og hreyfing: Michaela von Gegerfelt. Leikmynd: Óskar Jónasson. Útsetningar: Rikaröur örn Pálsson. Leikstjóri: Kjartan Ragnarsson. Tríó Reykjavíkur Tónleikar voru í Víðistaðakirkju í gærkvöldi. Tríó Reykjavíkur lék en það skipa þau Guðný Guðmunds- dóttir á fiðlu, Gunnar Kvaran á selló og Halldór Har- aldsson á píanó. Gestur á þessum tónleikum var Osmo Vanska sem lék á klarínett. Á efnisskránni voru Tríó í Es dúr eftir Ludwig van Beethoven og Kvartett um endalok tímans eftir Oliver Messiaen. Osmo Vanska hefur vakið mikla athygh á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar íslands í haust fyrir frábæra hljómsveitarstjóm. Mörgum þótti því forvitnilegt að heyra hvernig hann stæði sig sem hljóðfæraleikari en hann menntaöi sig í klarínettleik jafnframt hljómsveit- arstjórn. Þessari forvitni varð þó ekki svalað strax á tónleikunum í gærkvöldi því þeir hófust með Tríói Beethovens. Engum þurfti að leiðast undir þessu fah- ega og skemmtilega verki sem nær því að vera hvort- tveggja; aðgenghegt og ríkt. Kvartett Messiaens um endalok tímans er áreiðan- lega með vinsælustu kammerverkum aldarinnar. Það var flutt í Bústaðakirkju 1 haust og nú aftur. Margt er það sem gefur verkinu aödráttarafl. Má þar nefna rómantískar aðstæður við samningu þess en höfund- urinn var þá fangi nasista. Þá hefur bókmenntalegur bakgrunnur verksins vakið athygh margra, enda er honum frábærlega vel lýst í tónhstinni. Síðast en ekki síst er þessi tónhst ákaflega faheg í sínum kröftuga einfaldleika. Messiaen notar skýrar línur og hreina Tónlist Finnur Torfi Stefánsson liti í þessu verki og hittir jafnan í mark. Sumir kaflam- ir verða að teljast hreinasta snihd og má þar nefna Lofsönginn th eilífðar Jesú sem leikinn er á selló og píanó. Flutningur verksins á þessum tónleikum var skemmthega ólíkur flutningi félaganna úr Ýmishópn- um í haust. Sums staðar mátti finna að nákvæmni hjá Tríói Reykjavíkur en það dró samt ekki úr þeirri hlýju og alúð sem einkenndi leik þess. Osmo Vanska sýndi að hann er snjall klarínettleikari og lék hann sinn part mjög fahega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.